Morgunblaðið - 29.11.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.11.1992, Blaðsíða 29
$’KÝtWK*vv/'ö/r' MÓRGUNBLAÐIÐ VÉLVAKAI\ífiÍsUNNUDAGUE29. NÓVEMBER 1992 Ný útópía eða týndur tónn? Frá Benedikt Sigurðssyni: í GÓÐUM tilgangi nefnir Erlendur Jónsson bókmenntagagnrýni sína í Morgunblaðinu 11. nóv. síðastlið- inn. Þar fjallar Erlendur, að mínu viti, á afar neikvæðan og ósann- gjaman hátt um nýútkomið greina- safn mitt Ný útópía? Enda þótt gagnrýni sé hveijum manni holl lesning, einkum þeim sem er að stíga sín fyrstu skref á rithöfundabrautinni, hættir hún að þjóna hinum „góða tilgangi" þegar hún er lítt ígrunduð og vanefnum búin. Því miður finnst mér gagnrýni Erlends að þessu marki brennd. Að vísu eru ábendingar hans varðandi málfar og stíl kærkomnar og af hinu góða. Öðru máli gegnir um fullyrðingar Erlends varðandi inni- hald umræddrar bókar sem mér fínnst fremur bera vott um grunn- hyggni og jafnvel hroka á köflum. Lítum á eftirfarandi dæmi: „Og víst hlýtur maður að sam- sinna mörgu því sem Benedikt held- ur fram eða bendir á, að minnsta kosti því sem hann segir um mann- úðarmál. Hver vill ekki rétta bág- stöddum hjálparhönd eða lina þján- ingar sjúkra og sveltandi barna svo dæmi séu tekin? Þess háttar um- ræða verður sjaldnast að deiluefni." Hér fer Erlendur beinlínis með ósannindi. Rétt er að minna Erlend vinsamlega á eftirfarandi stað- reyndir: Annars vegar, skammar- lega lágan hlut íslendinga í þróun- armálum í samanburði og í hlut- falli við önnur iðnvædd ríki, sérstak- lega nágrannaþjóðir okkar. Hins vegar, þær tíðu deilur sem hafa átt sér stað um eðli og framkvæmd þróunaraðstoðar. Visa ég í því sam- bandi m.a. til nýlega skrifa og ummæla Jónasar Þórissonar, nú- verandi framkvæmdastjóra Hjálp- arstofnunar kirkjunnar, í fjölmiðl- um og gagmýni Jóns Orms, lektors við Háskóla Islands, á „hefðbundna þróunaraðstoð“. (Sjá nánar rit hans: Þróun og þróunaraðstoð.) Þegar allt kemur til alls er þróun- arhjálp síður en svo sjálfsögð í hug- um manna og langt frá því að vera einföld í framkvæmd. Þá sakar Erlendur mig um ákveðinn frumleikaskort í umfjöllun minni um ýmis stórmenni heims- bókmenntanna. Og víst er erfítt að finna nýjan flöt á þaulkönnuðum viðfangsefnum (sem þó er skortur á í íslenskum ritum). En í greinum mínum leitast ég við að tengja ei- lífa speki bókmenntanna og vísdóm spekinga eins og Sókratesar við daglegt líf okkar nútímamannanna, með nokkuð öðrum hætti en gert hefur verið áður og draga fram í dagsljósið þau erindi sem þar má fínna á aðgengilegan hátt fyrir all- an almenning. Þannig fjalla ég m.a. um hina áleitnu spumingu Sókrat- esar, er rétt að hlíta ranglátum dómi, í tengslum við skattamál ís- lendinga og tengi örlög Gúllívers (einkum fjórðu ferðasöguna, Gúllí- ver í Hestalandi, sem algjörlega hefur misst marks hér á landi) við Milgram-tilraunina svonefndu, er kennir okkur sitthvað um breysk- leika mannsins, einkum hrokann. Loks er ónefnd höfuðgrein greina- safnsins: Ný útópía? þar sem fjall- að er um útópíuna í nýju ljósi en þar