Morgunblaðið - 29.08.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 29.08.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992 25 Bóas Jónasson mat- sveinn — Minning Fæddur 17. júlí 1921 Dáinn 23. ágúst 1992 Einn af öðrum kveðja þeir, kærir samferðamenn að heiman, sem minnzt er allt frá bemskunnar björtu stundum og söknuður sækir hugarr- ann heim, þegar hinzta sinni er kvatt. Bóas Jónasson, sá trausti og ein- lægi drengur, er horfinn yfir hina miklu og óræðu móðu. Það var ekki svo ýkjalangt á milli þeirra frænda og vina, Jóhanns Valdórssonar og hans, en einhvem veginn vom þeir svo samofnir vitund manns, að vart er unnt annars að minnast án þess hinn komi í hug. Hinar góðu dyggðir: trúmennska, samvizkusemi og iðni áttu ágætan fulltrúa í Bóasi, þær kristölluðust í kokksstarfi hans, enda varð starfs- heitið gjarna í fylgd með eiginnafni. Afar vel unnin verk varða lífsleið hans, þar sem öllu skipti, að aðrir mættu sem allra bezt njóta afrakst- ursins. Bóas átti til traustra stofna að telja og æskuheimilið var rómað fyr- ir rausn og reisn. Foreldrar hans mikið mannkostafólk, sem menn mátu og virtu að verðleikum sakir greindar, góðvildar og farsælla fé- lagsstarfa. Gott var því veganestið út í lífið og Bóas ávaxtaði vel sitt pund með prúðu geði og alúð til alls sem honum var fyrir trúað. Hann var sjómaður umfram allt, þar undi hann sér langa og farsæla starfs- ævi, þar sem nafnið Snæfuglinn fylgdi honum og fylgir minningu hans, bátur og maður sem eitt í okk- ar huga. Ég minnist hins vegar fyrstu funda okkar Bóasar fyrir margt löngu, þegar Bóas spjallaði við og spurði ungan dreng um ærnar, enda á réttardegi í ys og erli. Þá varð mér ljóst að féð átti sterkan streng í huga hans einnig, þó ævistarfið yrði víðsfjarri þeim vettvangi. Vermandi viðmótið á réttarveggn- um var lýsandi fyrir Bóas alla ævi- tíð, enda eitt megineinkenna hans. Hann .var mikill dugnaðarmaður, afbragðsmatsveinn og einkar liðtæk- ur til allra verka. Hann var maður ihugull og greinargóður, skoðana- fastur, ef því var að skipta. Ákveðn- ar skoðanir hafði hann á þjóðfélags- málum og fylgdi Sjálfstæðisflokkn- um að málum. Hann var vinfastur vel, trúr í hveiju einu og dagfars- prúður. Bóas var Reyðfirðingur, fæddur þar 17. júlí 1921, sonur hjónanna Valgerðar Bjarnadóttur og Jónasar P. Bóassonar, sem bjuggu á Bakka og settu mikinn svip á bæjarlífið heima á sínum tíma, enda afar vel gerð hjón. Þar heima ólst Bóas upp í íjölmennum systkinahópi og dvaldi á Reyðarfirði allan sinn aldur. Syst- kini hans voru 6, einstakt atgervis- fólk. Hann var ókvæntur og barn- laus, en barngóður var hann með afbrigðum. Matsveinsstarfið varð ævistarfið og Snæfuglinn annað heimili hans. Bóas var vinmargur maður, enda góður félagi, gamansamur og glögg- ur, og honum mátti í hvívetna treysta. Bóas er kvaddur í þökk fyrir góð- an kunningsskap áranna. Þekkar eru minningar þær er ég á um drenglynd- an mann og dyggan. Systkinum hans og þeirra fólki sendum við Hanna og faðir minn einlægar samúðarkveðjur. Særinn kveður saknaðarljóð, er hinzta báran er hnigin. Blessuð sé minning Bóasar Jón- assonar. Helgi Seljan. Bóas frændi bjó á Bakka og hann var bróðir hans afa. Lífsleiðin okkar er ekki orðin löng og enn höfum við ekki þekkt marga með hjartalagið hans Bóasar — það var oft eins og við ættum tvo afa á Reyðarfirði, einn í Ásgerði og einn á Bakka. Hann færði okkur jólagjafír á jólum, páska- egg á páskum og ef við trítluðum út á Bakka til að heimsækja frænda, brást hann glaður við og alltaf fórum við södd til baka. í fyrrasumar rerum við út á fjörð með mömmu og pabba í einstöku blíðviðri. Þegar báturinn renndi upp í fjöruna neðan við Bakka, stóð Bóas á stéttinni og bauð okkur í bæinn. Þann daginn fengum við í fyrsta skipti á ævinni meiri ís en við gátum mögulega torgað. Að því leyti var Bóas svo ólíkur flestu fullorðnu fólki — hann hafði hvorki áhyggjur af tönnunum í okkur né matarlystinni við kvöldverðarborðið — hann vildi bara gleðja okkur sem best hann gat. Þó hann ætti sjálfur engin böm, voru hirslumar hans ætíð óþijótandi uppspretta margs þess sem gleður bamssálina og hann hafði alltaf nægan tíma til að spjalla. Við komum til Bóasar á spítalann um daginn. Þá lá hann í rúminu og var lasinn. Hann hélt lengi í hendum- ar á okkur og verst þótti honum að geta ekki gefíð okkur eitthvað. Á hverju kvöldi báðum við Guð um að láta Bóasi batna en það var ekki hægt að lækna hann og eina nóttina fór Bóas til Guðs. Nú er hann ekki veikur lengur, því hjá Guði líður öll- um vel. Þar em líka fjölmörg börn sem vísast heimsækja Bóas, þó við getum það ekki lengur. Nú biðjum við Guð um að gæta Bóasar vel, því okkur þótti vænt um hann. Við emm þakklát fyrir að hafa verið í hópi þeirra mörgu bama sem nutu gæsku hans og hlýju. Hin ianga þraut er liðin, nú loksins Maustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unnin og sólin bjðrt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er fri (V. Briem) Guð blessi Bóas frænda. Friðbjöm Orri og Laufey Rún Ketilsbörn. Þuríður V. Sigurðar- dóttírfrá Vestmanna Hjörtur P. Hjartar- son - Minning eyjum — Minning Fæddur 5. mars 1913 Dáinn 24. ágúst 1992 Það er komið að því að kveðja Hjört sem hefur verið mér mjög kær alla ævi. Ég var þeírra forréttinda aðnjótandi að vera aðstoðarmaður hans og Lillu í vor þegar þau vom á hrognkelsaveiðum norður í Reykja- vík. Þetta var að vísu ekki í fyrsta skipti sem ég dvaldi í Reykjavík. Ég mun ávallt minnast dvalar minnar þegar ég var um átta ára gamall. Mér var mikið í mun að kom- ast til Reykjavíkur og suðaði mikið og að lokum fékk ég mínu fram- gengt. Ýmislegt var þar hægt að hafa fyrir stafni en jafnaldra vantaði stundum. Þegar ég hafði verið í stutt- an tíma tjáði ég mömmu minni í gegnum síma að ég ætlaði að vera í sex daga. Eftir það talaði Hjörtur alltaf um sexdagastríðið mitt. Þótt ég hafí ekki dvalið lengi í þá daga var ég lengur nú í vor og átti mjög ánægjulegar stundir með Hirti. Það er erfitt að hugsa sér að hrausti maðurinn sem ég var að vinna með í sumar skuli ekki vera lengur með okkur. Vissulega var Hjörtur kominn af léttasta skeiðinu en það var lítið gefíð eftir. Farið var snemma á fæt- ur, bátnum komið á flot og síðan drifíð sig á sjó og ekki snúið í land fyrr en lokið var því verki sem tekið var sér fyrir hendur. Þótt lítið hafí verið slegið af við vinnu gáfust alltaf stundir til að ræða saman. Það voru góðar stundir. Ein var sú þegar við sátum fyrir innan skúr, verið var að spýta selskinn, það var yndislegt veður. Þar sagði Hjörtur frá því þeg- ar hann var yngri og var að byija sjósókn. Hann lýsti þeim aðstæðum sem nýfermdur drengur þurfti að gera sér að góðu til sjós í þá daga. Því að daginn eftir ferminguna fór hann á fyrstu vertíðina og stundaði sjóinn allar götur eftir það. Einn daginn fór ég að spyija eftir því hversu lengi hann og Lilla hefðu stundað hrognkelsaveiðar frá Reýkjavík. Þeim taldist þá til að ver- tíðin í vor væri sú fertugasta. Mikil vinna liggur að baki þessara vertíða en mismikill aflinn. Það eru margar minningar tengd- ar Hirti í Reykjavík en erfítt verður að ímynda sér stólinn í eldhúsinu auðan. Stólinn hans, stólinn sem enginn kunnugur settist í, stólinn sem Hjörtur settist alltaf í við eldhús- borðið. Hjörtur mun ekki setjast í stólinn aftur en myndin í hugskoti mínu á alltaf eftir að lifa. Hjörtur og Lilla hafa í mínum huga verið sem óijúfanleg heild því varla minnist ég þess að hafa séð annað þeirra án þess að hitt væri nærri fyrr en þessa síðustu daga. Það var fátt sem þau hjálpuðust ekki að við. Því miður hefur þessi heild verið rofín fyrir mér og sam- ferðamaður frænku minnar er farinn. Ég óska þess því heitt og innilega að Guð gefi Lillu allan þann styrk sem þarf