Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 12
Fígúra, Fígúra p / Myndlist Eiríkur Þorláksson Það er nú á dögum orðið eitt af veigameiri hlutverkum metnað- arfullra listasafna að hafa nokkuð frumkvæði að sýningarhaldi af ýmsu tagi. Með því að hafa sam- vinnu við listastofnanir víða um lönd til þess að sýna íslenska list erlendis, hefur einnig tekist að fá framandi sýningar hingað til lands. Þetta hefur verið öllum til góða; íslenskir listamenn fá verk sín kynnt í öðrum löndum, þar sem þau kunna að skapa þeim aukinn hróður og markað, og íslenskir listunnendur fá tækifæri til að beija augum það sem er að ger- ast á líðandi stundu í listalífi ann- arra landa og bera það saman við það sem er í deiglunni hér á landi. Sýningin „Fígúra, Fígúra“ sem nú stendur yfír í vestursal Kjarv- alsstaða, er einn hlekkurinn í slíku samvinnuverkefni listasafna í þremur löndum. Hér hefur verið valið ákveðið meginstef, og síðan fengnir til sex fulltrúar íslenskra listamanna af yngri kynslóðinni (fæddir á bilinu 1950 til 1956), sem eiga það sameiginlegt að hafa í list sinni undanfarinn ára- tug verið að takast á við manninn og mannlega tilvist með einum eða öðrum hætti. Þetta eru þau Brynhildur Þorgeirsdóttir, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hulda Há- kon, Jón Óskar, Kjartan Ólason og Svaia Sigurleifsdóttir. Sýningin var unnin af Lista- safni Reykjavíkur í samvinnu við Listasafnið í Gautaborg, þar sem hún var sett upp í vor, og við Fruitmarket-sýningarsalinn í Ed- inborg í Skotlandi, þar sem hún stóð yfír í sumar; lokaáfanginn er síðan hér á Kjarvalsstöðum. Á næsta ári mun ætlunin að hingað komi sýning á stöðu nútímalistar í Skotlandi, sem eins konar svar við þessari sýningu, og þá fá ís- lenskir listunnendur tækifæri til að meta hvað ungir Skotar eru að fást við þessi árin. Það er réttilega undirstrikað í formála sýningarskrár, að ekki er hægt að tala um neina sérstaka íslenska hreyfíngu í myndlist síð- asta áratugar hvað þetta efni varðar, enda ber fjölbreytni sýn- ingarinnar það glögglega með sér. Hér eru á ferðinni verk ólíkra einstaklinga, sem hafa að loknu listnámi hér heima leitað ýmist til Evrópu eða Bandaríkjanna til framhaldsnáms, og í kjölfar þess skapað sér sín eigin vinnubrögð og valið sér sjálfstæð viðfangs- efni. Sú staðreynd að þau hafa nýtt sér fígúruna í myndlist sinni er hins vegar ótvírætt andsvar við þeirri hugmyndalist, sem var ríkj- andi á námsárum þeirra og afneit- aði flestum gildum málverksins og þar með fígúratívri myndlist af öllu tagi. Þannig breytist mynd- listin á vissan hátt með hverri kynslóð, og ný viðfangsefni taka við - eða gömul viðfangsefni í nýjum búningi, eftir því hvemig er á málið litið. Sú myndlist sem hér ber fyrir augu er nefnilega um flest ólík þeirri fígúratívu myndlist, sem fýrri kynslóðir íslenskra lista- manna hafa unnið að. Hér eru þjóðfélagslegar deilur fjarri, átök manna í milli eiga sér ekki stað, og formgildin vart í fyrirrúmi; í þessum verkum verður áhorfand- inn fyrst og fremst var við það sem nefna mætti innhverfu, þar sem persónurnar í myndfletinum leita inn í eigið sálarlíf, en sýna aðeins tómleika eða takmörkuð Svala Sigurleifsdóttir: Augnætufuglinn og/eða Kjell-Eric Olsen listmálari við verk sitt í New York. Svart/hvít handmáluð ljós- mynd, 1984/89. svipbrigði út á við. Þessi sameigin- legu gildi koma vel í ljós við skoð- un sýningarinnar, og eru eitt sterkasta einkenni fígúratívrar myndlistar hér á landi nú um stundir. Ekki þarf að hafa mörg orð um framlag hvers listamanns fyrir sig, þar sem þeir hafa allir skapað sér góðan orðstír í listalífinu, og ýmis verkanna hér hafa auk þess sést á öðrum sýningum þeirra hér á landi. Verk Jóns Óskars eru stór og