leynist tónn verksins. Ljóst er, að tónn þessi kemur að læstum dyrum Erlends. Og er það kannski ekki að undra. A tímum tómhyggju og ringulreiðar er sífellt erfiðara að fóta sig óg gefa um- hverfinu gaum. í tilefni af gagnrýni Erlends vil ég þó gera eina tilraun enn: Við verðum að gefa gaum að þessum orðum: Glæsilegur íþróttavöllur Frá Þórði Kárasyni: 20. JÚNÍ sl. var vígður stór, dýr íþróttavöllur að Lýsuhóli í Staðar- sveit, stutt frá félagsheimilinu sem jafnframt er skóli fyrir Staðarsveit og Breiðuvík. Þó íþróttavöllurinn, sem nú er talinn einn besti á Vestur- landi, hafí verið milljónafyrirtæki, munu skuldir vera litlar. Bygging hans hefur staðið yfír í nokkur ár. Staðsveitungar, bæði ungmennafé- lagar og aðrir, hafa verið duglegir við þessa framkvæmd og jafnframt stækkun félagsheimilis. Hafa þar margir lagt mikla fjármuni og vinnu fram endurgjaldslaust. Þess skal getið að land undir íþróttavöllinn gáfu brottfluttir Staðsveitungar, eigendur Lýsudals, böm Asgerðar Agústsdóttur og Jónasar Guðmundssonar, sem þar bjuggu frá 1926 til 1973. En það var meira um að vera þarna þennan dag. Ungmennafélag Staðarsveitar hélt uppá 80 ára af- mæli sitt og héldu félagsmenn veislu mikla og buðu þangað brott- fluttum félagsmönnum og öðrum velunnurum félagsins. Bárust fé- laginu margar góðar gjafír og var í afmælishófinu mikið um ávörp, söng og dans. Fór hófið hið besta fram undir stjóm Guðmundar Sig- urmonssonar skólastjóra, Ytri- Tungu. Félagið gaf út afmælisrit stórt og myndskreytt, undir rit- stjórn Svavars Þórðarsonar, Öl- keldu, og mun það enn fást þar, svo og hjá formanni félagsins, sem nú er Margrét Björnsdóttir, Böðv- arsholti. Á myndinni í fremstu röð em einn lítill og óþekktur, Lilja Ósk, Kári Þórðarson prentsmiðjustjóri, Akureyri, Þórður Gíslason, Olkeldu, sem lengi var formaður félagsins og mikill hvatamaður að tilurð íþróttavallarins. Við hlið Þórðar er nafni hans, Þórður Kárason, Reykjavík, og Elín Gísladóttir kona hans. Bak við Elínu er Sturla Böðv- arsson, alþingismaður í Stykkis- hólmi, sem ásamt öðrum hefur stutt dyggilega við bakið á sveitarmönn- um varðandi ijármögnun og ýmsar fyrirgreiðslur. ÞÓRÐUR KÁRASON, Sundlaugarvegi 28, Reykjavík. „Hlustið, ég stend við dymar og kný á“ (Opinb. 3:20). Já það er sjálf- ur Guð almáttugur sem drepur mildilega á dyr í hjarta sérhvers okkar án þess að reka á eftir. Hann bíður þolinmóður eftir því að við hleypum honum inn, svo að hann megi setjast til borðs með okkur.“ BENEDIKT SIGURÐSSON Ægisíðu 90, Reykjavík Hjálpsemi Frá Ólöfu Benónýs: SÍÐASTLIÐINN fímmtudag var ég á heimleið úr vinnu á bíl mínum og var stödd á Háaleitisbraut. Sá ég þá að drengur, innan við ferm- ingaraldur á að giska, var að benda á bílinn og gefa mér merki um eitt- hvað. Ég steig út úr bílinum og spurði drenginn, hvað hann vildi. Benti hann mér þá á að spmngið væri á einu dekkinu. Mér varð illa við því ég hafði aldrei skipt um dekk, en drengurinn spurði mig þá, hvort hann ætti að skipta um dekk fyrir mig. Ég spurði hann hvort hann væri viss um að hann