Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 232. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐID MIÐVIKUDAGUR 13. OKTOBER 1993

Globe-

trotters sýna

listír sínar

Sýningarlið Harlem Globe-

trotters lék listir sínar fyrir

íslenska körfuknattleiks-

unnendur í íþróttahúsinu

Kaplakrika í Hafnarfirði í

gærkvöldi. Það var greini-

legt að áhorfendur kunnu

vel að meta það sem

bandarísku leikmennirnir

buðu uppá, þó sumt af því

hafi ekki átt neitt skylt við

körfuknattleik. Meðal ann-

ars fór einn liðsmaðurinn

upp í áhorfendastúku og

skvetti gosi á áhorfendur

sem flestir voru af yngri

kynslóðinni. Önnur sýning

liðsins verður á Akureyri í

kvöld og lokasýningin

verður í Laugardalshöll

annað kvöld.

Morgunblaðið/RAX

Sjálfstæðisflokkurinn

Prófkjör

30.-31. jan.

Á FUNDI fulltrúaráðs sjálfstæð-

isfélaganna i Reykjavík í gær-

kvöldi var samþykkt tillaga full-

trúaráðsins um að prófkjðr

vegna borgarsljórnarkosning-

anna í Reykjavík verði haldið

dagana 30. og 31. janúar.

Samkvæmt tillögunni hafa rétt

til þátttöku í prófkjörinu fullgildir

félagsmenn í sjálfstæðisfélögunum

í Reykjavík sem náð hafa 16 ára

aldri og þeir stuðningsmenn flokks-

ins sem munu eiga kosningarétt í

sveitarstjórnarkosningunum í vor

og undirrita inntökubeiðnir í eitt-

hvert flokksfélaganna fyrir lok kjör-

fundar í prófkjörinu.

Á fundinum var borin fram breyt-

ingartillaga um að þeir einir hefðu

kosningarétt sem hefðu verið skráð-

ir félagar að minnsta kosti mánuði

fyrir prófkjör. Sú tillaga var felld

með 74 atkvæðum gegn 29.

Þá var samþykktur iisti fulltrúa-

ráðsins yfir fulltrúa .á landsfund.

Miklar tilfærslur urðu á fiskveiðiheimildum á síðasta fiskveiðiári

Rúmur helmingur kvót-

ans fluttur á inílli skipa

NÚ LIGGUR fyrir uppgjör á flutningum á kvótum milli skipa á

síðasta fiskveiðiári. Mjög mikið var flutt til eða samtals rúmlega

210.000 tonn af þorskígildum. Er það meir en helmingur af heild-

arkvótanum upp úr sjó því hann nam 400.000 þorskígildistonnum.

Viðskipti með kvóta, það er flutriingur milli skipa sem ekki voru

í eigu sömu aðila eða gerð út frá sömu verstöð, voru tæplega

70.000 þorskígildistonn. Meðalverð á leigukvótanum á síðasta ári

nam um 35 kr. á tonn þannig að verðmæti þessara viðskipta

námu um 2,2 milljörðum króna.

milli skipa sem ekki eru í eigu

sömu aðila og ekki eru gerð út frá

sömu verstöð, er að stærstum

hluta þorskur eða 41.000 af

70.000 tonnum. Fiskistofa hefur

ekki sundurgreint nákvæmlega

um hvernig viðskipti er að ræða

en ætla má að megnið af þeim sé

vegna „tonn á móti tonni"-við-

skipta eða verslunar fiskmarkaða

á kvóta handa bátum sem eru i

föstum viðskiptum hjá þeim. Af

öðrum fisktegundum sem flutt

hafa verið milli ólíkra aðila má

nefna að 19.000 tonn af úthafs-

rækju voru flutt, tæp 14.000 tonn

af ufsa og 13.500 tonn af karfa

en minna af öðrum tegundum.

Forræðismálið

Hungurverk-

fall að byrja

SOPHIA Hansen og Rósa Han-

sen, sysf.ii- hennar, hefja hung-

urverkfall í húsakynnum

Mannréttindasamtakanna í

Istanbúl kl. 12 að tyrkneskum

tíma í dag.

Sigurður Pétur Harðarson,

stuðningsmaður Sophiu, sagði

að með hungurverkfallinu vildu

systurnar vekja athygli á því að

Sophia fengi hvorki að hitta

dætur sínar né tala við þær. Þá

hefðu tyrknesk stjórnvöld ekki

hreyft hendi til að tryggja að

þeirra eigin úrskurði um um-

gengnisrétt Sophiu við dætur

sínar yrði framfylgt.

Á kvótaárinu 1991-1992 voru

til samanburðar flutt alls 173.000

þorskígildistonn af kvóta á milli

skipa en þá nam heildarkvótinn

453.000 tonnum. Flutningur milli

skipa í eigu ólíkra aðila og frá

ólíkum verstöðvum var 50.000

tonn eða 20.000 tonnum minni en

á síðasta fiskveiðiári.

Samkvæmt yfirliti frá Fiski-

stofu um þessa flutninga kemur í

ljós að nær helmingur af þorsk-

kvótanum á síðasta fiskveiðaári,

eða 105.000 tonn, var fluttur á

milli skipa. Þar af voru rúm 41.000

tonn flutt á milli skipa sem voru

ekki í eigu sömu aðila eða gerð

út frá sömu verstöð. Rúm 23.000

tonn voru flutt á milli skipa frá

sömu verstöð en tæp 10.000 tonn

milli skipa frá ólíkum verstöðvum

og rúm 30.000 tonn voru flutt á

milli skipa í eigu sömu aðila.

