Morgunblaðið - 14.04.1993, Blaðsíða 4
4 D
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993
BORÐTENNIS / ÍSLANDSMÓTiÐ || HANDKNATTLEIKUR / ÍS
KORFUKNATTLEIKUR
Aðalbjörg
þrefaldur
meistari
Kjartan Briem endurheimti titilinn í einliðaleik
Þau bestu og efnilegustu
Linda Stefánsdóttir úr ÍR var kjörin besta körfuknattleiksstúlkan í vetur og hér sést hún lengst til vinstri. Lengst tii hægri
er Jón Kr. Gíslason úr ÍBK sem var valinn besti leikmaður úrvalsdeildar. Honum á hægri hönd er besti nýliðinn í 1.
deild kvenna, Helga Þorvaldsdóttir úr KR og Helgi Guðfinsson úr Grindavík sem kjörinn var besti nýliðinn í úrvalsdeildinni.
AÐALBJÖRG Björgvinsdóttir úr
Víkingi varð um helgina þre-
faldur meistari f borðtennis, en
hún sigraði i einliða-, tvíliða-
og tvenndarleik. Kjartan Briem
úr KR endurheimti titilinn í ein-
liðaleik karla og hann varð
einnig meistari ftvenndarleik.
FOLK
■ KÖRFUBOLTAFÓLK hélt
lokahóf sitt á miðvikudaginn fyrir
viku. íslandsmeistarar IBK í karia-
flokki mættu glerfínir, allir í kjól
og hvítt.
■ STÚLKURNAR í Keflavíkur-
liðinu sem einnig unnu tvöfalt eins
og strákamir létu sitt ekki eftir
liggja. Þær mættu allar í sínu fín-
asta pússi og höfðu menn á orði
að erfitt væri að þekkja þær svona
klæddar.
■ JÓN Kr. Gíslason, þjálfari og
leikmaður IBK, var kjörinn besti
leikmaður ársins. Helgi Guðfinns-
son úr Grindavík var kjörinn besti
nýliðinn í deildinni.
■ LINDA Stefánsdóttir úr ÍR
var valinn besta stúlkan í 1. deild
kvenna og Helga Þorvaldsdóttir
úr KR var valin besti nýliðinn.
■ INGVAR Jónsson þjálfari
Hauka var kjörinn besti þjálfari
deildarinnar og Bragi Magnússon
prúðasti ieikmaðurinn.
■ VALIN voru byrjunarlið karla
og kvenna, Nike-Iiðin. í karlaliðið
völdust Jón KR. Gíslason, ÍBK,
Teitur Örlygsson, UMFN, Guð-
mundur Bragason, UMFG, Birgir
Mikaelsson, Skallagrími og
Magnús Matthíasson, Val.
■ LINDA Stefánsdóttir úr ÍR,
Olga Færseth, ÍBK, Kristín Blön-
dal, ÍBK, Guðbjörg Norðfjörð,
KR og Svanhildur Káradóttir,
UMFG, skipuðu kvennaliðið.
I KRISTINN Albertsson var
kjörinn besti dómari deildarinnar,
en allir dómarar fengu atkvæði.
Brynjar Þór Þorsteinsson var
valinn sá dómari sem tekið hafði
mestum framförum.
■ INGA Dóra Magnúsdóttir frá
Tindastóli gerði flestar þriggja
stiga körfur hjá stúlkunum og hjá
körlunum var það Guðjón Skúla-
son, ÍBK.
■ LINDA Stefánsdóttir úr ÍR
gerði fiest stig kvenna en John
Rhodes í karladeildinni. Hann tók
einnig flest fráköst þar.
■ TEITUR Örlygsson úr UMFN
var útnefndur „þjófur“ deildarinnar
en hann „stal“ boltanum oftast frá
móthetjum sínum.
■ HAFDÍS Helgadóttir hjá ÍS,
hitti best stúlknanna úr vítaköstum
en hjá körlunum var það Birgir
Mikaelsson úr Skallagrimi.
■ DÓMARAR útnefndu ferða-
frömuð ársins og var Ingólfur
Jónsson formaður körfudeildarinn-
ar hjá KR heiðraður fyrir að kynna
land og þjóð, aðallega meðþví að
flytja tii landsins fjölmarga útlend-
inga.
Urslitaleikirnir í einliðaleik karla
og kvenna urðu ekki spennandi
því yfirburðir meistaranna voru of
miklir. Aðalbjörg
Skúli Unnar s.>Kraði Ingibjörgu
Sveinsson Arnadóttur 3:0 og
skrifar átti aldrei í teljandi
vandræðum. Kjartan
sigraði Gunnar Finnbjörnsson úr
Erninum 3:1 í úrslitum þar sem
hann átti í nokkrum vandræðum
með uppgjafir Gunnars sem voru
með geysilega miklum snúningi.
