Morgunblaðið - 03.06.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.06.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JUNI 1993 Víkingalottóið Potturinn þrefald- ur næst ENGINN reyndist vera með allar tölur réttar í Víkinga- lottóinu þegar dregið var í gærkvöldi og færist vinnings- upphæðin, 45 milljónir, yfir í pottinn sem dregið verður úr næsta miðvikudagskvöld. Bónusvinningurinn gekk heldur ekki út. Alfreð Þorsteinsson, formaður stjórnar íslenskrar getspár, sagði að potturinn yrði þrefaldur næst og þætti sér ekki ólíklegt að hann yrði vænn, á bilinu 70 til 80 milljón- ir króna. Síðast þegar pottur Vík- ingalottósins var þrefaldur nam vinningsupphæðin 77 milljónum króna, sem kom í hlut Finna. „Það má alveg búast við að upp- hæðin verði á þeim nótum, það er vaninn þegar potturinn er þrefald- ur. Fólk hugsar sér gott til glóðar- innar að vera með þegar búast má við háum vinningum," sagði Alfreð. Lottótölurnar í gærkvöldi voru 5, 16,18, 23, 28 og 39 og bónustöl- urnar þrjár voru 6, 43 og 45. Rotta gerði sig heima- komna í bamaherbergi FJÖLSKYLDA nokkur í Vesturbænum varð fyrir heldur óhugnanlegri reynslu í fyrrakvöld þegar um 30 sm löng rotta gerði sig heimakæra í barnaherberg- inu. Dóttirin, sjö ára gömul, kom að rottunni þar sem hún sat í hnipri í einu horni herbergisins. íbúð fjölskyldunn- ar er í kjallara og komst rottan inn um glugga á barnaherberginu. Stúlkan var fyrr um daginn að leik úti í garði er hún sá dýr sem hún taldi vera mús. Móðir litlu stúlkunnar, sagði að hún hefði talið að þarna væri aðeins á ferðinni mús, enda hefði hún ekki séð önnur nagdýr en hamstra og naggrísi. „Dóttir mín hljóp á eftir dýrinu en það hvarf út í buskann. Hún sagð- ist vilja eiga mús en við sögðum henni að þetta hlyti að hafa verið rotta. Sjúkdómar fylgdu slíkum dýrum og að þau lifðu í skólp- ræsum. Um kvöldið þegar hún fór inn til sín að hátta rak hún upp skaðræðisöskur, því þar var rottan í hnipri undir skrifborði," sagði móðirin. Áhugalausir kettir Heimilisfaðirinn greip það sem hendi var næst og flýtti sér inn í herbergið vopnaður fötu. Þegar hann hafði króað rottuna af stökk hún á móti honum og hvæsti. Hann fangaði rottuna í fötuna og drap hana með því að drekkja henni. Á heimilinu eru þrír síamskettir. Móður stúlkunnar sagðist svo frá að skömmu áður en barnið fór inn í herbergið hefðu kettimir rölt út úr því áhugalausir með öllu fyrir rott- unni. Grunur leikur á að rottan hafi komið upp úr holræsi sem létt járngrind er yfir. Nú er búið að fergja grindina með þungum steini. Fjölskyldan gerði stórþvott á herberginu og öllum innanstokksmunum enda ekki vitað hve lengi rottan hafí verið í herberginu. Engin plága í gangi Guðmundur Bjömsson verkstjóri hjá Mein- dýravörnum Reykjavíkurborgar segir vel hugsanlegt að rottan hafi lyft ristinni af niður- fallinu og komist upp úr skólpræsinu með þeim hætti. „Það er engin plága núna og allt innan eðlilegra marka miðað við árstíma. Rottugangurinn eykst aðeins yfir sumartím- ann og rotturnar koma gjaman upp um biluð holræsi og það sem fólk hefur trassað að láta laga, eins og rör sem eru í sundur úti í lóðum. Oft er heitt vatn í jarðveginum og moldin vill morkna og rotturnar grafa sig upp á yfirborð- ið,“ sagði Guðmundur. Herferð á sumrin Hann sagði það ekkert launungarmál að það væru rottur í holræsakerfi Reykjavíkur og ef ekki væri nógu vel gengið um rennur og niðurföll væri alltaf sá möguleiki til staðar að rotturnar leituðu í híbýli manna. Á sumrin væri herferð í gangi og sumarfólk ráðið sem eitrar fyrir rottum í öllum götubrunnum borg- arinnar til að halda stofninum niðri. Rottur á Reykjavíkursvæðinu em allar svokallaðar brúnar norskar rottur (Rattus Norvegius). Svarta rottan sem hefur borist hingað með skipum hefur ekki náð fótfestu hér á landi, að sögn Guðmundar. Hann sagði að ekkert tilfelli sjúkdóma af völdum rottugangs hefði komið upp hérlendis en vitað væri að rottur gætu borið með sér sjúkdóma, eins og salmon- ellusýkingar. Móttaka í Ráðhúsinu Morgunblaðið/Þorkell Er ráðstefnan helguð verkum dr. Björns Sigurðssonar læknis, sem var fýrsti forstöðumaður Tilrauna- stöðvar háskólans í meinafræðum á Keldum. Alls munu um 130 vísindamenn á sviði líf- og læknisfræði hvað- anæva að úr