Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1992 35 Sigurður Ólafsson vélsmiður — Minning Hinn 4. nóvember var gerð utför Sigurðar Ólafssonar, Austurvegi 44 Seyðisfírði. Sigurður var fæddur 14. apríl 1932 í Vestmannaeyjum. Hann var sonur hjónanna Ólafs Guðmunds- sonar og Siggerðar Þorvaldsdóttur, þriðji í röð fímm systkina. Móður sína missti Sigurður er hann var aðeins fímm ára, og ólst eftir það að mestu upp hjá ættingj- um í Vestmannaeyjum og í Landeyj- um. Snemma þurfti hann að sjá sér farborða upp á eigin spýtur. Sigurður var iðnaðarmaður af guðs náð. Hann byijaði feril sinn í vélsmiðjunni Magna í Vestmanna- eyjum og um tíma fékkst hann við málmsteypu hjá Járnsteypunni í Reykjavík. Forlögin höguðu því þannig að leið Sigga Óla, eins og við vinnufé- lagarnir ávallt kölluðum hann, lá austur á firði, fyrst til Norðijarðar, og síðar hingað til Seyðisfjarðar í ársbyijun 1941,, er hann settist hér að með konu sinni og ungri dóttur. Hann hóf þá strax störf í Vélsmiðj- unni Stál, sem þá var ungt og lítið fyrirtæki, og hér hefur verið hans starfsvettvangur síðan. Siggi var afburða góður starfs- maður. Hann var smiður góður í þess orðs fyllstu merkingu. Hann var útsjónarsamur og samvisku- samur. Hann bar virðingu fyrir starfí sínu og fagi. Hann hafði allt til að bera sem prýða má góðan iðnaðarmann. Fyrstu árin í Stál einkenndust af ýmsum smáverkefnum, mið- stöðvarlögnum í hús, ryðbætingum í bíla, vélaviðgerðir, málmsteypu, og þar kom hans fyrri kunnátta í góðar þarfir. Við þessar aðstæður komu fljótt í ljós hæfíleikar hans og hversu fljótur hann var að til- einka sér nýjungar. Á þessum árum smíðuðu félag- arnir í Stál marga olíugeyma víða um Austurland. Hér var um erfíða vinnu, sem unnin var við tæknilega erfiðar aðstæður á þessum tíma. Tankarnir voru rafsoðnir saman, en á þessum árum var það ekki á allra færi að rafsjóða. Basarkven- félags Bú- staðasóknar KVENFÉLAG Bóstaðasóknar heldur sinn árlega basar í dag sunnudag, 8. nóvember, ld. 15 í safnaðarheimili Bústaðakirkju. Á þessum vetri verður félagið 40 ára og hefur starf þess alla tíð verið mjög öflugt. Kvenfélagið hef- ur styrkt kirkjustarfið og einnig látið margt gott af sér leiða á öðrum sviðum. Á basamum á sunnudag verður úrval af kökum, ávöxtum, pijónavörum og einnig aðrir munir. (Fréttatilkynning) Siggi varð strax afburða góður suðumaður, og var það raunar sama í hvaða málm hann sauð, hann var iíæmur á eiginleika efnanna og fljótur að átta sig á því hvað var hægt og hvemig. Hin síðari ár smíðaði Siggi mikið úr áli, efni sem orðið hefur algengt í málmsmíði hin síðari ár. Það kom eins og af sjálfum sér þegar Stál tók fyrst að sér stærri verkefni úr áli, að Siggi fengi það til úrlausnar. Það var aðdáunarvert að sjá hvemig hann gekk til verka. Hann gaf sér góðan tíma í undirbúning, athugaði vel hvort allt væri til stað- ar sem nota átti, bjó í haginn og skipulagði vandlega verktilhögun. Hann gerði ekki vitleysur og aldrei þurfti að lagfæra smíðisgrip eftir hann. Hann lauk ávallt verki þann- ig að óaðfinnanlegt var. Hand- bragðið mátti þekkja úr, verkin lof- uðu meistarann. Á fyrstu ámm Sigga á Seyðis- fírði stofnuðu iðnaðarmenn hér iðn- skóla, Iðnskóla Seyðisfjarðar, sem lengi starfaði sem kvöldskóli með góðum árangri. Hann var í hópi þeirra sem fyrst útskrifuðust frá skólanum, og er mér í minni, ungum drengnum, sveinstykkið hans, því- líkt var handbragðið. Sigurður var mikill gæfumaður í einkalífí. Árið 1947 gekk hann að eiga eftirlifandi eiginkonu sína Rögnu Sigurðardóttur. Þeirra fyrsta heimili var í Neskaupstað, en á Seyðisfirði bjuggu þau lengst af á Austurvegi 44. Þau eignuðust þijú böm, elst er Þóra gift Viðari Valdimarssyni, búsett í Grindavík. Ólafur kvæntur Sigríði Maríu Bjarnadóttur, búsett á Neskaupstað, og Linda gift Halli Viggóssyni búsett á Akureyri. Barnabömin em orðin átta. Þau sjá nú á bak ástkæmm eiginmanni, föður og afa. Við féiagarnir í Stál kveðjum nú hinstu kveðju vinnufélaga sem var okkur fyrirmynd, félagi og vinur í nær 42 ár. Megi góður guð blessa minningu Sigurðar Ólafssonar. Theodór Blöndal. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu VALNÝJAR TÓMASDÓTTUR, Kvísthaga 21. Nína Hjaltadóttir, Pálmi Arason, Þorsteinn Hjaltason, Elín Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðar- för elskulegrar móður okkar, tengdamóður ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR LOVÍSU HANNESDÓTTUR, Heiðmörk 9, Hveragerði, Hannes Sigurgeirsson, Guðrún Magnúsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir, Guðmundur Kr. Jónsson, Emma Magnúsdóttir, Hörður Diego Arnórsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við fráfall og útför sonar okkar, GUÐMUNDAR ÓLA HAUKSSONAR, sem lést 30. septemþer sl. Við þökkum einnig öllum þeim sem minntust hans með framlögum í minningar og líknar- sjóði sem og með framlögum í fræðslu- og minningarsjóð sem ber hans nafn. Birna Bjarnadóttir, Haukur Ingibergsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGA GUÐMONSSONAR bátasmiðs, Hlíðargerði 2, Reykjavík. Sigurhna Ingadóttir, Garðar Svavarsson, Guðlaugur Ingason, Guðrún Eiriksdóttir, Bragi Ingason, Erla Óskarsdóttir, Pétur Ingason, Sigrún Jónsdóttir, barnabörn og langafabörn. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, THEÓDÓRU GUÐLAUGSDÓTTUR frá Hóli i' Hvammssveit, Dalasýslu, Snorrabraut 40, Reykjavík. Hulda J. Óskarsdóttir, Marinó Óskarsson, Áslaug Gréta Óskarsdóttir, Agnar B. Kristjánsson, María Kristjánsdóttir. Guðmundur Örn Ingólfsson, Ingileif Örnólfsdóttir, Lísa Trenka, Guðrún Ingólfsdóttir, t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, ÞÓRÐUR Þ. ÞORBJARNARSON, borgarverkfræðingur, Fornastekk 9, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 10. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hins látna er vinsamlegast bent á líknar- stofnanir. Sigríður Jónatansdóttir, Sigrfður Þ. Þórðardóttir, Jónatan Þórðarson, Brynja Gunnlaugsdóttir, Þórður Þórðarson, Gerður Gröndal. t Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir mín, systir mín og mágkona. JÓNBJÖRG GÍSLADÓTTIR LASSEN, Folehavevej, Horsholm, Danmörku, lést aðfaranótt 5. nóvember sl. Útförin hefur farið fram. Erik Lassen, Nanna Lassen, Margrét Lassen, Oddný Gísladóttir, Klaus Fischer, Logi Einarsson. t Ástkær móðir okkar og amma, ÞÓRUNN MARTA EYJÓLFSDÓTTIR kaupkona, Hvammabraut 10, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar- kirkju þriðjudaginn 10. nóvember kl. 13.30. Hafdfs Hafliðadóttir, Guðrún Hafliðadóttir, Hrund Guðmundsdóttir og barnabörn hinnar látnu. t Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför, RAFNS SIGURÐSSONAR, Bröttugötu 6, Borgarnesi. Sigrún Rafnsdóttir, Signý Birna Rafnsdóttir, Ævar Andri Rafnsson og barnabörn. Einar Guðleifsson, Völundur Sigurbjörnsson, t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarþel, við andlát og út- för eiginkonu, móður, tengdamóður, mágkonu og ömmu, STEFANÍU SIGURGEIRSDÓTTUR frá Granastöðum, Espigerði 10, Reykjavfk. Þorgeír Pálsson, Páll Þorgeirsson, Helga Þorkelsdóttir, Sigurgeir Þorgeirsson, Málfrfður Þórarinsdóttir, Hólmfrfður Þorgeirsdóttir, Árni Vésteinsson, Droplaug Pálsdóttir og barnabörn. t Innilegustu þakkir færum við öllum vinum okkar og velunnurum fyrir samúðarkveðjur og vináttu, sem okkur var sýnd, við andlát og útför okkar ástsælu dóttur, systur, móður, ömmu og sambýlis- konu, LÍNU KRAGH. Sigrfður Kragh, Þorsteinn I. Kragh, Sveinn Kragh, Þorsteinn Kragh, Kjartan Guðbrandsson, Eydfs Gréta Guðbrandsdóttir, barnabörn, Sveinn Gfslason. Sveinn G.Á. Kragh, Ellen Ingvadóttir,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.