Kjartan sigraði Tómas Guðjóns-
son í undanúrslitum 3:2 í jöfnum og
spennandi leik og hinn undanúrslita-
leikurinn varð einnig langur og
spennandi og mjög góður. Þar áttust
Gunnar og Bjarni Bjarnason við og
hafði Gunnar undirtökin framan af
en Bjarni gafst ekki upp, heldur
barðist af mikiili hörku og í úrslita-
leiknum hafði hann forystu lengi
vel. Gunnar gafst þó ekki upp held-
ur sendi hvern boltann af öðrum
með gríðarlegum snúningi sem
Bjarni réði ekki við, og sigraði.
Aðalbjörg er maður mótsins því
hún sigraði í þremur greinum, öllum
sem hún tók þátt í. Einliðaleikinn
vann hún örugglega og í tvíliðaleik
sigruðu hún og Hrefna Halldórsdótt-
ir þær Ingibjörgu og Lilju Jóhannes-
Kjartan Briem og Aðalbjörg Björgvinsdóttir.
Morgunblaðið/J6n Svavarsson
dóttur, en stúlkurnar eru allar úr
Víkingi. í tvenndarleik sigraði Aðal-
björg ásamt Kjartani Briem þau
Kristján Jónsson og Ingibjörgu.
Kjartan vann því til tvennra gull-
verðlauna en hann varð að játa sig
sigraðan í tvíliðaleik karla þar sem
hann lék ásamt Jóhanni Haukssyni.
HjálmQ/r Hafsteinsson og Tómas
Guðjónsson úr KR sigruðu í úrslitum
og áttu fremur náðugan dag.
Léttara en ég bjóst við
Þetta var í rauninni auðveidara en ég bjóst við, sérstaklega úrslita-
leikurinn því Ingibjörg komst aldrei í gang en hún getur leikið miklu
betur en hún gerði,“ sagði Aðalbjörg Björgvinsdóttir sem sigraði í einliða-
leik kvenna þriðja árið í röð.
„Þetta mót var einhvemvegin ekki eins erfitt og í fyrra og hitteðfyrra,
en það er samt lítið að marka úrslitaleikinn, Ingibjörg var eitthvað stress-
uð í honum. Það vantaði reyndar tvær af fjórum bestu hjá okkur í ein-
liðaleiknum að þessu sinni, en okkur er greinilega að fara fram í borð-
tennisnum og nú er bara að bæta sig ennfrekar."
Þú æfir meira en flestar aðrar, er það skýringin á yfirburðunum?
„Já. Ég æfi að minnsta kosti fimm sinnum í viku og þá minnst tvo tíma
í senn, en það er ekki nóg. Ég þarf að æfa meira og reyni það. Það
skipti llka miklu máli að ég æfi mikið með strákunum og spila við þá,“
sagði Aðalbjörg.
Aðalbjörg og sex aðrir borðtennisleikarar úr Vfkingi eru á forum til
Kína þar sem þau verða við æfingar í tvo mánuði. „Það verða tvær stúlk-
ur og fimm strákar sem fara og ég er ákveðin I að æfa vel þama úti
og verða enn betri þegar ég kem heim aftur,“ sagði þrefaldur íslands-
meistaril borðtennis.
Ánægjuleg
tilfinning
Það er mjög ánægjuleg tilfínning
að endurheimta titilinn, en ég
átti satt best að segja von á að leika
betur,“ sagði Kjartan Briem sem end-
urheimti íslandsmeistaratitilinn í
einliðaleik kárla.
Kjartan er við nám í Danmörku og
æfir þar. „Ég hef æft mjög vel að
undanfömu og átti því von á að leika
betur en ég gerði, en það dugði! Borð-
tennisinn í Danmörku er talsvert betri
en hér heima, ætli ég sé ekki í kring-
um_ fimmtugasta sætið þar.
Úrslitaleikurinn var mun léttari en
ég átti von á en ég lenti í vandræðum
með Tómas Guðjónsson I undanúrslit-
unum. Hann kann ennþá ýmislegt.
Það hentaði mér betur að leika gegn
Gunnar því þó hann sé með frábærar
uppgjafir sem allir eiga í erfiðleikum
með er hann hægari en ég. Mér gekk
því ágætlega að komast í sóknina
gegn honum, og þar vil ég helst vera,“
sagði Kjartan.
