Morgunblaðið - 29.08.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992
37
VELVAKANDI
LYKLARI
ÓSKILUM
FIMM lyklar, líklega húslyklar,
fundust í vikunni á malarvelli
rétt við- Hrafnhóla í Breiðholti.
Eiganda þeirra er bent á að
hringja í síma 73866.
HÁLSFESTI
GLÖTUÐ
Hálsfesti, fléttuð úr þrílitu
gulli, tapaðist í síðustu viku í
Reykjavík, að öllum líkindum
við Austurver, Kringluna eða í
Breiðholti-. Finnandi er vinsam-
legast beðinn um að hringja í
síma 75714. Fundarlaunum er
heitið.
KATTAR-
HVÖRF
SVÖRT 3-4 mánaða ómerkt
læða fannst við Hljómskála-
garðinn fyrir skömmu. Eigandi
kettlingsins getur hringt í síma
626372.
HINN 10. ágúst týndist köttur-
inn Loppi frá Þverási 49 í
Reykjavík. Loppi er stór og
bústinn, svartur að lit en með
hvítt trýni, loppur og bringu.
Þá er annað augað brúht en
hitt gult. Hann er merktur með
blárri ól. Þeir, sem hafa orðið
varir við ferðir hans, eru vin-
samlegast beðnir um að hringja
í síma 672937.
FJÖGURRA mánaða gamall
fress týndist á fimmtudag frá
Hábergi 14 í Breiðholti. Kettl-
ingurinn er gulbröndóttur á
hrygg og stýri en hvítur í fram-
an, á bringu og löppum. Þá er
hann með sár á vinstra aftur-
fæti. Finnandi er vinsamlegast
beðinn um að hringja í síma
71431.
KETTLINGAR
FÁST GEFINS
ÞRJÁ kettlinga vantar gott
heimili. Þeir eru gullfallegir og
kassavanir að sögn. Upplýs-
ingar í síma 667232.
LEIÐRÉTTING
Rangt var farið með nafn Sigríð-
ar Stefánsdóttur eiginkonu Bjarna
Einarssonar, fyrrverandi hrepps-
nefndarmanns í Njarðvík í Morgun-
blaðinu fyrir skömmu, þar sem sagt
var frá heimsókn dóttur hennar
Guðrúnar Bjarnadóttur, fyrrum al-
heimsfegurðardrottningar á æsku-
slóðir. Eru hlutaaðeigandi beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Pennavinir
Tékkneskur skógarfræðingur, 23
ára gamall, með áhugá á ólíkri
menningu þjóða og íþrótt.um:
Jaroslav Simo,
03821 Mosovce 290,
Europe,
Czechoslovakia.
Fimmtán ára þýsk stúlka með
mikinn íslandsáhuga og nýtur tón-
listar, ferðalaga og bréfaskrifta:
Myriam Loeffelmacher,
Usambarastr. 3,
8000 Miinchen 82,
Germany.
Tékknesk 26 ára kona, ensku-
kennari, með áhuga á ferðalögum,
bókalestri, tónlist, pijónaskap, mat-
seld og íþróttum:
Lenka Zimmermannova,
DM Cyrila Boudy 2953,
272 00 Kladno,
Czechoslovakia.
Snjallrceði
hvað er það?
Snjallræði er samkeppni sem ætluð er til þess að
örva nýsköpun og frumkvæði í íslensku atvinnulífi.
Iðnaðarráðuneytið, Iðnlánasjóður, Iðntæknistofnun
íslands og Iðnþróunarsjóður vilja með samkeppn-
inni styrkja og efla þá einstaklinga í íslensku
atvinnulífi sem hafa yfir markaðshæfum nýjungum
að ráða, ásamt því að hvetja til þróunar og markaðs-
setningar nýrra afurða. Snjallræði er því nýr
vettvangur fyrir góðar hugmyndir þar sem áhersla er
lögð á frumkvæði einstaklingsins til nýsköpunar.
Aðstandendur samkeppninnar eru sannfærðir um að
þörfin er brýn og að ekki sé skortur á nýjum
hugmyndum hérlendis.
Snjallar hugmyndir! Hverjir geta tekið þátt í
keppninni?
Leitað er eftir hugmyndum að ákveðnum afurðum á
sviði iðnaðar. Möguleikamir ættu því að vera
óteljandi.
Einstaklingar sem búa yftr áhugaverðum hugmynd-
um geta tekið þátt í samkeppninni.
Forsvarsmönnum íslenskra iðnfyrirtækja, ffam-
haldsskóla og skóla á háskólastigi er sérstaklega
bent á að hvetja starfsmenn sína og nemendur til
þátttöku í samkeppninni.
Hver er ávinningurinn?
Samkeppnin fer fram I tveimur áföngum. í fym
áfanga verða valdar allt að átta hugmyndir og þær
verðlaunaðar. Verðlaunin felast í fjárhagsaðstoð við
að kanna hvort hugmyndimar séu hagkvæmar til
framleiðslu. Hagkvæmnisathugunin á að fara ffarn
innan hálfs árs frá veitingu verðlaunanna.
Heildarkosmaðurinn má vera allt að 800.000,-
krónur. Verðlaunin nema 75% af kostnaði, þ.e.
hámark 600.000,- krónur.
f seinni umferð samkeppninnar verða valdar allt að
fjórar hugmyndir af þeim sem hlutu viðurkenningu í
fyrstu umferð. Verðlaunin í þessum áfanga nema
50% af kostnaði við fullnaðarþróun og frumgerða-
smíð, þó að hámarki 1.500.000,- krónur.
Fjallað um allar hugmyndir og fullur
trúnaður.
Allar hugmyndir sem berast í Snjallræði verða
teknar til umfjöllunar og metnar af sérstökum
matshóp verkefnisins.
Allir þeir sem kunna að sjá hugmyndimar em
bundnir trúnaði og undirrita trúnaðaryfirlýsingu því
til staðfestingar.
Frekari upplýsingar og þátttökueyðublöð.
Allar nánari upplýsingar um samkeppnina
Snjallræði og þær leikreglur sem gilda, ásamt
þátttökueyðublaði fást hjá verkefnisstjóra, Björgvini
Njáli Ingólfssyni, Iðntæknistofnun íslands,
Keldnaholti, sími 687000.
Sláðu til, þú gœtir verið sá snjalli!
IÐNAÐARRÁÐUNEYTID (Q) (DNIÁNASJÓOUR
IDNÞROUNARSIODUR
Idntækrastoframli
Snjallræði
samkeppni um nýsköpun