Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 6
6 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MAl 1992 Afmælismót BR: Úrvalslið BR tapaði fyrir Evrópuúrvali ÚRVALSLIÐ Bridsfélags Reykjavíkur tapaði með talsverð- um mun fyrir úrvalsliði Evrópu í sérstakri sýningarbrídskeppni á föstudag. Keppnin var hluti af 50 ára afmælismóti Bridsfélags Reykjavíkur sem lýkur í dag, sunnudag. í sýningarkeppninni spiluðu landslið Breta, Pólveija og Svía við íslensku heimsmeistarasveitina, ís- lenska landsliðið sem keppir á Norð- urlandamóti í sumar og sveit Trygg- ingamiðstöðvarinnar. Úrslit leikj- anna urðu að heimsmeistararnir unnu Pólveija, 17-13, gerðu jafn- tefli við Svía, 15-15, en töpuðu fyrir Bretum, 22-8. Tryggingamið- stöðin vann Breta, 17-13, en tap- aði 12-18 fyrir Svíum og Pólveij- um, og landsliðið tapaði 8-22 fyrir Bretum, 6-24 fyrir Pólveijum og 4-25 fyrir Svíum. Samtals fékk Evrópuúrvalið 170 stig gegn 99 stigum íslendinga. I dag lýkur opinni tvímennings- keppni sem haldin er í Perlunni á Öskjuhlíð en verðlaunaafhending og mótsslit verða í Ráðhúsi Reykja- víkur í kvöld. ♦ ♦ ♦ Eldur í gas- kúti á grilli SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur var kallað út um kvöldmatarleytið á föstudag er tilkynnt var um eld í gaskúti útigrills á svölum íbúðar í Kópavogi. Hætta var talin stafa af eldinum. Húsráðandi kastaði logandi gas- kútnum niður af svölunum og hóf að dæla á hann vatni. Slökkviliðið tók síðan við slökkvistörfum og tókst að loka fyrir kútinn með rörtöng og slökkva eldinn. ♦..♦'-♦- Vestmannaeyjar: 2 teknir fyr- ir hraðakstur í Vestmannaeyjum voru tveir öku- menn teknir fyrir of hraðan akstur á uppstigningardag. Bílstjóri mældist aka á 104 kílómetra hraða suður Skólaveg og ökumaður vélhjóls var stöðvaður er hann ók á 110 kíió- metra hraða austur Kirkjuveg. Lög- regla svipti báða ökuréttindum til bráðabirgða á staðnum. Á myndinni sést sýnishorn af bekk, sem gert var vegna hljómburðar- prófana. Hallgrímskirkja: GKS býður lægst í smíði kirkjubekkja TILBOÐ í smíði kirkjubekkja fyrir Hallgrímskirkju í Reykjavík voru opnuð í vikunni. Alls buðu 11 fyrirtæki í verkið en lægsta boð kom frá GKS, Gamla kompaniinu — Kristjáni Siggeirssyni, en það var að upphæð 7.500.656 kr. Næst lægsta tilboðið var að upphæð 12.638.478 kr. en kostnaðaráætlun var upp á 12.400.000 kr. Fyrirhugað er að smíðuð verði 500 bólstruð eikarsæti í 46 bekkj- um. Bekkirnir verða með veltibaki þannig að snúa megi þeim við og snúa kirkjugestir þá að aðalorgeli kirkjunnar, sem verður staðsett á palli ofan við anddyri hennar. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Hallgrímskirkju verður gengið til samninga við lægstbjóðanda á næstu dögum og miðað er við að uppsetningu bekkjanna verði lokið fyrir 15. september næstkomandi, en þá er stefnt að því að stilling hins nýja orgels kirkjunnar hefjist. Listahátíð í Reykjavík: Sýning á verkum Joan Míro á Kjarvalsstöðum SÝNING á verkum spánska myndlistarmannsins Joan Míro verð- ur opnuð á Kjarvalsstöðum klukkan 16 í dag. Sýningin er hluti framlags Listasafna Reykjavíkur til Listahátíðar 1992 og hún verður opin til 5. júlí. Á sýningunni á Kjarvalsstöðum verða sýnd