Morgunblaðið - 30.10.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.10.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B 247. tbl. 79. árg.________________________________MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1991_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Forseti Kazakhstans: Kjamavopnin heyra einnig undir okkur London. Reuter. NURSULTAN Nazarbajev, for- seti Kazakhstans, sagði í gær að stjórn sín vildi ráða yfir kjarnorkuvopnunum í lýðveld- inu ásamt miðstjórn Sovétríkj- anna. Yfirvöld í Úkraínu settu svipaðar kröfur fram í síðustu viku. Nazarbajev er nú í opinberri heimsókn í Bretlandi. „Kazakhstan Finnski fjármála- ráðherrann: Ríkisstarfs- menn allt of margir Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. IIRO Viinanen, fjármálaráð- herra Finnlands, segir í viðtali við dagblaðið Turun Sanomat að hann vifli fækka ríkisstarfs- mönnum um 200.000, eða um þriðjung. Finnsk launþegasam- tök brugðust ókvæða við þessari yfirlýsingu. Finnar búa við margfalt stjórn- kerfi sem er arfur frá því þjóðin var undir Rússakeisara. Pjármála- ráðherrann segir að einkum þurfi að draga úr skriffinnskunni en ekki megi fækka starfsfólki í heil- sugæslu og kennslu. Hann hefur ekki lagt til að opinberum starfs- mönnum verði sagt upp, en vill að nýtt starfsfólk verði ekki ráðið í stað þess sem fer á eftirlaun eða lætur af störfum af öðrum ástæð- um. Viinanen hefur að undanfömu átt í deilum við stéttarfélög ríkis- starfsmanna vegna áforma ríkis- stjómarinnar um að senda opin- bera starfsmenn í launalaust leyfi til að draga úr ríkisútgjöldum. ætlar sér ekki að verða kjamorku- veldi hvorki á heimsmælikvarða né í okkar heimshluta,” sagði hann í ræðu hjá Konunglegu bresku al- þjóðamálastofnuninni. En samt ætluðu stjómvöld í Kazakhstan ekki að afsala sér stjóm kjarnorku- vopnanna í hendur Rússum eða miðstjórninni. Sagði hann að lausn vandans fælist í því að ekki yrði hægt að beita kjarnavopnunum í lýðveldum Sovétríkjanna nema bæði miðstjórnin og lýðveldis- stjórnin ættu þar hlut að máli. Bókstaflega yrði um tvo lykla að ræða að stjórnbúnaðinum. Sagði hann þetta sambærilegt við stjórn- un bandarískra kjarnavopna í Evr- ópu. Jevgeníj Shaposníkov, vamar- málaráðherra Sovétríkjanna, sagði hins vegar í Moskvu í gær að kjarnavopnin yrðu áfram undir einni miðstjóm. Sagðist hann geta fullvissað menn um að engin hætta væri á að vopnin lentu í höndum öfgamanna. Reuter George Bush Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov forseti Sovét- ríkjanna heilsast á blaðamannafundi þeirra í Madrid í gær. Kom þar fram að á hádegisverðarfundi þeirra hefði aðstoð við Sovétríkin borið á góma en engin ákvörðun verið tekin. Bush hefði spurt mik- ið um ástandið í lýðveldum Sovétríkjanna og hefði Gorbatsjov sagt að Úkraína ætlaði að undirrita samkomulag um efnahagssamstarf. Fyrrum kommúnistar sigurvegarar í pólsku kosningunum: Lech Walesa vill verða for- sætisráðherra Varsjá. Reuter. LECH Walesa, forseti Póllands, sagði í gær í samtali við Reuters- fréttastofuna að réttast væri að hann gegndi embætti forsætis- ráðherra og stjórnaði landinu í kjölfar kosninganna á sunnu- dag. Þegar einungis átti eftir að telja örfá atkvæði í gærkvöld var Lýð- ræðisbandalag vinstrimanna, arf- taki kommúnista, komið fram úr aðalfylkingu Samstöðu, Lýðræðis- sambandinu, og útlit fyrir að það yrði því stærsti flokkur landsins. Ljóst er að atkvæði dreifðust svo mjög að 23 flokkar verða í neðri deild pólska þingsins og fékk eng- inn þeirra meira en 13% atkvæða. Það torveldar mjög stjómarmynd- un og sagði Walesa að eina færa leiðin væri sú að hann yrði forsæt- isráðherra. Síðan væru ýmsir möguleikar varðandi það hvaða flokkar yrðu í ríkisstjórn með for- setanum. Ráðstefna um frið í Miðausturiöndum hefst í Madrid í dag: Þvingum engan til sátta nærvera okkar er hvatning - sagði Bush Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi með Gorbatsjov Sovétforseta Madrid. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov forseti Sov- étrikjanna skoruðu í gær á þátt- takendur í ráðstefnu um frið í Miðausturlöndum sem hefst í Madrid í dag að láta ekki sögulegt tækifæri sér úr greipum ganga. Forsetarnir snæddu saman hádeg- isverð í gær og að honum Ioknum héldu þeir sameiginlegan blaða- mannafund. Gorbatsjov skoraði á þá sem komnir eru til ráðstefn- Öryggið í fyrirrúmi Madrid. Frá Ragnari Bragasyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SÉRSVEITIR lögreglu eru með mikinn öryggisviðbúnað í Madrid vegna ráðstefnunnar um frið í Miðausturlöndum, enda er þar margt þjóðarleiðtoga, auk samninga- og blaðamanna. Götulífíð í borginni er gjör- breytt. í stað digru lögregluþjón- anna, sem venjulega gera sitt besta til að greiða fyrir umferð um helstu gatnamót eru komnir vígalegir liðsmenn sérsveita, vopnaðir vél- byssum og klæddir skotheldum vestum. Spænska stjórnin pantaði öll herbergi í lúxushótelum borgarinn- ar um leið og gert var opinbert fyrir viku að ráðstefnan yrði hald- in í Madrid. Blaðamennimir sem fylgjast með ráðstefnunni eru flestir frá Spáni, eða 2.700, en næstir koma Bandaríkjamenn með 628, svo Bretar með 266. Banda- ríska sjónvarpsstöðin CNN ein er með 90 manns á staðnum. Sendinefndimar og fylgdarlið þeirra em einnig fjölmennar, til að mynda em samningamenn Jórdana og Palestínumanna 160 og Sýrlendinga 140. 10.000 lög- regluþjónum hefur verið falið að gæta 47 hótela, sem sendinefnd- irnar og blaðamennirnir hafa lagt undir sig, auk sendiráða og svo konungshallarinnar, þar sem ráð- stefnan fer fram. unnar að leggja sig alla fram um að vinna að friði, þeir skyldu „sýna ábyrgð í verki og djúpan skiln- ing.” Bush hafði þetta að segja: „Við erum ekki komnir hingað til að þvinga fram sættir, nærvera okkar er hvatning.” Gorbatsjov og Bush flytja ávörp í dag við setningu ráðstefnunnar en fyrsta lota hennar stendur í þrjá daga. Orð þeirra á blaðamannfund- inum í gær vom varfæmisleg. „Ég ætla ekki með ummælum mínum hér að gefa neinum átyllu til að hverfa á braut eða setja fram nýja skil- mála,” sagði Bush. Ráðstefnan er haldin í skugga átaka og hryðjuverka í ísrael og Suður-Líbanon undanfama tvo daga. Þrír ísraelskir hermenn og tveir óbreyttir borgarar hafa fallið. í gær- kvöldi var eldflaug skotið að banda- ríska sendiráðinu í Beirút í Líbanon. Engan sakaði. Talið er að árásum þessum sé ætlað að spilla friðarráð- stefnunni. Auk þess hafa borist óstaðfestar fregnir um mannfall í búðum Palestínumanna í Líbanon eftir árásir Israela. Bush Bandaríkja- forseti fordæmdi ofbeldisverkin í gær og sagði að þau ættu að verða mönn- um hvatning til að stuðla að árangri í Madrid. Við komuna til Spánar í gær sagði Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels: „Þessar viðræður verða ekki auðveldar en þær era grundvöllur undir traustan og varanlega frið. En til em þeir sem eru ekki gagnteknir friðarástríðu heldur blóðþorsta.” Yitzhíik Shamir, forsætisráð- herra Israels, með ráðgjafa sín- um á leið til Madrid. Hann bætti því við að sumir kynnu að hafa búist við að ísraelar myndu hætta við þátttöku eftir árásir skær- uliða á ísraelska borgara undanfarna daga. „En þrátt fyrir ofbeldið, stefn- um við ótrauðir að friði.” Hanan Ashrawi, talsmaður pale- stínsku sendinefndarinnar í Madrid, sagði að yfirlýsingar ísraelskra ráða- manna um að öll mál mætti ræða á ráðstefnunni vektu vonir um sátta- vilja þeirra. „Ég held að þetta sé merki um meiri sveigjanleika og vilja til að friðarferlið þróist í rétta átt,” sagði hún. Hún vísaði þvíá bug að hún hefði á nokkurn hátt hvatt til ofbeldisverka á hernumdu svæðun- um eins og ísraelski varnarmálaráð- Hanan Ashrawi, talsmaður pal- estínsku sendinefndarinnar, að loknum fréttamannafundi í gær. herrann hélt fram í gær. Hún sagði ennfremur að Bandaríkjamenn væru mjög hógværir þegar þeir segðust ekki ætla að þvinga fram lausn mála. Sagði hún að í raun yrði ekki hægt að ná friði nema með alþjóðlegri aðstoð. Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínu (PLO), hvatti í gær alla Palestínumenn til að standa við bakið á fulltrúunum í Madrid. Ekki ætti að leyfa öfgahópum hlið- hollum írönum að spilla ráðstefn- unni. Arafat er staddur í Túnis enda á PLO ekki fulltrúa á ráðstefnunni. Sjá fréttir á bls. 20-21 og grein á miðopnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.