Morgunblaðið - 27.06.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.06.1992, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK STOFNAÐ 1913 143. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1992 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Shamirvildi tefja friðar- viðræðurn- ar í tíu ár " Jerúsalem. Reuter. YITZHAK Shamir, forsætisráð- herra ísraels, sem beið ósigur í þingkosningum á þriðjudag, sagði í viðtali við dagblaðið Haar- iv í gær að ef flokkur hans hefði ekki tapað kosningunum hefði hann dregið viðræður um sjálf- stjórn Palestínumanna á her- numdu svæðunum á langinn í tíu ár til viðbótar. Shamir sagði að á þeim tíma hefði svo mátt fjölga ísraelskum landnemum á hernumdu svæðunum í hálfa milljón. „Mér finnst mjög súrt í brotið að á næstu fjórum árum mun okkur ekki takast að §ölga landnemum í Júdeu, Samaríu og á Gaza-svæðinu [herteknu svæð- unum],“ sagði hann í viðtalinu. Landnemar eru nú um hundrað þúsund. Þegar friðarviðræður ísraela og araba hófust síðasta haust hélt Shamir því fram opinberlega að hann hygðist ná árangri í viðræðun- um um sjálfstjórn Palestínumanna á innan við ári. Yitzhak Rabin, for- maður Verkamannaflokksins og verðandi forsætisráðherra, sakaði hins vegar Shamir í kosningabar- áttunni um að draga málið á lang- inn. Sú mikla áhersla sem Shamir lagði á landnám gyðinga á her- numdu svæðunum sætti einnig harðri gagnrýni bandarískra stjórn- valda sem töldu landnámið vera helsta þröskuldinn í vegi friðarsam- komulags. Sjá nánar frétt á bls. 22. Reuter Glæsilegur árangur Dana Danir kórónuðu glæsilegan árangur sinn í Evrópukeppni landsliða í knatt- spyrnu í Gautaborg í gærkvöldi með því að leggja heimsmeistara Þýska- lands að velli í úrslitaleik í Gautaborg, 2:0. Eru Danir Evrópumeistarar í knattspymu fyrstir Norðurlandaþjóða. Árangur Dana er stórkostlegur þegar að því er gáð að Danmörk fékk sæti í EM aðeins tíu dögum fyrir keppnina. Lið Júgóslavíu missti keppnisrétt er Sameinuðu þjóðimar settu samskiptabann á Serbíu og Svartfjallaland. Danir byijuðu á því að senda Frakka, sem taldir voru sigurstranglegastir fyrir keppnina, heim. Þá slógu þeir Evrópumeistara Hollands út og í gærkvöldi lögðu þeir sjálfa heims- meistarana að velli. Á myndinni hampar John Jensen, sem skoraði fyrra mark Dana, Evrópubikamum sem fyrst var keppt um 1960. Sjá nánai' um leikinn á bls. 47. 100 börn svelta í hel daglega 70 flóttamenn myrtir á skipi á Rauðahafi Aden, Nairobi. Reuter. 70 sómalskir flóttamenn, aðallega konur og börn, voru myrtir um borð í skipi á Rauðahafi, sem flutti hátt á fjórða þúsund Sómala til Jem- ens. Þúsundir Sómala voru á öðrum skipum á leið til landsins í gær og í einu þeirra hryiy'a börn niður af völdum sjúkdóma. Fólkið er að flýja hungursneyð í Sómalíu, þar sem 1,5 miHjónir manna eiga á hættu að verða hungurmorða verði þeim ekki komið til hjálpar tafarlaust. Að meðaltali deyja nú þegar hundrað börn á dag úr hungri i höfuðborg- inni, Mogadishu. Skipið, sem fjöldamorðið var fram- ið á, hafði verið á siglingu í 16 daga við strönd landsins þegar flóttamenn- irnir, sem voru án matar og vatns, gerðu uppreisn og sigldu því til lands. Áður höfðu um 150 þeirra dáið, flest- ir úr hungri og þorsta en aðrir drukknuðu eftir að hafa gert örvænt- ingarfulla tilraun til að synda í land. Yfirvöld í Jemen höfðu meinað skip- inu að leggja í höfn. Þegar skipið kom að landi réðust sómalskir glæpamenn á flóttafólkið, nauðguðu konum og drápu þær síðan ásamt bömum þeirra, að sögn yfir- valda í Jemen. Þeir vom handteknir og eru í haldi í hafnarborginni Aden. Að minnsta kosti 3.300 manns vom flutt úr skipinu í flóttamanna- búðir í Jemen. Margir þeirra em með kóleru. Fleiri skip em á leiðinni til Aden. Eitt bíður þegar utan við höfnina með um sjö hundmð flóttamenn, sem þjást af ýmsum sjúkdómum. „Þetta er hörmuleg sjón, börnin hrynja nið- ur í örmum okkar,“ sagði starfsmað- ur Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem fékk að kanna ástand- ið um borð í skipinu. Um 800.000 manns hafa flúið Sómalíu undanfama mánuði, aðal- lega til nágrannaríkjanna Kenýu og Boutros-Ghali krefst vopnahlés eftir hörð átök í Sarajevo: Serbar fá tveggja sólarhringa frest til að hætta sókn sinni Eþíópíu. Um 900.000 til viðbótar hafa flúið heimili sín vegna þurrka og blóðugra átaka milli stríðandi glæpahópa, sem ráða nú lögum og lofum í landinu. Allt að 30.000 manns hafa beðið bana eða særst í átökunum. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna skýrði frá því í gær að 1,5 milljónir Sómala gætu soltið í hel ef umheim- urinn brygðist ekki tafarlaust við og sendi matvæli og önnur hjálpargögn til landsins. Alls gætu um 4,5 milljón- ir Sómala hugsanlega orðið hungrinu að bráð á næstu mánuðum. Eystrasaltsríkin: Hóta að lama fund RÖSE Tallinn, Helsinki, Reuter. LEIÐTOGAR Eistlands, Lettlands og Litháens kröfðust þess á fundi sinum í Tallinn í Eistlandi í gær að Rússar leggi fram áætlun um brottflutning 130.000 hermanna í sovéthernum fyrrverandi úr Eyst- rasaltsríkjunum. Verði það ekki gert á fundi leið- toga Ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) í Helsinki í næsta mánuði muni þeir neita að skrifa undir allar ályktanir RÖSE, en með því gætu þeir lamað fundinn, því hvert land hefur neitunarvald. Rússar segjast ekki geta flutt her- mennina á brott fyrr en þeir hafi séð þeim fyrir húsnaeði í Rússlandi. Júrí Deijabín, sendiherra Rúss- lands í Finnlandi, viðurkenndi í gær að mikill fjöldi rússneskra hermanna hefði verið fluttur til að landamærum Israel: Skelfileg hungursneyð í Sómalíu: Uffesýnirlit Reuter Danir slógu á létta strengi við setn- ingu leiðtogafundar Evrópubanda- lagsins í Lissabon í gær, þó að þeir séu í erfiðri stöðu innan EB eftir að danskir kjósendur felldu Maastricht- samkomulagið. Uffe Ellemann-Jen- sen, utanríkisráðherra Danmerkur, mætti með rauðan og hvítan trefií um hálsinn til að sýna stuðning sinn við danska landsliðið áður en það lagði Þjóðveija að velli í úrslitaleik Evrópukeppninnar í knattspymu. Það er forsætisráðherra Portúgals, Anibal Cavaco Silva, sem þarna skoðar trefil utanríkisráðherrans, en lengst til hægri er Poul Schliiter, forsætisráðherra Dana. ríkjanna. Finnskir stjórnmálamenn segjast vissir um að þetta sé bráða- birgðaráðstöfun vegna skorts á hús- næði fyrir rússneska hermenn sem hafa verið fluttir frá kommúnistaríkj- unum fyrrverandi í Austur-Evrópu. Samcinuðu bjóðunum, Lissabon, Washington, Bclgrad. Reutcr. BOUTROS Boutros-Ghali, fram- kvjemdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, sagði í gærkvöldi að ef Serbar hættu ekki nýrri sókn sinni í Sar^jevo innan tveggja sólarhringa félli samkomulag SÞ og Serba úr gildi og öryggisráð SÞ gæti Ieitað nýrra leiða til að koma mat og hjálpargögnum til borgarinnar. Sendiherra Frakka hjá SÞ sagði að „ekkert yrði úti- lokað“ í því tilviki, sem er túlkað þannig að ráðið muni e.t.v. veita heimild til valdbeitingar í nafni SÞ í Sarajevo. Mjög harðir bardagar blossuðu upp í gær í Dobrinja-hverfinu í Sarajevo, sem byggt var í nágrenni flugvallarins fyrir vetrarólympíuleik- ana 1984, og beittu Serbar skrið- drekum gegn sveitum múslima og Króata. Talsmenn SÞ í Sarajevo sögðu að félli hverfið í hendur Serb- um yrði nánast útilokað að opna flug- völlinn eins og samið var um við leið- toga Serba þann 5. júní. Bretar lögðu til á leiðtogafundi Evrópubandalagsins í Lissabon í gær að Serbar fengju frest til 3. júlí til að opna flugvöllinn í Sarajevo fyrir flutningum með hjálpargögn. Utan- ríkisráðherra Ítalíu sagðist myndu leggja það til að ríki EB tækju af skarið á næstu dögum um opnun flugvallarins, jafnvel þó að beita þyrfti hervaldi til þess. George Bush Bandaríkjaforseti hélt í gær fund með helstu ráðgjöfum sínum um hugsanlega hemaðaríhlut- un í Bosníu. Að honum loknum sagði Brent Scowcroft, öryggismálaráð- gjafí forsetans, að íhlutunar í Sarajevo væri ekki að vænta á næstu dögum og að hún yrði aðeins gerð í samráði við Sameinuðu þjóðirnar. Bandarískar hersveitir í Evrópu hafa fengið fyrirmæli um að undirbúa flutninga á . lijálpargögnum til Sarajevo, en James Baker, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði að I áður en Boutros-Ghali sagði að ráðið samþykktir öryggisráðsins leyfðu kynni að endurmeta afstöðu sína í ekki beitingu hervalds við flutning- málinu. ana. Þessar yfirlýsingar voru gefnar I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.