Morgunblaðið - 02.02.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.02.1993, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1993 Arangur landsliðsins á mótum 1992-93 í janúar í mars i jum íjúní íjúlí í desember Noregur ■ ÍVAR Webster lauk löngum keppnisferli á körfuboltavellinum á sunnudagskvöldið. Hann kom upp- haflega til KR, og síðasti leikurinn var gegn vesturbæjarfélaginu, með Breiðabliki, sem hann gekk til liðs við í haust. ■ INGÓLFUR Jónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, afhenti ívari blómvönd fyrir ieikinn í tilefni dagsins. ■ ÍVAR lauk ferlinum á eftir- minnilegan hátt; gerði síðustu körfu leiksins, er ellefu sekúndur voru eft- ir — þriggja stiga körfu, og fagnaði henni innilega. ■ KARL Gauti Hjaltason var end- urkjörinn formaður Karatesam- bands íslands á ársþingi sambands- ins um helgina. Aðrir í stjóm eru: Bjarni Ásmundsson, Stefán Al- freðsson, Jón ívar Einarsson og Ingólfur Snorrason. ■ SEVERIANO Ballesteros tók þátt í golfmóti í Dubai í síðustu viku. Fyrsta daginn lék hann einu höggi undir pari en var aðvaraður í tvígang fyrir hægan leik og sagt að hann yrði sektaður kæmi þetta fyrir aftur. ■ BALLESTEROS sagðist ekki hafa leikið hægt. „Ég skil núna hvers vegna Bemhard Langer er ekki með,“ sagði hann, en Langer tekur sér venjulega góðan tíma. „Nú bíð ég spenntur eftir að sjá hvað Nick [Faldo] verður sektaður um mikið því hann er á eftir mér og leikur mun hægar en ég,“ bætti hann við. ■ PETER Senior, kylfíngur frá Ástralíu, sigraði á móti þar um helgina, en var ekki hrifinn af um- fjöllun fjölmiðla. „Þegar fjallað er um hverjir geti unnið mót er fjöldi kylfínga nefndur og jafnvel hund- amir þeirra — en ekki orð um mig!“ ■ SENIOR sagði ennfremur: „Eg hafði forystu allt mótið en fjölmiðlar töluðu bara um Allenby og Greg Norman. Þeir eru báðir ágætir kylf- ingar, en þegar ég hef forystu í móti ætlast ég til að sjá nafnið mitt einhversstaðar," sagði hann. ■ ANTHONY Peeler, nýliði hjá Los Angeles Lakers í NBA-deild- inni í körfuknattleik, var í byijunarl- iðinu um helgina í staðinn fyrir Byron Scott, sem var með flensu, skoraði 16 stig og lagði grunninn að níu stiga sigri, 96:87, gegn Bos- ton Celtics. H SEDALE Threatt var einnig með 16 stig fyrir Lakers og A.C. Green skoraði 15 stig í fimmta sigri liðsins í síðustu sjö leikjum. ■ GREEN og Sam Perkins fóru á kostum í öðrum leikhluta, þegar Lakers gerði 12 stig í röð og komst fimm stigum yfír, en liðið var yfír í hálfleik, 54:49. ■ REGGIE Lewis skoraði 23 stig fyrir Boston, sem náði mest átta stiga forystu í fyrsta leikhluta. ■ DEE Brown gerði 17 stig fyrir Boston, sem tapaði aðeins í fjórða sinn í síðustu 14 leikjum. ÓRÁÐ Iþróttahreyfingin þarf mikla peninga til að viðhalda rekstr- inum og standa undir síauknum væntingum. Með meiri sam- keppni á öllum sviðum skiptir markaðssetningin stöðugt meira máli. Sá, sem hefur ekki vel seljanlega vöru, á sér ekki við- reisnar von og sá, sem sofnar á verðin- um og kynnir ekki trompin á réttan hátt, á á hættu að sitja eftir. 'Þetta vita þeir manna best í Bandaríkjunum. Körfu- boltadeildin þeirra, NBA-deildin, er sú sterkasta í heimi og á allra vitorði, bæði þar sem og um víða veröld. Kynningin hefur enda verið skipulögð út í ystu æsar og henni fylgt eftir með sýning- ar- og æfingaleikjum erlendis og s.l. haust fóru fyrstu tveir leikir deildarinnar fram í Japan. Framganga Bandaríkjamanna kom óneitanlega uppí hugann fyrir helgi, þegar þijú sérsam- sofandi að feigðarósi, sýndi loks lífsmark, en sá ekki skóginn fyr- ir tijánum og lét stýrimanninn fara. Þegar reglur koma í veg fyrir að innlendir afreksmenn geti bönd innan íþróttasambands ís- lands, Körfuknattleikssamband- ið, Sundsambandið og Hand- knattleikssambandið, voru í sviðsljósinu vegna óvenjulegrar markaðssetningar. Körfuknatt- leikssambandið fór eftir settum reglum samþykktum af futltrú- um aðildarfélaga sinna og mein- aði einum besta körfuknattleiks- manni íslands, leikmanni, sem hefur náð lengst íslendinga í íþróttinni og m.a. leikið í NBA- deildinni, um leikheimild með nýju félagi til vors. Sundsam- bandið, sem horfir fram á kyn- slóðaskipti á meðal afreksfólks síns, er með fallandi stjömur í fremstu röð og ekki með arftaka í augsýn, viðraði í fullri alvöru hugmynd um að flytja íslands- mót sitt úr landi. Naumur meiri- hluti stjórnar Handknattleiks- sambandsins, sem virðist fljóta Forystumenn þriggja sérsambanda á frekar hálum ís skipt um félag og leikið á heima- slóðum en heimila félögum