Morgunblaðið - 25.04.1992, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992
ÍÞRÚmR
FOLK
■ SIGURÐUR Jónsson hefur
gengið frá félagaskiptum sínum frá
Arsenal til Akraness. Sigurður
lék með ÍA gegn Selfossi í Litlu-
bikarkeppninni á sumardaginn
fyrsta. Hann verður orðinn löglegur
þegar Skagamenn leika sinn fyrsta
leik í 1. deild - gegn KR í Frosta-
skjóli.
■ JAKOB Jónsson og félagar
hans hjá Víking náðu ekki að kom-
>-ast í úrslitaleikina un Noregsmeist-
aratitilinn í handknattleik í gær-
kvöldi. Þeir töpuðu stórt, 22:34,
fyrir SIF Stavanger. Jakob skor-
aði flögur mörk. SIF Stavanger
og Runar leika til úrslita.
■ ARNLJÓTUR Davíðsson, sem
lék með Eyjamönnum í 1. deild í
. knattspyrnu sl. keppnistímabil, hef-
! ur gengið til liðs við Valsmenn.
■ GARY Lineker hefur verið út-
nefndur knattspyrnumaður ársins í
1 Englandi 1992.
■ LEIKMENN landsliðs Þýska-
lands fá 2,9 millj. ísl. kr. ef þeir
vinna Everópukeppni landsliða í
Svíþjóð í sumar, en þess má geta
að hver leikmaður þýska liðsins
' 7^íengu 4,5 millj. fyrir að verða
heimsmeistarar á Ítalíu 1990.
Leikmennirnir fá 2,2 millj, fyrir
að komast í úrslitaleikinn í Sví-
þjóð, en 1,5 millj. fyrir að komast
í undanúrslit.
■ PETER van Vossen, 24 ára
landsliðsmaður Hollands, sem leik-
ur með Beveren, skrifaði undir
þriggja ára samning við And-
erlecht í gær.
■ STEFAN Effenberg, miðvall-
; arspilari hjá Bayem Miinchen, er
I 3*á leið til Italíu og hefur hann nú
: þegar rætt við forráðamenn Firont-
ína. Hann er 23 ára.
I RUDI VöIIer, miðhgerji Róma,
mun taka við fyrirliðastöðu Lothar
Matthaus hjá þýska landsliðinu,
• en Matthaus meiddist á dögunum
og var skorinn upp. Liðbönd í hné
slitnuðu. Hann verður frá keppni í
átta mánuði.
Um helgina
HANDKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni kvenna:
í dag kl. 16 leika Stjaman ogVfking-
ur fimmta úrslitaleikinn um Islands-
meistaratitilinn í handknattleik
kvenna.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Körfuknattleikshátíð verður í Njarð-
vík í dag í tilefni 50 ára afmælis
Njarðvikurbæjar. Hátíðin hefst kl.
14 með þriggja stiga skotkeppni og
troðslukeppni. Kl. 16 leikur Njarð-
víkurliðið gegn Iandsliðinu. Valur
Irigimundarson leikur með sinum
gömlu félögum hjá Njarðvík. I leik-
hléi verða úrslit í skot- og troðslu-_
keppninni.
GOLF
Fyrsta opna golfmótið verður haldið
hjá Golfldúbbunum Keili í dag kl.
9. Mótið er 25. ára afmælismót GK.
Keppnisfyrirkomulag verður 7/8 sta-
belford.
KEILA
Félagakeppni úrvalsliða keilufélag-
anna verður haldið í Keiluhöllinni í
Öskjuhlíð í dag og hefst kl. 10 árdeg-
is. I kvöld er síðan laugardagsmót
og þar eru allir velkomnir. Mótið
hefst kl. 20.
KVONDO
Kvondo-mót verður haldið í íþrótta-
húsinu við Strandgötu í Hafnarfirði
í dag og hefst kl 12. Kvondo er sjálf-
svamarlist sem nýlega er farið að
keppa í hér á landi.
FIMLEIKAR
Unglingameistaramótið í fimleik-
um fer fram í Laugardalshöllinni í
dag og hefst kl. 11.
KNATTSPYRNA
Tveir leikir verða leiknir í Tactic-
mótinu á Akureyri í dag. KA - Tinda-
stóll kl. 13 á KA-velli og Þór - Leift-
ur kl. 16 á Þórsvelli. Á morgun leika
Leiftur - Tindastóll kl. 13 á Þór-
svelli og KA - Þór kl. 16 á KA-velli.
HANDKNATTLEIKUR
Slgurður Svelnsson fagnar að leik loknum. Hann skoraði átta mörk fyrir Selfoss. Morgunbiaðið/Bjarni Einksson
Var of stífur og spenntur
- segir Gísli Felix Bjarnason, markvörður, sem náði sér ekki á strik ífyrri hálfleik
Eg var búinn að sökkva mér allt
of mikið niður í leikinn og var
því stífur og spenntur í fyrri hálf-
MKMMMKK leik,“ sagði Gisli
SkúliU. Felix Bjarnason,
Sveinsson markvörður Selfyss-
skrifar inga, sem varði að-
eins tvö skot í fyrri
hálfleik en 13 skot það sem eftir
lifði leiks.
„Einar skipaði mér að setjast
niður og slaka ærlega á. Ég gerði
það og náði áttum og var svo blúss-
heitur það sem eftir var og allt
small saman. Vörnin var líka alveg
heil og því ekki hægt annað en
veija nokkra bolta. Svo er útilokað
en standa sig fyrir svona frábæra
áhorfendur. Framhaldið hjá okkur
er að taka einn leik fyrir í einu og
við ætlum okkur gott framhald,
annars er þetta orðið frábær bónus
á veturinn," sagði Gísli Felix.
