Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993 Minning Sveinn Olafsson bóndi, Snælandi Elskulegur tengdafaðir minn í 30 ár, Sveinn Ólafsson, hefur kvatt þennan heim, saddur lífdaga. Hugur minn hverfur til baka, til þess tíma er ég bæjarstúlkan, kom fyrst inná heimili tengdaforeldra minna, sem var mjög frábrugðið því sem ég átti að venjast, en á þeim tíma var gott bú á Snælandi, svín, kindur, hænsni, kýr, o.fl. Var ég hálfsmeyk við ailar skepnurnar. A Snælandsjörðinni bjó öll fjöl- skyldan saman og komum við dag- lega í eldhúsið hjá tengdamömmu til skrafs og ráðagerða. í þessu góða skjóli urðu bömin okkar þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp í ná- býli við dýrin og elsku afa og ömmu. Sveinn var sívinnandi en hafði þó alltaf tíma fyrir okkur öll með sína léttu lund, gamanvísur og spaug, hjá honum þekktist ekki kynslóða- bil. Aldrei styggðaryrði þó að hama- gangurinn og hávaðinn keyrði stundum úr hófi. Ég tel það mína mestu lífsgæfu að hafa átt Guðnýju og Svein sem voru mér sem móðir og faðir og félagar. Mjög gestkvæmt var á Snælandi og veitt af mikilli rausn og oftar en jekki dvaldi frændfólk frá Borgarfirði Eystri langdvölum hjá þeim hjónum. Alltaf gaf Sveinn sér tíma fyrir það, vann þá bara fram eftir nóttu við þau störf sem þurfti að sinna. Fyrir 20 áram þegar Vestmannaeyjagosið varð, seldu þau Guðný og Sveinn jörðina, m.a. fyrir viðlagasjóðshús. Síðar flytjast þau svo frá Snælandi og í íbúðir fyrir aldraða í Vogatungu og voru það þung spor, sem þau bára með reisn. Elsku Guðný, Guð gefi þér styrk. Ég kveð tengdaföður minn með virðingu og þökk. Sigríður Vilborg Guðmundsdóttir. Sveinn Ólafsson, bóndi að Snæ- landi, lést að hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 21. þessa mánaðar, á 93. aldursári. Ég kynntist Sveini og fjöl- skyldu hans haustið 1958, þá ný- kominn ásamt konu minni og tveim- ur börnum frá námi og starfi erlend- is. Það reyndist erfiðara en mig hafð órað fyrir að fá húsnæði. Óger- legt var að finna leiguíbúð fyrir hjón með tvö böm. Því virtist ekki koma annað til greina en að reyna með einhverju móti að kaupa íbúð. Á 'þessum árum var húsnæði allnokkru ódýrara í Kópavogi en í höfuðborg- inni og þar var meira um hús sem áttu sér að baki óhefðbundna bygg- ingarsögu. Fjárhagsstaðan réð mestu um valið. Við hjónin keyptu eystri enda tvíbýlishúss að Snælandi í Kópavogi. Húsið var að mestu byggt úr efni sem féll til þegar nokkrir hermannabraggar voru rifn- ir í stríðslok í Kópavogi og það var byggt á svæði sem frekar minnti á sveit en bæ. Það var með blöndnum tilfinningum sem við fluttum á Snæ- landstorfuna. En þarna stigum við hið mesta gæfuspor. Húsið var traust og allt umhverfið bauð upp á ijölbreytilegt líf, fullorðnum jafnt sem börnum. Þanm hafði Snælandsbóndinn, Sveinn Ólafsson, og Guðný Péturs- dóttir kona hans, sest að með fjöl- skyldu sína árið 1943 þegar þau fluttu suður frá Borgarfirði eystra og þar höfðu síðan tveir mágar hans og tvö börn Sveins og Guðnýjar reist sér hús. Nú flutti ókunn ijölskylda inn í þetta ættarsamfélag sem átti svo sterkar rætur í heimabyggð sinni eystra. En frá fyrsta degi hlutum við órskoraðan þegnrétt í þessu sam- félagi. Sveinn Ólafsson ríkti þarna af einstakri mildi og hjartahlýju, ekki síst gagnvart börnunum, en góðlegur svipur, yfirbragð hans og fas laðaði fullorðna jafnt sem börn að honum. Þegar hann flutti í