að skipta um útlendinga að vild, er illt í efni og er full ástæða til að taka undir orð Stefáns Kristj- ánssonar í DV s.l. föstudag, þar sem hann segir að reglunum um félagaskipti innlendra sem er- lendra leikmanna í körfunni verði að breyta á næsta ársþingi KKÍ. Jafnt verður yfír all.a að ganga. Áhugi Sundsambandsins á að halda Islandsmótið erlendis væri skiljanlegur, ef eitthvað væri að selja og í kjölfarið fylgdu auglýs- ingasamningar og sala á sjón- varpsrétti frá mótum innanlands; ef Sundsambandið væri að fara útá áður óþekkta braut hérlendis til að afla tekna íþróttinni til efl- ingar og framgangs. Að því leyti er hugmyndin góð, en samband í kafí sykki enn dýpra ef af yrði. Mikil ólga hefur verið innan handknattleikshrevfingarinnar og má stjórn HSI síst við meiri skakkaföllum. Lán HSÍ í óláni er að stjórnin hefur fram- kvæmdastjóra, sem finnur hvar skórinn kreppir. Illt er 5 efni, þegar samband, sem skuldar meira en 30 milljónir og þarf á miklum samtakamætti að halda, hefur ekki not fyrir slíkan starfs- kraft. Steinþór Guðbjartsson Hver er hann eiginlega þessi JOE WRIGHT stórskyttan íkörfuboltaliði Breiðabliks? Ferðast um landið í vor JOE Wright, sem nýlega gekk til liðs við körfuknattleikslið Breiðabliks, hefur vakið mikla athygli ífyrstu leikjum sínum í úrvalsdeildinni. Hann gerði 55 stig í fyrsta leiknum, því næst 52, siðan 67 í fyrsta sigurleik liðsins í rúma tvo mánuði — er liðið vann UMFN á föstudagskvöldið — en var svo öllu rólegri á sunnudagskvöldið, er hann gerði „aðeins" 45 stig gegn KR. Wright, sem er 29 ára Bandarfkjamaður, einhleypur, lék í Finn- landi áður en hann kom hingað til lands. — sem gefa þátttökurétt í úrslita- keppninni. En það tókst ekki. Liðið þarf því að spila við lið úr 2. deild um sæti í 1. deild og þarf ekki útlending í það.“ Og því komstu hingað... „Já, ég var reyndar næstum kominn til Breiðabliks áður en ég. fór til Finnlands í vetur. Var búinn að ákveða að taka tilboði félagsins, en tveimur dögum áður en ég lagði af stað höfðu þeir samband frá Turku og ég sló til. Ég þekkti til þar, og valdi það því frekar en koma hingað. Svo þegar ég losnaði þaðan vantaði Breiðablik enn mann, þannig að ég ákvað að koma.“ Hefurðu a.Iltaf veríð svona mikil skýtta? Hafa liðin viljað notað þig á þennan hátt? „Já, alltaf. Mér hefur verið sagt að skjóta sem mest og ég hef allt- af skorað mikið. Var með 40 stig Morgunblaðið/Skapti Joe Wright í „góða“ veðrinu í Kópavogi í gærdag. Skapti Hallgrímsson skrifar Wright er mjög góður leikmað- ur; frábær skytta, hefur góða tækni og á góðar sendingar. En hvaða náungi er þetta eiginlega. Morgunblaðjð spjallaði við hann í gær. Ég er frá Carthage, litlum bæ í Missouri. Ég fór í háskóla í Kans- as, þar sem ég lék körfubolta en eftir það fór ég til Evrópu. Fékk fyrsta samnmginn þar 1988, í Austurríki. Árið eftir Iék ég í Þýskalandi og því næst í Turku í Finnlandi." En hvar varstu áður en þú komst hingað? „Ég var í Finnlandi. Liðið sem ég var hjá veturinn áður var ekki með neinn útiending í byijun tíma- bilsins, en svo var haft samband við mig. Þeir vildu styrkja liðið til að ná einu af átta efstu sætunum að meðaltali í leik í Austurríki, 39 í Þýskalandi og 44 í Finnlandi. Ég held ég sé alltaf að verði betri og betri skytta...“ En myndirðu segja að þú værir eigingjarn leikmaður? „Nei. Ég skýt mikið því mér er skipað að gera það, en auðvitað gef ég líka oft boltann ef samheiji er í betra færi. Ég er skot-bakvörð- ur; er ekki vanur að stjórna spil- inu, en sé mér sagt að gera það, hlýði ég. Mér fellur það vel að bera ábyrgð." Hvemig kanntu við þig hérna? „Mér líkar vel hér. ísland er reyndar svolítið öðruvísi en Finn- land; það er kaldara hér, en fólkið er mjög vingjarnlegt, eins og ann- ars staðar á Norðurlöndum." Einhver framtíðaráform? „Nei, ég plana ekki langt fram í tímann. Ég veit ekki hvar ég spila næsta vetur, en er tilbúinn að fara hvert sem er ef ég fæ samning. Annars er ég ákveðinn í að skoða mig um á íslandi áður en ég fer. Ferðast um landið. Ég er vanur að gera það í þeim löndum þar sem ég hef leikið. Svo ætla að stofna körfuboltaskóla í Kaliforníu í sum- ar. Ég var með svoleiðis námskeið fyrir krakka í Kansas fyrir nokkr- um árum og það gekk mjög vel. Það er skemmtilegt starf og gef- andi.“ Mér heyrist á þér að lítið annað en körfubolti komist að... „Já, það er alveg rétt. Líf mitt snýst alveg um íþróttina — ég hugsa um körfubolta 24 tima á sólarhring!"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.