yfírþyrmandi, og létt skrautið gerir hið ópersónulega viðmót andlitsins enn sterkara en fyrr. Myndir Helga Þorgils verða sífellt litríkari og léttari, allt að því dansandi fjörlegar, líkt og „Lífsorkan" (1992), en bera eftir sem áður með sér þversögnina í hinu fjarræna bliki persónanna. Kjartan Ólason gerir monumental verk, sem minna á hetjur og guði klassískra tíma; titlar og framsetn- ing færa þau hins vegar nær okk- ur í breyskleika sínum, eins og t.d. „Amnesia" (Minnisleysi, 1988). Við fyrstu sýn virðist ætíð mikill leikur í verkum Huldu Hákon, en einstæðingsskapurinn er það sem stendur eftir við nánari skoðun, t.d. á „Resting in the Grass“ (1992). Handmálaðar ljósmyndir Svölu Sigurleifsdóttur eru oft í æpandi litum, sem breyta mynd- efiiinu gjörsamlega, eða þær draga fram ákveðna þætti persónunnar, líkt og „Augnætufuglinn og/eða Kjell-Eric Olsen listmálari við verk sitt í New York“ (1984/89). Dulúð- ugar kynjaverur Brynhildar Þor- geirsdóttur eru magnaðar tilvísan- ir í forynjur og náttúrufyrirbrigði, en tengjast ekki vel því viðfangs- efni sem sýningunni í heild virðist ætlað að snúast um, og því ekki alveg ljóst hví þau voru valin með í þennan hóp, þó þau standi ágæt- lega fyrir sínu í öðru samhengi. í tilefni sýningarinnar hefur verið gefin út sýningarskrá með ágætum inngangi Gunnars B. Kvaran, þar sem dregin eru saman helstu einkenni hvers listamanns fyrir sig og þeirra framlags til ís- lenskrar myndlistar á undanförn- um áratug. Verra er að af tólf myndum listafólksins sem eru prentaðar í skránni eru aðeins fjór- ar á sýningunni hér, og þar af ein þeirra prentuð umsnúin; því getur skráin tæpast talist góð heimild um efni sýningarinnar, þrátt fyrir allt. Sýningunni „Fígúra, Fígúra" í vestursal Kjarvalsstaða lýkur sunnudaginn 25. október. Abstraktlist Asmundar Sveinssonar Ein athyglisverðasta breytingin sem gerð var á húsnæði Kjarvals- staða í lok sumars varðar miðrými hússins. Það hafði áður verið nýtt fyrir kaffístofu, þannig að gestir þurftu að ganga framhjá henni til að komast frá aðalinngangi og vestursal að austursalnum, og þannig var hið listræna samhengi sýningarhússins í reynd slitið í sundur í hugum margra sem sóttu staðinn. Nú hefur þessu verið breytt á þann hátt að ný, afar smekkleg kaffistofa hefur verið sett upp í austurforsal. Þama hefur verið komið fyrir þægilegri aðstöðu, til hliðar við megin umferðarlínur í húsinu, sem virðist þegar hafa náð miklum vinsældum, ef marka má þá aðsókn, sem þar var á virkum degi í miðri viku þegar undirritaður var á ferð á Kjarvalsstöðum ný- lega. í staðinn hefur opnast stórt rými í miðskipi byggingarinnar, sem nýta má til ýmissa hluta, og virðist henta einkar vel fyrir sýn- ingar á höggmyndalist. Þetta nýja sýningarrými er vígt með sýningu á abstrakt höggmynd- um Ásmundar Sveinssonar mynd- höggvara. Þama hefur ellefu litlum verkum listamannsins verið komið fyrir í rýminu, þannig að gestir fá gott tækifæri til að ganga um- hverfís verkin og skoða þau frá öllum hliðum. Verkin voru unnin á tuttugu ára tímabili, frá 1951 til 1971, og voru flest hluti af stærri sýningu um abstraklist Ásmundar Sveinssonar, sem sett var upp í safni hans við Sigtún 1987, en það safn er hluti af Listasafni Reykja- víkur. Þá var gefín út lítil sýningar- skrá, sem liggur hér frammi, og ágætur texti Gunnars B._ Kvaran um þennan þátt í listferli Ásmund- ar hefur verið settur upp á vegg í sýningarrýminu, gestum til fróð- leiks. List Ásmundar Sveinssonar er löngu orðin hluti af menningararfí íslensku þjóðarinnar, þó á stundum hafí staðið styr um verk hans með- al þjóðarinnar, einkum þegar þeim var komið fyrir á opinberum stöð- um í Reykjavík. Þær deilur eru löngu hljóðnaðar, og þessi verk, þeirra á meðal ýmis