gæti það en hann brosti við og fullvissaði mig um það, hann hefði lært það af pabba sínum. Þáði ég boðið og drengurinn tjakk- aði upp bílinn og fór síðan að skipta, hraðhentur og fórst allt vel úr hendi. Eftir smástund bar að mann sem drengurinn sagði vera föður sinn og sagði ég við hann að hann ætti gott að eiga svona hjálpsaman og duglegan son. Hann brosti við, sýni- lega ánægður með son sinn, og sagði: „Já, það er satt, hann er duglegur." Drengurinn var ekki lengi að ljúka verkinu og þakkaði ég honum innilega fyrir hjálpina. En því minnist ég á þetta að við erum vanari því að heyra ungling- um hallmælt fyrir ávirðingar sínar en þeim sé hælt fyrir það sem þeir gera vel. Auðvitað eru erfíðir og leiðinlegir unglingar til en ég er viss um að góðir, hjálpsamir og drenglyndir unglingar em í miklum meirihluta, það ber bara meira á þeim sem eitthvað gera af sér. Ég endurtek þakklæti mitt til þessa drengs og allra góðra ungl- inga sem fúsir em til að hjálpa öðram og stuðla að því að heimur- inn okkar fari batnandi. ÓLÖF BENÓNÝS Holtsgötu 21, Reykjavík LEIÐRÉTTING Hluti greinar féll niður HLUTI greinar Páls Bergþórs- sonar, „Þáttur golþorskanna", í blaðinu í gær féll niður, svo lok greinarinnar urðu óskiljanleg. Réttar eru síðustu málsgreinar greinarinnar þannig: „Þegar fram líða stundir ætti því að vera hægt að sannreyna hvort eitthvað er til í þessari golþorskakenningu, eða hvort hér hafi verið leiðst út í ein- hveija talnablekkingu. Ef svo reyn- ist, að þáttur gömlu þorskanna í hrygningu sé tiltölulega mikill, er sjálfsagt að hlífa þeim við veiði eft- ir því sem föng eru á, einnig þeim aldursflokkum sem eru að nálgast þennan fijósama aldur.“ Beðist er velvirðingar á þessari misritun. Pennavinir Frá Nígeríu skrifar 23 ára tækni- háskólanemi með áhuga á knatt- spyrnu, tónlist og kvikmyndum: Sylvester Aigue, Federal Univ, of Technology, Akure, Animal Prod. and Health, P.m.B. 704, Akurg. Ondo-State, Nigeria. Bílamarkaburinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. Kopavogi, sími 671800 ^ / Opið sunnudaga kl. 14-18 Vantar góða bfla á staðinn Talsverð hreyfing ' 17. desember — 3 vikur Verb frá kr. 58.830,- pr. mann m.v. hjón meö 2 börn, 2 —14 ára. Kr. 79.394,- pr. mann m.v. 2 í smáhýsi. 7. janúar — 3 vikur Verö frá kr. 42.082,- m.v. hjón með 2 börn, 2 — 14 ára. Kr. 63.494,- pr. mann m.v. 2 í smáhýsi. s TURAUIA air europa HEIMSFERDIR hf. ! Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 Nú eru aðeins örfá sæti laus til Kanaríeyja um jólin á hreint einstöku verði. Njóttu jólanna í sól og hita og við frábæran aðbúnað. Heimsferðir bjóða beint leiguflug til Kanarí og þjónustu reyndra fararstjóra í allan vetur. MARKAÐSH0RN FRÁBÆRIR STELPUJÓLASKÓR Teg:8895 Stærðir: 25—38 Svart, rautt fjólubl. Verð frá kr. 3.680,- Teg:5267 Stærðir: 28—35 Svart leður Verð kr. 3.990,- Teg: IRIS Stærðir: 28—34 Svart rúskinn Verð frá kr. 2.790,- Póstsendum samdægurs Skóverslun Kópavogs Skór og sportvörur Hamraborg 3 sími 41754

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.