Morgunblaðið - 02.12.1992, Blaðsíða 10
II ___.________________•___________• 2081 flgatfrA'ki .u ;; í;»/'U i,i; hnu. líin.uti'uomiH
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1992
►
f
f
í
i
Betri Grímudansleik-
ur — án Pavarottis
LYRIC-óperan í Chicago frumsýndi Grímudansleik eftir Giuseppe
Verdi í Civic-óperuhúsinu á laugardagskvöld. John Conklin gerði
leiktjöld, Sonja Frisell leikstýrði, Daniele Gatti stjórnaði hljóm-
sveitinni, en Kristján Jóhannsson óperusöngvari söng eitt af aðal-
hlutverkunum, Gústaf konung III. Sýningin hefur fengið góðar
viðtökur.
Gagnrýnandi dagblaðsins
Chicago Tribune minnir á, að í
tveim fyrri uppfærslum Sonju
Frisell hafi Luciano Pavarotti bor-
ið ægishjálm yfir aðra flytjendur
í hlutverki Gústafs konungs, en
að þessu sinni sé dreifingin jafn-
ari og óperan því betri en fyrr,
full af lystilega spennandi ítölsk-
um söng. Þrír af aðalsöngvurun-
um, Sharon Swéet frá Bandaríkj-
unum í hlutverki Amelíu, Vladim-
ir Tsjernov frá Rússlandi í hlut-
verki Ancarstroms greifa og
Elizabeth Norberg-Schulz í hlut-
verki Óskars, hafi öll þreytt frum-
raun sína hjá Lyric-óperunni og
staðið sig afburðavel. „Árangur-
inn var besti Verdi-óperuflutning-
ur, sem Lyric-óperan hefur boðið
upp á um árabil,“ segir gagnrýn-
andinn.
Hann segir, að Sweet sé stór
kona vexti og leiki takmarkað,
en rödd hennar sé einstök, þrótt-
mikil, þekkileg og skínandi sópr-
an, ástartvísöngur hennar og
Kristjáns Jóhannssonar hafi ein-
kennst af vaxandi tónstyrk og til-
finningaríkri raddbeitingu af
hæsta gæðaflokki.
„Auðvitað stendur Grímudans-
leikur að miklu leyti og fellur með
hæfileikum tenórsins: Kristján var
í essinu sínu, allt frá því að hann
söng upphafsaríu konungsins með
kraftmiídum og klingjandi hrein-
um ítölskum tóni til næstsíðasta
atriðisins og naut þess greinilega
að geta fyllt út í hvern krók og
kima í húsinu," segir gagnrýnandi
Chicago Tribune.
Hann segir, að Tsjemov sé full-
mótaður Verdi-baritónsöngvari og
röddin rétt saman sett úr dimmum
þéttleika og ljóðrænu svifi. Um
norsku sópransöngkonuna Nor-
berg-Schulz segir hann meðal
annars, að hún hafi bjarta og
kvika rödd og nái vel tökum á
drengslegum persónutöfrum Ósk-
ars.
Gagnrýnandi Chicago Sun-
Times segir, að það hafi tekið
kór, hljómsveit og söngvara nokk-
urn tíma að stilla saman strengi
sína, en í öðrum þætti hafí allt
verið fallið í ljúfa löð undir röggs-
amri stjóm hljómsveitarstjórans.
Ljósameistarinn, Duane Schuler,
hafí á meistarlegan hátt aukið á
ógn andrúmslofts sögunnar, sem
bregður upp myndum af íburð-
armiklu hirðlífi í Svíþjóð á 18. öld.
„Þó að áhorfendur hafí ef til
vill kannast við umgerð verksins
frá fyrri uppfærslum voru flytj-
endurnir flestir nýliðar hjá Lyric-
óperunni. Islenski tenórinn Krist-
ján Jóhannsson, sem söng Gústaf
konung, var þar undantekning,
því að hann söng hjá félaginu í
„Mephisofele“ og „Turandot" á
síðasta söngári og stóð sig af-
burðavel,“ segir gagnrýnandinn.
Hann hrósar Tsjernov í hástert
og segir rödd hans sterka og tján-
ingarríka. Hann segir, að Sweet
hafí verið verðugur mótsöngvari
Kristjáns, sem hafí sýnt það á
laugardagskvöldið hve gífurleg-
um raddstyrk hann búi yfir. Rödd
hennar hafi virst svolítið þurr í
þriðja þætti, en í bæninni og ást-
artvísöngnum með Kristjáni hafí
túlkun hennar verið einkar falleg.
