Morgunblaðið - 08.06.1993, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
126. tbl. 81.árg. ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sósíalistar sigra í kosningunum á Spáni
Gonzalez boðar
breytta stefnu
Madríd. Reuter.
SÓSÍALISTAFLOKKURINN á Spáni sigraði naumlega í
þingkosningunum á sunnudag en verður að öllum líkindum
að mynda sljórn með þjóðernisflokkum. Felipe Gonzalez
forsætisráðherra kvaðst í gær ætla að reyna að mynda
sterka stjórn og boðaði breytta stjórnarstefnu.
Þetta er í fjórða skipti í röð sem af hólmi í þingkosningum og hann
Sósíalistaflokkurinn fer með sigur vantaði aðeins 17 þingsæti til hljóta
meirihluta. Flokkurinn fékk 159
þingsæti af 350 í neðri deildinni og
stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn,
Þjóðarfiokkurinn, fékk 141. Líkleg-
ast er að flokkurinn reyni að mynda
stjórn með katalónskum flokki,
Convergencia i Unio, sem fékk 17
þingsæti, og ef til vill Baskneska
þjóðernissflokknum, sem fékk fimm
þingmenn kjörna.
Vill sterka stjórn
Stjórnmálaleiðtogar sögðu kosn-
ingarnar marka tímamót í 16 ára
lýðræðissögu Spánar eftir 11 ára
tímabil þar sem sósíalistar voru ein-
ir við völd. „Við höfum meðtekið
skilaboðin frá kjósendum. Við verð-
um að slaka á umbótastefnu okkar
og ætlum að hefja samningaviðræð-
ur við aðra flokka um myndun
sterkrar stjórnar," sagði Gonzalez.
Sjá „Gonzaiez verður að... “ á
bls. 24.
Margaret Thatcher
Stjórnin
gagnrýnd
Lundúnum. Reuter.
MARGARET Thatcher, fyrr-
verandi forsætisráðherra
Bretlands, sakaði í gær stjórn
Johns Majors um að hafa
brugðist trausti þjóðarinnar
með því að hafna þjóðarat-
kvæðagreiðslu um
Maastricht-sáttmálann.
Thatcher sagði í ræðu í lá-
varðadeildinni að hún myndi
aldrei hafa undirritað sáttmál-
ann. Hún sagði að hann fæli í
sér stofnun yfirríkis sem gerði
þjóðþingin að stjórnarstofnun-
um með takmarkað umboð.
Reuter
Þyngsti sumo-glímumaður sögunnar
LÍTILL drengur reynir sig hér við Japanann Konishiki, sem er 225
kílógrömm og þyngsti sumo-glímumaður sögunnar, við opnun sumo-
sýningar í San Jose í Kaliforníu. Helstu sumo-glímumenn Japans hafa
hafíð sýningarglímur í Bandaríkjunum til að kynna íþróttina.
Sveitarstjórnakosningar marka tímamót í stjórnmálasögu Ítalíu
Sósíalistar og kristilegir
demókratar gjalda afhroð
Blóðug
uppreisn
í Azer-
bajdzhan
Moskvu. Reuter.
UPPREISNARMENN innan
azerska hersins náðu í gær
á sitt vald öðrum stærsta bæ
í Azerbajdzhan eftir blóð-
uga bardaga. Eru þeir undir
forystu fyrrverandi herfor-
ingja, sem var rekinn vegna
ósigra í stríðinu við Armena.
Stjórnin í Bakú hefur sent
herlið á vettvang til að
kveða niður uppreisnina.
Uppreisnarliðið, sem Suret Gus-
einov stjórnar, lagði undir sig
bæinn Gyandzha í Vestur-
Azerbajdzhan og dró síðan að
húni fána Sovétríkjanna fyrrver-
andi á nokkrum byggingum.
Herma fréttir, að fjórir háttsettir
embættismenn séu haldi í bænum,
þar á meðal ríkissaksóknarinn og
fyrstu aðstoðarráðherrar öryggis-
og innanríkismála. Rússneska
sjónvarpið sagði í gær að Guseinov
hefði neytt ríkissaksóknarann til
að gefa út handtökutilskipun á
Abulfaz Elchibey, forseta landsins.
Krefst þingfundar
Rússneska fréttastofan ítar-
Tass sagði að um 60 manns hefðu
fallið í átökum um Gyandzha um
helgina en uppreisnarmenn hefðu
einnig náð á sitt vald bænum Len-
koran í suðurhluta landsins, rétt
við írönsku landamærin. Mun Gu-
seinov, sem á sæti á þingi, hafa
krafist þess að þingið kæmi saman
til að ræða ástandið í landinu en
síðan átökin við Armena blossuðu
upp út af Nagorno-Karabakh, hafa
Azerar misst um tíunda hluta
landsins í hendur þeim.
Mflanó. Reuter, The Daily Telegraph.
ÍTALSKIR stjórnarandstöðuflokkar kröfðust í gær nýrrar
kosningalöggjafar og þingkosninga í haust eftir að hafa
unnið stórsigur á flokkunum sem hafa haft bæði tögl og
hagldir í ítölskum stjórnmálum í tæpa hálfa öld. Kristileg-
ir demókratar og Sósíalistaflokkurinn biðu mikinn hnekki
í sveitarstjórnakosningum á Ítalíu sem fram fóru á sunnu-
dag og úrslitin voru sögð marka tímamót í undanhaldi
flokkanna vegna spillingarmálanna síðustu misseri.
Norðursambandið, sem aðhyllist
skiptingu Ítalíu í þijú sjálfsstjórnar-
héruð, sótti hins vegar mikið í sig
veðrið. Alls gengu ellefu milljónir
ítala að kjörborðinu um helgina og
hafa kristilegir demókratar ekki átt
svo litlu fylgi að fagna síðan seinni
heimsstyijöldinni lauk.
Flokkarnir tveir hafa einkum
sætt gagnrýni fyrir mafíutengsl og
fjárveitingar úr norðurhéruðunum
suður á bóginn í þeim tilgangi að
kaupa sér fylgi. Spillingarúttekt
ítala, sem náð hefur hámarki und-
anfarna mánuði, hefur gert strand-
högg í flokkum kristilegra og sósíal-
ista. Til dæmis hlutu þeir aðeins
10% fylgi til samans í Mílanó, þessu
höfuðvígi hneykslismálanna að und-
anförnu. Norðursambandið hlaut
stuðning 40% kjósenda í borginni.
Þeir flokkar, sem hafa yfirleitt ver-
ið í stjórn frá seinni heimsstyijöld-
inni og hafa nú meirihluta á þingi,
fengu aðeins fjórðung atkvæðanna
í kosningunum.
Endurbætur á kosningalöggjöf
Stjómmálaskýrendur höfðu spáð
viðlíka úrslitum, einkurn vegna
óánægju ítalsks almennings með
rotna innviði stjórnkerfísins. Úrslit-
in eru þó ekki talin stofna sam-
starfí innan ríkisstjórnarinnar í
voða þótt stjórnarliðar séu liðsmenn
flokkanna óvinsælu. Hins vegar er
líklegt að þau knýi á um umbætur
á kosningafyrirkomulagi landsins
svo ítalskur almenningur fái tæki-
færi til þess að velja sér leiðtoga í
samræmi við nýjan og óspilltari tíð-
aranda.
Dómari meinar Woody Allen að heimsækja börn sín
Farrow sigrar
í forræðismálinu
New York. Reuter.
DÓMARI í New York dæmdi í gær leikkonunni Miu Farrow for-
ræði yfir þremur börnum hennar og kvikmyndaleikstjórans Wood-
ys Allens.
í dómsúrskurðinum kemur
fram hörð gagnrýni á Woody All-
en og dómarinn hafnar því sem
næst öllum kröfum hans um að
fá að vera með börnunum. Honum
er jafnframt gert að greiða allan
málskostnaðinn.
Farrow og Allen deildu um for-
ræði yfir Moses, 15 ára ættleidd-
um syni þeirra, Dylan, sjö ára
ættleiddri dóttur þeirra, og Satch-
el, fímm ára syni sem þau áttu
saman. Málið snerist aðallega um
ásakanir um að Allen hefði mis-
notað Dylan kynferðislega en því
vísaði hann algjörlega á bug.
Treystir ekki Allen
Allen fær ekki að heimsækja
Dylan í að minnsta kosti sex
mánuði á meðan hún gengst und-
ir meðferð hjá sálfræðingum.
Hann getur þó tekið þátt í með-
ferðinni.
„Varkámi mín stafar af því að
Allen hefur sýnt að honum er
fyrirmunað að skilja hvaða áhrif
orð hans og gerðir hafa á tilfinn-
ingalíf barnanna,“ sagði í dómsúr-
skurðinum.
Reuter
Farrow hrósar sigri
Mia Farrow ræðir við blaða-
menn eftir að hafa fengið for-
ræði yfir þremur börnum henn-
ar og Woodys Allens.