Morgunblaðið - 17.03.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1993
21
Davíð Oddsson segir að emkavæðing bankanna frestist
Bankinn notaður
sem félag’smála-
stofnun atvinnulífs
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir í
samtali við Morgunblaðið að Landsbankinn
hafi að mörgu leyti verið notaður sem fé-
lagsmálastofnun atvinnulífsins. Slæm staða
Davíð var spurður að hve miklu
leyti hann teldi að vandi Lands-
bankans væri pólitískri stýringu og
afskiptum stjórnmálamanna á liðn-
um árum að kenna. „Ég vil ekki
endilega kenna ákveðnum stjóm-
málamönnum um. Hins vegar er
það staðreynd að þessi banki var
að mörgu leyti notaður sem félags-
málastofnun atvinnulífsins,“ sagði
forsætisráðherra. Við sjáum þessi
stóru lán til fiskeldis, þar sem hefur
tapazt um milljarður króna. Við
sjáum að Sambandið var á sínum
tíma með nánast allt eigið fé Lands-
bankans að láni. Þótt enn sé ekki
séð fyrir endann á því, vitum við
að á meðan Hrunadans Sambands-
ins stóð yfir, var öll bankastjórn
Landsbankans heltekin af því verk-
efni að sinna honum. Það hefur
tekizt vonum framar að lenda því
máli, en þó sjá menn ekki fyrir
endann á því ennþá.“
hans nú slái á frest um óákveðinn tíma
áformum ríkisstjórnarinnar um einkavæð-
ingu ríkisbankanna.
„Ég held að menn sjái í hendi
sinni að það er ekki rétti tíminn til
að einkavæða banka í bili. Á hinn
bóginn hefði getað verið kostur að
bankinn væri hlutafélag, þótt ríkið
hefði átt hann. Þá hefði verið auð-
veldara að bregðast við til að bæta
stöðu bankans. Til að mynda hefði
verið auðveldara fyrir bankann að
vera hlutafélag þegar hann keypti
Samvinnubankann á sínum tíma.
Landsbankinn þurfti að borga stór-
ar fjárhæðir út úr sínum rekstri til
annarra eigenda en Sambandsins.
Það er ljóst að þessi kaup hafa
reynzt bankanum dýr.“
— Er þá einkavæðingu ríkis-
bankanna beggja slegið á frest?
„Ég hygg að nú sé ekki tíminn
til að einkavæða bankana. Menn
verða að bíða þar til markaðurinn
er hagstæðari. Hvenær það verður,
vil ég ekki spá um,“ sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra.
— En telur þú að pólitískt skipað
bankaráð og pólitísk veiting banka-
stjóraembætta hafi haft áhrif, að
jafnvel hafí verið tekin röng stefna
í lánveitingum vegna pólitískra
sjónarmiða, en ekki fyrst og fremst
vegna hagsmuna bankans?
„Ég tel að ekkert sanni það í
sjálfu sér. Við horfum á banka sem
eru í erfiðleikum erlendis. Það eru
bankar, sem fóru í útlánastarfsemi
á níunda áratugnum, en bankastjór-
arnir voru valdir með allt öðrum
hætti. Sú útlánastarfsemi brást.
Menn fóru of geyst og mátu veð
of hátt. Að sumu leyti höfum við
gert það hér líka.“
Einkavæðingaráformum
frestað
— Hvað þýðir staða Landsbank-
ans fyrir áform ríkisstjórnarinnar
um að breyta ríkisbönkunum í
hlutafélög og einkavæða þá?
Jón Sigurðsson segir að hinir bankarnir séu betur staddir
Tekið myndarlega
á eiginfjárvanda
Landsbankans
„ÉG tel að með þessum ráðstöfunum sé
tekið myndarlega og með raunsæi á þessum
eiginfjárvanda Landsbankans. Að sjálf-
sögðu er starf að eflingu bankans þess
eðlis að því lýkur aldrei,“ sagði Jón Sigurðs-
son iðnaðar- og viðskiptaráðherra sem fer
„Á grundvelli þeirrar fyrir-
greiðslu sem bankanum nú býðst
þarf að gera samkomulag um það
hvernig eigi að framkvæma spam-
aðar- og hagræðingaráætlun í
rekstri bankans og endurskipulagn-
ingu á efnahag hans til þess að
styrkja eiginfjárstöðuna til fram-
búðar. Hins vegar er það mjög mik-
ilvægt að menn horfist í augu við
það í einu lagi, eins og hér er gert,
að afskriftaþörf vegna hættu á út-
lánatöpum hefur vaxið hröðum
skrefum undanfarin ár. Á þeim
vanda hefur nú verið tekið," sagði
Jón.
