Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 37
skildu fór pabbi að vinna sjálfstætt við lagnir og hreinsun teppa. Árið 1970 giftist pabbi Áslaugu Guðmundsdóttur. Þeim varð ekki barna auðið en þó var Jórunn, frænka Áslaugar, mikið hjá þeim sem bam. Samband pabba og Ás- laugar leystist upp 6 árum seinna. Arið 1977 tók pabbi saman við Hönnu Hlöðversdóttur og bjuggu þau saman ásamt þremur börnum hennar. Endaði þeirra sambúð 4 árum seinna og bjó pabbi einn upp frá því. Hin síðari ár vann hann aðallega sem sjálfstæður tjónaverktaki. Reyndust Trygging hf. og Trygg- ingamiðstöðin honum ákaflega vel í veikindum hans síðustu árin. Pabbi var mjög sjálfstæður per- sónuleiki og vann sig út úr öllum erfiðleikum af hörku og ósérhlífni. Hvort sem það voru fjárhagslegir örðugleikar, bakveiki sem hijáði hann alla ævi eða krabbameinið sem að lokum dró hann til dauða, þá lét hann aldrei bilbug á sér finna. Kom því mörgum af hans nánustu á óvart hversu þungt hann var haldinn síð- ustu árin. MORGUNBLAÐIÐ HUOAGUH14112 GIGAJaVlUOflOM MIISININGAR SUNNUDAGUR B. NÓVEMBER 1992 37 Okkur bræðrum er mikill söknuð- ur í föður okkar og þótti okkur leitt að missa hann aðeins 61 árs gaml- an. En við þökkum þær samveru- stundir og góðu minningar sem við eigum um hann. Einstök rósemi pabba og trú hans á það góða gerði honum lífið léttbærara og okkur sem umgengust hann. Blessuð sé minning hans. Kjartan Bergsson og Bergur H. Bergsson. Mig langar til að minnast fáum orðum vinar sem nú er látinn langt um aldur fram eftir hetjulega bar- áttu við einn af ógnvöldum mann- kynsins, krabbameinið. Ég kynntist Bergi strax á barnsaldri því hann var þá kvæntur Jónu, æskuvinkonu móður minnar. Bergur og Jóna eignuðust tvo drengi, Berg og Kjartan, báðir fyrirmyndarmenn sem stofnað hafa eigin fjölskyldur. Þó leiðir Bergs og Jónu skildu hafði hann alla tíð talsvert samband við mig og fjölskylduna. Eg minnist Bergs sem ákaflega greiðvikins og ráðagóðs manns, enda eru ófá viðvikin sem hann hefur gert fyrir mig bæði fyrr og síðar og þykist ég vita að svo er um marga fleiri sem hann hafði samskipti við á lífsleiðinni. Heiðar- leiki og góðvild voru áberandi þætti í fari Bergs en hann var jafnframt lífsglaður maður og átti hann gott með að kalla fram glettni og gáska þegar við átti, sem hafði ákaflega góð áhrif á það fólk sem hann hafði í nálægð sinni. Þegar sjúkdómsins varð vart fyr- ir nokkrum árum kom engin upp- gjöf til greina hjá honum Bergi, heldur var barist áfram af kjarki og trú á framtíðina. Til marks um viljann þá stundaði hann vinnu fram undir það síðasta eða meðan nokk- urt. þrek var eftir. Með vonina eina að vopni réðst hann einnig nýlega í kaup á nýju húsnæði með tveimur sona sinna en þeirra ávaxta fær hann víst ekki að njóta í þessu jarðneska lífi. Með þessari fátæklegu kveðju vil ég kveðja góðan dreng og vin um leið og ég og mín fjölskylda vottar öllum aðstandendum dýpstu samúð. Nú legg ég augun aftur ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Ur þýsku - Sveinbjörn Egilsson) Blessuð sé minning Bergs Sól- mundssonar. Milla. Einbýlishús óskast Leitum að góðu einbýlishúsi í Reykjavík, vestan Elliða- áa, helst á Stóragerðissvæðinu, í Fossvogsdal eða Hlíð- unum. Húsið þarf að vera 250-280 fm að stærð og þar af 4 svefnherbergi. Þeir, sem eiga hús sem þetta og vilja selja, vinsamleg- ast leggi nöfn sín ásamt öðrum nauðsynlegum upplýs- ingum inn á auglýsingadeild Mbl., merkt: „Trúnaðarmál - 8250“ fyrir 13. nóvember. Tannlæknastofa Grafarvogi Hef opnað tannlæknastofu í verslunarmið- stöðinni Hverafold 1-3. Tekið er á móti símapöntunum.frá kl. 10.00-12.00 og 13.00-16.00. Auður G. Eyjólfsdóttir, tannlæknir. Lítið í glnggan um helgina SÓFASETT — HORNSÓFAR — STAKIR SÓFAR Ótal gerðir og litir í leðri. Hvíldarstólar við allra hæfi. Borðstofuhúsgögn í mörgum viðartegundum. Ný sending af enskum Chesterfield sófasettum úr leðri. VI 11 / .« . cd VamusM S_------------------0.q— Raðfööshr Ármúla 8, símar 812275 og 685375. MARMOLEU á MARMOLEUM gólfefnum í verslun okkar að Síðumúla I4 frá mánudegi til laugardags í tilefni nýrrar litalínu. MARMOLEUM er unniö úr náttúrulegum efnum og er því fullkomlega vistvænt. MARMOLEUM fæst í 68 litum. MARMOLEUM bý&ur heildarlausn í gólfefnum með óteljandi samsetningar- möguleikum. Ólöf Flygenring arkitekt og Júlía P. Andersen innanhússarkitekt ver&a í versluninni frá klukkan 16-18 alla sýningardagana og veita viðskiptavinum ókeypis ráðleggingar um val á MARMOLEUM. KJARAN Gólf búnaður SÍÐUMÚLA 14 • SÍMI (91) 813022

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.