heiminum sitja ráð- í dag Óráðin gáta Sex til átta hringlaga tóftir sjást vestan við Nesstofu á Seltjamar- nesi 27 Kærður fyrir hrefnukjötssölu Þorvaldur Baldvinsson kaupmaður á Akureyri, sem Hvalavinafélagið hefur kært fyrir að selja hrefnu- kjöt, segist frekar fara í fangelsi en gefa upp hvaðan kjötið kom 34 Verökönnun vikunnar____________ Stjúpumar í Hveragerði eru 20% ódýrari en annars staðar 36 Leiðari Þekkingin er markaðsvara 30 Stjórnarandstaðan tortryggin á samráð í efnahagsmálum Davíð tekur viðbrögð- umim sem misskilningi í GÆR héldu Reykjavíkurborg og menntamálaráðuneytið móttöku í Ráðhúsinu fyrir þátttakendur á læknaráðstefnunni. 130 vísindamenn á læknaráðstefnu VÍSINDAAKADEMÍA New York og íslenska menntamála- ráðuneytið standa fyrir alþjóðlegri læknaráðstefnu um hæggenga veirusjúkdóma í miðtaugakerfinu, sem sett verð- ur í dag í Háskólabíói að viðstöddum forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur. stefnuna en meðal þeirra eru nokkr- ir af fremstu sérfræðingum á sviði rannsókna á hæggengum veirusýk- ingum. Þeirra á meðal er dr. Rob- ert C. Gallo, annar tveggja manna sem uppgötvuðu alnæmisveiruna, og nóbelsverðlaunahafinn dr. Garle- ton Gajdusek. Ráðstefnunni lýkur á laugardag. DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra segist taka fyrstu við- brögð stjórnarandstöðunnar við boði ríkisstjórnarinnar um víðtækt samráð stjórnar, stjórnarandstöðu og aðila vinnumarkaðarins um það með hvaða hætti verði tekið á vanda sjávarútvegsins í kjölfar skertra fiskveiðiheimilda, sem misskilning. Fulltrúar stjórn- arandstöðunnar taka hug- myndum forsætisráðherra með undrun og nokkurri tor- tryggni en fulltrúar ASÍ og VSI lýsa sig reiðubúna til þátt- töku í starfshópnum. Halldór Ásgrímsson, varaformað- ur Framsóknarflokksins, sagði fram- sóknarmenn ekki hafa heyrt í forsæt- isráðherra nema í fjölmiðlum og sagði óeðlilegt að hann sendi skila- boð í jafnstórum og alvarlegum mál- um með þeim hætti. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubanda- lagsins, sagði að Alþýðubandalagið teldi þörf á alvarlegum viðræðum forystumanna stjórnmálaflokkanna í landinu um breiða samstöðu til að taka á vandanum. Honum leist ekki Viðskipti/Atvinnulíf Dagskrá þ Samdráttur í fólksbQainnflutn- þ Kvikmyndir vikunnar - Út- mgi - Lakkns a Hvolsvelli - Hve- sendingarsvæði útvarps - Dýr nær réttir þjóðarbúið úr kútnum? mistök hjá BBC - Arfleiðarráðu- - Tiffany á Islandi - Ferðaþjón- neytið - Bíóin í borginni - Mynd- usta í ógöngum bönd - Leitin að Scarlett á nefnd embættis- eða aðstoðar- manna, sagði það óþarfa millilið. Fyrst rætt í ríkisstjóm „Stjómarandstaðan hefur fundið að því að fá ekki að vera með í ráð- um og þegar boðið er upp á samráð, geta menn ekki farið í einhverja fýiu, vegna þess að ekki hafí verið rætt við þá formlega, áður en hugmyndin var rædd í ríkisstjórn," sagði Davíð. Davíð sagði að auðvitað hefði þessi ákvörðun fyrst verið rædd í ríkis- stjóm og í svona stóm máli hlytu fulltrúar stjórnarandstöðunnar að taka því fegins hendi að fá að hafa áhrif við undirbúning málsins. Sjá frétt á miðopnu. Charles Egill Hirt. * Árangurslaus leit að ungum manni FJÖLMENNT lið björgunarsveita frá Vesturlandi, Húnavatns- sýslu og höfuðborgarsvæðinu hélt í gær áfram leit á Snæfells- nesi að Charles Agli Hirt, 29 ára gömlum manni úr Kópa- vogi, sem saknað hefur verið frá því á þriðjudag. Leitin hafði ekki borið árangur þegar Morgunblaðið hafði síðast fregnir. Talið er að hann hafí tekið rútu áleiðis að Snæfellsnesi á þriðjudag og talið að síðast hafí sést til ferða hans þegar hann hélt gangandi frá Ólafsvík áleiðis að Snæfellsjökli. Eftir hádegi í gær vom um 120 manns úr björgunarsveitum úr byggðum á Snæfellsnesi og í Búðar- dal við leit, auk þess sem liðsauki barst frá Akranesi, Borgamesi, vest- anverðu Húnaþingi og um klukkan hálffímm síðdegis í gær lagði um þ; bil 100 manna liðsauki frá Land björg í Reykjavík af stað vestur að taka þátt í leitinni. Leitað hefur verið á öllu svæðii frá Ólafsvík og að Snæfellsjökli < síðdegis einnig í átt að Rifí og Helli sandi. Þyrla Landhelgisgæslunnar leita við Snæfellsnes i fyrrinótt og aft' síðdegis í gær. € € I f f I f f f f f f i i i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.