Kópavog var strjálbýlt á þessum útskika hins forna Seltjarnarneshrepps þar sem vart var gert ráð fyrir að fólk færi að setjast að. Skólaskyld börn urðu að ganga yfir Kópavogsdalinn og niður á Sogaveg til að ná þar í skóla- bílinn, sem flutti j)au síðan inn í Laugarnesskóla. Á Seltjarnarnesi tóku íbúarnir að ókyrrast nokkuð þegar frambyggjar Kópavogs fóru að hafa orð á því að þar J>yrfti að reisa skóla fyrir börnin. I hrepps- kosningum 1946 var annar tveggja kjörstaða hreppsins í eldhúsinu á Snælandi og kjósendur fengu þar kaffi og meðlæti hjá Guðnýju eftir að hafa kosið. Frumbýlingarnir í Kópavogi náðu meirihluta í hrepps- nefnd og var þetta upphafið að því að Kópavogur varð að sjálfstæðu svejtarfélagi nokkrum áram síðar. Á þessum áram bauð umhverfi Snælands upp á fjölmarga kosti sveitarinnar sem börn jafnt sem full- orðnir nutu. Við heyrðum í lömb- unum á vorin, í kúnum þegar verið var að reka þær heim, í hænsnunum, gæsunum og svínunum Og hátíð ársins var þegar kúnum var hleypt út á vorin. Þá varð allt Snælands- hverfið einn stór leikvöllur. Börnin í næsta umhverfi hópuðust að býlinu og frændfólk kom enn lengra að. Börnunum var komið fyrir á nærri flötu þaki, en hænsni og endur urðu þá að láta sér lynda fótaspark barn- anna, köll þeirra og hlátur. Snæ- landshjónin keyptu til hátíðarinnar kassa af gosi og vart mátti sjá hvort kátínan væri meiri hjá börnunum eða kúnum, þegar þær stukku út í birtuna og vorblíðuna. Börnin voru með í margvíslegum störfum á Snælandi hjá Sveini bónda börnum hans og barnabörnum eins og þegar þeim var staflað á heyvagn- FUSABONUS Veggflísar Gólfflísar Gólfflísar Flísalím 20x25 kr. 1.495, 20x20 kr. 1.395, 30x30 kr. 1.495, 25 kg. kr. 2.490, Baúskápar meú 20-35% aíslætti. Elúhúsinnráttingar 20% afsláttur trá gáúu verúi. Fataskápar meú 15-30% atslætti. Sófasett meú 20% afslætti. Nýborg c§d Skútuvogi 4 - Sími 812470 ,. , ff f'l'Tf'l fT i f j 'í , 'mn þbgar ekið var með ilmandi íöð- una í hlöðu. Iðulega skilaði eldri sonur okkar sér í seinna lagi heim á kvöldin. Veikur ilmurinn sem fylgdi honum og sælusvipurinn á andliti hans sagði okkur þá að hann hafði verið með Sveini bónda, í bú- verkunum. Af frásögnum drengsins mátti heyra að Sveinn hafði frætt hann um sitthvað sem snerti búskap. Þegar fyrsti byggingarleikvöllur landsins var stofnaður í Kópavogi stóð ekki á samþykki Sveins að völl- urinn fengi skika úr landi hans en þar fékk fjölmennur hópur barna og unglinga í Kópavogi útrás fyrir framkvæmdaþörf sína og smíða- gleði. Sveinn og Guðný stunduðu bú- skap á Snælandi fram til ársins 1973. Þá var brýn þörf fyrir lóðir undir viðlagasjóðshús sem reist vora yfir fólk sem varð að flytja frá Vest- mannaeyjum vegna gossins og þá tók það hverfi, sem nú er þekkt sem Snælandshverfið, að rísa. En Sveinn og Guðný bjuggu áfram í húsi sínu allt fram til ársins 1988 og stunduðu þar garðrækt. Ég og fjölskylda mín eigum hon- um, Guðnýju, börnum og barnabörn- um þeirra mikið að þakka fyrir ógleymanlegan áratug sem við bjuggum á Snælandi. Við sendum Guðnýju Pétursdóttur og fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur við fráfall Sveins. Páll Theodórsson. Nú þegar afi er dáinn leita minn- ingamar á hugann og þýðing þess að hafa alist upp í nánu sambýli við hann og ömmu á Snælandi. Barnabörn afa og ömmu era sjö og öll vorum við í miklu og nánu sambandi við þau, því börn þeirra og tengdabörn