Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 27.05.1993, Blaðsíða 51
51 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993 NBA II KNATTSPYRNA / URSLITALEIKUR EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA New York stendur vel að vígi LIÐ New York Knicks stendur vel að vígi eftir tvo sigra gegn Chicago Bulls í úrslitum aust- urdeildar NBA deildarinnar í körfuknattleik. Liðin mættust öðru sinni í New York í fyrri- nótt og heimamenn sigruðu 96:91. Frá Gunnari Valgeirssyni i Sandaríkjunum Sigur New York var sá 27. í röð á heimavelli. Chicago hefur nú aftur á móti tapað tveimur leikjum í röð í úrslitakeppn- inni í fyrsta skipti síðan 1990. Um miðjan ijórða hluta var Scottie Pip- pen rekinn af velli fyrir að henda boltanum í dómara og liðið tvíefldist og minnkuðu muninn í þijú stig. Lið- ið hafði síðan alla möguleika á að jafna, en miðheijinn Bill Cartwright klúðraði þremur af íjórum vítaskot- um á lokamínútunni, og Knicks hafði sigur. Lykillinn að sigrinum var að liði New York tókst að halda Michael Jordan niðri í seinni hálfleik. Þá hitti hann aðeins úr 5 af 16 skotum, og í leikjunum tveimur hefur hann að- eins hitt úr 8 af 29 skotum í seinni hálfleik. Patrick Ewing gerði 26 stig í leiknum fyrir New York og Douc Rivers 21. Bakvörðurinn John Starks gerði hins vegar mikilvæg- ustu körfuna fyrir liðið á lokamínút- unni með glæsilegustu troðslu úr- slitakeppninnar, og jafnvel vetrarins í NBA. Starks stökk upp af endalín- unni, færði knöttinn úr hægri hendi yfir í þá vinstri í loftinu, og tróð með miklum tilþrifum yfir þijá stærstu leikmenn New York. Jordan var stigahæstur hjá Chicago, gerði 36 stig. Draumurinn ræltist Bemard Tapie, forseti og eigandi Marseille brosir sínu. breiðasta ásamt marka- skoraranum Basile Boli, Abedi Pele og Jean-Jacques Eydelie, eftir að sigurinn og þar með bikarinn var í höfn. Það hefur eflaust verið blendin tilfinning fyr- ir Jean-Pierre Papin (sjá mynd) að fylgjast með fyrrum félögum sínum í Mar- seille vinna Evrópukeppni meistaraliða í fyrsta sinn, og geta ekki fagnað með. VARNARMAÐURINN Basile Boli, sem grét er Olympique Marseille tapaði eftir víta- spyrnukeppni í úrslitaleik Evr- ópukeppni meistaraliða fyrir tveimur árum, var hetja liðsins í gærkvöldi. Hann gerði eina mark leiksins með skalla og þar með varð Marseille fyrst franskra liða til að hampa eftir- sóttustu verðlaunum evrópsk- ar knattspyrnu. Italska liðið var mun betra í fyrri hálfleik og fékk Massaro tvívegis tækifæri til að koma liði sínu yfir á fyrstu 20 mínútum leiksins. En Rudi Völler og Ghanamaðurinn Pele börð- ust eins og ljón og voru ágengir við mark AC Milan áður en Boli skoraði markið sem réð úrslitum. Pele fiskaði hornspyrnuna sem færði markíð með því að setja boltann sjálfur yfir endalínuna. Knattspyrnumaður Evrópu, Marco van Basten, náði ekki að sýna hvað í honum býr enda ekki kominn í toppæfíngu eftir uppskurð í desem- ber. Þó svo að Papin væri skipt inná fyrir Donadoni í upphafi síðari hálf- leiks náði liðið ekki að bijóta niður sterkan varnarmúr Marseille. „Ég held að við hefðum verðskuld- að sigur í Bari fyrir tveimur árum, en þessi sigur var mikilvægari því við náðum að leggja besta lið heims að velli,“ sagði Raymond Göthals, þjálfari Marseille. „Ég held að úrslitin hafi ráðist í fyrri hálfleik þegar við náðum ekki að nýta okkur þau marktækifæri sem við fengum. Við vorum með leikinn í okkar höndum þar til Mar- seille skoraði," sagði Capello, þjálf- ari AC Milan. Bernard Tapie, forseti og eigandi Marseille, náði loks að láta drauminn rætast. Hann sagði að vonandi væri þetta til þess að önnur frönsk lið fengju meira sjálfstraust. „Þetta er mikill sigur fyrir franska knatt- spyrnu,“ sagði Tapie. AC Milan - Sebastiano Rossi, Mauro Tas- sotti, Paolo Maldini, Demetrio Albertini, Aiessandro Costacurta, Franco Baresi, Gianluigi Lentini, Frank Rijkaard, Marco van Basten ( Stefano Eranio 79.), Roberto Donadoni (Jean-Pierre Papin 