Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 2
í-2 C
.. M0BGUNBIÍ4ÐIÐ XAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993
Garðasýning
Garðyrkjusýning í Perlunni
ÞEIR voru hátt í þrjátíu þúsund gestirnir
sem mættu í Perluna um síðustu helgi til að
kynna sér ýmiskonar þjónustu og starfsemi
tengda ferðamálum og útivist á sýningu sem
þar var haldin. í dag verður þar opnuð önn-
ur og ekki síður umfangsmikil sýning fyrir
áhugafólk og fagmenn um flest það sem við-
kemur görðum og gróðurrækt og stendur
hún yfir til 9. maí. Sérstakir heiðursgestir á
sýningunni eru íbúarnir á Sólheimum í
Grímsnesi, sem hafa um árabil ræktað græn-
meti á lífrænan hátt og munu kynna þá starf-
semi sína.
Rúmlega 40 aðilar kynna vör-
ur, þjónustu og ráðgjöf á
garðyrkjusýningunni, sem að
sögn þeirra Stefáns Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Perlunnar, og
Stefáns Á. Magnússonar, markaðs-
ráðgjafa við sýningar þar, hefur
verið í undirbúningi frá byrjun þessa
árs. „Við höfðum samband við þá
aðila sem við töldum eiga erindi á
sýninguna í ársbyijun og síðan þá
hefur verið stöðugur undirbúningur
í gangi,“ segir Stefán
Á. Magnússon.
fyrí.r
ALLT
GLUGGANN
úrval, gæði, þjónusta
pli-sof
Plíseruö gluggatjöld,
sérsniöin fyrir hvern
glugga í mörgum litum
og gerðum. Tilvalin í
sólhúsiö, glugga mót
suðri og alla vandamála-
glugga.
Sendum í póstkröfu um
land allt.
Einkaumboö á l’slandi
Síðumúla 32 - Reykjavík
Sími: 31870 - 688770
Tjarnargötu 17 - Keflavík
Sími 92-12061
Glerárgötu 26 - Akureyri
Sími 96-26685
iÍGrænt númer: 99-6770
Fræösla, róðgjöf og
hugmyndir
„Markmiðið var að
koma upp sýningu sem
höfðaði til allra þeirra
sem vildu fá hugmyndir
fyrir garða sína, vildu
fræðast meira um garð-
rækt, fá ráðgjöf og
kynnast því hvaða
möguleikar væru í boði.
Eins og listinn yfir sýn-
endur er nú samsettur
er ljóst að þessum mark-
miðum er náð og ef
ætti að telja upp nokkur
þau atriði sem eru sýnd
þá má nefna áburð,
mold, túnþökur, heita
potta, timbur, skjól-
veggi, sólpalla, steina,
stórgrýti, gosbrunna,
sandkassa og hvaðeina,
fyrir svo utan gróðurinn
sjálfan og ýmsar nýj-
ungar varðandi bætt
vaxtarskilyrði."
Mestur hluti sýning-
arinnar er á jarðhæð
Perlunnar, en við hana
er í Öskjuhlíðinni búið
að útbúa 300 fermetra
sýningargarð sem hlotið
hefur nafnið Perlugarð-
urinn. Þar hafa nokkrir
sýnendur, þ.e. Garðhús-
ið, Eggert Waage, Nor-
mann Byggingarvörur,
Garðaval, Pálminn, Raf-
kaup, Húsasmiðjan og
Stanislas Bohic, garða-
hönnuður útbúið garð-
inn til að gefa gestum
raunsæja mynd af möguleikum varð-
andi hönnun garða, útlit og efni.
Göngur undir leiðsögn
En boðið verður upp á lengri
göngutúra en bara um Perlugarðinn,
því að þijár skógargöngur verða
farnar í tengslum við sýninguna,
báða sunnudagana kl. 15 í leiðsögn
Skógræktarfélags Reykjavíkur og
einnig kl. 20 að kvöldi fimmtudags.
Gengið verður frá Perlunni um
Öskjuhlíðina og í Fossvoginn.
Þá verða fyrirlestrar og fræðslu-
fundir haldnir í fundarsalnum í kjall-
ara Perlunnar, m.a. verður fjallað
um salatræktun á vegum fyrirtækis-
ins Lambhaga, Gróðrarstöðin Mörk
verður með fræðslufund og mynda-
sýningu um gróðursetningu,
fræðslufundir verða á vegum Garð-
UNDIRBÚNINGUR fyrir garðyrkjusýning-
una hefur staðið yfir frá ársbyrjun undir
stjórn þeirra Stefáns Á. Magnússonar mark-
aðsráðgjafa sýningarinnar og Stefáns Sig-
urðssonar, framkvæmdastjóra Perlunnar.
yrkjufélags íslands, Húsasmiðjunnar
og fleiri aðila.