reistu heimili í túngarðinum á Snælandi. Það að fá að vera svo ríkur þátt- takandi í lífi og starfi afa og ömmu, gleði þeirra og sorgum er eitt mesta lán okkar í lífinu. Afi dáði ömmu og hjónaband þeirra einkenndist af gagnkvæmri virðingu. Þau greindi oft á, en þau reyndu aldrei að breyta hvort öðra. Eftir að aldurinn fór að setja mark sitt á afa sinnti amma honum af þeirri virðingu og umhyggju sem einkenndi þeirra samband. Snæland var mjög gestkvæmt heimili og oft kom fyrir að heimsókn- irnar stóðu í mánuð eða jafnvel ár. Þeir sem urðu fyrir háði og spotti annarra sem betri töldu sig, gistu gjarnan lengi og komu oft. Þeir fundu sér athvarf á Snælandi. Þegar gesti bar að garði gleyptu bamseyran í sig sögur frá Borgar- firði eystra þar sem afi ólst upp hjá Þóranni fóstra sinni og bjó með ömmu þar til þau fluttust suður. Bamsaugun fylgdust grannt með þegar karlarnir slógu í borðið í áköf- um lomberspili. Barnsmunnurinn gleypti í sig súr- matinn sem amma bar á borð fyrir Minning AuðurHelga Samúelsdóttir Fædd 20. desember 1941 Dáin 15. janúar 1993 Nú ert þú leidd mín ljúfa, lystigarð Drottins í þar átt þú hvíld að hafa hðrmunga og rauna frí, við Guð þá mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. Dóttir í dýrðar hendi Drottins, mín sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elski þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú (Hallgrímur Pétursson) Með orðum þessa sálms viljum við kveðja í hinzta sinn Auði frænku okkar, og þakka af hlýjum hug þær góðu stundir sem við áttum saman. Megi algóður Guð veita ástvinum hennar styrk og huggun á kveðju- stundu. Blessuð sé minning hennar. Grétar, Dísa og Óli. í dag, 28. janúar 1993, verður jarðsungin og borin til grafar frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, kær vinur og trúsystir, sem flestum er minnisstæð sitjandi í hjólastólnum sínum í mormónakirkjunni. Auður skírðist sem meðlimur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu 26. ágúst 1987 ásamt manni sínum Sverri Lúthers. Það hafði sterk áhrif á mig að sjá lamaða konu ganga hægt upp þrep- in og ofan í skírnarlaugina studda af tveim trúboðum sem stóðu með henni í vatninu. I þessi sex ár sem hún hefur verið meðlimur hrakaði heilsu hennar jafnt og stöðugt, lö- munin ágerðist, og stigamir urðu erfiðir yfirferðar í kirkjubygging- unni á Skólavörðustíg 46 svo að bera þurfti allan stólinn með henni í, upp og niður stiga. Hún leit fram til þess dags er kirkjan fengi nýja kapellu á jarðhæð og hún gæti keyrt beint inn í kirkjusalinn. Manni fannst eins og þegar hjólastóllinn var við- staddur þá fyrst væri kirkjan vera- lega fyllt. Systir Auður átti við erfiða lífs- baráttu að stríða í ofanálag við löm- unina sem dró hana til dauða. Hjart- að gaf sig að lokum. Þó var hún blíðlynd og kaus að tala um gleði og fegurð, trú og von. Hún var tón- hneigð og ljóðelsk og naut þess að hlusta á fallegan söng og á þeirri bylgjulengd sameinuðumst við sem vinir ásamt manni hennar og fjöl- skyldu. Það er sárt að vita til þess að lömuð ung kona í hjólastól hafði haft unun af dansi og lært ballett. Lífsreynsla hennar hafði einnig kennt henni að sætta sig við að þrjú af sjö bömum hennar voru þroska- heft. Eitt bama hennar dó í æsku. Hún bað mig að syngja yfir sér, þegar hún væri öll, einmitt lagið „Söknuður". Mér fínnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga, því er ver. Ef