Morgunblaðið - 29.10.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991
17
bendir allt til að konum í störfum
sem krefjast sérfræðiþekkingar og
eru jafnframt stjórnunar- eða
ábyrgðarstöður hafí fjölgað. Hvort
það er árangur jafnréttisáætlana
eða eðlileg þróun skal ósagt látið.
Uttekt sem Jafnréttisráð gerði fyr-
ir tveimur árum sýndi fram á auk-
inn hlut kvenna í stjórnunar- og
ábyrgðarstöðum hjá opinberum
stofnunum. Sú þróun var skýrð
með aukinni menntun kvenna.
Þó svo að endanlegar upplýs-
ingar liggi ekki fyrir er ljóst að
þau ráðuneyti sem settu sér það
markmið að auka hlut kvenna í
nefndum og ráðum og tilgreindu
leiðir til að ná því markmiði hafa
náð árangri umfram önnur. Þær
leiðir voru einkum tvær, annars
vegar svo kölluð tilnefningarleið
og hins vegar að minna tilnefning-
araðila á ákvæði 12. greinar laga
um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla. Sem dæmi um
slíkan árangur má nefna nefndir
á vegum landbúnaðarráðuneytisins
en þar hefur hlutur kvenna aukist
töluvert eða úr 3,8% í 10,2% á
árunum 1988-1990.
Að lokum
Forráðamenn alltof margra op-
inberra stofnana hafa ekki séð sér
fært að fylgja samþykktum jafn-
réttisáætlunum eftir með mark-
vissum hætti. Þetta kemur berlega
í ljós á viðbrögðum við beiðni Jafn-
réttisráðs um mat á stöðu mála.
Þá skiptir ekki alltaf máli hvort
jafnréttisáætlunin var vel og skipu-
lega unnin eða hvort hún var al-
menn viljayfirlýsing. Því er vert
að velta fyrir sér á hvern hátt
hægt er að tryggja að eftir slíkum
áætlunum/skuldbindingum verði
farið. Hvaða stöðu hafa þær og
hver á að fyigja þeim eftir. í þessu
sambandi má benda á að Finnar
hafa sett í reglugerð ákvæði um
gerð jafnréttisáætlana, hvernig að
þeim eigi að standa og hver eigi
að sjá um framkvæmd þeirra og
mat á árangri.
Samkvæmt lögum er ríkisstjórn
íslands gert að setja sér fram-
kvæmdaáætlun í jafnréttismálum
til fjögurra ára. Hún var lögð fram
af félagsmálaráðherra í lok síðasta
þings en vegna tímaskorts hlaut
hún ekki umræðu. Þar er lögð
áhersla á skyldur ráðherra og
ráðuneyta til að vinna að því að
jafna stöðu kvenna og karla, hver
á sínu sérsviði. Þar eru settar fram
tillögur að verkefnum fyrir ein-
staka ráðuneyti og/eða undirstofn-
anir þeirra. Þá er lagt til að jafn-
réttisáætianir einstakra stofnana
verði hluti af framkvæmdaáætlun-
inni. Samkvæmt nýsamþykktum
lögum um jafnan rétt og jafna
stöðu kvenna og karla á að leggja
framkvæmdaáætlun ríkisstjómar í
jafnréttismálum fram á Alþingi í
formi þingsályktunartillögu. Nú er
til athugunar í félagsmálaráðu-
neytinu að leggja áðurnefnda áætl-
un fram að nýju og þá í formi þing-
sályktunar. Slík meðferð hlýtur
óhjákvæmilega að gefa stefnuyfír-
lýsingu framkvæmdavaldsins
meira vægi og jafnframt leggja
þyngri skyldur á herðar bæði lög-
gjafar- og framkvæmdavalds. Á
þennan hátt munu sérstakar að-
gerðir eins og jafnréttisáætlanir
öðlast meira vægi og verða auð-
veldara að fylgja þeim eftir. Þá
verður hægt að gera kröfur um
framkvæmd og að farið verði eftir
því sem samþykkt hefur verið.
Því miður er það ekki alltaf rétt
að viðhorf til jafnstöðumála
kvenna og karla hafí breyst svo á
undanförnum árum að það þurfi
ekki lengur að vera með lagasetn-
ingar eða leggja á stofnanir, fyrir-
tæki eða einstaklinga skyldur með
lagasetningu. Það þarf enn að ýta
á eftir þróuninni og vinsamleg til-
mæli duga því miður ekki alltaf.
Höfundur er félagsfræðingur
Jafnréttisráðs.
Fyrsta ljóðabók Þórunn
ar Valdimarsdóttur
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hef-
ur gefið út bókina Fugla eftir
Þórunni Valdimarsdóttur. Þetta
er fyrsta ljóðabók hennar en
áður hafa birst eftir hana ljóð
í tímaritum og safnritum.
í ljóðabókinni Fuglum eru 34
ljóð og ljóðaflokkar. í kynningu
Forlagsins segir m.a.: „Hér eru
óljós skil milli manna, fugla og
tijáa, landið er líkami manna og
dýra, og efnakljúfurinn mikli —
dauðinn heldur utan um gang-
verkið. I kverinu er þetta sam-
hengi líkast trúarskynjun; mörkin
milli manns, dýra og lands eru
máð út og tíminn leystur upp.”
Fuglar er 62 bls. Essemm/Tóm-
as Hjálmarsson hannaði kápu, en
Þórunn Valdimarsdóttir
mynd á kápu er eftir skáldkonuna.
Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði.
AI.I. PURPQSfeGRINÍ
V'-
cÞ'
FYRST OG FREMST
SKAFTAHLlÐ 24 REYKJAVlK SlMI 697700
SPORTSCAB
FÆRIR I FLEST
REW CAB
bensín kr. 1.782.000
dísil kr. 1.875.000
Stgr.verð með ryðvörn og skráningu
,
magmF;-,
,
wmm
.....
í samvinnu við Bílabúð Benna
bjóðum við næstu daga
upphækkaða Isuzu bíla með
skemmtilegum sérbúnaði á
kr. 130.000
kynningarafslætti
ISUZU er hörkufínn jeppi, aflmikill
með fjórhjóladrifi, mjúkri fjöðrun
og einstaklega rúmgóðu og
vönduðu farþegarými.
Komdu strax og prófaðu gripinn
og finndu muninn.
Sérbúnaöur:
— 5" upphækkun
— Brettakantar úr gúmmíi
— Gangbrettl úr áli
— B.F. Goodrich 32" dekk
— 15x10" álfelgur
— Ljósabogi á topp með
2 Ijóskösturum
— Grind með 2 Ijóskösturum
að framan
— Slökkvitæki og sjúkrakassi
— Warn M6000 spil
Höfðabakka 9
s: 67 00 00 / 67 43 00