Morgunblaðið - 22.02.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.02.1992, Blaðsíða 1
 MENNING LISTIR B PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 22. FEBRUAR 1992 BLAÐ Kjarvalsstaöir: MÁLVERK JÓHÖNNU KRISTÍNAR YFIRLITSSÝNING á verkum listakonunnar Jóhönnu Kristínar Yngva- dóttur (1953-1991) verður opnuð á Kjarvalsstööum í dag. Þegar Jóhanna Kristín lést í mars síðastliðnum, aðeins 37 ára að aldri, var að baki stuttur en engu að síður glæsilegur ferill helgaður myndlistinni. Verkin á sýningunni eru í eigu salna og einkaaðila. Igrein um listakonuna í sýning- arskránni segir Kristín Guðnadóttir að í íslenskri list- asögu skipi Jóhanna Kristín veg- legan sess sem fulltrúi hins fígúra- tíva expressjónisma. í verkum sín- um notaði hún jafnt ytri sem innri raunveruleika sem hráefni til miðl- unar djúpstæðra tilfinninga og sá hugmyndaheimur, er birtist á lér- efti hennar, var oft all nöturlegur. Dýpt og einlægni í túlkun ein- kenna verk hennar, sem eru máluð af öryggi og krafti. Hún skapaði af sannfæringarkrafti áleitin verk sem vekja erfiðar spurningar, sem sumum hverjum verður seint svar- að. Jóhanna Kristín nam yið Myndl- ista- og handíðaskóla íslands á árunum 1972 til 1976, og var við framhaldsnám í borgunum Haag og Amsterdam í Hollandi til ársins 1980. Hún hélt fimm einkasýning- ar; fjórar í Reykjavík og eina á Grænlandi, og átti verk á fjölda samsýninga á síðasta áratug, hér heima og erlendis. Þrátt fyrir að á mótunar- og námsárum Jóhönnu Kristínar væri hugmyndalistin hvað mest áber- andi, þá átti málverkið ætíð hug hennar. Hún leitaði á mið til- finninganna og sá tjáningarmáti sem hentaði henni best var fígúra- tívur expressjónismi, og einkenn- ast myndir hennar af einlægri tjáningu sprottinni úr persónulegri upplifun. Fyrsta einkasýning Jóhönnu Kristínar var í Nýlistasafninu vor- ið 1983 og hlaut hún mjög góðar viðtökur. Valtýr Pétursson skrifaði um hana í Morgunblaðið undir fyrirsögninni Merkileg sýning. „Þarna kemur fram málari af þeirri stærðargráðu, að furðu sæt- ir, og er maður svo fær að vita, að tæplega þrítug manneskja er þarna að verki, verður dæmið enn skemmtilegra ... en með þessari sýningu sem á voru aðeins 12 olíu- málverk, haslar hún sér svo sann- arlega völl og það í fremstu víglínu ungra listamanna hérlendis.“ Myndefni Jóhönnu Kristínar var fólk, og frekar konur og böm en karlmenn. í viðtali í Þjóðviljanum 20. maí 1984 segir hún: „Ég mála persónur en ekki portrett endilega. Fólk inspírerar mig, einkum börn. Stundum fæ ég þau til að sitja fyrir ... Oftast mála ég þó upp úr sjálfri mér, eitthvað sem hefur snert mig persónulega, minningar eða fólk sem er mér náið.“ Á áranum 1983 og 84 var þátt- taka Jóhönnu Kristínar í sýninga- haldi hvað mest, og umsagnir gagnrýnenda héldu áfram að vera góðar. Þannig skrifaði Halldór Björn Runólfsson í Þjóðviljann 19. maí 1984 um sýningu hennar í Listmunahúsinu: „Hér er á ferð óvenju sterk sýning full af ein- kennum þess besta sem fínna má í málaralist samtímans." í sýningarskrá árið eftir dregur Jóhann Kristín síðan upp þessa sjálfsmynd í texta: „Jóhanna Kristín Yngvadóttir er þijátíu og eins árs Reykvíkingur ... Unir sér ein. Feimin. Ætlaði alltaf að verða listakona. Helst leikkona. Hélt á vit þagnarinnar. Litanna ... Hún segir aldrei frá því sem henni ligg- ur á hjarta. Samt liggur henni mikið á hjarta ...“ -efi Jóhanna Kristín Yngvadóttir Við mynd sína Messalínu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.