værir þú hjá mér, ég vildi glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Eg harma það, en samt ég verð að segja, að sumarið það líður allt of fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Auður var fjórða af fimm bömum foreldra sinna, þeirra Margrétar Hannesdóttur og Samúels Kristins- sonar við Langholtsveg í Reykjavík. Ólst hún upp í foreldahúsum ásamt systkinum sínum, Hönnu, Jóni Val, Elsu og Margréti. Auður og Sverrir Lúthers hófu búskap sinn í Reykja- vík en fluttust til Hafnarfjarðar og bjuggu þar á fjórum stöðum, síðast á Hellisgötu 16. Hún lætur eftir sig sex böm og fimm barnabörn, það sjötta er enn gesti. Barnsnefið fékk tókbakskorn hjá afa eins og hinir karlarnir. Barnshugurinn varð stoltur þegar hann fékk greitt út lambsverðið sitt á haustin. Barnshjartað tók eftirvæntingar- kipp þegar afi söng ljósið. Áfi var glaður maður í glöðum hópi, en honum leið líka vel einum með sjálfum sér. Hann var ánægður við gegningarnar í svínahúsinu með útvarpið hangandi utan á sér og tóbaksdósirnar í vasanum. Afí var nýtinn maður en örlátur. Þegar búið var að raka saman öllu heyi á túnunum með rakstrarvélinni og okkur yngra fólkinu þótti vel hafa tekist til rakaði afi gjarnan yfir með hrífunni sinni til að ná þeim dreifum sem eftir lágu. Lífið kenndi honum að síðasta dreifin gat verið sú sem máli skipti á hörðu vori. Afi var mjög sæll af sínu og á kvöldin þegar hann var skriðinn upp í talaði hann oft um lán sitt að fá að hafa afkomendur sína, líf og fjör í kringum sig. — Víst er það, svar- aði amma þá gjarnan. Afkomendurnir feta nú lífsins veg eins og Halla kerlingin framan eftir göngunum. Með breytni sinni kenndi afi okk- ur vísdóm sem er okkur mikilvægur, hann kveikti Ijós, langt og mjótt eins og logi af fífustöngunum. Afi kenndi okkur mikið af vísum og ef hann rak í vörðurnar fyllti amma upp í eyðurnar. Hann kunni vísur sem hentuðu við öll tækifæri og þessa hefði hann kannski farið með í dag: Þegar ég skilst við þennan heim þreyttur og elliboginn ætla’ ég að sigla árum tveim inná sæluvoginn. Þökk íyrir allt, afi minn. Vilmar, Guðný, Guðrún og Þórunn. ófætt. Börn hennar era: Garðar, María, Guðmundur Bragi sem er kvæntur og býr í Færeyjum, Grétar, faðir eins barnabarnanna, Reynir og Sigurður Rúnar. Það var mér sérstakt gleðiefni að fá, ásamt eiginmanni hennar, leyfi til að smyrja höfuð hennar vígðri olíu og veita henni blessun Drottins, eins og gert var á dögum Nýja testa- mentisins (Jakobsbréf 5:14), rétt áður en hún var flutt inn á sjúkra- hús þar sem hún dó nokkram stund- um síðar. Blessuð sé minning hinnar látnu systur. Hvíldin er huggun eftir langa sjúkdómsreynslu en söknuðurinn er alltaf viðkvæmur. Sjálfur færi ég vinum mínum á Hellisgötu 16, Sverri og fjölskyldu, mínar innilegustu samúðarkveðjur með þessum sálma- versum: Ó, þegar ég með öðrum augum sé aftur þau spor, sem hér á jörðu sté, skil það, sem ekki skiljanlegt þá var, skil, að mig trúr og góður hirðir bar. Ó, þegar fæ ég heyrt hans hlýju raust, hjá honum dvelja má ég endalaust. Ó, þegar sjálfur segir Jesús mér, sorgir hvers vepa oft mig beygðu hér. Ó, þegar ég við æðri og fegri sól allt fæ að sjá, er húm og skuggi fól. Ljóst mér þá verður, leitt að hafði sá, leiðina vel er þekkti byrjun frá. (Elínborg Guðmundsdóttir) Ólafur Ólafsson öldungasveitarforseti Kirkju Jesú Krists.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.