til að yfirstíga þann mikla missi sem fráfaíl Hjartar er. Örn Halldórsson. Mig langar í fáum orðum að minn- ast ömmu minnar, Þuríðar Vilhelm- fnu Sigurðardóttur frá Reynistað, Vestmannaeyjum. Við systkinin köll- uðum hana aldrei annað en „ömmu í Eyjum" enda bjó hún þar alla sína tíð. Ég hefði svo gjaman viljað kynn- ast henni betur og sjá hana oftar en svona vill þetta oft verða þegar ætt- ingjamir dreifast um landið, þá þarf oft áræði og dug til að halda tengsl- um. Mér þótti alltaf vænt um ömmu í Eyjum og fannst hún skemmtileg og kát enda hafði hún ríka kímni- gáfu. Hún átti auðvelt með að sjá spaugilegu hliðamar og kunni að gera grín að sjálfri sér. Faðir minn var einn af mörgum tengdasonum hennar og er mér minnistætt hve fallega hann talaði um ömmu og hlakkaði til að hitta hana. Það var okkur systkinunum líka tilhlökkunar- efni þegar amma kom í heimsókn, þá létti yfír heimilisfólkinu og Reyni- staðarhláturinn var allsráðandi. Ég man eftir sérlega hlýjum móttökum þegar við fómm til Eyja skömmu eftir gos, við yngstu systumar með foreldmnum og heimsóttum afa og ömmu í blokkina við Hásteinsveg. Sigurlás afi dó árið 1980, hann var fæddur 13. ágúst 1893 og hefði því orðið 100 ára á næsta ári ef hann hefði lifað. Amma fæddist í Vest- mannaeyjum 31. október 1907. For- eldrar hennar vom Margrét Þor- steinsdóttir og Sigurður Ólafsson. Amma og afi giftust árið 1928 og áttu 14 böm saman; Eggert, fæddan 1929, dáinn 1978, Þorleif, fæddan 1930, Önnu, fædda 1933, Kristínu, fædda 1935, Ástu, fædda 1937, Ól- öfu, fædda 1939, Jónu, fædda 1940, Gústaf, fæddan 1941, Helga, fæddan 1944, Reyni, fæddan 1946, dáinn 1979, Emu, fædda 1947, dáin 1989, Margréti, fædda 1949, Geir, fæddan 1950, og Lindu, fædda 1955. Afi átti þijú böm af fyrra hjóna- bandi og amma eina dóttur, Sigur- laugu Ólafsdóttur. Lengst af bjó fjöl- skyldan á Rejmistað við Vesturveg. Seinni árin bjuggu þau á Hásteins- vegi 60. Aldrei heyrðist hún amma mín kvarta þótt oft hafi verið ástæða til, það er rétt hægt að ímynda sér hvemig það hefur verið að sjá um þennan fjölda af bömum í þröngum húsakynnum við kröpp kjör á þessum ámm. Amma í Eyjum fékk líka að kynnast sorginni eins og svo margir, hún missti eiginmann og þijú af bömum sínum. Eftir lát Emu 1989 varð hún aldrei söm. Emu frænku er sárt saknað úr hópnum. Amma í Eyjum hefur skilað dags- verki sínu og rúmlega það. Það er trú mín að þessi duglega og ósér- hlífna kona hafí fengið hlýjar mót- tökur þar sem hún nú er, og mér er sem ég heyri dillandi Reynistaða- hlátur hljóma. Blessuð sé minning hennar. Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir. iltóóur f a morgun ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson messar. Org- anisti Guðni Þ. Guömundsson. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Ferm- ing, altarisganga. Fermdur vérður 'Jónas Guðmundsson, Bárugötu 10, Rvík. Dóm- kórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Sr. Hjalti Guðmundsson. VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.00. Dómkórinn syngur. Organleikari Mar- teinn h. Friðriksson. Bátsferð úr Sunda- höfn kl. 13.30. Sr. Hjalti Guðmundsson. ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Baldur Sigurðsson. GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Prestur sr. Gylfi Jónsson. Organ- isti Árni Arinbjarnarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna- stund kl. 11.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárus- son. Prófessor Einar Sigurbjörnsson prédikar. Fermd verður Guðný Einars- dóttir, Hólatorgi 8, Rvík. Þriðjudag: fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 10.30. .Beðið fyrir sjukum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. HÁTEIGSKIRKJA: Hámessa kl. 11. Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöldbænir og fyrir-. bænir á miðvikudögum kl. 18. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Organisti Jón Stefáns- son. Kór Langholtskirkju (hópur II) syng- Guðspjall dagsins: Lúk. 18.: Farísei og tollheimtu- maður. ur. Kaffisopi eftir messu. Aftansöngur virka daga kl. 18.00. LAUGARNESKIRJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Guðmundsson mess- ar. Heitt á könnunni eftir guðsþjónustu. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Guðmundur Óskar Ólafsson. Miðviku- dag: Bænamessa kl. 18.20. Guðmundur Oskar Ólafsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdótt- ir. Organisti Kristín Jónsdóttir. Miðviku- dag: Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta sunnu- dag kl. 11 árdegis. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Guðrún Ingimarsdóttir og Ingunn Sighvatsdóttir syngja stólvers. Sr. Guömundur Þorsteinsson. FELLA- og Hólakirkja: Kvöldguðsþjón- usta kl. 20.30. Ragnhildur Hjaltadóttir prédikar. Prestur Guðmundur Karl Ág- ústsson. Organisti Guðný M. Magnús- dóttir. Kaffi eftir guðsþjónustuna. Prest- arnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta fellur niður vegna þátttöku organleikara og krikjukórs i tónlistar- og söngnámskeiði í Skálholti. SEUAKIRKJA: Engin guðsþjónusta vegna sumarleyfis starfsfólks. Sóknar- prestur. HJALLAPRESTAKALL: Messusalur Di- granesskóla. Lesguðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur. KRISTSKIRKJA Landakoti: Messa kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa kl. 14, ensk messa kl. 20. Laugardaga messa kl. 14 og ensk messa 20. Aðra rúmhelga daga messa kl. 18. MARÍUKIRKJA Breiðholti: Messa kl. 11. Laugard. kl. 14, fimmtudaga 19.30. Aðra rúmhelga daga messa kl. 18.30. KFUM/K: Samkoma í kristniboðssalnum Háaleitisbr. 58 kh 20.30. Ræðumaður sr. Guðmundur Guðmundsson. HJÁLPRÆÐISHERINN: Útisamkoma á Lækjartorgi kl. 16. Bæn kl. 19.30og hjálp- ræðissamkoma kl. 20. Kvödd verða Karin og Erik Petersen. Þau fara til náms í for- ingjaskóla Hjálpræðishersins í Noregi. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fila-delfia: Al- menn samkoma kl. 20. Bamagæsla. VEGURINN, Kópavogi: Almenn sam- koma kl. 20.30. Nk. miðvikudag kl. 18. Bibliulestur. Sr. Halldór S. Gröndal. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa í Mos- fellskirkju kl. 11. Sr. Jón Þorsteinsson. KAPELLA St. Jósefssystra Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. VIÐISTAÐASÓKN: Guðsþjónusta i Viöi- staðakirkju kl. 11 og í Hrafnistu kl. 13. Kór Víðistaðasóknar syngur. Organisti Úlrik Ólason. Sr. Helgi Guðmundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. Sr. Gunnþór Ingason. KAPELLAN St. Jósefsspítala: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8. KÁLFATJARNARSÓKN: Guðsþjónusta Stóru Vogaskóla. Skólinn settur kl. 11. Aðalfundur safnaðarins að messu lok- inni. Sr. Bragi Friðriksson. YTRI-Njarðvikurkirkja: Messa kl. 21. Sr. Baldur Rafn Sigurðsson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Messa kl. 14. Sr. Helga Soffía Konráösdóttir kveður söfn- uðinn. Að messu lokinni kirkjukaffi í Kirkjulundi. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Stjórnandi Einar Örn Einarsson. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavik: Messa kl. 16. ÞORLÁKSKIRKJA. Messa kl. 10.30. STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl.14. SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 10.30. Sóknarprestur. STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Gunnar Marmunds- son. Sóknarprestur. BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalarnesi: Messa kl. 11. Sr. Gunnar Kristjánsson. REYNIVALLAKIRKJA: Messa kl. 14. Sr. Gunnar Kristjánsson. AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Bjöm Jónsson. BORGARPRESTAKALL: Guðsþjónusta Borgameskirkju kl. 11. í Akrakirkju. Guðs- þjónusta kl. 14. Aðalsafnaðarfundur aö messu lokinni. Sóknarprestur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.