Morgunblaðið - 07.08.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.08.1992, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C/D/E 176. tbl. 80. árg. FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Frekari sannanir fyrir voðaverkum í fangabúðum Serba Vitni lýsa morðum og öðrum hryðjuverkum Travnic, Bihac, Sarajevo. The Daily Telegraph, Reuter. Félagarnir fallnir Særður bosnískur hermaður syrgir tvo fallna félaga sína eftir að sprengja frá herbúðum Serba sprakk í búðum þeirra í Bosanski Luzine. Ítalíuþing samþykkir hert lög gegn mafíunni Fangelsi fyrir að fá að- stoð mafíu í kosningum Róm. The Daily Telegraph, Reuter. STJÓRN Ítalíu tókst í gær að GEORGE Bush Bandaríkjafor- seti fyrirskipaði í gær tafarlausa rannsókn á hvort Serbar séu sek- ir um þjóðarmorð í Bosníu. Breskir fréttamenn sem rætt hafa við flóttamenn í Norður- Bosníu segja að Serbar stundi skipulagt ofbeldi í „þjóðernis- hreinsunum" sínum, en telja sig ekki hafa sannanir um að þeir reki útrýmingarbúðir á borð við nasista. Fréttamaður JTN-sjón- varpsins, sem fékk aðgang að Omarska-búðunum sagði fanga greinilega vannærða og ástand fólksins réttlætti kröfur um taf- arlausa rannsókn á aðbúnaði þess. Fólk sem kom frá Omarska sagði að barsmíðar og nauðganir væru þar daglegt brauð. Bush krafðist þess að fangabúðir Serba yrðu opnaðar eftirlitsmönn- um og að „þjóðernishreinsunum" þeirra yrði tafarlaust hætt. Hann útilokaði ekki að bandarískir her- menn yrðu sendir á vettvang og krafðist líka herts viðskiptabanns á Serbíu og boðaði að Bandaríkin tækju upp fullt stjórnmálasamband við lýðveldi Júgóslavíu sem lýst hafa yfir sjálfstæði frá stjórninni í Belgrad. Flugvöllurinn í Sarajevo hefur verið lokaður vegna bardaga í þrjá daga en Bush sagðist ekki ennþá tilbúinn til að skipa hermönn- um að grípa þar til vopna. Blaðamenn The Daily Telegraph hafa rætt við flóttamenn sem kom- ið hafa til bæja á yfirráðasvæði Króata og múslima og telja sig geta staðfest fréttir af skipulögðum hryðjuverkum Serba. Flóttamenn- irnir eru flestir konur, börn og gamlir karlmenn, en Serbar virðast halda yngri mönnum eftir. Fólk sem kom frá Omarska-búðunum sagði að þar væri um 3.000 mönnum haldið í vörubílageymslu, þar sem þeir gátu ekki einu sinni lagst til svefns vegna þrengsla. Fangar væru ítrekað barðir til óbóta. Einn flóttamannanna sagðist hafa borið tvo menn burtu örenda eftir bar- smíðar. Annar sagðist hafa orðið vitni að aftöku þriggja manna. Múslimsk kona sagðist hafa verið neydd að bera eld að tíu húsum í þorpi sínum og hún hafi séð lík liggja eins og hráviði á leið til fangabúða í Tmjopole, þar sem um 5.000 manns eru taldir vera í haldi. Önnur kona sagðist hafa séð konu skotna til bana þar sem hún var að gefa barni sínu brjóst og að nauðganir væru daglegt brauð í búðunum. Milan Panic, forsætisráðherra Júgóslavíu (Serbíu og Svartfjalla- lands), fór í gær með fréttamönnum til fangabúða í Serbíu, og sögðu þeir að múslimskir fangar sem þeir sáu þar virtust vel hirtir. Panic neitar að nokkrar einangrunar- eða útrýmingarbúðir sé að finna í Serb- íu og Svartfjallalandi. koma í gegnum þingið lögum um aukið frelsi lögregiu til ýmiss kon- ar aðgerða í baráttunni gegn mafíunni. Refsingar fyrir að semja við glæpasamtök gegn því að fá stuðning þeirra í kosningum voru mildaðar. Það var ákaft gagnrýnt af fiokki á Sikiley er gert hefur baráttu gegn mafíunni að helsta máii sinu. Sumir þingmenn gagnrýndu harkalega að yfirvöld fengju svo mikil völd og töldu hættu á misnotk- un. Alfredo Biondi, varaforseti þings- ins, sagði: „Þetta andlát réttarríkis- ins og fæðing lögregluríkisins.