Auk þeirra aðila sem hér hafa
verið nefndir eru í hópi eftirtaldir í
hópi sýnenda: Grasagarðurinn í
Laugardal, Áburðarverksmiðja rík-
isins, Björgun, Water-Works, Hús
og hýbýli, Esja, B.M. Vallá steina-
verksmiðja, S. Guðjónsson rafbúð,
Félag skrúðgarðyrkjumeistara,
Sölufélag garðyrkjumanna, Garð-
yrkjufélag Islands, Sindrastál, Vetr-
arsól, Orka, Borgarljós, Vesturheim-
ar, Gróður og garðar, Ellingsen, K.
Richter, Smágröfur, íslenska um-
hverfisþjónustan, Gróandinn, Skelj-
ungur, Árni M. Hannesson, Félag
garðplöntufræðinga, Hirðir og Skóg-
arálfar.
ve
PERLUGARÐURINN hefur smám saman verið að taka á sig endan-
lega mynd undanfarna daga. Hann er gerður í samstarfi nokk-
urra aðila til að gefa mynd af möguleikum varðandi hönnun útlit
og efni.
Félag skrúðgarðyrkjumeistara
Leiðbeiningar, ráðgjöf og
upplýsingar um félagsmenn
FÉLAG skrúðgarðyrlgumeistara hefur nú opnað skrifstofu
við Oðinsgötu 7 í samvinnu við Félag garðyrkjumanna og
verður þar með fastan símatíma vikulega. Verður boðið
verður upp á leiðbeiningar, ráðgjöf og upplýsingar, auk
þess sem þar mun liggja frammi listi yfir félagsmenn.
Þetta er liður í að auka kynn-
ingu á félaginu og faginu, en
formaðurinn, Gunnar Jónatansson,
segir nokkuð bera á því að fólk
geri ekki greinarmun á fagmönn-
um og ólærðum áhugamönnum
seni starfi við garðyrkju á sumrin.
„Við höfum stundum orðið varir
við það viðhorf að það geti varla
þurft sérstaka kunnáttu til að
vinna í garðrækt. Kannski vegna
þess að hún er mjög algengt
áhugamál hjá fólki,“ segir Gunnar
Jónatansson. „En þegar kemur að
framkvæmdum sem kosta fé og
fyrirhöfn reynir á þekkingu þeirra-
sem vinna verkið og því viljum við
efla fræðslu um félagið og auð-
velda fólki aðgang að fagfólki og
þekkingu þess.“
Menntunin að baki skrúðgarð-
yrkjumeistara er tveggja vetra
nám í Garðyrkjuskóla ríkisins,
samhliða námssamningi hjá meist-
ara í faginu. Að lokinni tveggja
ára vinnuskyldu eftir sveinspróf
kemur svo að einnar annar námi
í Meistaraskóla og er m.a. boðið
upp á það bæði í Iðnskólanum í
Reykjavík og Hafnarfirði. Al-
menna garðyrkjunámið felur í sér
kennslu um allar garðafram-
kvæmdir, s.s. göngustígagerð,
hellulagnir, undirbúning á beðum
fyrir plöntun, grasafræði, jarð-
fræði og áburðarfræði, byggingar-
fræði og skipulagsfræði, svo nokk-
uð _sé nefnt.
Ásókn í þetta nám hefur aukist
talsvert á undanförnum árum og
skólinn útskrifar um 15 til 20 nem-
endur á tveggja ára fresti.
Hellusteypan Smárahvammi
SfiÉi
(A horni Hagasmára og SmárahvammsvegarJ
Höfum til afgreiðslu áferðarfallegar hellur í öllum helstu stærðum og gerðum.
Sexkantur - l-steinn - Brotsteinn - Hleöslusteinn - Lássteinn - Kantsteinn.
Höfum jafnframt hafið sölu á Milliveggjaplötum - Rörum - Keilum - Beygjum
Greinum - Hringjum - Sandföngum - Þrepum.
helLUSTEYPAn
smárahvammi
HAGASMÁRA 4, KÓPAVOGI, SÍMI 91-45125.