Morgunblaðið - 28.04.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.04.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993 SAS-sam- eining 1. júní SAS-flugfélagið hefur tilkynnt, að raunverulegar samningavið- ræður eigi sér stað um náið samstarf við KLM, Swissair og Austrian Airlines og er stefnt að því, að hlutur síðastnefnda félagsins verði 10% en hvers hinna 30%. Er gert ráð fyrir, að samvinnan hefjist 1. júní nk. Starfsfólki félaganna verður ekki skýrt nánar frá þessu fyrr en 4. maí en það óttast, að störf- um hjá félögunum fjórum muni fækka um 20.000. í tilkynningu SAS sagði hins vegar, að vegna samstarfsins væri gert ráð fyrir aukinni markaðshlutdeild og þar með þörf fyrir fleira fólk. 300 millj. reykja í Kína NÆRRI 300 milljónir Kínveija reykja eða um 35% fullorðins fólks í landinu. Kemur þetta fram í könnun, sem kínverska hagstofan hef- ur gert, en reykingamenn eru tiltölulega flestir á aldr- inum 20-30 ára eða 19,32% allra þeirra, sem nota reyktóbak. Af einstökum héruðum er tóbaksnotkunin mest í Henan í Mið-Kína eða 41,5%. Kínveijar framleiða um 400 milljarða vindlinga árlega en landið er einnig að verða stærsti markaðurinn fyrir er- lenda tóbaksframleiðendur. Vonast þeir til, að hann geti komið að nokkru í stað minnk- andi markaða á Vesturlöndum. Lítill sem enginn áróður er gegn tóbaksnotkun í Kína en Deng Xiaoping sést þó ekki iengur opinberlega með sígarettuna á lofti. Kosningar í Jemen FJÖLFLOKKAKOSNINGAR fóru fram í Jemen í gær, þær fyrstu frá því kommúnistaríkið fyrrverandi Suður-Jemen sam- einaðist Norður-Jemen fyrir þremur árum. Stærsti stjórnar- andstöðuflokkurinn, bandalag múslima sem vilja setja íslömsk lög, Sharia, kvörtuðu yfír kosn- ingasvindli en því vísaði kjör- stjómin á bug. Friðarviðræð- ur hafnar á ný VIÐRÆÐUR arabaríkja og ísraels um frið í Miðausturlönd- um hófust aftur i gær í Wash- ington í Bandaríkjunum en þær hafa legið niðri í fjóra mánuði eða síðan ísraelar ráku 415 Palestínumenn í útlegð til Lí- banons. í gærmorgun ræddu ísraelar sérstaklega við fulltrúa Jórdaníu, Líbanons og Sýrlands en í gærkvöld ætluðu þeir að setjast niður með fulltrúum Palestínumanna á Vesturbakk- anum og Gazasvæðinu. Iranir inn í írak AÐ sögn kúrdískra uppreisnar- manna í íran hefur íranskt her- lið sótt um fimm kílómetra inn í írak eftir nokkurra daga stór- skotaliðshríð. Hefur Íraksstjórn mótmælt árásinni en talsmaður stjómarinnar í Teheran sagði, að átökin hefðu hafist með árásum skæmliða Kúrdíska lýð- ræðisflokksins í íran á bæi þar í landi. 98% kjörsókn í þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Eritreu Rúm 99% fylgjandi sjálfstæði . IVB lllíl Einhugur Ungir sölumenn á matvælamarkaði í Asmara í Eritreu hlusta á út- varpsfréttir um úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Asmara. Reuter. 99% kjósenda í Eritreu samþykktu sjálfstæði frá Eþíópíu í þjóðarat- kvæðagreiðslu sem Eritreumenn knúðu fram eftir 30 ára grimmi- lega borgarastyrjöld. Samkvæmt bráðabirgðatölum sem birtar vora í gær vora rúm 99% kjósenda hlynnt sjálfstæði Rauðahafshéraðsins í þjóðarat- kvæðinu sem lauk á sunnudag. Kjörsóknin var rúm 98%. Aðeins var eftir að telja tæp 54.000 utan- kj örstaðaratkvæði. Eftirlitsmenn á vegum Samein- uðu þjóðanna fylgdust með fram- kvæmd þjóðaratkvæðisins á því sem næst öllum kjörstöðum og sögðu að vel hefði verið að því staðið. Formleg