Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 22
22 f;PPI 'Ííf'T/. .ní* HTJOAdJlAD’JA.T nfflA.TfTHODflOM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992 90 ára afmæli Nóbelsskáldsins haldið hátíðlegt: Ómetanleg forrétt- indi að hafa verið Hall- dóri Laxness samtíða - segir Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri Auður og Halldór Laxness taka á móti göngufólkinu. Auður heldur um frænku sína Fríðu Sigríði Jóhannsdóttur. Fyrir aftan hjónin má greina Guðnýju Halldórsdóttur, dóttur skáldsins. Hátíðarhöld í tilefni af 90 ára afmæli nóbelsverðlaunaskáldsins Ilalldórs Laxness hófust með heiðursgöngu Rithöfundasambands íslands og Bandalags íslenskra listamanna að Gljúfrasteini snemma á afmælisdaginn, sem bar upp á sumardaginn fyrsta. Síðdegis var leikrit Halldórs, Straumrof, leiklesið í Þjóðleikhúskjallaranum og um kvöldið var efnt til hátíðardagskrár honum til heiðurs á fjölum hússins. Við það tækifæri tilkynnti Ólafur G. Einarsson, menntamála- ráðherra, að ákveðið hefði verið að efna til árlegra bókmenntaverð- launa og kenna við Halldór Laxness. Áætlað er að verðlaunin verði fyrst veitt síðla árs 1993. Skáldið hyllt Fimm strætisvagnar fiuttu þátt- takendur í heiðursgöngu Halldórs Laxness upp í Mosfellssveit snemma á afmælisdaginn. Vögnun- um var lagt hjá Laxnesi og þaðan gekk fólkið upp að Gljúfrasteini, heimili skáldsins, með borða þar sem á voru letruð nöfn skáldsagna Halldórs. Á tröppum hússins tóku skáldið, fjölskylda hans og vinir, á móti fólkinu og hlýddi á söng Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð undir stjóm Þorgerðar Ingólfsdóttur. Hjálmar H. Ragnarsson, tón- skáld, bar fram þakkir til skáldsins. „Við erum hér saman komin til þess að samfagna þér á þessum merkisdegi. Við þökkum þér þær ótal ánægjustundir sem við höfum haft við lestur bóka þinna. Við þökkum þér þær dýrmætu gjafir sem þú hefur gefið íslensku þjóð- inni. Megi gæfa og heill fylgja þér og fjölskyldu þinni," sagði Hjálmar og hrópað var ferfalt húrra fyrir skáldinu. Háskóli íslensku þjóðarinnar Gestir tóku að flykkjast að Þjóð- leikhúsinu uppúr kl. 19.30 að kvöldi afmælisdagsins til þess að fylgjast með uppákomum leikara í anddyri hússins áður en hátíðardagskráin hæfist kl. 20.15. Stefán Baldursson, þjóðleikhússtjóri, bauð gesti vel- komna og vék orðum sínum að mikilvægi verka Halldórs fyrir ís- lensku þjóðina. „Enginn núlifandi íslendingur hefur haft jafn sterk áhrif á líf okkar á þessari öld og Halldór Laxness. Andspænis slíku ofurmenni og afburðaskáldi verður okkur orða vant. Verk hans eru viskubrunnar, sagnasnilld, skemmtiveisla. Hann er háskóli ís- lensku þjóðarinnar og það verður enginn samur og jafn sem gengið hefur í þann skóla. Það eru ómetan- leg forréttindi að hafa verið honum samtíða en það er jafnframt ábyrgðarhluti okkar að varðveita fjársjóði hans handa komandi kyn- slóð,“ sagði Stefán. Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness Ólafur G. Einarsson, mennta- málaráðherra, sagði frá nýjum bók- menntaverðlaunum. „í tilefni af ní- ræðisafmæli Halldórs Laxness er mér mikil ánægja að tilkynna, hér og nú, að ég hef ákveðið í samráði Morgunblaðið/KGA Rúmlega 300 manns, böm og fullorðnir, tóku þátt í göngu til heiðurs Halldóri Laxness, rithöfundi, á sumardaginn fyrsta. við þau hjón, Auði og Halldór Lax- ness, og Ölaf Ragnarsson, forstjóra Vöku-Helgafells, að efnt verði ár- lega til verðlaunasamkeppni um skáldverk og þessi samkeppni verði tengd nafni Laxness, Bókmennta- verðlaun Halldórs Laxness. Að þessu munu standa í sameiningu menntamálaráðuneytið og bókafor- lagið Vaka-Helgafell. Samkeppnin mun vérða opin öllum íslendingum til þátttöku. Skilafrestur á handrit- um að óútgefnu skáldverki verði fyrri hluta árs. Verðlaun tilkynnt og veitt að hausti og skáldverkið gefið þá út í fyrsta sinn árið 1993. Nánari reglur verða settar á næst- unni én sérstök dómnefnd skipuð fulltrúum ráðuneytisins, Rithöf- undasambands íslands og bókafor- lagsins Vöku-Helgafells, mun velja skáldsöguna sem hlýtur Bók- menntaverðlaun Halldórs Laxness hveiju sinni. Það er einlæg von mín að Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness megi verða til þess að ungir og óþekktir höfundar finni hjá sér hvatningu til þess að spreyta sig við sagnasmíði. Ríkisstjórn íslands vottar skáld- inu Halldóri Laxnesi virðingu og þökk. Ævistarf Halldórs Laxness verður okkur stöðug áminning um Jacqueline Délia útgefandi Svartfugls í Frakklandi: Bókin ólík frönskum sögum en fellur Frökkum vel í geð Útgáfa fleiri íslenskra bóka undirbúin FÁI skáldsagan Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson góðar viðtök- ur I Frakklandi hefur franska bókaforlagið Arléa hug á að gefa út fleiri bækur eftir Gunnar og fleiri íslenska rithöfunda. Útgáfa á Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson er þegar í undirbúningi hjá Arléa. Svartfugl kom út í Frakklandi í byijun þessa mánaðar í þýðingu J. Dorende endurskoðaðri af Gér- ard Lemarguis og Maríu Gunnars- dóttur. Bókin er í sérstökum bóka- flokki sem nefnist „L’Étrangere" en í þeim flokki eru meðal annars verk eftir Norman Mailer, Lao She, Mark Twain og Evelyn Waugh. Útgáfustjóri bókaflokks- ins, Jacqueline Délia, er nú stödd á íslandi ásamt nokkrum frönsk- um blaðamönnum og munu þau meðal annars ferðast um sögu- slóðir Svartfugls, en sagan byggir á gömlu brotamáli kenndu við Sjöundá í Rauðasandshreppi. „Ég hlustaði á útvarpsþátt um bókmenntir þar sem minnst var á Norðurlönd, þar á meðal íslar.d," sagði Jacqueline Délia við Morg- unblaðið. „Blaðamaðurinn lét svo um mælt að íslendingar ættu mjög frægan rithöfund sem allir ættu að þekkja, og átti þá við Halldór Laxness, en að hans dómi væri annar íslenskur rithöfundur engu síðri, Gunnar Gunnarsson, sem aldrei hefði verið gefínn út í Frakklandi og því óþekktur þar. Þetta var raunar ekki rétt því nokkrar bækur hans voru gefnar út í Frakklandi fyrir hálfri öld. Ég ákvað að hafa upp á þessum rithöfundi og það reyndist ekki auðvelt. Loks fann ég á bókasafni bækur Gunnars sem höfðu verið þýddar og las þær. Og sú sem höfðaði mest til mín var Svartfugl því hún var jivorttveggja í senn framandleg og gaf góða og áhugaverða mynd af íslandi, og altæk því allir geta skilið söguper- sónurnar og sett sig í spor þeirra,“ sagði Délia. Hún sagði að eftir að ákvörðun hefði verið tekin um að gefa út bók eftir Gunnar hefði Svartfugl verið auðvelt val. „Vandinn við að gefa út erlendar bókmenntir er að finna skáldsögur sem eru mjög ólíkar frönskum en geta um leið fallið frönskum lesendum í geð, og þessi bók virtist vera ein þeirra," sagði Délia. Délia sagði að talsverður áhugi væri á Norðurlandabókmennum, þar á meðal íslenskum, í Frakk- andi, og nýleg þýðing á bók eftir Thor Vilhjálmsson hefði selst ágætlega. Þá væru bækur Hall- dórs Laxness gefnar út þar. Délia sagðist vona að 2.000-2.500 ein- tök að minnsta kosti seldust af Svartfugli í Frakklandi og næðist Morgunblaðið/Emilía Jacqueline Délia útgefandi L’Oiseau Nour eða Svartfugls eftir Gunnar Gunnarsson. það markmið yrði útgáfu á verk- um Gunnars Gunnarssonar og jafnvel fleiri íslenskra rithöfunda haldið áfram. Svartfugl kom fyrst út í Frakk- landi árið 1947 í þýðingu J. Do- rende undir nafninu L’Oiseau Noir. Áður hafði Fjallkirkjan kom- ið út á frönsku í þremur bindum. Borgarráð: Svæðissljórn fatlaðra fær lóð við Tindasel BORGARRÁÐ hefur samþykkt að úthluta Svæðissljórn um mál- efni fatlaðra í Reykjavík lóð und- ir tvíbýlishús fyrir sambýli fatl- aðra við Tindasel 1, í Breiðholti. Fram kemur í erindi skrifstofu- stjóra borgarverkfræðings til borg- arráðs, að áætluð stærð hússins er 270 fermetrar og er athygli vakin á því, að stærð lóðarinnar og lega getur breyst. Hönnun húsa á lóð- inni skal unnin í samráði við Borg- arskipulag Reykjavíkur. Lóðin er þegar byggingarhæf og miðast allir frestir samkvæmt almennum skipu- lagsskilmálum við dagsetningu út- hlutunarinnar. -----» ♦ ♦--- Andrésönd og* Guffi á íslandi Andrés önd og Guffí komu til Reykjavíkur í gær frá Akureyri, þar sem þeir voru við Andrésar andar- leikana og afhentu verðlaun. í dag heimsækja þeir Barnaspítala Hringsins kl. 11 og verða síðan í Kringlunni klukkan 13 og 14 og í Miklagarði klukkan 15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.