abstraktverk, setja óumdeildan svip á umhverfi sitt. Nægir þar að nefna verk eins og „Andlit sólar" framan við Menntaskólann í Reykjavík, „i gegnum hljóðmúrinn" við skrifstof- ur Flugleiða, og „Rafmagn" sem stendur við raforkuverin við Sog. í texta sínum bendir Gunnar B. Kvaran á að abstraktlist Ásmundar / megi skipta í þijá flokka til einföld- unar. í fyrsta lagi er um að ræða hugtök sem listamaðurinn mynd- gerir (Rafmagn, Tíminn), síðan sögur sem táknaðar eru með ein- hverri tilvísun í hlutveruleika for- manna (Tristan og ísold, Lokaráð), og loks verk þar sem allar ytri til- vísanir eru horfnar, og einungis er að fínna hugleiðingar listamanns- ins um efnið, formin, rýmið og lín- una (Galdrahjallur, Óldugjálfur, Lífsorka). Þannig má segja að ýmsir þræðir vinni saman í verkum listamannsins, og frásagnarþáttur- inn sé aldrei langt undan, þó unnið sé með ný efni og form, sem eru um surnt ólík því sem fyrri tímabil í list Ásmuridar báru með sér. Erlendir myndhöggvarar voru famir að takast á við óhlutbundin verk fyrr á öldinni, og Ásmundur var á vissan hátt að fylgjast með þróuninni í listinni, þó hann hafí verið kominn nær sextugu þegar þetta tímabil hófst, og um áttrætt þegar enn ný efni tóku hug hans allan. Þannig sannaðist á óyggj- andi hátt, að hér var á ferðinni listamaður sem var ftjósamur og skapandi í list sinni svo lengi sem Ásmundur Sveinsson: Galdra- hjallur. 1951, brons. honum entist starfsorka til. Þegar hefur verið fjallað um verk Ásmundar á fræðilegum grundvelli, m.a. í texta sýningar- skrár, og er ekki miklu við þá umfjöllun að bæta. Þó má benda á að Ásmundur hélt hér áfram þróun sem hafði hafíst í ýmsum verkum á fimmta áratugnum. Þá tók rýmið sjálft og tómið í verkunum að gegna miklu hlutverki, jafnframt því sem þau urðu hringsærri en verið hafði áður; „Galdrahjallur" (1951) er gott dæmi um verk af þessu tagi. Þegar listamaðurinn tók að vinna með járn gat hann oft notað búta frá járnsmiðjum nær óbreytta til að skapa einföld, en myndrænt sterk myndverk. Hér má nefna verkið „Vængbrotni fugl- inn“ (1971) sem listamaðurinn vinnur sjötíu og átta ára gamall. Mörg verkanna á sýningunni eru góð dæmi þess að það þarf ekki alltaf flókna og margbrotna mynd- byggingu til að gera góð listaverk, sem virðast mun stærri en hlutföll þeirra gefa til kynna. Þó allt gott megi segja um Ás- mundarsafn við Sigtún, sem hefur verið endurbyggt og bætt á margan hátt, þá er góð tilbreyting að sjá verk Ásmundar í öðru umhverfí. Sýning sem þessi er vel til þess fallin að gefa þeim nýtt líf, um leið og þau hvetja nýja listunnend- ur til að leggja leið sína í Sigtúnið til að kynnast fleiri hliðum á sköp- unarferli þessa ötula listamanns, sem segja má að hafi með starfi sínu og kennslu átt drýgstan hlut í að leggja þann grunn sem högg- myndalist hér á landi hefur byggt á til þessa dags. Vonandi verður framhald á skemmtilegum högg- myndasýningum í þessu „nýja“ rými Kjarvalsstaða. Sýningin á abstraktverkum Ás- mundar Sveinssonar í miðskipi Kjarvalsstaða mun standa til 15. nóvember. Ný námskeid að hefjast Innritun er hafin í símum 677799 & 677070 Model mynd er í M.A.A.I. Ath.: Auknir möguleikar. Stig I: Byrjendur, framkoma, hæfni til sýningarstarfa, mannlegi þátturinn, framsögn, tískusýning, próf. Stig II: Posur, viðtalsþáttur, auglýsingar, æft fyrir myndavél, æft á palli. Stig III: Ljósmyndastig. Kondor! Eingöngu fyrir þá sem eiga myndamöppu. Módelmynd er fyrir alla. Munið fyrirsætukeppnina, bæði herra og dömu. Aldursskipting 7-9 ára, 10-12 ára, 13-14 ára, 15-16 ára, 17-25 ára og 25 ára og eldri. Afhending skírteina sunnudaginn 25. okt. kl. 14-18. MYND SUÐURLANDSBRAUT 50 SlMAR 677799 & 677070

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.