Morgunblaðið - 12.06.1992, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D
131. tbl. 80. árg.
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Komu Bush mótmælt í Ríó og Panama
Yfir 100 þjóðhöfðingjar eru nú komnir á umhverfisráðstefnuna í Rio de Janeiro eða eru á leið þangað, en
varla hefur nokkur þeirra átt jafn erfítt ferðalag og George Bush Bandaríkjaforseti. Hann varð fyrir minni-
háttar óþægindum af völdum táragass í Panama-borg í gær, þegar lögregla reyndi að tvístra þúsundum
andófsmanna, sem mótmæltu íhlutun Bandaríkjanna í landinu. Bush, sem gerði stuttan stans í Panama á
leið sinni til Ríó, var þó aldrei í neinni hættu, en öryggisverðir fluttu hann á brott í skyndi af útipalli þar
sem hann átti að halda ræðu þegar ólætin brutust út. Þeir beindu byssum sínum að hópi manna næst
pallinum, en hleyptu ekki af. Á myndinni sést hópur fólks ganga að bandarísku ræðismannsskrifstofunni
í Ríó til að mótmæla stefnu Bush í umhverfismálum, en hann liggur undir ámæli frá mörgum fyrir að neita
að skrifa undir sáttmála um verndun dýra og jurta. Bush heldur upp á 68 ára afmæli sitt í dag, en má búast
við köldum afmæliskveðjum frá umhverfísverndarsinnum.
Reuter
Deilur Tékka og Slóvaka harðna
Vladimir Meciar, leiðtogi stærsta flokks Slóvakíu (til hægri á mynd-
inni), kom í gær til Prag til viðræðna við forystumenn Tékka um fram-
tíð sambandsríkisins Tékkóslóvakíu. Á myndinni sést hann með Alex-
ander Dubcek, forseta þings Tékkóslóvakíu, en hann ræddi einnig við
Vaclav Klaus fjármálaráðherra sem hefur verið falin stjórnarmyndun.
Lítil von virtist um að sættir næðust, en Klaus hefur hafnað hugmynd-
um Meciars um laustengt samband Tékka og Slóvaka og segir að
annaðhvort verði böndin treyst eða aðskilnaðurinn verði alger. Þúsund-
ir Tékka skrifuðu undir yfírlýsingu fyrir utan þinghúsið í Prag í gær
þar sem þess var krafíst að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla í tékkn-
eska hlútanum um hvort lýsa ætti yfír sjálfstæði hans.
Sveitir SÞ veija otíu-
lindir fyrir Serbum
Svíþjóð:
Miðflokkurinn er tví-
stígandi um EB-aðild
Stokkhólmi. Reuter.
EINN stjórnarflokkanna í Svfþjóð, Miðflokkurinn, hyggst bera umsókn
Svía um aðild að Evrópubandalaginu (EB) undir flokksþing sitt á þriðju-
dag. Mikil andstaða er við EB-aðild í Miðflokknum, en hvorki forystu-
menn flokksins né Carl Bildt forsætisráðherra vildu í gær Ijá sig um
hvaða áhrif það hefði ef andstæðingar EB hefðu sigur á flokksþinginu.
Sergej Shakhraj sagði að Jeltsín
hefði nýlega skipað nokkra harðlínu-
kommúnista í stjórn sína til að af-
stýra því að reynt yrði að koma
honum frá. Áhrifamiklir hópar
kommúnista héldu samt áfram að
hindra efnahagsumbætur stjómar-
innar. Ókyrrð í rússneskum iðnaði
vegna mikils skorts á rúblum hefði
styrkt stöðu þeirra mjög.
Shakhraj sagði harðlínumenn inn-
an hersins og landbúnaðarkerfisins,
sem væru áhrifamiklir á rússneska
þinginu, kynnu að reyna að koma
Jeltsín frá völdum fyrir áramót. „Þar
sem enginn þeirra er nógu sterkur
leiðtogi til að geta tekið við forseta-
embættinu kynnu þeir að stofna ráð,
skipað fulltrúum hersins og háttsett-
um mönnum innan löggjafar- og
framkvæmdavaldsins, sem tæki við
völdunum."
Shakhrai var aðstoðarforsætis-
ráðherra í rússnesku stjóminni þar
til hann sagði af sér í síðasta mán-
uði. í dag er ár liðið frá því Jeltsín
Samkvæmt skoðanakönnunum
eru 61 prósent stuðningsmanna Mið-
flokksins andvíg aðild Svía að EB,
en aðeins 11 prósent fylgjandi. Hins
vegar em stuðningsmenn EB-aðildar
í Svíþjóð ívið fleiri en hinir, eða 39
prósent á móti 38 prósentum.
Miðflokkurinn studdi ákvörðun
minnihlutastjórnar Carls Bildts um
að sækja um aðild að EB, en sú
ákvörðun hefur mælst illa fyrir í
sveitum Svíþjóðar, þar sem stuðn-
ingur við flokkinn er einna mestur.
Bildt sagði í gær að ef Miðflokkur-
inn breytti stefnu sinni varðandi
umsóknina væri það brot á stjórnar-
sáttmálanum.
Sjá frekari fréttir um Evrópu-
málin á bls. 22
Zagreb, Belgrad, Washington, Strassborg. Reuter.