55.), Daniele Massaro. Marseille - Fabien Barthez, Jocelyn Ang- loma (Jean-Philippe Durand 62.), Eric Di Meco, Basile Boli, Franck Sauzee, Marcel Desailly, Jean-Jacques Eydelie, Alen Boksic, Rudi Voeller (, Jean-Christophe Thomas 79.), Abedi Pele, Didier Deschamps. BADMINTON / HM I BIRMINGHAM KNATTSPYRNA / U-16 ARA KVENNA Góðbyijun í Birmingham ÍSLENSKA landsliðið í bad- minton byrjaði heimsmeist- aramótið í Bjrmingham með því að sigra íra 3:2 í liða- keppninni sem hófst í gær. Þetta var fyrsti sigur íslands á írum frá upphafi. Broddi sigraði Michael Watt nokkuð örugglega í einliða- leik, 15:11 og 15:13. Broddi komst í 7:0 í fyrri lotunni og síðan 11:7 og loks 15:11. Watt byijaði síðari lotuna vel og komst í 0:3 en Broddi snéri leiknum sér í hag og breytti stöðunni í 6:3 en síðan var leikurinn jafn upp í 13:13, en þá tók íslandsmeistarinn af skarið og sigraði, 15:13. Broddi og Ámi Þór unnu Bruce Topping og Michael O’Meara í tvíliðaleik, 15:12 og 15:10. Loks sigrðu Guðrún Júlíusdóttir og Árni Þór þau Graham Henderson og Jayne Plunkett í tvenndarleik, 15:6 og 17:16. Bima Petersen tapaði fyrir Sonya McGinn 6:11 og 3:11 í einl- iðaleik. Tvíliðaleikur kvenna tap- aðist einnig, en hann léku Birna og Guðrún Júlíusdóttir gegn Anne Stephens og Jayne Plunkett. ís- lensku stúlkumar töpuðu naum- lega í fyrri lotunni, 14:18 og síðan 11:15. Þar sem þetta var síðasti leikurinn var sigur íslands í höfn áður en hann fór fram. Eins og áður segir var þetta fyrsti sigur íslands á írum. Fyrst léku ísiendingar gegn ímm í Nor- egi 1981 og töpuðu 0:7. Síðan 2:3 í Svíþjóð 1986 og einnig 2:3 í Danmörku 1991. íslenska liðið mætir liði Banda- ríkjanna, sem tapaði í gær fyrir Tékkneska lýðveldinu 2:3, í dag. 44 þjóðir taka þátt í liðakeppninni á HM. Einstaklingskeppnin hefst á mánudaginn. Tap gegn Svíum „ÉG ER auðvitað ekki ánægð með að tapa með fjórum mörk- um í landsleik, en ég er alls ekki óánægð með stelpurnar, þær stóðu sig vel miðað við aðstæður," sagði Vanda Sigur- geirsdóttir þjálfari U-16 ára landsliðs kvenna eftir 1:5 tap á móti Svíum f vináttulandsleik á Varmárvelli f gærkvöldi. Sænsku stúlkurnar byijuðu af krafti og eftir tæpan hálftíma vom þær búnar að gera þrjú mörk, þar af tvö beint úr Stefán hornspyrnum, og Eiriksson var staðan þannig í skrifar hálfleik. Islensku stúlkurnar börðust mun betur í síðari hálfleik og kom- ust í kjölfarið nokkuð inn í leikinn. Þær sænsku gerðu fjórða markið beint úr aukaspyrnu á 70. mínútu, og fimm mínútum síðar kom ís- lenska markið. Helga S. Gunnars- dóttir var stödd rétt fyrir framan miðju og ætlaði væntanlega að senda knöttinn inn í teig, en skaut í staðinn föstu skoti að marki Svía, boltinn skoppaði einu sinni í teign- Morgunblaðið/Þorkell Erla Hendriksdóttir sem er hægra megin á myndinni átti ágætan leik og er hér í harðri baráttu um boltann í leiknum í gærkvöldi. um og'síðan yfir sænska markvörð- inn og inn. Svíar bættu svo síðasta markinu við undir lokin. íslenska liðið lék í síðari hálfleik oft á tíðum ágætlega. Ingibjörg Ólafsdóttir var best í íslenska lið- inu, og Hulda M. Rútsdóttir, Erla Hendriksdóttir og Katrín Jónsdóttir léku einnig vel. Sænska liðið spilaði mjög vel, sérstaklega í fyrri hálf- leik. Pia Sundhage þjálfari liðsins sagðist líka vera ánægð með leik liðsins í fyrri hálfleik, en samspilið hefði ekki gengið eins vel í þeim síðari enda hefði mótspyrna ís- lenska liðsins verið mun meiri þá. ÚRSLIT Bikarkeppni KSÍ, 1. umferð: Hvatberar - UBK..................0:9 - Valur Valsson 3, Jón Þórir Jónsson 2, Guðmundur Þórðarson 2; Hákon Sverrisson, Kristófer Sigurgeirsson. Árvakur - BI.....................1:7 Rúnar Sigurðsson - Jóhann Ævarsson 4, Örn Torfason, Stefán Tryggvason og Guð- mundur Gíslason. Vináttulandsleikur kvenna U-16 ára, Varmárvelli Mosfellsbæ: ísland - Svíþjóð.................1:5 Helga S. Gunnarsdóttir - Louise Holmqvist-Sköld 3, Sara Call, Viktoria Svensson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.