Morgunblaðið - 29.11.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.11.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1992 B 21 DRAPA KOLRÖSSU KVENNASVEITIN knáa Kolrassa krókriðandi hefur vakið mikla athygli síðustu misseri og þá sérstaklega eftir að sveitin sigraði í Músíktilraunum Tónabæjar snemma á árinu. Nú er væntanleg frá sveitinni fyrsta plata hennar, Drápa, sem á verða sjö lög. Kolrössur gerðu samning við Smekkleysu sm. hf. um útgáfu á plötunni, sem eingöngu er gefin út á geisladisk, en þær hyggja á stíft tónleikahald til að kynna diskinn á næstu vik- um. Drápa kom út í síðustu viku og fyrstu tónleikamir til að kynna hana verða næstkomandi mánudag í Rósenbergkjallaranum. GRAFÍK verður að telja með merkustu sveitum ís- lenskrar rokksögu. Allt frá því sveitin sendi frá sér fyrstu plötuna haustið 1981, Út í kuldann, og mikla athygli vakti, hefur hún starfað með hléum og iðulega setið efst á vinsældalistum, þó seint verði hún talin til vinsældasveita. Grafík er hljómsveit Rafns Jónssonar og Rúnars Þórissonar, þó með þeim hafí starfað grúi tón- listarmanna í gegnum árin. Alls sendi hljómsveitin frá sér fimm plötur ólíkar. Fyrstu plötumar tvær þótti gagnrýnendum afbragð, en þriðja platan, sem gerð var eftir að Helgi Bjömsson gekk til liðs við sveifína, sló rækilega í gegn. Helgi var og með á næstu plötu, en þá kom Andrea Gylfadóttir, sem síðar varð fræg sem þriðjungur Todmobile, í hans stað og var með í sveit- inni á einni plötu og grúa tónleika. Eftir það lagðist sveitin í dvala. Sjötta plata Grafíkur er svo safnplata sem nýkomin er út og heitir því einfalda nafni Sí og æ. Á henni er að finna tvö ný lög, annað syngur Andrea en hitt Helgi, enda leggur Rafn Jónsson áherslu á að Grafík hafi aldrei hætt störf- um og muni ekki hætta í Morgunblaðið/Sverrir Grafík með Andreu Gylfa- dóttur. nánustu framtíð. Hann vill þó engu lofa um framhaldið, en segir að þeir Rúnar hafí sitthvað í pokahorninu gjör- ólíkt því sem hljómsveitin hefur áður gert og vísast eigi eftir að vekja undmn. Stuo Þór gítarleikari Deep Jimi sýmr keflvískt heljarstökk. muigunuittuiu/Ejinm raiui STUÐI NEWYORK SYKURMOLARNIR luku fyrir skemmstu tónleíkaferð um Bandarikin í fylgd U2, eins og áður hefur komið fram. í þeirri ferð léku Molamir fyrir um 700.000 manns, en lokatónleikar Sykurmolanna í förinni voru í New York, þar sem um 2.000 manns komu til að beija þá augum. Tónleikarnir í New York voru gríðarlega vel heppnaðir að mati þeirra sem sáu, en athygli ljósmyndara, sem var á tónleikunum á vegum Morgunblaðsins, vakti að þeir sem einna mest höfðu sig í frammi á tónleikunum voru liðs- menn keflvísku rokksveitarinnar Deep Jimi and the Zep Creams, sem nú er stödd ytra við tónleikahald. Þeir skemmtu sér greinilega hið besta og þegar leið á tónleikana voru þeir í fremstu röð tónleikagesta sem klifruðu upp á sviðið og köstuðu sér framaf í mannhafið. ■ GULLPLÖTUFLÓÐ- IÐ fyrir síðustu jól varð til enn frekari gengisfell- ingar á viðurkenning- unni, en eins og kunnugt er þurfti plata að seljast í 3.000 eintökum til að ná gullsöiu og 7.000 ein- tökum til að ná platínu, sem þýddi það að önnur hver plata fór í gull og margar, S platínu. Nú hafa menn séð að sér og ákveðið að taka upp fyrri mörk fyrir gullplötur, það er að plata þurfí að seljast í 5,000 eintökum til að hljóta gullið og 10.000 fyrir platínu. Vonandi verður þetta til þess að mönnum þyki fengur að því að fá gull- plötu á ný, þó einhvem tíma eigi vísast eftir að taka áður en viðurkenn- ingin nær fyrri sess í augum almennings. Drápa Kotrössur. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Sí og æ Graffk Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir KK Bijáluð stemmning á Sel- fossi. UÞAÐ er ekki alltaf fund- ið fé að halda ball úti á landi, en þegar vel gengur má búast við ýmsu. Þannig var þegar KK Band hélt ball á Selfossi á laugardag- inn fyrir viku. Húsið var orðið troðfullt þegar ballið byijaði kl. 23.00, en um 1.000 manns sóttu það. Stemmningin var mögnuð að sögn þeirra sem til sáu, svo mögnuð reyndar að KK og félagar spiluðu með stuttum hléum til hálf fjög- ur um morguninn, og væru vísast enn að ef forráða- menn hússins hefðu ekki stoppað ballið við litla hrifn- ingu gesta sem vildu meira. Fróðlegt verður að vita hvort sama verði upp á ten- ingnum annað kvöld. mfiniTÁMi tct Hver lendir íjólapakkanum? mtujói PLÖTUJÓL nálgast og líkt og önnur jól verður slag- urinn um pláss í jólapakkanum harður lyá útgefend- um. Síðustu jól voru um margt hagstæð útgefendum, því plötusala var jafnari, sem þýddi að þó fáir titlar seldust í „bubbasölu“ voru og færri sem tap var á. Tapið varð þó nóg til þess að menn drógu heldur úr útgáfu, sem verður og minni en oft áður. Þegar spáð er í plötusölu fyrir jól er alltaf auð- velt að spá um efsta sætið þegar Bubbi Morthens gef- ur út plötu með nýju efni. Þannig er og þetta ár, þvi plata Bubba, Von, hefur verið söluhæst frá því hún kom út og á eftir að halda efsta sætinu fram á næsta ár ef að líkum lætur. I hve miklu upplagi hún eftir að seljast er ekki gott að segja, en mín spá er að hún sigli í 12—14.000 eintök. Þegar komið er að næst söluhæstu plötunni vandast Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Nýdönsk Daniel hugleiðir himnasendingu. málið, eftir Ámo Mdtthíasson en ég giska á að Himnasending Nýdanskrar eigi eftir að hreppa það sæti og þá með um 8—10.000 eintaka sölu. Næst þar á eftir kæmi þá Sálin hans Jóns míns með um 8.000 eintök, því þó Sálin hafi verið á toppn- um síðustu jól, tel ég síð- ustu plötu sveitarinnar standa fyrri plötum hennar nokkuð að baki í söluvæn- leik. Reyndar gæti eins far- ið að plata KK Band, Bein leið, ætti eftir að skáka Sálinni í þriðja sæt- Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Bubbl Hag- vanur í efsta sætinu. seljast í yfír 7.000 eintök- um. Þegar neðar dregur á sölulistanum er erfíðara um að spá, því þá getur munað litlu hvort plata tekst á flug síðustu dagana fyrir jól, eða hvort hún drukknar í flóðinu. Lítili vafí leikur þó á að plata Jet Black Joe á eftir að sigla lygnan sjó í átt að 5.000 plötu markinu og gæti jafnvel farið yfír gullmúrinn, sem er harla gott af frumraun. Plata Egils Ólafssonar, Blátt blátt, á líklega eftir að vera á svipuðu róli og plata Megasar gæti farið vel yfír 3.000 eintök ef hún heldur áfram að bæta við sig. Safnplata Sykurmolanna, It’s it, gæti selst vel, en veldur hver á heidur. Aðrar plötur eiga eftir að seljast minna, og reyndar eru nokkrar líklegar í fallsæti, að seljast í minna en 1.000 eintökum, sem þýðir vænt- anlega milljónatap. í þessari samantekt hef ég vísvitandi ekki tekið með plötur Sigrúnar Hjálm- týsdóttur, sem hefur alla burði til að selj- ast í á tíunda þús- und eintaka, plötu Sinfóníunnar, sem gæti selst í einhverj- um þúsundum, barnaplöt- una Hókus, pókus, sem þó er í góðri aðstöðu sem eina nýja barnaplatan á mark- aðnum, og plötur Sigrún- ar Eðvaldsdóttur og Selmu Guðmundsdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.