Morgunblaðið - 11.09.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1993
C 7
sem á sér stað fyrir sköpun verka
sinna. Með vissum blæbrigðum
fjallar hugtakið um hina eilífu tog-
streitu milli minninga og gleymsku,
og jafnframt val og tilviljun á því
sviði; það sem situr eftir hefur far-
ið í gegnum margháttaðar síur, en
örlítil sjónræn tilvísun getur samt
dugað til að endurskapa heilán heim
og miklar atburðarásir í huga þess
sem nemur hana.
Ögrun slíkrar sýningar fyrir hinn
almenna sýningargest felst í því
hvort hann nær að mynda tengsl
við þessar tilvísanir listamannsins;
eru þær svo sértækar, að hann einn
fær notið þeirra, eða nægilega
margræðar til að þær nái að kveikja
hughrif persónulegra minninga hjá
hverjum áhorfanda fyrir sig? Það
hlýtur að vera hin viðvarandi spurn-
ing í huga listamannsins í starfi
hans.
í salnum hefur Daníel komið fyr-
ir sex verkum, sem eru í sjálfum
sér lítillætið uppmálað, bera jafnvel
vott um feimni í þessum stóra sal;
þetta eru einfaldar, samhverfar
línuteikningar á gráan pappa, eða
uppsetningar úr fáfengilegum efn-
um, m.a. gardínuvírum og grá-
móskulegum svart-hvítum ljós-
myndum. Við nánari skoðun koma
hins vegar í ljós ýmis blæbrigði, sem
efla verkin; engir tveir rammar eru
eins litaðir, það er ákveðin spenna
í sumum verkanna milli rammans
og annarra hluta verksins og á ein-
um stað er dulúðin tryggð með því
að setja hluta verksins nokkru
hærra en sjónsvið meðaljónsins
nær. Titlar verkanna eru virkur
hluti þeirra og bijóta að mestu nið-
ur þá alvöru, sem umhverfið bíður
upp á, eins og sést í „Angurværð“
(nr. 2) og „Samtal um skipasmíði"
(nr. 5), þar sem stutt er í kímnina.
Sú „hugsanaveðrun“ sem er bak-
grunnur einstakra verka er afar
persónuleg og árangurinn er Ijóð-
ræn útfærsla lifandi hugmyndalist-
ar. Tilvisun í myndsköpun Hreins
Friðfinnssonar eru nærtæk, þar
sem stutt er síðan haldin var ágæt
yfirlitssýning yfir verk hans, en í
henni felst ekki að Daníel leiti til
eldri listamanna um fyrirmyndir; á
sama hátt og hjá Hreini er hér um
að ræða afar persónulega mynd-
sköpun, sem byggir fyrst og fremst
á viðhorfum listamannsins til um-
hverfisins og hvernig hann telur sig
best ná að nýta það í sinni myndlist.
Sýningin á verkum Daníels
Magnússonar í austursal Kjarvals-
staða stendur til sunnudagsins 12.
septembér.
Krislbergur Ó. Pétursson
mjúka stígandi. Lífrænastar þóttu
mér myndimar 20-25, sem búa yfir
mun fjölþættari tilbrigðum en hin-
ar.
Kolteikningarnar eru formrænt í
svipuðum dúr og málverkin en
maður saknar hinnar litrænu hrynj-
andi, sem grátónarnir ná ekki að
bæta upp að fullu.
Það eru önnur gildi sem ráða í
myndum Kristbergs en fólk er vant
á sýningum og þær láta lítið yfir
sér, en í þeim er tvímælalaust eitt-
hvað sem er í ætt við innri lífæðar
myndflatarins.
Þetta eru fyrst og fremst mynd-
verk og ekkert umfram það.
Thor Barðdal
ví hefur verið haldið fram, að
höggmyndalistin sé að verða
ein öflugasta grein myndlistar hér
á landi, og er þá einkum vísað til
fjölbreytts sýningarhalds á þessum
vettvangi undanfarin ár. Síðustu
vikur hafa staðið yfir og skarast í
tíma nokkrar höggmyndasýningar,
þar sem fínna má staðfestingu
þessa; listamenn hafa hver um sig
tekist á við sjálfstæða mynd-
gerð, og valið til þess afar
ólíkan efnivið, allt frá vaxi,
gúmmí, járni, og bílahlutum
til hraungrýtis og marmara.
A þessu sviði vinnur því hver
listamaður eftir sínu höfði,
og notar til þess þau efni,
sem hann telur henta sinni
myndgerð best.