málverk, höggmyndir og teikningar frá síðari hluta starfsferils Mírós og eru öll verk- in gerð eftir 1960. Þau koma frá Listasafni Maeght í Suður-Frakk- landi. í fréttatilkynningu frá Kjar- valsstöðum segir meðal annars, að ferill Mírós skiptist í mörg tímabil og hann hafí notað ýmsa miðla, en list hans hafí alltaf ver- ið djörf, hugmyndarík, leikandi létt og aðgengileg. Hann hafi einnig, eins og önnur stórmenni myndlistarsögunnar, alltaf verið tilbúinn til að tileinka sér eitthvað nýtt, læra og uppgötva. Dagskrá Listahátíðar sunnudag og- mánndag Kjarvalsstaðir: Opnun á sýningu á málverkum, högg- myndum og teikningum eftir Joan Miro í Vestursal. Sýningin stendur til 12. júní. Sýning á verkum Jóhannesar Kjarvals í Kjarvalssal, úr einkasafni Eyrún- ar Guðmundsdóttur og Jóns Þor- steinssonar. Listasafn Islands: Franski listamaðurinn Daniel Buren vinnur útilistaverk við Gallerí 11 og Listasafn íslands. Verkið nefn- ist Staðsetning, framsetning, tilfærsla - staðbundið verk. Listasafn Sigurjóns Ólafsson- ar: Opnun á sýningu á æsku- teikningum Siguijóns Ólafsson- ar. Fjölskyldudagar í Siguijóns- safni, brúðuleikhús, tónleikar barna úr Suzuki-skólanum, fræðsla um búsetu í Laugarnesi að fornu og nýju. Nýlistasafnið: Sýning á verkum frönsku listamannanna Michel Verjux og Francois Perrodin. Dagskrá á mánudag Kringlan: Opnun á sýning- unni íslensk nútímahöggmynda- list. Norræn rannsókn á magni þungmálma í úrkomu: Mikið af þungmálmum á vissum svæðum hérlendis RANNSÓKN á magni þungmálma í mosa hér á landi hefur leitt í ljós að mikið magn ákveðinna tegunda er áð finna á gosbeltinu frá Reykjanesi austur á Melrakkasléttu, en hins vegar dregur mjög úr magni þessara málma í mosa austan og vestan gosbeltisins. Þessar niðurstöður koma fram í nýútkominni skýrslu um samnorræna rann- sókn á magni þungmálma í úrkomu í N-Evrópu. Að sögn Sigurðar H. Magnússonar, gróðurvistfræðings hjá Rannsóknastofnun landbún- aðarins, sem vann að rannsókninni hér á landi, er ekki talið að magn þungmálma á gosbeltinu stafi af mengun, heldur sé um að ræða áfoksryk sem lent hafi í mosanum. Hann segir að á Vestfjörðum, þar sem áfok sé lítið, hafi yfirleitt mælst mjög lítið af þessum málmum. Mæling á magni þungmálma í úrkomu í N-Evrópu er að sögn Sig- urðar samnorrænt verkefni sem norræna ráðherranefndin hefur staðið fyrir. Um að ræða svokallaða umhverfisvöktun og hefur samskon- ar verkefni verið í gangi á hinum Norðurlöndunum um alllangt skeið, en íslendingar tóku þátt í þessu verkefni í fyrsta sinn árið 1990, og V estmannaeyjar: Bæjarsvölur í hópum Vestmannaeyjum. MIKIÐ hefur sést af bæjarsvölu í Vestmannaeyjum síðustu tvær vikurnar. Hafa þær flögrað í hópum um bæinn en mest hafa þær haldið sig við bryggjuna og í kringum frystihúsin. Einn daginn sást hópur bæjar- svala sem lá í kös við Kaupfélag- ið í Bárugötu. Kristján Egilsson, safnvörður á Náttúrugripasafn- inu, segir að svölurnar hafi eflaust haldið sig þama í kös til að reyna að halda á sér hita. Þær hafi fund- ið varma frá húsinu og síðan feng- ið varma hver frá annarri. Hann segir að bæjarsvalan sé flækings- fugl hér á landi og komi hingað á hveiju vori en þær séu farfuglar á Bretlandi og