“ Refs- ingin við áðurgreindum tengslum stjórnmálamanna við mafíuna verður allt að sex ár. Lögregla fær nú leyfi til að beita símahlerunum og húsleit í auknum mæli, réttindi fanga sem dæmdir hafa verið fyrir mafíuglæpi verða takmörkuð og vitni gegn sam- tökunum fá aukna vernd. Pina Maesano, öldungardeildar- þingmaður og ekkja eins af fóm- arlömbum mafíunnar, hefur setið í tíu ár á þingi og tekið þátt í að sam- þykkja 113 lög gegn glæpasamtök- unum. Hún var svartsýn á að gagn yrði að þessum aðgerðum. „Það var ekki þörf á nýjum lögum, miklu frem- ur að hafíst yrði handa við að fram- fylgja þejm sem í gildi eru,“ sagði hún. Irakar neita að opna fleiri ráðuneyti Bagdad, Washington. Reuter. ÍRAKAR iýstu því yfir í gær að nýrri eftirlitsnefnd frá Sameinuðu þjóðunum yrði ekki hleypt inn í ráðuneyti þeirra og stofnanir. Bandaríkjaforseti svaraði með kröfu um að írakar færu að öllum óskum eftirlitsmanna og sagðist eila viija beita hervaldi. Sagan af harðlæstum ráðuneytum í frak og hörðum viðbrögðum Banda- ríkjamanna virðist nú ætla að endur- taka sig. Hópi á vegum SÞ var hleypt inn í landbúnaðarráðuneytið í Bagdad eftir langt þóf en engar hem- aðarupplýsingar fundust. írakar kváðust í gær ætla neita leitarmönn- um sem senda á til Bagdad um að- gang að höfuðstöðvum ráðuneyta, slíkar heimsóknir beindust gegn full- veldi íraks og-sjálfstæði. George Bush Bandaríkjaforseti brást hart við yfirlýsingu íraka. Hann var á kosningaferðalagi í Kól- oradó þegar fregnaðist um afstöðu þeirra gagnvart þessum skilmálum í vopnahléssamkomulaginu við SÞ. Málið komst þegar í brennidepil kosningabaráttunnar. Skoðanakann- anir segja fylgi Bush nú komið niður í 33%. Hann naut hylli 91% Banda- ríkjamanna fyrst eftir sigurinn á írökum í Kúveit 1990. -----» ♦ ♦---- Nashyming- ar í hættu Delhi. The Daily Telegraph. INDVERSKIR nashyrningar eru í bráðri útrýmingarhættu þar eð veiðiþjófar drepa þá vegna horn- anna, sem seljast dýrum dómum sem kynörvandi lyf. Indversk yfírvöld segja að 1.129 nashymingar séu á verndarsvæði í Assam í norðvestur Indlandi, en umhverfisverndarsinnar segja stjóm- völd vísvitandi falsa tölur og aðeins 3-400 dýr séu eftir. Þeir segja að 400 dýr hafi verið drepin með raf- losti úr haspennulínum á verndar- svæðinu. Veiðiverðir hafa skotið Qóra veiðiþjófa til bana, en óvíst er hvort þeim takist að bjarga nashyrn- ingunum frá aldauða, þrátt fyrir svo harkalegar aðgerðir. Landnemar gyðinga mótmæla Þúsundir manna efndu til mótmæla í Jerúsalem í gær gegn takmörkun- um á landnámi gyðinga á her- numdu svæðunum, nokkrum stundum áður en Yitzhak Rabin forsætisráðherra hélt til Bandaríkj- anna. Þar mun ísraelski ráðherrann ræða við George Bush forseta eftir helgina en Bush hefur látið í ljós ánægju með stefnu hinnar nýju Israelsstjórnar. Á miðvikudag bannaði stjórnin allt frekara land- nám og hétu leiðtogar Palestínu- manna í gær að gera sitt til að næsta lota friðarviðræðnanna í Washington bæri árangur. Reuter

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.