Þess má geta að Kjartan fer ásamt
nokkmm íslenskum borðtennismönn-
um á heimsmeistaramótið í Gautaborg
eftir mánuð. Ekki er enn búið að velja
liðið en ömggt er að Kjartan fer.
- sagðiGeirS'
VALSMENN sýndu enn einu sinni sínar
bestu hliðar, þegar á þurfti að halda, sigr-
uðu Stjörnurnenn með 11 marka mun,
29:17, ísíðustu umferð íslandsmótsins á
laugardag, og tryggðu sér þar með sigur
í deildinni. „Þetta var ágætur endir á
deildinni, en nú eigum við eftir að setja
punktinn yfir i-ið, að sigra þrefalt," sagði
Geir Sveinsson, fyrirliði bikar- og deild-
armeistaranna, við Morgunblaðið.
Heimamenn höfðu mikla yfirburði og var
byijunin nánast endurtekning á viður-
eigninni gegn FH-ingum í 19. umferð. Eftir
nokkrar mínútur var aðeins
formsatriði að ljúka leiknum,
ekki spurning um sigur Vals
heldur hvað munurinn yrði mik-
ill.
Sálrænn sigur
Sálræni þátturinn vegur ávallt þungt og
veganesti Valsmanna í úrslitakeppnina er ekki
amalegt; stórsigrar undir lokin gegn liðunum
í öðru og þriðja sæti hljóta að hafa mikið að
segja. Reyndar hrösuðu þeir eftir sigurinn gegn
FH, en nú ættu þeir að vera reynslunni ríkari.
„Það er rétt,“ sagði Geir. „Tapið gegn Fram
sýndi að það þarf alltaf að hafa fyrir hlutunum
og hugarfarið verður ávallt að vera rétt. Við
lögðum mikla áherslu á að verða í efsta sæt-
inu, því í fyrsta lagi gaf það okkur enn einn
titilinn og í annan stað skipti það miklu máli
uppá framhaldið. Nú eigum við fyrst heimaleik
í átta liða úrslitum og það hefur mikið að segja.
Sigrarnir gegn FH og Stjörnunni styrkja okkur
sálrænt, en að öðru leyti hafa þeir ekkert að
segja; þeir hjálpa okkur ekkert gegn Eyjamönn-
um, sem eru erfiðir andstæðingar á mikilli sigl-
ingu.“
Sárt enni
Stjarnan án Magnúsar Sigurðssonar, sem
er meiddur, og Patreks Jóhannessonar, sem er
í leikbanni, átti sér ekki viðreisnar von. Liðið,
sem var með tveggja stiga forystu í deildinni
eftir 18 umferðir, tapaði forskotinu gegn ÍBV
í 19. umferð og sat eftir með sárt ennið.
„Leikurinn gegn ÍBV var slys,“ sagði Gunn-
ar Einarsson, þjálfari Stjörnunnar. „Við héldum
ekki einbeitingu, sem sýnir að við náum ekki
enn að halda út í langan tíma. Menn leyfa sér
að fara út af brautinni og á meðan vinnst ekki
titill. Hins vegar er þetta ef til vill eðlilegur
tröppugangur hjá liðinu. Það hefur tekið mörg
ár að klifra upp stigann og árangurinn hefur
aldrei verið betri. Að þessu sinn vorum við án
tveggja lykilmanna okkar og munar um minna,
en leikþátturinn á Akureyri setti líka strik í
reikninginn. Það er mál, sem forysta HSÍ verð-
ur að koma í veg fyrir að endurtaki sig, en
hvað okkur varðar þá tekur næsti kafli við og
mér líst ágætlega á að mæta ÍR-ingum. Ég
þekki þá vel, en það verður um baráttu upp á
líf og dauða að tefla.“
—
Selfoss og Stjam-
aníbidstöðu
Valur og FH hafa þegar tryggt sér
þátttökurétt í Evrópukeppni í
haust, Valsmenn í Evrópukeppni bikar-
hafa og FH-ingar í Evrópukeppni fé-
lagsliða, IHF-keppninni. Þegar Islands-
meistari verður krýndur liggur fyrst fyr-
ir hvert þriðja liðið verður í Evrópu-
keppni og koma þrír möguleikar til
greina:
• Ef hvorki Valur né FH verður meist-
ari tekur meistaraliðið þátt í meistara-
keppninni.
• Ef Valur verður meistari tekur Iiðið
þátt í meistarakeppninni og Selfoss í
Evrópukeppni bikarhafa.
• Ef FH verður meistari fer Stjarnan í
IHF-keppnina.
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar