Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C/D 182. tbl. 80. árg. FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins • • Oryggisráð SÞ heimilar hernaðaríhlutun í Bosníu Mannfall í miðri Kabúl Sarajevo, Genf, Sameinuðu þjóðunum, Ró ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð- anna samþykkti í gærkvöldi að heimila hernaðaríhlutun í Bosn- íu-Herzegovínu ef nauðsyn krefði til að tryggja að hægt yrði að koma hjálpargögnum til nauðstaddra íbúa landsins. Al- þjóðaráð Rauða krossins í Genf sagði í gær að múslimar, Króatar og Serbar hefðu allir gerst sekir um „skipuleg grimmdarverk“ á saklausum borgurum og brotið Genfar-sáttmálann. Tólf af ríkjunum fimmtán, sem eiga sseti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, greiddu atkvæði með ályktun sem heimilar hernaðarí- hlutun í Bosníu. Þtjú ríki, Kína, Indland og Zimbabwe, sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Hins vegar var samþykkt samhljóða ályktun þar sem þess er krafist að Rauði kross- inn fái aðgang að fangabúðum í öllum fyrrverandi lýðveldum Júgó- slavíu. Embættismenn Alþjóðaráðs Rauða krossins sögðu í gær að þeir hefðu fengið loforð um að hafa eft- irlit með öllum fangabúðum í Bosn- íu. Tuttugu manna sveit á vegum hjálparstofnunarinnar hefði þegar vitjað 6.000 fanga sem eru í haldi í þremur illræmdum búðum Serba. Sveitin hefði séð dæmi þess að lið- lega níræðu fólki væri haldið í búð- unum. Níu aðildarríki Vestur-Evrópu- sambandsins höfnuðu í gær hug- myndinni um viðamikla hernaðarí- hlutun í Bosníu en voru hins vegar hlynnt takmörkuðum hernaðarað- gerðum til að tryggja að hægt yrði að koma hjálpargögnum ti! nauð- staddra. Fram til þessa hafa Serbar eink- um verið sakaðir um voðaverkin en serbneskir leiðtogar hafa sagt að þúsundir Serba hafi sætt illri með- ferð múslima og Króata. í skýrslu Alþjóðaráðs Rauða krossins segir að múslimar, Króatar og Serbar séu allir sekir um „þjóð- ernishreinsanir", þ.e. að hafa flæmt fólk af öðrum þjóðernum frá heim- kynnum sínum til að skapa „þjóð- ernislega hrein svæði“. „Alþjóðaráð Rauða krossins hefur aflað sér upp- lýsinga um að saklausir borgarar hafi verið handteknir og sætt ómannúðlegri meðferð,“ segir í skýrslunni. „Barsmíðar, morð, eignaupptökur og gíslatökur eru aðeins lítill hluti af þeim aðferðum sem beitt hefur verið og bijóta í bága við alþjóðleg mannúðarlög." Leyniskyttur skutu í gær á bíla- lest Milans Panics, forsætisráðherra Júgóslavíu, er hann var á leiðinni frá flugvellinum í Sarajevo til höf- uðstöðva friðargæsluliða Samein- uðu þjóðanna í bosnísku höfuðborg- inni. Bandaríkjamaður, starfsmað- ur bandaríska sjónvarpsins ABC, særðist í árásinni og lést síðar í höfuðstöðvunum. Panic var á leið til viðræðna við stjórnmálaleiðtoga til að afla sér upplýsinga fyrir frið- arráðstefnu á vegum Evrópubanda- lagsins sem hefst í Brussel í dag. t. Reuter. Kabúl, Islamabad. Reuter. BURHANUDDIN Rabbani, for- seti Afganistans, sagði að hundr- uð afganskra borgara hefðu beð- ið bana í gær er skæruliðar Gulbuddins Hekmatyars skutu flugskeytum á miðborg Kabúl, höfuðborg Afganistans, i einni mannskæðustu árás á borgina frá því harðir bardagar blossuðu þar upp fyrir fimm dögum. Rúm- lega 150 manns særðust í árás- inni. -f-% 0 x j i • * i * >c Keuter Bratt lausir ur buðunum Króatískir stríðsfangar fá hér að þvo fötin sín í fangabúðum í Bosníu. Þeim verður sleppt í dag í skiptum fyr- ir serbneska fanga í mestu