Hinir bankarnir standa betur
Jón sagðist aðspurður telja ólík-
legt að aðrir íslenskir bankar lendi
í svipaðri stöðu og Landsbankinn.
Benti hann á að íslandsbanki hefði
boðið út aukið hlutafé á síðastliðnu
ári og einnig aukið við eigið fé sitt
í gegn um eignarhaldsfélögin. Þá
hefði Útvegsbanki íslands hf. geng-
ið í gegn um mikla hreinsunarað-
gerð á árunum 1987 til 1990, þar
sem grisjað hafí verið í skuldaskóg-
inum. Taldi ráðherra að bankinn
ætti að hafa stofn sem gæti vaxið.
með málefni bankanna. Hann segir að það
séu ekki einungis efnahagserfiðleikar und-
anfarinna ára sem valdið hafi vanda Lands-
bankans heldur einnig áhættusöm útlána-
stefna hans á liðinni tíð.
reyna að byrgja brunninn áður en
bamið er dottið ofan í. En það kost-
ar mikið átak að viðurkenna þetta
sem eina staðreynd efnahagslífs-
ins,“ sagði Jón.
Áhættusöm útlánastefna
Hann sagði að aðdragandinn að
þessu máli væri orðinn alllangur.
„Það eru ekki einasta efnahagserf-
iðleikar undanfarinna ára sem valda
vandanum heldur einnig áhættusöm
útlánastefna Landsbankans á liðinni
tíð. Það segir sig sjálft að hart ár
sverfur alvarlegar að þeim sem er
ekki hraustur fyrir en þeim hraust-
ari. Án þess að ég sé að fella um
það dóma tel ég augljóst að Lands-
bankinn hafí hætt meiru fé í nýjar
atvinnugreinar, svo sem fískeldi og
loðdýrarækt, en aðrir sambærilegir
bankar. Það eru hins vegar mál sem
em gengin yfír og Landsbankinn
hefur nú látið gera ítarlegri könnun
á stöðu viðskiptamanna sinna en
hann hefur nokkru sinni áður gert.
Ég tel að endurskoðendur hans hafi
unnið þar mjög merkilegt verk. En
að sama skapi er erfitt að vinna úr
þeim eiginfjárvanda sem af þessu
leiðir,“ sagði Jón Sigurðsson.
Um hinn ríkisbankann, Búnaðar-
banka Islands, sagði Jón að hann
hefði náð því að leggja meira til
hliðar til að mæta afskriftatöpum,
miðað við þörf, en hinir bankarnir.
„Með frumvarpinu sem ríkis-
stjórnin ætlar að flytja er almennur
þáttur sem felur í sér eflingu Trygg-
ingasjóðs viðskiptabanka og Trygg-
ingasjóðs sparisjóða til þess að þeir
geti gegnt nýju hlutverki. Það felst
í því að auk þess að vera trygging
fyrir innstæðum ef til þrota kemur,
sem raunar er ólíklegt, verði hlut-
verk þeirra að að veita víkjandi lán
til að efla eiginfjárstöðu lánastofn-
ana til að viðhalda trausti á þeim,“
sagði Jón Sigurðsson.
„Þetta er skylt að því leyti að við
emm í sömu hagsveiflunni, öll lönd
á þessu efnahagssvæði," sagði Jón
þegar hann var spurður hvað hann
teldi sameiginlegt með vandamálum
Landsbankans og gífurlegum erfið-
leikum banka i nágrannaríkjunum,
ekki síst á hinum Norðurlöndunum.
„Hins vegar tel ég að íslensku bank-
amir séu þrátt fyrir allt betur í stakk
búnir en ýmsir bankar í nágranna-
löndum og að við séum hér að grípa
til fyrirbyggjandi ráðstafana, að
Friðrik Sophusson fiármálaráðherra
Fjárlagalialli
á annan tug
milljarða
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segir að fyrirgre-
iðslan við Landsbankann auki halla ríkissjóðs og nú sé
fyrirsjáanlegt að á þessu ári verði hann á annan tug millj-
arða, talsvert meiri en á síðasta ári.
Friðrik sagði að ekki hefði verið
rætt hvort aðrar ráðstafanir yrðu
gerðar í ríkisfjármálum til þess að
mæta aðstoðinni við Landsbankann.
„Staðan verður auðvitað miklu lak-
ari fyrir okkur til þess að beita ríkis-
útgjöldunum í þágu annarra verk-
efna,“ sagði hann.
Þrengri staða
Aðspurður hvaða áhrif þessi
auknu útgjöld hefðu á líkur á því
að ríkið kæmi til móts við óskir
aðila vinnumarkaðarins um auknar
opinberar framkvæmdir, sagði Frið-
rik að það mál hefði ekki verið
rætt. „Það er þó ljóst að þetta eyk-
ur hallann og þrengir stöðuna til
þess að fara að óskum þeirra, sem
vilja auka útgjöld ríkissjóðs, hvort
sem það er með framkvæmdum eða
með öðrum hætti. Þetta setur okkur
auðvitað einnig í lakari stöðu til að
fella niður þá tekjuöflun, sem nú
þegar er fyrirhuguð," sagði hann.
Fjármálaráðherra sagði að fyrir-
greiðslan við Landsbankann yki
rekátrarhalla ríkissjóðs til muna.
Hallinn yrði að öðru óbreyttu tals-
vert mikið meiri en á síðasta ári.
„Ég held að óhætt sé að segja að
hallinn verði á annan tug millj-
arða,“ sagði Friðrik.
Bankarnir ekki látnir
lenda í klípu
Friðrik sagði að Tryggingarsjóð-
ur viðskiptabanka, sem ríkisstjórnin
ætlar nú að efla, yrði með ríkis-
ábyrgð að hluta og myndi geta þjón-
að öðrum lánastofnunum. „Með
þessu ætlum við að undirstrika að
ríkisstjórnin ætlar sér ekki að láta
það gerast hér að bankamir lendi
í klípu,“ sagði hann.
Fjármálaráðherra sagði að ekki
væri ákveðið hvort Landsbankinn
fengi tvo milljarða króna í beina
greiðslu frá ríkissjóði eða hvort lögð
yrðu fram skuldabréf, sem ríkið
skuldbyndi sig til að greiða á
ákveðnum árafjölda. Aðspurður
hvemig skuldaviðurkenning af því
tagi myndi bæta eiginfjárstöðu
Landsbankans, sagði Friðrik að
verið væri að tryggja að bankinn
fullnægði alþjóðlegum skilyrðum
um að eiginfjárhlutfall væri 8%.
„Við emm að koma þessu hlutfalli
upp í 8,5-9%. Það má telja víkjandi
lán til eigin fjár. Ef við leggjum
fram skuldabréf eða bein framlög,
má telja það eigin fé, því að bank-
inn eignast þá kröfu á aðra aðila,“
sagði Friðrik.
Byggt á tfllögum
bankaeftirlits
AÐGERÐIR ríkisstjórnarinnar vegna Landsbankans voru
að verulegu leyti byggðar á mati bankaeftirlits Seðlabank-
ans og endurskoðenda, að sögn Þórðar Ólafssonar, for-
stöðumanns.
„Að því er fjárhæðir varðar þá
eru þessar aðgerðir gmndvallaðar á
ársreikningi Landsbankans, sérstök-
um athugunum löggilts endurskoð-
anda og mati bankaeftirlitsins. Mér
sýnist að ríkisstjórnin hafi fallist á
tillögur bankaeftirlitsins en hún tók
ákvörðun um nánari útfærslu á því
með hvaða hætti þessi fjárhagsað-
stoð er veitt," sagði Þórður.
Hann segir að þær aðgerðir sem
um sé að ræða þýði að Landsbank-
inn uppfylli þær kröfur sem gerðar
séu til viðskiptabanka samkvæmt
gildandi lögum um lágmark eigin
Qár. Að mati bankaeftirlitsins sé
jafnframt nauðsynlegt að gripið
verði til hagræðingaraðgerða til að
treysta rekstur og afkomu bankans
í framtíðinni.