Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993 35 Ágúst Pálsson - Minningarorð Er við fréttum andlát Ágústs Pálssonar eða Gústa eins og hann var oftast kallaður, urðum við áþreifanlega vör við hversu ör- skammt er milli líf og dauða. Gústi lést af slysförum á vinnustað sínum 17. þessa mánaðar, aðeins 33 ára að aldri. Við kynntumst Gústa þegar kynni tókust með honum og Elínu vinkonu okkar er bæði voru ung að árum. Gústi var ávallt mjög hress og skemmtilegur og gaman að um- gangast hann. Það geislaði af hon- um lífsgleðin og við fundum það sterklega hve honum þótti gaman 9g vænt um að hitta vini sína frá íslandi, hvort sem það var hér heima eða úti í Danmörku. Gústi var um margt fróður og átti auðvelt með að halda upp skemmtilegum samræðum. Var oft setið tímunum saman við að skegg- ræða hlutina. Ekki vantaði þau ungu hjónin kjarkinn er þau seldu glæsilega nýuppgerða íbúð sína hér heima og fluttust búferlum til Vejle á Jót- landi fyrir tæplega fjórum árum. Gaman var að koma þangað í heim- sókn og njóta velvildar þeirra og gestrisni og verða vitni að vel- gengni þeirra og hamingju. Gústi var einstaklega barngóð- ur og kom það vel í ljós er þau eignuðust hið langþráða bam, Pétur Þór, sem nú er rúmlega ársgamall. Það var ánægjulegt að sjá hve stoltur og ánægður faðir hann Gústi var er þau komu hing- að til lands í byrjun árs 1992. Já, það er sárt að hugsa til þess að hann muni ekki fá að taka þátt í uppeldi sonar síns lengur og að Pétur Þór fái ekki að njóta samveru við föður sinn í framtíð- inni. En hann á yndislega móður og skyldfólk sem við vitum að mun reynast honum vel. Við viljum þakka fyrir þann allt of stutta tíma sem við fengum að njóta nærveru Ágústs Pálsson- ar. Það er stórt skarð sem hann skilur eftir sig í þessari jarðvist, en hann mun ávallt lifa í hugum okkar. Elsku Elín, Pétur Þór og aðrir aðstandendur. Við eigum ekki til nógu sterk orð til hughreystingar á þessum erfiða tíma, en við treyst- um á að góður guð gefí ykkur allan þann stuðning sem þörf er á. Innilegar samúðarkveðjur. Sibba, Addi, Lísa, Bjössi, Sól- ey, Bjarni og Katla. Vinur þinn er þér ailt. Hann er akur sálarinn- ar, þar sem samúð þinni er sáð og gleði þín uppskorin. Hann er brauð þitt og arineldur, þú kemur til hans svangur og í leit að friði. (Kahlil Gibran.) í dag fer fram útför vinar míns Ágústs Pálssonar skipasmíðameist- ara, sem lést af slysförum hinn 17. janúar, aðeins 33 ára að aldri. Þessi hörmulegi atburður gerðist fjarri heimahögunum eða í Fredericia í Danmörku. Þegar mér barst sú harmafregn seint að kveldi mánu- dagsins 18. janúar að Gústi væri látinn varð ég felmtri sleginn og neitaði ég að trúa því að lífið gæti verið svo miskunnarlaust. Við hjónin munum svo vel þegar Gústi og Elín kona hans komu með son þeirra Pétur Þór í heimsókn í fyrravor þá aðeins nokkurra mán- aða gamlan. Þau ljómuðu öll af lífs- gleði og hamingju og áttum við ánægjulega kvöldstund saman. Kynni okkar Gústa hófust sumar- ið 1983 og frá fyrstu stundu sá ég að þar fór þróttmikill dugnaðar- drengur. Hann var þá nemi í skipa- smíði hjá Bátalóni hf. Góður kunn- ingsskapur tókst strax með okkur og sambandið þróaðist í vináttu. Störfuðum við nær óslitið saman árin 1982 til 1988, fyrst í Bátalóni hf., síðan í Vélsmiðjunni Seyði og að lokum snerum við til Bátalóns að nýju. Þar höfðu orðið eiganda- skipti og var leitað eftir góðum mönnum. Alla tíð var samstarf okk- ar gott, enda prúðmennska hans og verklagni til fyrirmyndar, þótt skapmikill væri hann á stundum vottaði' aldrei fyrir ósanngirni í fari Gústa. Hann var hláturmildur og hrókur alls fagnaðar á góðum stundum. Verða margar þær stund- ir sem við áttum saman mér minnis- stæðar um langa framtíð. Að lokum vil ég þakka fyrir góð kynni og þrátt fyrir að sú ósk okk- ar sem kom fram í jólakortum okk- ar, að hittast á nýja árinu, komi ekki til með að rætast, verður Gústi ávallt í hjarta mínu og megi guð blessa hann. Guð blessi ykkur og styrki, Elín og Pétur Þór, í ykkar miklu sorg. Sendum öllu skyldfólki og vinum samúðarkveðjur. Salómon og Ingibjörg. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURBERG BENEDIKTSSON, Hvassaleiti 56, lést í Landakotsspítala hinn 24. janúar. Jóhanna Guðjónsdóttir, Hrafnhildur Sigurbergsdóttir, Steinn Lárusson, Sigurdís Sigurbergsdóttir, Pétur H. Björnsson, Dagbjört Sigurbergsdóttir, Steinunn Sigurbergsdóttir, Jan T. Jörgensen, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR SKÚLASON NORÐDAHL fyrrverandi tollvörður, Bergstaðastræti 66, lést sunnudaginn 24. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. febrúar kl. 10.30. Skúli H. Norðdahl, Kristin Guðrún H. Norðdahl, Guðmundur H. Norðdahl, Jón Bjarni H. Norðdahl, Jóhannes Viðir Haraldsson. tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. BLbnFTLFaRir.n Vesturgötu 4 Blóm, kransar, skreytingar sími 622707. i Blömmtoýa Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opiö öll kvöld tilkl.22,- Gjafavörur. t HALLFRÍÐUR ÞORKELSDÓTTIR frá Bíldudal, Kleppsvegi 22, sem lést 19. janúar, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju þriðju- daginn 26. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar afbeðnir, en þeir, sem vildu minnast hennar, vinsamlega láti líknarstofnanir njóta þess. Sigurður Runólfsson, Gústa Sigurðardóttir, Sverrir Sigurösson, Veronica Li, Kristján Sigurðsson, Hulda Snorradóttir, Tora Jóhanna Sigurðsson, Steinn Walter Sigurðsson, Hallfríður Hrönn Kristjánsdóttir, Margrét Ásta Kristjánsdóttir, Sigurður Kristjánsson, Hlynur Freyr Kristjánsson. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI TH. GUÐMUNDSSON áður sjúkrahúsráðsmaður á Akranesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28. janúar nk. kl. 15.00. Ingibergur Bjarnason, Sigurbjörg Viggósdóttir, Páll Bjarnason, Álfheiður Sigurgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega samúö og vinarhug við fráfall móður minnar, MARGRÉTAR JÓH ANNSDÓTTUR. Kristín Jóhannesdóttir og fjölskylda. t Öllum þeim, sem sýndu okkur samúð við andlát JÓNS ÍSFELD GUÐMUNDSSONAR, sendum við hjartanlegar kveðjur og þakkir. Aðstandendur. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför bróður okkar, ÞORSTEINS GUÐBERGS ÁSMUNDSSONAR frá Kverná, Grundarfirði. Ásta Ásmundsdóttir, Hallfríður Ásmundsdóttir og aðrir vandamenn. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTJÁNS JÓSEFSSONAR, Stafni. Ólöf Helgadóttir, Snorri Kristjánsson, Gerður Kristjánsdóttir, Pálmi Erlingsson, Jósef Örn Kristjánsson, Halla Grfmsdóttír, Frfður Helga Kristjánsdóttir, Jón Fr. Einarsson og barnabörn. t innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför sonar okkar og barnabarns, GUNNARS STEFÁNS. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki vökudeildar Landspítalans fyrir þeirra mikla starf og stuðning á erfiðum tím- um. Elsa Gunnarsdóttir, Davfð Halldórsson, Valgerður Stefánsdóttir, Gunnar Þorsteinsson, Ester Hjartardóttir, Halldór Sigurðsson, Ásta Finnbogadóttir. t Einlægar þakkir fyrir vinarhug og auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ERLINGS INGIMUNDARSONAR plötu- og ketilsmiðs, Nesvegi 62. Guðrún Sigfúsdóttir Öfjörð, Lára Erjingsdóttir, Sigfús Öfjörð Erlingsson, Auðbjörg Erlingsdóttir, Inga Erlingsdóttir, Erlingur Erlingsson, og barnabörn. Guðbjörg Gunnarsdóttir, Halldór B. Kristjánsson, Grétar Vilmundarson, Harpa Ólafsdóttir Lokað í dag, þriðjudaginn 26. janúar, vegna jarðarfarar JÓNS PÁLS SIGMARSSONAR. GYM 80, Suðurlandsbraut 6. Lokað í dag, þriðjudaginn 26. janúar, vegna jarðarfarar JÓNS PÁLS SIGMARSSONAR. S. Ármann Magnússon, heildverslun, Skútuvogi 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.