fangaskiptum Króata og Serba til þessa. Mesta manntjónið varð vegna klasaflugskeytis, en slík vopn valda öflugri sprengingu en hefðbundin flugskeyti. Sundurtætt lík og blóð- pollar voru á víð og dreif á gang- stéttum. Gulbuddin Hekmatyar er heittrú- aður leiðtogi skæruliðahreyfingar sem nefnist Hezb-i-Islami. Hann hefur neitað að binda enda á árás- irnar á afgönsku höfuðborgina fyrr en stjórn íslamskra skæruliðahreyf- inga, sem tók við völdunum fyrir þremur mánuðum, gangi að kröfum hans um kosningar og brottvísun hreyfingar Úzbeka, sem stuðlaði að falli kommúnistastjórnarinnar. Talsmaður Hezb-i-Islami sagði í gær að hreyfingin myndi hætta árásum á Kabúl í sólarhring til að gefa útlendingum færi á að fara þaðan ef stjórnin féllist á vopnahlé. Washington. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti gerði í gær James Baker utan- ríkisráðherra að skrifstofustjóra í Hvíta húsinu en þaðan á hann að stjórna baráttu forsetans fyrir endurkjöri í forsetakosningun- í nóvember næstkomandi. Skipan Bakers er óvenjuleg sakir þess að sjaldgæft er að menn í æðstu stöðum taki við starfi sem þeir hafa áður gegnt en hann var fyrsti skrifstofustjóri Hvíta hússins í forsetatíð Ronalds Reagans. Sjá „Orðrómur um framhjá- hald Bush...“ á bls. 18. um Ákvörðun Bush staðfestir þrálát- an orðróm sem verið héfur á kreiki. undanfarnar vikur. Baker tekur við kosningastjórninni 23. ágúst og Lawrence Eagleburger gegnir á meðan embætti utanríkisráðherra en hann hefur verið aðstoðarmaður Bakers. Baker á þó áfram að stjórna tilraunum Bandaríkjamanna til að koma friðarsamningum í Miðaust- urlöndum í höfn. Bakers bíður erfitt hlutskipti því samkvæmt skoðanakönnunum nýt- ur Bill Clinton, frambjóðandi Demó- krataflokksins, 26% meira fylgis en forsetinn. Bush hefur áður leitað til Bakers þegar hann hefur átt á pólitískan bratta að sækja og hefur utanríkis- ráðherranum fráfarandi jafnan tek- ist að bjarga málum. Bush sagðist myndu leggja til að fráfarandi skrifstofustjóri, Samuel Skinner, taki við for- mennsku í Repúblikanaflokknum, sérstöku trúnaðarstarfi sem óskip- að er í. Reuter Ber er hver að baki... James Baker tekur nú við stjórn baráttu Bush Bandaríkjafor- seta fyrir endurkjöri. Lawrence Eaglebur- ger aðstoðarmaður Bakers sest í stól ut- anríkisráðherra fram að kosningum. Fyrrum málgagn kommúnista í krumlur auðvaldsins Grikki kaupir Prövdu Mnckvu ILiili; Tnlmn-unli Moskvu. Daily Telegraph. GRÍSKUR auðkýfingur hefur fest kaup á Prövdu, dagbiaðinu sem Lenín stofnsetti og fyrrum mál- gagni sovéska kommúnistaflokkins. Smán blaðsins þykir alger, það hefur stært sig af að hvika ekki frá upprunalegri stefnu sinni sem felst meðal annars í að eignir ættjarðarinnar megi ekki lenda í liöndum gráðugra auðvaldssinna. Óvíst er hvort þessar björgunaraðgerðir á elleftu stundu megna að koma í veg fyrir gjaldþrot Prövdu. Af fjárskorti er blaðið aðeins gefið út þrisvar í viku í minna en milljón eintökum, tíu sinnum smærra upp- lagi en þegar hinn opinberi sannleikur var sá eini rétti. Pravda hefur aldrei þótt trúverðug og mælirinn fylltist í fyrra þegar blaðið studdi valdaránstilraun harðlínumanna. I refsiskyni var útgáfa þess bönnuð um tíma eftir að tilraunin fór út um þúfur og hinn voldugi bakhjarl, kommúnistaflokkurinn, leystur upp. Síðan hefur Pravda átt erfitt uppdráttar. Baker kvaddnr til bjargar Bush í kosningabaráttumii

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.