Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 133. tbl. 80. árg. SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Tækninni beitt í nábúakrytum UPP er komið óvenjulegl deilumál milli tveggja nágranna í Noregi, að sögn norska dagblaðsins Aftenposten. Tildrög málsins eru þau að annar maðurinn hjó niður nokkur furutré í garði hins þar sem hann taldi þau draga úr útsýninu frá húsi sínu. Þetta leiddi til handalögmála, heitinga og svefnlausra nótta með reglulegu milli- bili í þrjú ár þar til öðrum nágrannan- um hugkvæmdist að taka nútímatækn- ina í þjónustu sína. Hann kom fyrir sjálfvirkri myndbandstökuvél í garði sínum og beindi henni að húsi óvinar- ins. Sá segir að vélin fylgist ekkl að- eins með öllu sem gerist í garði sínum heldur líka inni í stofunni. Deilan er orðin að lögreglumáli enda er þessi aðferð talin gróft brot á friðhelgi heimilisins. Þýska þjóðhá- tíðin sögð of dýr KOSTNAÐURINN við sameiningu Þýskalands leggst nú þungt á lands- menn og velta stjórnmálamenn mjög vöngum yfir því hvernig megi leysa vandamál sem honum tengjast og afla ríkinu aukinna tekna. Komið hafa fram margar ólíkar hugmyndir eins og að hverfa aftur til fjörutiu stunda vinnu- viku, frysta laun eða leggja niður ann- an í hvítasunnu sem frídag. Sú tillaga sem hvað mesta athygli hefur vakið og hlotið hefur hljómgrunn í öllum stjórnmálaflokkum er að binda þjóðhá- tíðardaginn, dag þýskrar einingar, við sunnudag fremur en mánaðardaginn 3. október. Helmut Kohl kanslari hefur hafnað síðarnefndu hugmyndinni, seg- ir hana út í hött og nefnir löndum sín- um til áminningar að aldrei myndi Frökkum detta í hug að hrófla við þjóð- hátíðardeginum 14. júlí. Bakveikir hundar HÚS eru ekki reist með þarfir gælu- dýra í huga og fólk áttar sig yfirleitt ekki á að það er til að mynda óhollt fyr- sjm ( , . ir hunda að ganga ^ >V" '' upp og niður stiga. ' Sænska tímaritið Hundsport skýrir frá því að rannsókn á 400 hundum, sem valdir voru af handahófi, hafi leitt í jjós að 63 af hundraði þeirra voru bak- veikir, þótt þeir hefðu ekki allir verki. Morgunblaðið/Ámi Sæberg TZL HAMINGJU MEÐ DAGINN, SJOMENN! Umhverfisráðstefnan í Ríó: Vænta samkomulags á fundi yfir 100 leiðtoga Rio de Janeiro. Reuter, The Daily Telegraph. SAMKOMULAG náðist um yfirlýsingu um verndun skóga og fleiri viðkvæm dcilumál á umhverfisráðstefnunni í Rio de Janeiro áður en á annað hundrað þjóðarleiðtogar settust við risastórt hringborð í gær að ræða árangur ráðstefnunnar. Búist var við að samið yrði um þau atriði sem enn voru óleyst, eins og fjármögnun umhverfisvernd- ar, fyrir lok ráðstefnunnar í dag, sunnudag. Yfirlýsingin um verndun skóga var sam- þykkt á föstudag eftir miklar deilur vest- rænna ríkja og þróunarríkja. Iðnvæddu ríkin höfðu gagnrýnt lönd eins og Brasilíu og Malaysíu fyrir ágang þeirra á regnskóga sína, en regnskógalöndin mótmæltu afskiptum ríku þjóðanna og sögðu að fátæk lönd hitabeltisins neyddust til að höggva skóg til eldiviðar og til að afla sér gjaldeyristekna. Yfirlýsingin viðurkennir yfirráðarétt ríkja yfir skógum sín- um og lofar gildi ræktaðra nytjaskóga. Um- hverfisverndarsinnar gagnrýndu yfirlýsing- una, meðal annars af því að ákveðið var að hún yrði ekki lagalega bindandi. Áður hafði náðst samkomulag um svokall- aða Ríó-yfirlýsingu um grundvallaratriði umhverfísvemdar og um tvo lagalega bind- andi sáttmála, um verndun andrúmsloftsins og um verndun dýra- og jurtategunda. Illa gekk hins vegar að leysa deilur sem komu upp vegna kröfu olíuframleiðsluríkja um að breyta orðalagi um endurnýjanlega orkugjafa í texta um verndun andrúmsloftsins. Þá hafði ekki tekist að ná samkomulagi um þá kröfu þróunarríkjanna að ríkar þjóðir greiði 0,7 prósent af þjóðarframleiðslu sinni til þróunar og umhverfísverndar í þriðja heiminum, en ólíklegt var talið að ríki heims létu þessi atriði aftra því að samkomulag næðist fyrir ráð- stefnulok í dag, þar sem mörg erfiðustu ljón- in á veginum væru að baki. Tugir þjóðhöfðingja héldu ræður á leiðtoga- fundi ráðstefnunnar í gær og á föstudag, en fátt var um loforð um fjárframlög til umhverf- ismála. George Bush Bandaríkjaforseti varði stefnu sína í umhverfismálum - en hann hef- ur sætt mikilli gagnrýni fýrir að neita að skrifa undir sáttmálann um verndun dýra og jurta - og sagði að Bandaríkin hefðu náð betri árangri en flestar þjóðir í að minnka mengun í vötnum og í andrúmsloftinu. John Major, forsætisráðherra Breta, bauðst til að halda ráðstefnu um veðurfarsbreytingar og tækni og boðaði rannsóknarátak, svokall- aða Darwin-áætlun, til að rannsaka lífríki regnskóga hitabeltisins, þar sem talið er að kunni að leynast allt að 10 milljónir tegunda lífvera í viðbót við þær 1,4 milljónir sem vísindamenn hafa greint hingað til. Sjá Baksvið á bls. 4. ASKAKI MEÐ TRILLUKÖRLUM FYRIR VESTAN Að r^yta SLÓYAKÍA aifa £ mál- W aarAi Minnimáttarkennd 1 knýr sjálffstæðishreyfinguna JbShL v/ JL 10 14 í TILEFNISJÓMANNADAGS í bræluskratta á Breifia- lirðinum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.