Morgunblaðið - 22.12.1991, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.12.1991, Blaðsíða 39
39 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1991 Helga Halldors- dóttír frá Dagverðará ará. Bærinn líktist einna helst stóru barnaheimili og má nærri geta að vistir voru stundum af skornum skammti og þröngt setinn bekkur- inn, en það kom ekki að sök því hjartarými var nóg og ástin var næg. Helga var á undan sinni samtíð í uppeldismálum að mörgu leyti. Hún trúði ekki á beitingu valds, vildi aldrei slá barn, sagði að hægt væri að fá öll börn til þess að hlýða með því einu að tala við þau og útskýra hvers vegna eitthvað mætti ekki og umfram allt hlusta á þau og sýna þeim virðingu. Gefa þeim tíma. Guðstrú lagði hún mikla áherslu á, kenndi börnum sínum bænir og góða siði. Biblíuna las hún mikið, kunni hana nánast utan að og ígrundaði þýðingu boðskaparins. Trú hennar var heit en ekki kreddu- full. Hún velti eilífðarmálunum mik- ið fyrir sér og því hver — eða hvað Guð væri. Aldrei efaðist hún þó um tilvist hans. Þessi erindi eru úr ljóði sem hún orti: Hver ert þú, Guð, svo ótalmargur spyr og eins spyr eg, með barnsins hug eg bíð við opnar dyr að bænarveg. Þá bregður ljóma yfir sálarsýn mér svarar Jesús Kristur æfin þín. Þú, Guð, ert upphaf tíma, lífs og ljóss í ljóma þeim vex sérhver efling andans sigurhróss í alheimsgeim. Þú, Guð, ert aflgjöf hverri særðri sál, er sendir til þín einlægt bænarmál. A æskuárum mínum, er ég eyddi sumrunum að Malarrifi, hitti ég Helgu oft, því talsverður samgang- ur var á milli bæjanna tveggja. En svo skildu leiðir og í mörg ár sá ég hana ekki. Oft heyrði ég þó minnst á hana þegar Snæfellsnes bar á góma eða þegar Þórður bróð- ir hennar kom í heimsókn til föður míns og var þá svo, að í hvert sinn sem einhver sagði; Helga frá Dag- verðará, sá ég fyrir mér feitlagna, góðlega konu og fullan disk af pönnukökum. Það var svo fyrir um það bil 10 árum eða svo, þegar endurnýjuðust kynni mín við elstu dóttur hennar, Rósu, að við hittumst aftur. Helga bjó hjá Rósu í Kópavoginum eftir lát manns síns og naut hjá henni bestu umönnunar og ástar þar til yfir lauk. Og nú fékk ég að kynn- ast Helgu sjálfri, konunni á bak við pönnukökurnar, og er ég þakklát fyrir það. Helga var greind ög skemmtileg, kunni ógrynni af sög- um og ljóðum og ekki var minni hennar síðra en hins fræga bróður hennar, Þórðar refaskyttu. Mörj dægrin sat ég hjá henni og hlustaði með athygli á hana segja frá. Helga skrifaði bók, sem út kom fyrir jólin árið 1986, er hún nefndi „Öll eram við menn“, þar rifjar hún upp sögur af förufólki á Snæfells- nesi fyrir og um síðustu aldamót. Hún skrifaði hana að mestu eftir minni en eitthvað hafði hún þó punktað niður hjá sér áður. Þegar hér var komið var sjónin farin að gefa sig, þ.e.a.s. þegar líða tók á dag, og þess vegna lagði hún á sig að fara á fætur kl. 5.00 á. morgn- ana og skrifa meðan augun voru óþreytt og hugsunin skýr, — svona var nú viljinn sterkur. Hún sagði mér oft söguna (sem reyndar er í ofannefndri bók) af því, þegar Símon Dalaskáld orti um hana 4 vísur, Helga var þá fjögurra ára, en síðasta vísan er svona: Þessi báru hreina hrund hrundum af mun bera. Freyjutára