Morgunblaðið - 03.04.1993, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 03.04.1993, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARPAGUR 3. APRÍL 1993 FOLX ■ CARL Lewis, bandaríski ftjáls- íþróttamaðurinn kunni, hyggst hvíla sig á langstökki á komandi keppnistímabili en einbeita sér þess í stað alfarið að spretthlaupum. Ijálfari hans greindi frá þessu í gær. ■ LEWIS, sem er 31 árs, er heimsmethafi í 100 m hlaupi og Ólympíumeistari í langstökki. Hann sigraði í langstökki á ÓL í Barcel- ona í fyrra og varð þar með fyrstur til að sigra í greininni á þrennum leikum í röð. ■ TALIÐ er næsta víst að Lewis hyggist keppa í langstökki aftur, en ekki fyrr en á næsta ári. Þjálf- ari hans gaf í skyn að Lewis myndi jafnvel keppa í 400 m hlaupi í ár. ■ FELIX Magath, sem gerði sig- urmark Hamburger SV gegn Juv- entus í úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða í knattspymu 1983, er kominn til Hamborgarliðsins á ný. Hann var ráðinn aðstoðarþjálf- ari Benno Möhlmanns í gær og kemur til starfa í sumar. ■ MAGATH, sem lék 43 sinnum með landsliði Vestur-Þjóðverja, lagði keppnisskóna á hilluna 1986 og hefur starfað hjá nokkrum félög- um sem framkvæmdastjóri á við- skiptasviðinu, en tekur nú að sér þjálfun í fyrsta skipti. Lið Ham- burger er nú í níunda sæti í þýsku deildinni. ■ JOHN Ngugi, Kenýabúinn kunni sem fimm sinnum hefur orð- ið heimsmeistari í víðavangshlaupi, var ekki valinn í lið lands síns fyrir heimsmeistaramótið á dögunum, vegna þess að hann neitaði að fara í lyfjapróf. I DANSON Musyoki, landsliðs- þjálfari Kenýa í frjálsíþróttum, sagði í gær að Ngugi hefði óttast að fara í lyfjaprófíð því hann hefði nýverið tekið inn lyf vegna kvef- pestar. ■ TALIÐ var að Ngugi ætti yfir höfði sér fjögurra ára bann, en rannsóknamefnd á vegum kenýska fij álsíþróttasambandsins, hreinsaði hlauparann í gær af öllum grun um ólöglega lyfjanotkun en fann hins vegar að því við Ngugi hve fáfróð- ur hann væri um þessi mál! ■ VINNIE Jones, knattspymu- maður hjá Wimbledon í Englandi, missir a.m.k. af þremur leikjum, eftir að hafa mætt allt of seint hjá aganefnd enska knattspyrnusam- bandsins í vikunni. ■ JONES mætti kl. 14.30 en átti að koma tveimur tímum áður. Hann var settur í bann í óákveðinn tíma, og reiknað var með að aganefnd kæmi aftur saman í næstu viku, en nú virðist sem ekkert verði af því fyrr en 13. apríl. HANDKNATTLEIKUR Sigurður meiddist illa SIGURÐUR Bjarnason, landsliðsmaður í handknattleik og leik- maður Grosswallstadt í Þýskalandi meiddist illa í hné f leik á miðvikudagskvöld og verður ekki meira með í vetur. Sigurður var í hraðaupphlaupi, stökk inn í teiginn en ienti illa með þeim afleiðingum að bæði liðband og krossband slitn- uðu í hnénu og liðþófinn eyðilagð- ist. Sigurður fór í uppskurð vegna þessa í gær. Þess má geta að Grosswallstadt sigraði lið Milbertshofen á mið- vikudagskvöldið, 