víða í Evrópu. Árlega hafí sést tveir til íjórir fuglar í Eyjum í nokkra daga en aldrei hafí sést jafn mikið af bæj- arsvölu hér og aldrei í jafn langan tíma og nú. Kristján segir þær hafa verið í hópum á flögri um Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Bæjarsvöluhópurinn utan við Kaupfélagið í Eyjum. bæinn. „Þetta eru skordýraætur og þar sem kalt er í veðri er örugg- laga ekki mikið æti að finna nú. Þær hafa mikið haldið sig í nám- unda við frystihúsin því líklega er helst að fínna einhveijar flugur á hafnarsvæðinu,“ sagði Kristján. Grímur sá Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins um mælingamar fyrir íslands hönd. Fylgst er með magni þungra málma í úrkomunni með því að safna mosategundinni skógartildri víðs vegar um land og mæla magn þungmálma í mosanum, en hann tekur upp næringu beint úr úrkom- unni en ekki í gegnum rætur. Að sögn Sigurðar vom átta þungmálm- ar mældir 1990, og var stöðluðum aðferðum beitt þannig að hægt er að bera niðurstöðumar saman milli svæða. „Niðurstöðurnar komu kannski svolítið á óvart, en það kemur í ljós að það er mjög mikið af þungmálm- um sem mælast í mosa hér á landi á vissum svæðum, en aftur lítið annars staðar. Þessi svæði eru nán- ast eingöngu gosbeltið sem liggur frá Reykjanesi austur á Melrakka- sléttu, en austan og vestan við þetta belti dregur mjög úr magni þessara málma í mosanum. Svo er annað mál hvort þetta er eitthvert dæmi um mengun eða ekki, en við höldum að ekki sé um það að ræða þótt mikið mælist. Við teljum að þetta sé áfoksryk sem lent hefur í mosan- um og því sé ekki um raunyerulega mengun að ræða. Á Vestfjörðum þar sem áfok er lítið er yfirleitt mjög lítið af þessum þungu málm- um, og má segja að það svæði sé einna best til þess fallið að fylgjast með þessu í lengri tíma,“ sagði Sig- urður. Hann sagði að reyndar væri ekki útbreiðslu allra þeirra þungmálma sem rannsakaðir voru þannig farið að mest væri um þá á gosbeltinu, og þannig hefði útbreiðsla blýs í mosanum verið mest á svæðinu sunnan undir Vatnajökli og síðan við Reykjavík og á Reykjanesi. „Það er þó raunverulega lítið af blýi, en aðeins er þó um hækkun að ræða á þessum svæðum. Við teljum að undir Vatnajökli sé þetta aðkomin mengun þótt lítil sé, en þarna er mest úrkoma á landinu. Þá teljum við að á svæðinu við Reykjavík sé þetta áhrif bílaumferð- ar að mestu leyti, en þar mældist þetta þó mjög lágt. Sýnum var ekki safnað í borginni sjálfri, þannig að ekki er hægt að segja til um magn- ið þar,“ sagði hann. Borgarráð: * Akveðið að endur- hlaða Ihgólfsbrunn BORGARRÁÐ hefur samþykkt að við framkvæmdir í Aðalstræti í sumar verði yfirborð Ingólfsbrunns endurhlaðið og gengið frá hon- um í samræmi við hugmyndir borgarminjavarðar. Margrét Hallgrímsdóttir borgar- minjavörður telur að um mikilsverð- ar minjar Innréttinganná sé að ræða og mikilvægt að varðveita þær og sýna. Samkvæmt heimildum og útliti brunnsins er hann líklega hlaðinn um miðja 18. öld. í ljósi hugmynda um Innréttingasafn við Aðalstræti er lagt til að gengið verði frá umhverfí hans með hellu- lögn á gangstétt og götu og að settur verði vatnspóstur á brunninn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.