Veit ekki hvað fór úrskeiðis
„Það er fátt hægt að segja eftir
svona baráttu. Ég veit ekki hvað
fór úrskeiðis hjá okkur en þegar
Selfyssingar tóku Bjarka úr umferð
gekk sóknin ekki nógu vel hjá okk-
ur. Hún varð hálf vandræðaleg, en
samt vorum við viðbúnir því að
þeir tækju Bjarka, en það gekk
ekki hjá okkur þrátt fyrir að við
vissum hvernig við ætluðum að
bregðast við. Eg hélt um tíma að
við myndum hafa þetta, en það
tókst ekki og ég óska Selfyssingum
til hamingju með þennan áfanga,"
sagði Guðmundur Guðmundsson
þjálfari Víkinga.
„Það er alveg frábært að leika í
svona stemmningu, það er enginn
tími til að hugsa og ekki hægt að
tala saman, en því miður tókst okk-
ur ekki að klára þetta. Ég veit ekki
hvað klikkaði hjá okkur, en Gísli
Felix fór að veija í síðari hálfleikn-
um. Við vorum fjórum mörkum yfir
í hálfleik og byijuðum síðari hálf-
leik ágætlega og hefðúm átt að
klára þetta, en það tókst ekki. Þeir
komust strax yfir í framlengingunni
og við náðum ekki að klára dæmið.
Selfyssingar léku vel og ég óksa
þeim til hamingju og vona að þeim
gangi vel í úrslitunum,“ sagði Birg-
ir Sigurðsson fyrirliði Víkinga.
Leikið í Eyjum í dag eða á morgun
Fresta varð leik ÍBV og FH 1 úrslitakeppninni í gærkvöldi vegna veð-
urs. Ef FH-ingar og hluti Eyjaliðsins komast með flugi til Eyja
snemma í dag leika liðin síðdegis. Verði enn ófært fara leikmennirnir
með Heijólfi um hádegið og liðin mætast þá á morgun, sennilega kl. 14.
Sigri Eyjamenn verður oddaleikurinn því á mánudag eða þriðjudag.
Selfyss-
ingar til
Portúgal
Leikmenn Selfossliðsins tryggðu
sér farseðla til Portúgal með
því að leggja Víkinga að velli. Stjórn
handknattleiksdeildar Selfoss hét á
leikmenn liðsins eftir að þeir kom-
ust í undanúrslit, að ef þeir kæm-
ust i úrslit myndi stjórnin bjóða leik-
mönnum og eiginkonum þeirra í
viku sólarferð til Portúgal eftir ís-
landsmótið. Þrátt fyrir sand- og
moldrok á Suðurlandi í gær eiga
leikmenn Selfossliðsins eftir að sjá
til sólar.
SKIÐI / ANDRESAR ANDARLEIKARNIR
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Jafnir í mark í þriðja sinn
Jón Garðar Steingrímsson, Siglufirði, til vinstri og Helgi Heiðar Jóhannesson,
Akureyri, sigruðu í þriggja km göngu 12 ára drengja á Andrésar andarleikun-
um og komu jafnir í mark þriðja árið í röð. Keppni hófst á sumardaginn fyrsta
í Hlíðarfjalli við Akureyri. Þátttakendur eru um 740 og keppa tæplega 700 í
alpagreinum, um 50 í göngu og liðlega 60 í stökki. Leikarnir halda áfram um
helgina.
ARSÞING/KKI
Helgi Hólm býður
sig fram gegn
sitjandi förmanni
Helgi Hólm, formaður íþróttafé-
lags Keflavíkur, hefur ákveðið
að gefa kost á sér gegn Kolbeini
Pálssyni sitjandi
Björn formanni Körfu-
Blöndal knattleikssambands
skrifarfrá íslands á ársþingi
Keflavik sambandsins sem fer
fram í Borgamesi og hefst á fimmtu-
daginn kemur. Helgi var einn af
frumkvöðlum þess að gera körfu-
knattleik að vinsælli íþróttagrein í
Keflavík. Allir körfuknattleiksmenn
sem keppa undir merkjum ÍBK eru
félagar í ÍK.
Helgi Hólm hefur verið búsettur í
Keflavík síðan 1963 og var á sínum
yngri árum kunnur íþróttamaður;
fyrst í frjálsum íþróttum og síðan í
körfuknattleik og golfi. Afskipti hans
af körfuknattleik hófust árið 1971.
Helgi sagði í samtali við Morgunblað-
ið að ÍK hefði verið stofnað árið 1969
í tengslum við fijálsar íþróttir en
síðan hefði körfuknattleikurinn fljót-
lega orðið ofan á. Árið 1974 gerðist
Helgi formaður ÍK og hefur hann
verið formaður félagsins síðan.
„Körfuknattleikurinn stendur með
miklum blóma og við sem að þessu
framboði stöndum teljum að við get-
um lagt ýmislegt af langri reynslu
til að efla körfuknattleiksíþróttina
enn frekar. Ég tel að leggja verði
meiri áherslu á að gera allt starf KKÍ
skipulagðara og starfsemina mark-
vissari. Einnig hef ég mikinn áhuga
á að auka veg kvenfólksins og skipa
þeim þann sess sem þeim ber,“ sagði
Helgi Hólm ennfremur.