24:18, og er þar með komið í 16-liða úrslit. Sömu sögu er að segja af Héðni Gils- syni og félögum í Dusseldorf. Lið- ið sigraði Bjarna Guðmundsson, fyrrum landsliðsmann, og sam- heija í Wanne Eickel í bikar- keppninni, 31:19, og er Dusseld- orf þar með komið í 16-liða úrslit. Bjarni er orðinn 36 ára en enn í fullu fjöri í handboltanum, að sögn Héðins. Lið Wanne Eickel leikur nú í 3. deild, en er komið í úrslitakeppnina og á því mögu- leiki á að komast upp í 2. deild. SKIÐAMOT ISLANDS Guðmundur Konráðsson, Ólafur H. Björnsson og Björn Þór Ólafsson. Morgunblaðið/Rúnar Þór Tvöfatt hjá Olafi f fimmta sinn Olafur Björnsson frá Ólafsfírði sigraði í gær í stökki og nor- rænni tvíkeppni í fimmta sinn á Skíðamóti íslands. Hann tryggði sér sigurinn í stökkinu með 44 metra stökki í síðustu umferð og skaust þar með uppfyrir Guðmund Kon- ráðsson, sem hafði forystu þangað til. í 10 km göngu í norrænni tví- keppni kom Ólafur langfyrstur í mark, eða sex og hálfri sekúndu á undan föður sínum, Birni Þór Ólafs- syni. Ólafur ságðist vera ánægður með daginn. „Fyrstu stökkin voru ekki nægilega góð, en þetta gekk í lok- in. Eg er búinn að stökkva um 200 stökk í vetur og því kom sigurinn kannski ekki á óvart,“ sagði Ólafur sem er íþróttakennari í Lillehammer í Noregi. Hann sagðist hafa stokkið lengst rúma 60 metra í Noregi, en hyggðist færa sig á hærri stökk- palla næsta vetur. Bjöm Þór Ólafsson er 52 ára og hefur tekið þátt í fleiri Landsmótum en nokkur annar og enn fer hann heim með verðlaunapening. „Ég byijaði 1957 og hef aðeins misst úr þijú mót vegna náms eða veik- inda. Þetta er alltaf jafn gaman. Ég lifði þetta af í dag, en annars er stökkið ekki hættulegri íþrótt en hver önnur ef menn kunna sín tak- UM HELGINA Handknattleikur 1. deild karla: Sunnudagur: Vestm’: IBV-Þór................kl. 20.00 Digranes: HK-ÍR................kl. 20.30 Sélfoss: Selfoss - FH..........kl. 20.00 Valsheimili: Valur-Fram........kl. 20.00 Strandgata: Haukar-Vík.........kl. 20.00 KA-hús: KA - Stjarnan..........kl. 20.30 Mánudagur: Fyrsti leikurinn í úrslitum 1. deildar kvenna. Víkingur - Stjarnan mætast í Vík- inni kl. 20.30. 23.-28. júní oyUMÖyv Þau lið, sem óska eftir að taka þátt í SHELLMÓTITÝS 1993, er verður haldið í Vestmannaeyjum 23. júní til 28. júní nk., tilkynni þátttöku eigi síðar en 8. apríl til: Knattspyrnufélagið Týr Pósthólf 395 902 Vestmannaeyjar eða Knattspyrnufélagið Týr Símbréf: 98-12751 1993 /þátttökutilkynningu skal koma fram nafn félags, nafn þjálfara og símanúmer, áætlaður fjöldi þátttakenda. Einnig nafn, heimili og simanúmer ábyrgðarmanns hópsins. Allar nánari upplýsingar eru veittar i Týsheimilinu isíma 98-12861. Herjólfur brúar bilið Ticrjólfur h(. Pantið tlmanlega tyrlr Blla og hópa mörk. Ég er svolítið þreyttur í fót- unum eftir daginn en ég er mjög ánægður með gönguna,“ sagði Björn Þór, sem hefur tíu sinnum orðið íslansmeistari í stökki og ell- efu sinnum í norrænni tvíkeppni. Sex keppendur tóku þátt í stökk- keppninni og voru þeir allir frá Ól- afsfirði, en fjórir þeirra tóku þátt í 10 km göngu í norrænni tvíkeppni. Blak Laugardagur: Úrslitakeppni karla: Hagaskóli: ÞrótturR. - HK.;......kl. 16 Úrslitakeppni kvenna: Hagaskóli: ÍS-Víkingur........kl. 17.30 Fimleikar Landskeppni, ísland - Danmörk, í Tromp- hópfimleikum verður í íþróttahúsinu í Digranesi kl. 13 á laugardag. Danska liðið sem er frá Óðinsvéum verður með sýningu í íþróttahúsinu á Akranesi á morgun, sunnu- dag kl. 17. Skíði Skíðamót íslandi verður framhaldið á Akureyri í dag og á morgun. í dag hefst keppni kl. 10 f stórsvigi kvenna og svigi karla. Keppt verður í göngu kl. 13. Á morg- un lýkur keppni á landsmótinu með samhlið- asvigi karla og kvenna kl. 11.00 og boð- göngu á sama tíma. Skíðadeild ÍR gengst fyrir stórsvigsmóti í Hamragili á laugardaginn fynr 12 ára og yngri. Rútuferð verður frá BSÍ kl. 8.30 og Árseli kl. 9. Keiia Bikarúrslitaleikir í liðakeppni í keilu karla og kvenna fara fram f Öskjuhlíð f dag, laug- ardag, kl. 16. I karlafokki leika KR og Keilulandssveitin til úrslita og Afturgöng- urnar og HA í kvennaflokki. Badminton Deildarkeppni Badmintonsambands íslands verður í Laugardalshöllinni um helgina. Keppt verður í þremur deildum og fer síð- asta umferðin fram kl. 15 á sunnudag. Körfudagar Körfuknattleikssambandið gengst fyrir svo- köliuðum körfudögum f Perlunni í dag og á morgun, kl. 13-17 báða dagana. M.a. verður ýmislegt sem viðkemur íþróttinni kynnt; körfuspjöld og körfuboltamyndirnar vinsælu og þá geta menn spreytt sig í að skjóta í körfu. Þorbergur Aðalsteinsson landsliðsþjálfari í handknattleik og kokkur kynnir heilsurétti. Þá verður boðið upp á tískusýningu frá Austurbakka og landsliðs- menn verða með skot- og troðslusýningu. URSLIT Skíðamót íslands Mótið fer fram f Hlíðarfjalli við Akureyri. Stórsvig karla m,-n. Vilhelm Þorsteinsson, Akureyri...1:55,25 (57,83 - 57,42) ArnórGunnarsson, ísafirði.........1:56,19 (58,54 - 57,65) Órnólfur Vaídimarsson, ÍR.........1:57,26 (59,57 - 57,69) Gísli Reynisson, Ármanni..........1:59,50 (1:00,78 - 58,72) Per Olov Wikberg, Dalvík..........2:00,92 (1:01,15 - 59,77) ■Wikberg keppir sem gestur á mótinu Jóhann B. Gunnarsson, Isafirði...2:01,06 (1:01,07 - 59,99) Pálmar Pétursson, Ármanni.........2:01,25 (1:00,72 - 1:00,53) Ásþór Sigurðsson, Ármanni........2:01,42 (1:01,57 - 59,85) Haukur Amórsson, Ármanni.........2:01,76 (1:01,16 - 1:00,60) Daníel Hilmarsson, Dalvfk........2:03,35 (1:02,05 - 1:01,30) Eggert Þór Óskarsson, Ólafsfirði.2:04,29 (1:02,92 - 1:01,37) Gunnlaugur Magnússon, Akureyri ...2:04,32 (1:02,34 - 1:01,98) Ingvi Geir Ómarsson, Ármanni.....2:04,71 (1:02,90 - 1:01,81) Helgi Geirharðsson, Ármanni......2:06,02 (1:03,78 - 1:02,24) Gísli Már Helgason, Ólafsfirði...2:07,85 (1:04,02 - 1:03,83) Sveinn Brynjólfsson, Dalvík.......2:08,62 (1:04,10 - 1:04,52) Ingþór Sveinsson, Neskaupsstað...2:11,32 (1:06,04 - 1:05,28) Magnús Kristjánsson, Isafirði.....2:11,89 (1:06,53 - 1:05,36) Sigurður F. Friðriksson, Isafirði.2:12,09 (1:06,11 - 1:05,98) Róbert Hafsteinsson, Isafirði.....2:12,23 (1:06,40 - 1:05,83) Sigurður M. Sigurðsson, Akureyri....2:12,33 (1:06,53 - 1:05,80) Hjörtur Waltersson, Ármanni......2:12,34 (1:06,49 - 1:05,85) ValurTraustason, Dalvik..........2:14,72 (1:07,25 - 1:07,47) Árni Geir Ómarsson, Ármanni.......2:14,87 (1:07,29 - 1:07,58) Bjarni Skarphéðinsson, Dalvík....2:15,76 (1:08,65 - 1:07,11) Sveinn Bjarnason, Húsavík........2:16,13 (1:07,59 - 1:08,54) Fjalar Úlfarsson, Akureyri.......2:20,14 (1:10,47 - 1:09,67) Ægir Örn Valgeirsson, ísafirði...2:24,42 (1:12,21 - 1:12,21) ■Fjórir luku ekki keppni. Svig kvenna mín. Harpa Hauksdóttir, Akureyri.......1:42,54 (49,61 - 52,93) Brynja H. Þorsteinsdóttir, Akure..1:47,09 (55,18 - 53,91) Hildur Þorsteinsdóttir, Akureyri.1:49,01 (52,57 - 56,44) Sandra B. Axelsdóttir, Akureyri..1:51,71 (57,55 - 54,16) Heiða B. Knútsdóttir, KR.........1:53,92 (55,98 - 57,94) Kristín Björnsdóttir, Ármanni....1:58,30 (59,49 - 58,81) Sesselja Þ. Gunnarsdóttir, Árm...1:59,45 (58,98 - 1:00,47) ■Níu stúlkur luku ekki keppni. Skíðastökk stig: Ólafur H. Bjömsson, Ólafsfirði.....195,8 (Stökklengd: 38, 41, 40, 44 m) Guðmundur Konráðsson, Ólafsfirði..188,2 (40, 39, 38, 43 m) Magnús Þorgeirsson, Ólafsfirði.....178,6 (38, 39, 38, 40 m) Randver Sigurðsson, Ólafsfirði.....174,8 (37, 39, 37, 38 m) Sigurður Sigurgeirsson, Ólafsfirði.174,5 (38, 42, 36, 37 m) Björn Þór ÓÍafsson, Ólafsfirði.....169,0 (37, 39, 36, 38 m) Norræn tvíkeppni Keppni í 10 km göngu: Ólafur H. Bjömsson, Ólafsfirði.....31,39 Björn Þór Ólafsson, Ólafsfirði.....37,00 Sigurður Sigurgeirsson, Ólafsfirði.38,47 Guðmundur Konráðsson, Ólafsfirði..40,80 Körfuknattleikur NBA-DEILDIIM Leikir i fyrrinótt: New York - Cleveland..............91:83 New Jersey - Miami Heat...........95:82 Washington-Sacramento............97:117 Orlando - Charlotte..............93:102 Houston-Milwaukee...............121:115 Knattspyrna Þýskaland Wattenscheid - Bayern Miinchen.......2:0 Ali Ibrahim (70.), Marek Lesniak (78.) SaarbrUcken - Frankfurt..............0:0 ■Bremen getur skotist upp á toppinn í dag, en þá leikur félagið gegn Kaisers- lautern heima. Bayern er með 34 stig, en Bremen 32. Frakkland St. Etienne - Marseille..............0:2 Völler (72.), Desailly (76.). 45.000. Strasbourg - Mónakó..................3:0 Paillard (59.), Bouafia 2 (72., 90.) 30.000. Staða efstu liða: Marseille.........30 17 8 6 52:28 42 Mónakó............30 16 8 6 38:18 40 Bordeaux..........30 14 11 5 31:16 39 París St. G.......30 14 10 6 50:23 38 Nantes............30 13 9 8 41:29 35

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.