sjálfstæðisyfírlýsing verður gefin út 24. maí, en þá verða tvö ár liðin frá því Frelsis- fylking Eritreu vann fullnaðarsigur á her eþíópíska harðstjórans Meng- istus Haile Mariams í lengsta stríði Afríku. Fyrstu breytingarnar á landamærum í Afríku Eritrea er fyrrverandi nýlenda Ítalíu og á stærð við England. Þetta er í fyrsta sinn eftir nýlendu- tímann sem landamærum í Afríku er breytt og aðskilnaðarhreyfingar í öðram ríkjum álfunnar gætu nú reynt að fara að dæmi Eritreu- manna. Sjálfstæðið verður þó eng- inn dans á rósum fyrir Eritreu- menn því borgarastyijöldin olli gíf- urlegri eyðileggingu. Landbúnað- urinn er í lamasessi og samgöngu- kerfið ónýtt, auk þess sem hundruð þúsunda manna hafa flúið heim- kynni sín. Boeing 737-200 ferst skömmu eftir flugtak ílndlandi Flugmennirnir voru kærðir fyrir gáleysi Aurangabad. Reuter. FLUGMENN indversku Boeing 737-200 þotunnar sem fórst í fyrradag eftir flugtak frá flugvell- inum í Aurangabad í vesturhluta Indlands hafa verið kærðir fyrir gáleysi við stjórn þotunnar og verða handteknir, að sögn tals- manna lögregluyfirvalda. Flugriti þotunnar fannst í gær og er talið að hann geymi upplýsingar sem skýrt geti hvers vegna þotan rakst á vörubíl utan flugvallargirðingar rétt eftir að hún lyfti sér af flug- brautinni. Þotan var í eigu indverska flugfé- lagsins Indian Airlines. Hún var 19 ára gömui og flugtaksþungi hennar 42,5 tonn eða aðeins 100 kílóum undir hámarks hleðslu. Lofthiti var 40 gráður á celcíus og sögðu fulltrú- ar flugmanna Indian Airlines að hugsanlega væri skýringarinnar á orsökum slyssins að leita í samblandi af ofhleðslu, aflvana hreyflum og miklum lofthita. Flugmenn Indian Airlines efndu til verkfalls í desem- Olli ofhleðsla slysinu? Reuter Indverskir embættismenn rannsaka flak Boeing 737-200 flugvélarinn- ar sem fórst í fyrradag. Ofhleðsla er talin Iíklegasta orsök slyssins. ber og janúar til að leggja áherslu á inu. kröfur um aukið öryggi sem þeim Flugmennimir notuðu alla braut- hefur þótt vera ábótavant hjá félag- ina til að ná tilskildum flugtaks- hraða. Lyftu þeir þotunni á brautar- endanum og skreið hún naumlega yfír hálfs annars metra háa girðingu umhverfis flugvöllinn en á þeim stað hefði hún undir eðlilegum kringum- stæðum átt að vera í 20-30 metra hæð. Rakst þotan á vörubíl hiaðin baðmullarsekkjum skammt utan girðingarinnar. Brotnaði hluti lend- ingarhjólanna undan við áreksturinn. Breskur maður sem var farþegi í þotunni sagði að flugtaksbruninu hefði aldrei ætlað að ljúka. „Ég varð hissa og leit út um gluggann, loksins lyfti hún sér og um leið hvarf brauta- rendinn undir vænginn. Hún fór upp af bláenda brautarinnar," sagði Bret- inn sem starfar í Aurangabad og hefur margsinnis flogið til og frá borginni. 55 fórust Með þotunni voru 112 farþegar og sex manna áhöfn. Komust 63 menn lífs, þar á meðal flugmennirn- ir, en 55 fórust. Indverskur kaup- sýslumaður sem slapp sagði að mikið högg hefði heyrst rétt eftir að þotan tók flugið. „Þotan skalf og nötraði. Síðan sveigði hún á víxl á bæði borð og allt í einu flaug hún á háspennuv- íra, mikill blossi myndaðist og eldur kviknaði. A þessu stigi varð öllum ljóst að þotan væri að farast. Fólkið öskraði af örvæntingu og margir ruddust út í ganginn," sagði Indveij- inn. Vegna slyssins í fyrradag ákvað flugfélagið í gær að leggja fjóruin Boeing 737-þotum sem orðnar eru 20 ára eða eldri. » Eldsvoðinn í Waco Ikveikja staðfest Waco. Reuter. SÉRFRÆÐINGAR sem rannsakað hafa eldsvoðann í trúboðsstöð Davids Koresh í Waco í Texas hafa komist að þeirri niðurstöðu að safnaðarfólkið hafi sjálft valdið íkveikjunni, ekki skriðdrekar bandarísku alrikislögreglunnar FBI. Nokkrir þeirra níu liðsmanna Kor- esh sem komust Iífs af úr logunum sem lögðu trúboðsstöðina í rúst 19. apríl hafa haldið því fram að eldurinn hafí kviknað í áhlaupi FBI á stöðina. Voru skriðdrekar notaðir til að bijóta göt á byggingamar og dæla inn tára- gasi til þess að svæla safnaðarfólkið út. Nú þykir hins vegar sannað að fylgismenn Koresh hafi sjálfír kveikt eldana, eins og talsmenn stjómvalda héldu strax fram. í gær tókst að bera kennsl á ann- að líkið af þeim 44 sem fundist hafa í rústunum. Varþað lík 18 ára stúlku, Shari Doyle, og hafði hún skotsár á höfði, að því er friðdómari sagði á blaðamannafundi. Stjörnufræðingar og vopnasérfræðiiigar á rökstólum Hvernig ber að afstýra árekstri stjömu við jörðu? London. The Daily Teleeraph. orku og 15 megatonna vetnis- sprengja. Nokkur af smástirnunum sem stjörnufræðingarnir í Arizona sáu voru hundrað sinnum stærri en þessi loftsteinn og ef þau myndu skella á jörðu hefði það hörmulegar afleiðingar. Nifteinda- eða lq arnorkusprenging? Vísindamennirnir í Erice vonast til að geta komist að niðurstöðu um hvernig best sé að afstýra slíkri hættu með því að bægja frá stjörnum sem stefnt gætu á jörðina. Banda- rískir vopnasérfræðingar telja ráð- legast að beita til þess nifteinda- sprengjum en rússneskir starfsbræð- ur þeirra mæla frekar með rafseguL geislun frá kjarnorkusprengju. í báðum tilvikum er hugmyndin sú að beita gífurlegri geislun til að sprengja yfirborð stjarnanna og breyta þannig stefnu þeirra. ÞAÐ hljómar eins og söguþráður í vísindaskáldsögu: virtir stjörnu- fræðingar silja á rökstólum með sérfræðingum í kjarnorkuvopnum til að finna leiðir til að vernda mannkynið vegna hættu á árekstri smástirnis eða halastjörnu við jörðu. Vísindamenn frá ýmsum löndum heims koma saman í bænum Erice á Sikiley í vikunni til að ræða nýjustu vísbendingar um að jörðinni geti stafað hætta af litlum reiki- stjörnum eða halastjörnum. . Bandarískir vísindamenn fundu árið 1980 vísbendingar um að risa- eðlurnar kynnu að hafa dáið út eftir slíkan árekstur fyrir 65 milljónum ára. Þá tóku vísindamenn þessa hættu ekki alvarlega en uppgötvanir á síðustu misserum hafa dregið tals- vert úr öryggiskennd þeirra. Vísindamennirnir á fundinum i Erice ræða meðal annars niðurstöðu rannsóknar á vegum Arizona- háskóla á smástirnum sem jörðinni kynni að stafa hætta af. Stjörnu- fræðingar háskólans notuðu háþró- aðan stjörnukíki og komust að því að mun fleiri smástirni koma nálægt jörðu en áður var talið. Á 14 mánuð- um sáu þeir 21 smástirni sem kom nálægt jörðu og fjórar þeirra voru nær en tunglið. Flestar þær stjörnur sem gætu stefnt til jarðar myndu blossa upp og eyðast áður en til árekstrar kæmi en ekki allar. Vísindamenn áætla að ef aðeins 35 metra breiður loft- steinn félli til jarðar yrði hraðinn svo mikill að orkan myndi nægja til að leggja stóra borg í rúst. 50 metra breiður loftsteinn sprakk yfir Tung- uska í Síberíu 30. júní árið 1908 og gjöreyddi skógi á 5000 ferkm svæði. Éf loftsteinninn hefði komið fímm klukkustundum síðar gæti hann hafa skollið á Helsinki með álíka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.