Morgunblaðið - 06.09.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.09.1992, Blaðsíða 34
pÍfr0nwMaí>tí> ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR IAUGLYSINGAR Sagnfræðingur óskast Nefnd um ritun sögu Stúdentaráðs Háskóla íslands (SHÍ) óskar eftir sagnfræðingi til rit- unar sögu ráðsins. Áætlað er að sagan verði gefin út árið 1995 og má ætla að ritunartími verði eitt ár, í það minnsta. Umsóknir er greini frá menntun og og reynslu umsækjanda óskast sendar á skrifstofu SHÍ í Stúdentaheimilinu við Hringbraut, 101 Reykjavík, merktar: „Nefnd um ritun sögu SHÍ“, fyrir 30. september 1992. STÚOENTARAÐ HÁSKÓLA ÍSLANOS STÚDENTAHEIMILINU V HRINGBflAUT TUNGLIÐ Fyrirhugað er að opna Nýja Bíóhúsið á ný undir skemmtanahald. Ætlunin er að opna ferskan stað á gömlum grunni og hefur mik- ið verk verið lagt í að breyta húsnæðinu og skapa nýja heildarmynd. í stað þess að gera húsið upp í nýtískulegum danshúsastíl eins og hefur tíðkast er leitast við að draga fram þann anda sem ríkti er húsið var nýbyggt á stríðsárunum. Því erfyrirhugað að hafa nokk- urskonar klúbbstemmningu ríkjandi á staðn- um. Ljóst er að mikil þreyta er komin í núver- andi skemmtistaði og fólk þyrstir í nýjan samastað. Hinsvegar nýtur engin staður sín til fullnustu ef gott starfsfólk er ekki fyrir hendi og því vantar okkur hresst fólk til vinnu í ýmis störf. Framkvæmdastjóri: Starfslýsing: Sjá um bókhald og uppgjör fyrirtækisins í nánu sam- starfi við eigendur, launamál og almenn rekstrarstörf. Verður í samstarfi við veitinga- stjóra og skemmtanastjóra. 75% starf. Reynsla: Viðskiptafræðingur eða mikil reynsla í bókhaldi. 4. árs viðskiptafræðinemi með góða reynslu kæmi vel til greina. Barþjónar: Okkur vantar hresst, snyrtilegt og ákveðið fólk sem hefur reynslu. Með- mæli til framdráttar. Dyraverðir: Reynsla æskileg en umfram allt er geðprýði og snyrtimennska skilyrði. Þurfa að geta tekið yfirvegaðar ákvarðanir undir miklu álagi. Miðasala: Tilvalin aukavinna fyrir banka- gjaldkera eða fólk með svipaða reynslu. Fólk í sal, uppvask og fatahengi: Viljum aðeins snöggt og áreiðanlegt fólk. Tilvalin aukavinna fyrir skólafólk. Við stefnum hátt og leggjum okkar metnað í framúrskarandi þjónustu við viðskiptavin- inn. Ef þú telur þig eiga samleið með okkur skalt þú slást í hópinn og mæta í viðtal á mánudaginn milli kl. 16.00 og 20.00 á skrif- stofu okkar í Lækjargötu, 3. hæð. Hafið með umsókn og upplýsingar á A-4 blaði. Vanir menn - vönduð vinnubrögð. Björgólfur Thor- Skúli Mogensen. Tölvunarfræðingur Öflugt og traust þjónustufyrirtæki óskar að ráða tölvunarfræðing. Starfsreynsla kostur en ekki skilyrði. Viðkomandi mun starfa við nettengdar PC tölvur og IBM 370 tölvur með VM stýrikerfi og SQL gagnagrunnskerfi. í boði er sjálfstætt og krefjandi starf og góðir framtíðarmöguleikar. Allar umsóknir og fyrirspurnir verður farið með sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon í síma 679595. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs fyrir 19. september nk. merktar: „Þjónustufyrirtæki 172“. R/ýXLAMTURHE STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88 Framkvæmdastjóri Siysavarnaféiag íslands óskar að ráða framkvæmdastjóra til starfa sem fyrst. Framkvæmdastjóri starfar í fullu umboði aðalstjórnar og framkvæmdaráðs og sinnir daglegri yfirstjórn félagsins. Einnig sér hann um samskipti við opinbera aðila og stofnan- ir, erlend samskipti, kynningarmál, starfs- mannahald o.fl. Við leitum að manni sem hefur: ★ Mikla reynslu af stjórnunarstarfi. ★ Kunnáttu f ensku og einu Norðurlanda- máli. ★ Góða framkomu og tekið virkan þátt í félagsstörfum. ★ Frumkvæði. ★ Þekkingu á málefnum SVFÍ. ★ Æskilegur aldur 40-50 ára. Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir. Með allar fyrirspurnir og umsóknir um of- angreint starf verður farið sem trúnaðar- mál. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu- blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk- ar, merkt: „278“ fyrir 15. september nk. Hagrangurhf Borgarbókasafn Reykjavíkur Stöður bókasafnsfræðinga og bókavarða eru lausar til umsóknar. Umsóknum, ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf, sendist borgarbókaverði fyrir 12. september 1992. Upplýsingar eru veittar í síma 27155. Bifvélavirki - Verk- stæðisformaður Óskum að ráða bifvélavirkjameistara sem verkstæðisformann hjá bifreiðaverkstæði utan Reykjavíkur. í boði er áhugavert og krefj- andi starf ásamt ágætri vinnuaðstöðu. Við leitum að hæfum einstaklingi í þetta mikilvæga starf. Viðkomandi þarf að hafa víðtæka reynslu af vélaviðgerðum og al- mennri bifvélavirkjun, jafnt fólksbíla, vörubíla sem og vinnuvéla. Aðeins koma til álita dug- legir, drífandi og áhugasamir bifvélavirkjar er hafa til að bera samskipta- og skipulags- hæfileika, þjónustulund og mikla fagþekk- ingu. Nánari upplýsingar veitir Benjamín Axel Árnason ráðningastjóri Ábendis. Farið verður með allar umsóknir og fyrir- spurnir sem trúnaðarmál. Vinsamlegast sækið um á eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar á Laugavegi 178 ( 2. hæð á horni Bolholts og Laugavegar) Sími 689099 FADGJÖF OG FPONINCAR Gæðastjóri Útgerðarfyrirtæki á landsbyggðinni, sem m.a. rekur frystitogara, óskar að ráða gæða- stjóra. Starfið felst í umsjón gæðamála fyrirtækisins og uppbyggingu gæðastjórnunar. Við leitum að aðila sem getur tekist á við þetta krefjandi verkefni og hefur reynslu úr sjávarútvegi. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon í síma 679595 frá kl. 9-12. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs merktar: „Gæðastjóri" fyrir 9. september nk. RÁÐGAIŒ)URHIi STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88 I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.