falleg grund finnst mér engill vera. Þetta þótti Helgu oflof sem um munaði og brást hin versta við. Engill var hún ekki, svo mikið var víst, hún sem alltaf var að gera eitthvað af sér, hluti sem enginn engill mundi gera. Maðurinn hlaut að vera að skopast að henni. Það má vel vera að hún hafi ekki verið neinn engill og kannski eins gott. Eg er ekki viss um að hún hefði verið eins skemmtileg ef hún hefði verið engli líkari en raun bar vitni, en sem mannvera var hún góð og elskurík. Helga hafði einhverja minnimátt- arkennd vegna útlits síns, henni fannst hún ekki falleg og það fór í taugarnar á henni að hún skyldi vera ljóshærð. Þórður hafði, framan af ævi, blásvart hár og það fannst Steinunn B. Ingimars- dóttir - Kveðjuorð Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri blómaverkstæði »INNA Skólavörðustíg 12 á horni Bergstaðastrætis sími19090 Fædd 18. júní 1903 Dáin 13. desember 1991 Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, 43uð þér nú fylgi, haps dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) A morgun, ÞorláksmessU, verður til moldar borin vinkona mín Helga Halldórsdóttir frá Dagverðará. Var hún á áttugasta og níunda ári er hún lést og búin að vera mjög veik. Það er nú svo með dauðann, að jafnvel þótt við höfum búist við honum um nokkurn tíma og þó svo okkur finnist heimsókn hans til aldraðs fólks sjálfsögð og eðlileg, tekst honum alltaf að koma okkur á óvart og söknuður fyllir hugann, minningar hrannast upp. Ég man fyrst eftir Helgu þegar ég sem krakki var í sveit' að Malarrifi, næsta bæ við Dagverðará, en þá var ég eitt sinn sem oftar send eft- ir hestunum. Þeir höfðu farið suður undir Dagverðará og blandast sam- an við hestana þaðan og gat ég með engu móti skilið okkar hesta frá þeirra. Þótti mér þetta hin mesta skömm og fór heldur niðurlút heim að Dagverðará og' bað um aðstoð. Helga tók á móti mér, sagði mér að koma inn og þyggja góðgjörðir en hún myndi senda emhvern strák- inn eftir hestunum. Ég settist við eldhúsborðið hjá henni og úðaði í mig nýbökuðum pönnukökum og drakk volga nýmjólk með. Á meðan ég nærði mig, spurði hún frétta frá Malarrifi og einnig frá Reykjavík. Ég man enn hvað mér leið vel þarna hjá henni og hve ég fann til mín, þarna var fullorðin kona er talaði við mig, krakkann, sem jafningja og ég óx heil ósköp í augum sjálfr- ar mín og hætti að þykja minnkun að því að hafa ekki náð hestunum, það var hvort sem var strákavinna, — hún Helga sagði það. Helga fæddist að Haga í Staðar- sveit þann 18. júní 1903. Foreldrar hennar voru hjónin Ingiríður Bjarnadóttir og Halldór Jónsson. Bróður eignaðíst Helga tveggja ára gömul,_ Þórð, og lifir hann systur sína. Arið| 1929 giftist hún Hall- grími Ólafssyni frá Sogni í Ölfusi (d. ’81) og hófu þau búskap að Dagverðará í Breiðuvíkurhreppi, Snæfellsnesi, og bjuggu þar meðan bæði lifðu. Éignuðust þau 7 börn; Gunnlaug (d. ’89), Halldór, Stefán, Ingu Rósu, Jónas, Elínu og Aðal- heiði. Þijú stjúpbörn átti Helga: Jónas (d. 1936) og Lilju Hallgríms- börn og auk heldur tvær fósturdæt- ur, þær Guðbjörgu og Svölu. Fleiri börn áttu lengri eða skemmri við- dvöl að Dagverðará því faðmur Helgu stóð öllum börnúm opinn. Já, oft var því glatt á hjalla að Dagverð- Fædd 9. október 1916 Dáin 11. desember 1991 Ég átti eina frænku þegar ég var barn. Hún hét Steinunn Birna og ég undi því illa þegar hún sagði mér einu sinni að systur hennar væru líka frænkur mínar, meira að segja jafn miklar frænkur mínar og hún. Heimili hennar og Sigga á Vegamót- um, en Sigga kallaði ég líka frænda, en annað heimili mitt í bernskuminn- ingum mínum. Þar var mér alltaf vel tekið, lesið fyrir mig á kvöldin og ég skammaður þegar ég átti það skilið. Ekkert fannst mér sjálfsagð- ara. Ég hef sennilega ekki verið nema fimm ára þegar ég rak einu sinni augun í merkilegan hlut í stofunni hjá afa og ömmu, var gáttuð á ósvífninni í mér þegar ég bað ömmu um að gefa mér loftvogina hans afa, eða barómetið eins og hún var kölluð. Amma sagði svo sem ekki mikið en Birna sagði það dónaskap að heimta eitthvað sem ég ætti ekki og hafði um það mörg orð. Löngu seinna, eftir andlát afa, var mér sagt að hann hefði ánafnað mér barmótinu. Þá rifjaðist upp fyrir mér að þegar við Birna vorum að ganga inná Vegamót eftir heimsóknina til ömmu að hún sagði mér að ég ætti örugglega eftir að eignast það seinna. Eg tók gleði mína á ný, enda sagði Birna frænka aldrei ósatt. Hún annaðist afa til hins síðasta og ákvað líklega að barómetið færi til mín, því ég minnist þess ekki að hafa nokkru sinni þorað að láta í ljós áhuga á því við afa, eftir að hún kenndi mér að ekki væri sjálfsagt að fá gefið allt sem mig langaði í. Blessuð sé minning hennar. Ingimar Ingimarsson 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld tíl kl. 22,- elnnlg um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. henni fallegt. Helgu fór, eins og svo mörgum öðrum, að hún sá ekki sjálfa sig eins og hún raunverulega var. Hún var fríðleikskona, björt yfirlitum með skínandi blá augu sem lýstu djúphygli og blíðu. Það mætti halda, af ofantöldu, að líf hennar hafi liðið við lestur bóka og ljóða og hlátrasköll barna eingöngu, en svo var ekki. Um hana geisuðu oft stormar og sorgin sótti hana heim sem aðra. En Helga var að mörgu leyti mjög merkileg kona. Hún var draumspök og næm og vissi oft óorðna hluti. Sem öldruð kona varð hún fyrir þeirri sáru reynslu að missa elsta son sinn, Gunnlaug. Hann lést á laugardegi og þegar fregnin barst um kvöldið ákvað Rósa að bíða með að segja móður sinni frá því þar til um morguninn, til þess að spilla ekki nætursvefni hennar. Allir kviðu ósköpin öll fyrir því að þurfa að færa gömlu konunni þessi sorg- artíðindi, en þegar hún var komin á ról morguninn eftir sagði hún: „Það er undarlegt, en mig dreymdi hann Lauga minn í alla nótt. Mér bókstaflega fannst hann koma til mín og leggjast fyrir hjá mér.“ — Láti hans tók hún með æðruleysi. Enn einu sinni sannaðist vissa hennar fyrir visku Alföður og ró sinni hélt hún þó að höggið væri þungt. Já, trúin hjálpaði henni oft, en Guð hafði líka fært henni í vögg- ugjöf einstaklega létt skap, skop- skyn og bjartsýni. Síðustu misserin voru henni erfið á stundum, heilsan var að bila og fætur hennar, sem aldrei voru fullkomlega góðir, neit- uðu næstum að bera hana, svo bólgnir voru þeir orðnir. Oft þurfti hún að gista sjúkrahús, var stund- um flutt þangað upp á líf og dauða, en lífsviljinn var mikill og alltaf reis hún upp og komst heim aftur. Heima vildi hún helst vera og henni lánaðist þáð þangað til undir það allra síðasta. Kátust var hún þegar sem flest hennar fólk var í kringum hana, börn hennar, barnabörn og barnabarnabörn, en öll veittu þau henni ómælda gleði. Þó tók fyrst kólfinn úr þegar Þórður bróðir hennar kom í heimsókn og bættist í hópinn, þá var nú fjör. Frásagnar- gleði beggja" reis upp í hæstu hæð- ir og töluðu þau þá gjarnan hvort upp í annað þegar best lét. Sannar- lega var oft gaman, þessi systkin varðveittu bæði barnið í hjarta sér og töldu lán sitt vera að mega njóta samvista við sína nánustu, skítt með allan veraldarauð og annan hégóma. Síðustu skiptin sem ég sá Helgu, notaði hún staf. Hún skyldi standa upprétt meðan stætt var, ekki sétf- aði hún að leggjast í kör. Þegar ég kom til hennar, kom hún höktandi við stafinn á móti mér og þegar hún hafði kysst mig og boðið mig velkomna, sagði hún brosandi: „Ég er ekta stafkerling. Annars er ekk- ert að mér nema fæturnir, en svo er Guði fyrir að þakka að ’hendurn- ar eru í lagi. Ég get ennþá pijónað og sjónin er góð.“ Svo hló hún, bauð mér sæti, settist hjá mér og bætti við: „Jæja, ég hætti við að deyja, Guð ætlar mér eitthvað meira.“ — Svo fór hún að segja frá og enn eina notalega stund gaf hún mér. Nú er hún Helga mín farin.Jui nýrra heimkynna, til fundar við Guð sinn, er hún studdist við gegnum jarðvistina. Ég kveð hana með þakklæti fyrir að hafa fengið að vera henni samferða smáspöl og bið henni blessunar Guðs á nýjum leiðum. Ég bið Guð að gefa ástvinum hennar styrk. Megi ljóssins hátíð færa ykkur öllum frið. Anna Herskind t RAGNAR H. JÓHANNESSON bifreiðastjóri, Strandgötu 37, Hafnarfirði, lést þann 18. desember síðastliðinn. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þann 27. desember kl. 13.30. Jónína Ragnarsdóttir, Guðmundur Bryde. t Þakka auðsýnda samúð og stuðning við andlát og útför móður minnar, EDITH CLAUSEN. Innilegustu þakkir til Hrafnistu i Reykjavík og starfsfólks á F-2. Elísabeth Ciausen og fjölskylda. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR ÓFEIGSSONAR, Gnoðarvogi 34, Reykjavík. Aðalheiður Þóroddsdóttir, Hólmfríður Davíðsdóttir, Ófeigur Sigurðsson, Þórey Sigurðardóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Svanhildur Sigurðardóttir, Auður Margrét Sigurðardóttir, og barnabörn. Fritz Bjarnason, Jónína M. Þórðardóttir, Hafliði Sævaldsson, Grétar Óskarsson, Borgþór Yngvason, Magnús Magnússon, + Þökkum innilega sýnda samúð við andlát og útför STEINGRÍMS MAGNÚSSONAR fyrrverandi fiskkaupmanns. Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Skjóli. Sigríður Vilborg Einarsdóttir, Agústa Steingrímsdóttir, Magnús Steingrimsson, Kristinn Einar Steingrímsson, Guðlaug Steingrímsdóttir, Ingirfður Steingrímsdóttir, Steingrímur Steingrímsson, Kristjana Steingrímsdóttir, Auður Steingrímsdóttir, Örn Helgi Steingrímsson, barnabörn og barnabarnabörn. Magnús Sigurjónsson, Sigriður Meyvantsdóttir, Joyce Steingrímsson, Gunnar Þórsson, Hrund Káradóttir, Gústaf Þ. Tryggvason, Alice Nilsen,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.