Lægstu tónarnir hjá honum hafi
stundum verið htjúfir, en í aríun-
um hafí ákveðnir og hreinir hátón-
arnir flogið upp í rjáfur.
Loks segir gagnrýnandinn, að
Norberg-Schulz hafí geislað frá
sér glaðværð og ungæðislegum
lífsþrótti í hlutverki Óskars og
rödd hennar hafi verið silfurtær,
en þó kraftmikil.
Sex sýningar verða á Grímu-
dansleik í Civic-óperuhúsinu fram
til 19. desember, en þegar sýning-
ar hefjast að nýju í febrúar, taka
nýir söngvarar við aðalhlutverk-
unum.
\
Snyrtivöruverslun í
hjarta borgarinnar
Af sérstökum ástæðum er til sölu rótgróin snyrtivöru-
verslun í miðborginni. Góð viðskiptasambönd.
Frekari upplýsingar veitir:
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700.
✓
511 CA 51 LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
L I IQU'LlO/V KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggiltur fasteígnasau
Nýkomín til sölu:
Á besta stað í Árbæjarhverfi
nýl. og vandað raðh. m. 7 herb. íb. um 170 fm á tveimur hæðum.
Innréttaður kj. um 85 fm m. fráb. fjölsk.aðstöðu. Gufa, heitur pottur.
Góður bílsk. Ræktuð lóð. Nánari uppl. á skrifst.
Á vinsælum stað f Vogunum
vel byggt og vel með farið steinh. ein hæö 165 fm auk bílsk. 5 svefn-
herb. m.m. Sólverönd. Glæsil. lóð. Ýmiss konar eignaskipti mögul.
í 10 ára fjölbhúsi í vesturbænum
3ja herb. íb. um 80 fm vel skipul. Parket. Sólsv. Ágæt sameign. Þvhús
á hæðinni. Góð geymsla í kj. Hentar m.a. eldra fólki. Tilboð óskast.
Miðsvæðis í Kópavogi
2ja herb. suðuríb. á 2. hæð í þriggja hæða blokk. Parket. Sólsvalir.
Stæði í bi'lg. Góð sameign. Laus strax. Tilboð óskast.
Glæsilegt endaraðhús - eignaskipti
Nýendurbyggt raðhús um 160 ím að grunnfl. Kj. er u. öllu húsinu.
Sérbyggður bílsk. Blóma- og trjágarður. Húsið er í enda í syðstu röð
í Fellahverfi. Eignáskipti mögul.
• • •
Fjöldi fjárst. kaupenda á skrá.
Margs konar eignaskipti.
Opið á laugardaginn.
AIMENNA
FASTEIGNASAL AH
"^AVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
51500
Marfubakki - Rvík
Til sölu góð 3ja herb. íb. á 1.
hæð. Herb. fylgir í kj.
Hafnarfjörður
Ölduslóð
Til sölu tvær hæðir samtals ca
215 fm auk bíisk. á þessum vin-
sæla stað. Fráb. útsýni. Laust
strax. Nánari uppl. á skrifst.
Hraunbrún
Til sölu gamalt timburhús á
tveimur hæðum. Þarfn. við-
halds. Getur losnað fljótl. Allar
nánari uppl. á skrifst.
Klettagata
Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í
tvíbhúsi auk bílsk. Geta selst í
einu lagi eða sér. Allar nánari
uppl. á skrifst.
Laufvangur
Góð 4-5 herb. ca. 115 fm íb. á
2. hæð í sex íbúða stigahúsi.
Áhv. ca. 2 millj.
Hjallabraut
Góð 4-5 herb. íb. á 1. hæð.
Trönuhraun
Til sölu og/eða leigu gott, rúml.
300 fm skrifsthúsn. Hentar vel
fyrir félagasamtök eða sem
kennsluaðstaða. Allar nánari
uppl. á skrifst.
Vantar
Vantar gott einb. í Hafnarfirði
fyrir fjársterkan aðila, helst í
skiptum f. glæsilega hæð og ris
í Hafnarf. Milligjöf staðgreidd.