FRIÐARGÆSLUSVEITIR Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafa komið í veg
fyrir að Serbar fái aðgang að olíulindum í austanverðri Króatíu til að
bæta úr eldsneytisskorti í Serbíu. Bílalest á vegum samtakanna komst
loks við illan leik til Sarajevo í gær eftir að sveitir Serba höfðu skotið
á hana og tafið í sólarhring við borgarmörkin.
Króatískir embættismenn sögðu
að gæslusveitir SÞ gættu þess að
enginn kæmist að Djeletovci-olíulind-
unum, sem eru þær einu í Króatíu
sem Serbar ráða yfir. Þeir sögðust
ekki vita hvort Serbar hefðu nýtt sér
lindimar í þá sex mánuði sem sveitir
þeiira og sambandshersins réðu
svæðinu áður en gæsluliðar SÞ komu
á vettvang. Talsmenn SÞ sem Reut-
ers-fréttastofan ræddi við gátu ekki
staðfest þessar fréttir í gær.
Bílalestin, sem flutti mat og vistir
frá Belgrad til 100 friðargæsluliða
SÞ í Sarajevo, beið í sólarhring í
úthverfi borgarinnar á meðan reynt
var að semja við sveitir Serba, sem
Hvalur hvolf-
ir fiskibáti
St. John's, Nýfundnalandi. Reuter.
ÞRÍR sjómenn frá Nýfundnalandi
björguðust naumlega eftir að
hvalur réðst á bát þeirra og
hvolfdi honum.
Einn sjómannanna, Peter Jones,
sagði að hann og tveir bræður hans
hefðu verið að gera að físki á bát
sínum undan Baine Harbour á Ný-
fundnalandi, þegar hvalur hefði risið
upp úr sjónum og lent á bátnum, sem
er sjö metra langur. Honum hvolfdi,
en mennirair þrír komust á kjöl og
voru þar í sjö klukkustundir áður en
þeim var bjargað.
Jones sagði að tannaför hefðu
verið á bátnum, sem bendir til að
um búrhval hafi verið að ræða. Sagn-
ir eru um að búrhvalir hafí ráðist á
báta, en vísindamenn telja að einnig
gæti verið um hnúfubak að ræða,
sem hafí óvart rekist á bátinn þegar
hann kom upp á yfirborðið.
halda borginni í herkví. Einnig flutti
hún sendinefnd á vegum samtak-
anna, sem á að reyna að semja um
vopnahlé á milli hinna stríðandi fylk-
inga í Sarajevo og opna flugvöllinn
þar til að koma vistum til 300.000
íbúa borgarinnar. Franskur hermað-
ur í hópi gæsiuliða sem komu á
móti bílalestinni særðist þegar skotið
var þá.
George Bush Bandaríkjaforseti
sagðist í gær vera tregur til að senda
herlið til Júgóslavíu — Bandaríkin
væru „ekki lögregla heimsbyggðar-
innar“. Hann útilokaði þó ekki mögu-
leikann á hernaðaríhlutun. Blaðið
The Washington Post sagði í gær
að stjórn Bush væri að íhuga hvort
nota ætti hersveitir til að aðstoða
við flutning hjálpargagna í fyrrum
lýðveldum Júgóslavíu, en slíkar hug-
myndir mættu þó mikilli andspymu
í vamarmálaráðuneytinu, Pentagon.
Tillögur um hernaðaríhlutun hlutu
ekki hljómgrunn á Evrópuþinginu í
Strassborg í gær, en í ályktun þess
var krafíst að sambandsherinn yrði
leystur upp og að hinar stríðandi
fylkingar afvopnuðust undir eftirliti
SÞ.
Ottast að kommúnistar reyni
að koma Jeltsín frá völdum
Embættismenn í höfuðstöðvum
NATO í Brussel sögðu að ýmislegt
benti til þess að rússneskir harðlínu-
menn væru að sækja í sig veðrið.
Borís Jeltsín hefði til að mynda skip-
að harðlínumenn og hershöfðingja í
sovéthernum fyrrverandi í yfírstjórn
rússneska hersins á miðvikudag.
Forsetinn skipaði einnig harðlínu-
manninn Pavel Gratsjev í embætti
vamarmálaráðherra í síðasta mán-
uði.
Moskvu, Brussel. Reuter.
SERGEJ Shakhraj, einn af nán- I
ustu samstarfsmönnum Borísar |
Jeltsíns Rússlandsforseta á und-
anförnum árum, sagði í gær að
hætta væri á að harðlínukommún-
istar reyndu að koma honum frá
völdum fyrir árslok. Embættis-
menn Átlantshafsbandalagsins
(NATO) hafa einnig vaxandi
áhyggjur af því að harðlínu-
kommúnistar séu að endurheimta
fyrri völd sín innan hersins og
geti komið í veg fyrir efnahags-
legar umbætur.
var kjörinn forseti Rússlands.
Sendiherrar nokkurra aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins vöktu máls
á auknum áhrifum harðlínukomm-
únista í Rússlandi á fundi í Brussel
í gær. Þótt þeir telji aðra valdaráns-
tilraun óhugsandi óttast þeir að
„nómenklatúran", embættismenn-
irnir sem nutu forréttinda á valda-
tíma kommúnista, geti komið í veg
fyrir nauðsynlegar efnahagsumbæt-
ur.