í miðrými Listhússins í
Laugardal stendur nú sýning
á níu höggmyndum Thors
Barðdal, en hann hefur und-
anfarin ár vakið nokkra at-
hygli fyrir fágaða myndgerð
í hið klassíska efni, marmara.
Thor sýndi síðast á Kjarvals-
stöðum fyrir tæpu ári, og
má segja að viðfangsefni hans þar
fjölluðu fyrst og fremst um huglæg
tengsl, hlutgerð hugtaka og fágaða
ímynd þeirra. Hér heldur Thor
áfram á sömu braut, og gengur
jafnvel skrefinu lengra í að finna
abstrakt ímynd fyrir það sem ekki
verður tjáð endanlega með orðum,
eins og titlar verkanna bera vitni
um; jafnvel hið raunverulega verð-
ur hér huglægt tákn fyrir langanir
og vonir, eins og verkið „Snæfell-
sjökull“ (nr. 5) ber með sér.
Marmarinn hentar vel í verk af
þessu tagi, vegna þeirra sögulegu
tilvísana sem hann ber með sér til
fyrri tíma, hvort sem um er að
ræða fornsögulega tíma, listasög-
una eða stórvirki trúarlegrar listar,
þar sem marmarinn er ávallt helsti
efniviðurinn. Brancusi notaði efnið
á svipaðan hátt fyrr á öldinni, og
fleiri hafa fetað í þá slóð.
Thor nær í verkum sínum að
tengja vel saman notkun mismun-
andi litbrigða efnisins, fágaða úr-
vinnslu og táknræn gildi formana,
þannig að áhorfandinn á auðvelt
með að skynja þann styrk eða þá
viðkvæmni, sem býr að baki verk-
unum. Verk eins og „Hringrás"
(nr. 8) og „Flæði“ (nr. 3) sýna
þetta á einfaldan hátt, þar sem
hvítur marmarinn er höggvinn og
pússaður, þannig að aflið skín út
úr hinu fyrrnefnda, en frelsi andar-
taksins úr því síðara. Þessi fágun
og myndgerð hugsunarinnar er
aðall þeirra vinnubragða, sem lista-
maðurinn leggur mesta áherslu á.
Hins vegar hvílir ákveðin dulúð
og kraftur yfir verkum eins og
„Moon Force“ (nr. 1) og „Snæfells-
jökull“ (nr. 5), en í síðarnefnda
verkinu verður jökullinn í heild að
rismiklu tákni, og nær gegnsæ egg
skálarinnar efst á jöklinum er afar
virkur hluti þess.
Fágunin getur hins vegar átt sér
máttlausari hlið, þar sem kraftur
og spenna eru horfin á kostnað
hvíldar, kyrrstöðu og skreytni. Bilið
þarna á milli er örmjótt, og undir
áhorfanda komið hvorum megin
hann telur einstök verk lenda; t.d.
telur undirritaður að skreytigildi
„Faraó“ (nr. 7) fari nálægt því að
yfirgnæfa hin táknrænu gildi forn-
manna, sem þarna eru óneitanlega
til staðar.
Thor hefur með sýningum sínum
greinilega haslað sér völl á sviði
höggmyndarinnar, og sérstaða
marmarans í nútímaverkum er
mikil. Hann leggur mesta áherslu
á mýkt formanna og fágun efnisins
í flestum verka sinna, og á stundum
er spurning, hvort grófari vinnsla
hefði ef til vill ekki skilað jafngóð-
um eða betri árangri; marmarinn
hefur ótrúlega aðlögunarmögu-
leika, sem væri full ástæða fyrir
listamanninn að kanna nánar í
framtíðinni.
Sýningu Thors Barðdal í mið-
rými Listhússins í Laugardal lýkur
sunnudaginn 12. september, og eru
listunnendur hvattir til að líta við.
__________Tónlist______________
Jón Ásgeirsson
Líklega var sáð til meiri breytinga
á sviði tónlistar með tilkomu
óperunnar, rétt fyrir aldamótin
1600, en í nokkurn annan tíma. Það
var ekki aðeins um að ræða að tón-
setja leikrit, heldur varð hljómsveit-
in öflugt túlkunartæki og nýr tónst-
íll og tónform blómstruðu þar.
Orfeo, eftir Monteverdi,. er oft
kölluð fyrsta óperan en söngvararn-
ir Jacopo Peri og Guilio Caccini
höfðu tónsett fjögur leikrit og þar
á meðal hvor sína gerð af Orfeosög-
unni. Markmið þeirra var að endur-
vekja Gríska harmleikinn. Þeir sem
einnig tóku þátt í þessu, voru tón-
skáldið Vincenzo Galilei (faðir
stjörnufræðingsins Galileo), skáldið
Ottavio Rinuccini og lærdómsmað-
urinn Giolamo Mei, sem taldi að
Grikkir hefðu tónað leiktextann,
þ.e. sungið og dansað (Kór) leikrit-
ið.
Leiktextinn var upphaflega flutt-
ur með tónlesaðferðinni og það var
í raun ekki fyrr en næstu kynslóð
á eftir Monteverdi, að arían verður
til. Milliþættir fyrir hljómsveit, sem
ýmist voru kallaðir ritornello eða
sinfonia, votu notaðir til að skapa
mótvægi við tilbreytingarleysi tón-
lesins og auk þess notaði Monte-
verdi kóra og tvísöngsatriði, til að
lífga upp á verkið. Að öðru leyti
var framsetning textans sérlega
yfirveguð og jafnvel köld og leik-
gerðin öll mjög kyrrstæð.
Það að flytja Orefo, eftir Monte-
verdi, verður að teljast merkur við-
burður, bæði frá sögulegu sjónar-
miði fyrir okkur íslendinga og einn-
ig, að mjög vel tókst til varðandi
alla útfærslu verksins. Hljómsveit-
arstjórinn, Gunnsteinn Ólafsson,
hefur sannað hæfni sína, með því
að safna saman fólki og stefna því
til átaka við viðfangsefni, sem ann-
ars hefði legið óunnið. Hann stjórn-
aði verkinu af öryggi og líklegt er,
að í Gunnsteini megum við íslend-
ingar eiga von í góðum hljómsveit-
arstjóra.
Þeir sem tóku þátt í flutningnum
voru Bachsveitin í Skálholti, Hljóm-
eyki og Voces Thules, sjö manna
þýsk lúðrasveit, Cornetti con crema
og undirleikssveit, sem var bæði
mönnuð íslenskum og erlendum
strengjasláttumönnum. Átján ein-
söngshlutverk, voru flutt af 11
söngvurum, öllum íslenskum utan
eins, Hans Jörg Mammel, er söng
hlutverk Orfeusar. Mammel er mjög
góður söngvari og flutti þetta erfiða
söngverk með glæsibrag.
Aðrir sem vöktu athygli fyrir
góðan söng voru Rannveig Sif Sig-
urðardóttir í tveimur hlutverkum,
sem tónlistargyðjan og Próserpína,
eiginkona Plutons undirheimakon-
ungs, Þórunn Guðmundsdóttir í
hlutverki sendiboða, Ragnar
Davíðsson í hlutverki Apollo og
bassasöngvararnir Magnús Torfa-
son (Karon) og Tómas Tómasson
(Pluton) en báðir sungu svolítið
burt frá hlutverkunum og stíl verks-
ins en eru stórefnilegir söngvarar,
sem fellur trúlega betur að fást við
dramatísk hlutverk.
Erna Guðmundsdóttir söng mjög
fallega „dísarsönginn", Margrét
Óðinsdóttir fór smekklega með
hlutverk Evridísar og Anna Sigríður
Helgadóttir var góð í hlutverki von-
arinnar. Guðlaugur Viktorsson,
Sverrir Guðjónsson og Ragnar
Davíðsson, úr Voces Thules, sungu
fjárhirða og anda úr undirheimum,
en sum samsöngsatriði fjárhirðanna
eru meðal þess besta í verkinu og
mæddi þar einna mest á Guðlaugi,
sem ásamt félögum sínum söng
mjög vel, en einn félagi hans var
Einar Clausen, ungur og efnilegur
söngnemi.
Allir sem tóku þátt í þessum eftir-
minnilegum tónflutningi léku og
sungu vel en mesta nýnæmið var
þó að heyra í lútuflokknum, lúðra-
sveitinni og regal-orgelinu, sem
notað var til að magna undirheima-
stemmninguna í fjórða þætti. Gunn-
steinn Ólafsson er að stiga sín
fyrstu spor sem hljómsveitarstjóri
og fer vel af stað. Hér hefur hann
stefnt saman ólíkum hópum, bæði
íslensku og erlendu tónlistarfólki
og það er einmitt einn af eiginleik-
um góðs hljómsveitarstjóra, að laða
til sín fólk og takast að stýra því
til samvirkra listrænna átaka, eins
og t.d. að flytja óperuna Orfeo, eft-
ir Monteverdi.
Óperan verður flutt aftur í Lang-
holtskirkju í kvöld, laugardag,
klukkan 20.30
MENNING/LISTIR
ÍNÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Louisa Matthíasd. og Daníel Magn-
ússon. Sýningunum lýkur á morgun.
Listasafn íslands
Verk úr eigu safnsins og Markúsar
H. ívarssonar.
Norræna húsið
Margrét Jónsdóttir sýnir til 19. sept.
Nýlistasafnið
Ragnhildur Stefánsdótir og Situation-
istasýning lýkur á morgun.
Safn Ásgríms Jónssonar
Vatnslitamyndir til febr.loka.
Gallerí 11
Kaisu Koivisto sýnir til 14. sept.
Listasalurinn Portið
Pétur G. Svavarsson. Sýningunni lýkur
á morgun.
Gallerí Sævars Karls
Stefán Geir Karlsson sýnir til 22. sept.
Hulduhólar
Arngunnur Yr. Sýningunni lýkur á
morgun.
Hafnarborg
Kristbergur Ó. Pétursson og Níels
Árnason sýna til 13. sept.
Götugrillið
Húbert Nói sýnir til 20. sept.
SPRON Álfabakka
Ingiberg Magnússon sýnir til 19. nóv.
Gallerí Úmbra
Laszek Golínski og Maiej Deja sýna
til 22. sept.
Mokka
Ljóðasýning 5 skálda lýkur á morgun.
Stöðlakot
Jón Reykdal sýnir til 19. sept.
Gallerí Sólon íslandus
Þorfinnur Sigurgeirsson sýnir til 15.
sept.
Onnur hæð
Roni Horn sýnir út okt.mán.
Listhúsið Laugardal
Thor Barðdal, Skarphóðinn Haralds-
son, Garðar Jökulsson. Sýningunni lýk-
ur á morgun. Afmælishátíð kl. 14
sunnudag.
Hótel Örk
22 myndhöggvarar. Sýningunni lýkur
á morgun.
Eden Hveragerði
Markús Sigurðsson sýnir til 13. sept.
Menningarmiðst./Eyrarbakka
Harry Schemm. Sýningunni lýkur á
morgun.
TONLIST
Lau. 11. sept. Oddakirkja Rangárvöll-
um, orgelleikarinn Wolfgang Tretzsch
kl. 15. Ljóðatónleikar Gerðubergs, Sig-
rún Hjálmtýsdóttir, Jónas Ingimundar-
son píanó og Sigurður Ingi Snorrason
klarinett, kl. 17. Langholtskirkja, óp-
eran Orfeo kl. 20.30.
Sun. 12. sept. Dómkirkjan, orgelleik-
arinn Wolfgang Tretzsch kl. 17. Hafn-
arborg, Þuríður Baxter og David
Knowles Játvarðsson píanóleikari kl.
20.30. Laugarneskirkja, samleikur á
gítara, Lárus Sigurðsson og Amgeir
H. Hauksson kl. 20.
Mán. 13. sept. Ljóðatónleikar Gerðu-
bergs með Diddú endurteknir kl. 20.30.
Þri. 14. sept. Sinfóníuhljómsveit ís-
lands. Kvikmyndatónleikar. Stjórnandi
Carl Davis.
LEIKLIST
Borgarleikhúsið
Spanskílugan eftir Arnold og Bach,
frums. fös. 17. sept. kl. 20., 2. sýn.
laug. 18. sept. kl. 20.
Þjóðleikhúsið
Ferðalok eftir Steinunni Jóhannesdótt-
ur, frums. laug. 18. sept. kl. 20.30.,
önnur sýn. sun. 19. sept. kl. 20.30.
Júlía og Mánafólkið
Barnaleikrit í Héðinshúsinu.
„Fiskar á þurru landi“
Pé-leikhópurinn í Islensku óperunni,
fös. 10. sept. kl. 20.30., laug. 11. sept.
kl. 20.30. fid. 16. sept. kl. 20.30.
Leiklistarklúbbur Tónabæjar
„Fullorðinssagan um Lísu í Undra-
landi“, laug. 11. sept. kl. 20.30., sun.
12. sept. kl. 20.30. þri. 14. sept. kl.
20.30., mið. 15. sept. kl. 20.30., fös.
17. sept. kl. 20.30.
KVIKMYNDIR
MÍR
„Tsjajkovskíj" sun. 12. sept. kl. 16.
Hreyfimyndafélagið
Sýn. á þrd. kl. 9, fid. ki. 5 og helgar-
sýn. á föst. kl. 9.
Umsjónarmenn listastofnana og sýn-
ingarsala!
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birta í þessum dálki verða
að hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á
miðvikudögum. Merkt: Morgunblaðið,
menning/listir, Kringlan 1, 103 Rvk.
Myndsendir: 91-691222.
Thor Barddal: Hringrás.