Allar nánari uppl. á skrifst.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3,2. hæð, Hfj.,
símar 51500 og 51601
Kammersveit Reykjavíkur á æfiugu
Jólatónleikar Kamm-
ersveitar Reykjavíkur
Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur verða í Áskirkju, sunnudag-
inn 6. desember og hefjast klukkan 17.00.
Á tónleikunum verða leikin nokkur
verk frá barroktímanum; Konsert
fyrir trompett í D-dúr, eftir Fasch,
Konsert fyrir óbó op. 9. nr. 2. í d-
moll, eftir Albinoni, Konsert fyrir
fagott í a-moll og Konsert fyrir fiðlu
í g-moll, eftir Vivaldi. Að auki verður
leikinn Konsert nr. V í B-dúr, fyrir
strengjasveit eftir Pergolesi. Tónleik-
unum lýkur á hinum þekkta jólakon-
sert eftir Corelli.
Einleikarar á tónleikunum verða
Bijánn Ingason, fagotleikari, Hólm-
fríður Þóroddsdóttir, óbóleikari, Ei-
ríkur Örn Pálsson, trompetleikari og
Rut Ingólfsdóttir, auk þess sem
fímmtán hljóðfæraleikarar skipa.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Verk Ingibjargar og
Guðbergs tilnefnd
LJÓÐASAFNIÐ Nú eru aðrir
tímar, eftir Ingibjörgu Haralds-
dóttur, og skáldsagan Svanurinn,
eftir Guðberg Bergsson, hafa
verið tilnefnd til bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs 1993 af
hálfu Islendinga.
Nú eru aðrir tímar er þriðja ljóða-
safn Ingibjargar Haraldsdóttur, en
hún hefur einnig starfað í leikhúsi
og við kvikmyndagerð. Guðbergur
Bergsson hefur skrifað meira en
tuttugu bækur og hafa verk hans
meðal annars verið þýdd á dönsku,
þýzku og spænsku. Svanurinn hlaut
Islenzku bókmenntaverðlaunin í
fyrra. Verk Guðbergs hafa þrisvar
sinnum áður verið tilnefnd til bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Framlag Dana til verðlaunanna
er skáldsagan Byen og verden eftir
Peer Hultberg og smásagnasafnið
Breve eftir Jens Smærup Sorensen.
Finnar tilnefna skáldsöguna Far
med dotter eftir Olli Jalonen og
ljóðasafnið Parkerna eftir Tua
Forsström. Frá Noregi koma ljóða-
safnið Nattsol eftir Stein Mehren
og skáldsagan Renhetens prise eft-
ir Bergljost Hobæk Haff. Svíar
leggja fram skáldsögurnar Att lása
Ingibjörg Guðbergur
Haraldsdóttir. Bergsson.
Proust eftir Olof Lagercrantz og
Utrota varenda jável eftir Sven
Lindquist.
Grænlendingar tilnefna ljóða-
safnið Den berusede flue og andre
digte eftir Marianne Petersen, Sam-
ar ljóðasafnið Vindlös sti eftir
Synnove Persen og Færeyingar
skáldsöguna Stjerner over Andes
eftir Gunnar Hoydal.
Dómnefnd ákveður 2. febrúar á
næsta ári hver hljóti bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs. Fulltrú-
ar íslendinga í dómnefndinni eru
Dagný Kristjánsdóttir og Sigurður
A. Magnússon. Verðlaunaafhend-
ingin fer fram 2. marz í tengslum
við 42. þing Norðurlandaráðs í Osló.
KAUPMIÐLUN
LÖGGILD FASTEIGNA-, SKIPA- OG FIRMASALA
AUSTURSTRÆTI17-SÍMI 62 17 00
SALA: PETUR H. BJÖRNSSON. LOGMAÐUR: ROBERT ARNI HREIÐARSSON.
AUCL ÝSINGATEIKNARAR
MARKAÐSMENN
Af sérstökum ástæðum er til sölu traust og
rótgróin auglýsingastofa í góðum rekstri.
Fjöldi verkefna framundan. Góð tæki og
áhöld, traust viðskiptasambönd. Tækifæri
fyrir 2-3 teiknara og/eða markaðsmenn til
að skapa sér sjálfstæðan eigin rekstur.
Svona tækifæri býðst ekki á hverjum degi.
Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni.
FJÖLDI ANNARRA FYRIRTÆKJA Á SKRÁ!