Ónotaður kvóti

Ónotaður kvóti á síðasta fisk-

veiðiári, það er kvóti sem ekki

veiddist og ekki var hægt að flytja

milli kvótaára, nam samtals um

17.000 tonnum. Þar munar mest

um 9.560 tonn af ýsu en ónotaður

þorskkvóti nam 2.115 tonnum,

ónotaður ufsakvóti 3.235 tonnum

og ónotaður karfakvóti 2.475

tonnum.

Þegar skoðaðar eru tölur um

hvernig ónotaður kvóti skiptist á

milli skipaflokka kemur í ljós að

mest af ýsukvótanum glataðist hjá

ísfisk- og frystitogurum. Þannig

nam ónotaður ýsukvóti ísfisktog-

ara um 3.000 tonnum og frystitog-

ara um 1.900 tonnum. Þar að

auki nam ónotaður ufsakvóti ís-

físktogara um 1.700 tonnum og

ónotaður karfakvóti um 1.300

tonnum.

Viðskiptin af ýmsum toga

Það sem flokka má sem við-

skipti með kvóta, þ.e. flutningar á

Borgarráð gengur frá ráðningu nýs vatnsveitustjóra

Stjórn veitustofnana mælti

með öðrum umsækjanda

BORGARRAÐ hefur samþykkt að ráða Guðmund Þóroddsson véla-

verkfræðing í stöðu vatnsveitusljóra, en stjórn veitustofnana hafði

samþykkt að mæla með ráðningu Hólmsteins Sigurðssonar skrif-

stofustjóra Vatnsveitu Reykjavíkur og staðgengils vatnsveitustjóra

í stöðuna. Sjö umsækjendur voru um stöðuna, en Þóroddur Th.

Sigurðsson vatnsveitustjóri lætur af störfum fyrir aldurs sakir 1.

nóvember næstkomandi.

Stjórn veitustofnana samþykkti

með þrem samhljóða atkvæðum að

mæla með ráðningu Hólmsteins, en

tveir stjórnarmanna sátu hjá við

atkvæðagreiðslu. Að sögn Árna

Sigfússonar, sem sæti á í borgarráði

fyrir Sjálfstæðisflokkinn, töldu borg-

arráðsmenn hins vegar ótvírætt

samkvæmt fyrirliggjandi gögnum

að Guðmundur væri hæfastur um-

sækjenda um stöðuna og góð sam-

staða hefði verið um að ráða hann.

Guðmundur Þóroddsson hefur

stundað kennslu við Háskólann og

Jarðhitaskólann, en hann hefur ver-

ið verkefnastjóri og deildarstjóri

tæknideildar Rannsóknastofnunar

fiskiðnaðarins. Þá hefur hann einn-

ig m.a. unnið að hönnun fyrir

Vatnsveitu Reykjavíkur. Auk hans

sóttu um stöðuna þeir Auðunn El-

íasson byggingafræðingur, Haf-

steinn Helgason byggingaverk-

fræðingur, Haukur Baldursson

vélaverkfræðingur, Hólmsteinn

Sigurðsson viðskiptafræðingur, Jón

G. Óskarsson byggingaverkfræð-

ingur og Sigurður Sigurjónsson

byggingaverkfræðingur.

í dag

Dómsmál

Saksóknari krefst ævilangs fang-

elsis yfir manni sem varð öðrum

manni að bana í haust   4

Skák

Nigel Short tókst loks að vinna

Kasparov í skákeinvíginu sem fer

fram í London    20

Forstjórabílar

Forstjórar Þjóðhagsstofnunar og

Byggðastofnunar ætla ekki að skila

nýjum bílum sem þeir hafa fengið

til afnota      16

7,S mil(jarða lokjiiUip ~p*"'

á þorskveiðum í 2 ái- jSBfeé \i_ i;)


^ít" MnMwntrlpalrlM

/ "-         >

-  ¦';  ¦¦¦¦• -  . ¦   . .

Úr verinu

Myndasögur

iMÖari

Kosningarnar í Grikklandi

^- 7,5 milljarða tekjutap á þorsk-    ^- Krákkar, inn klukkan átta -

veiðum - Laxeldismenn bjartsýn-    Banki sem geymir blóð en ekki

ir - Útgerðarmenn íhuga veiðar    peninga - Ætlar að verða sauma-

við Svalbarða                                  kona

Komst á vélsleða til Við-

eyjar og aftur til baka

VÉLSLEÐAMAÐURINN Jónmundur Gunnar Guðmundsson

komst fyrstur manna á vélsleða út í Viðey og aftur til baka

síðdegis í gær en vélsleðamenn hafa áður komist út í eyjuna.

„Ég var á 70 hestafla Ski-Doo

MXZ-vélsleða og bjóst ekki við að

þetta gengi svona vel," sagði Jón-

mundur, sem er 21 árs að aldri, í

samtali við Morgunblaðið.

Undiralda

Hann sagði að tekist hefði að kom-

ast út í Viðey á 150 hestafla sleðum

en 70 hestafla sleðar ekki verið tald-

ir hafa möguleika. Vegalengdin er

um 900 metrar og sagði Jónmundur

að undiraldan hefði gert „siglinguna"

vandasama. Hann sagði að gott væri

að taka land í Viðey en erfiðleikum

bundið að ná upp nógu miklum hraða

þegar farið væri til baka því sand-

fjaran væri hvergi breið.

Jónmundur sagði að halda þyrfti

60 til 70 km hraða á klst. til að sleð-

inn sykki ekki. Hann sagði að marg-

ir hefðu lent í því að sökkva sleðum

þarna og hefði það gerst um síðustu

helgi. Jónmundur sagði að áhugi færi

vaxandi á þessari íþrótt og væri hún

mest stunduð á Veiðivötnum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44