Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 232. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTOBER 1993

Póstur og sími setur upp símstöðvar

Notendum í stafræna,

kerfínu fjölgar verulega

NOTENDUM í stafræna símkerfinu hefur fjölgað verulega á

þessu ári. Að sögn Bergþórs Halldórssonar, yfirverkfræðings

hjá sjálfvirkum símstöðvum, hefur undanfarið verið unnið að

því að tengja símanúmer í Reykjavík sem byrja á 1 við staf-

ræna kerfið og sérstakt átak var í sumar gert í því að skipta

út litlum símstöðvum út um land og setja upp stafrænar í stað-

inn. Um næstu áramót verða 68% allra símnotenda á landinu

komnir inn í stafræna kerfið.

Bergþór segir að aldrei hafí á

jafnskömmum tíma verið gert eins

mikið til að bæta samband út á

land eins og gert hefur verið á þessu

ári. Verið sé að ljúka við að tengja

ljósleiðarann hringinn í kringum

landið og flestum litlum símstöðv-

um úti á landi hafí verið skipt út

fyrir stafrænar stöðvar. Um næstu

áramót verði 68% allra símnotenda

tengdir stafrænum símstöðvum en

var u.þ.b. helmingur um síðustu

áramót.

Áhersla á litlu staðina

„Fyrstu stafrænu stöðvarnar

voru teknar í notkun árið 1983 og

hefur áherslan verið lögð á að

tengja notendur í þéttbýli við kerf-

ið. I sumar fórum við hins vegar á

minnstu staðina í dreifbýlinu og

settum upp stafrænar stöðvar. A

þessum stöðum voru gamlar stöðv-

ar og yfirleitt ófullkomnari en á

stærri stöðunum og gátu þær trufl-

að inn í heildarkerfið. Notendur á

þessum stöðum finna mikið fyrir

breytingunni en hún felst í því að

samband næst yfirleitt strax og nú

þarf ekki lengur að gera margar

tilraunir til að ná sambandi og fá

són. Þá gengur mun betur að ná

símasambandi t.d. úr Reykjavík og

út á land," sagði Bergþór.

„í Reykjavík er verið að tengja

öll númer sem byrja á 1 við staf-

ræna kerfið og verður því lokið um

næstu mánaðamót. Allir nýir not-

endur sem tengjast við kerfið1 fá

bréf frá Pósti og síma u.þ.b. viku

áður en tengingin kemst á. Fyrir

Sigbjöm

formaður

fjárlaga-

nefndar

SIGBJORN Gunnarsson, þing-

maður Alþýðuflokksins, var á

mánudag kosinn formaður fjár-

laganefndar Alþingis í stað Karls

Steinars Guðnasonar, sem skip-

aður hefur verið forstjóri Trygg-

ingastofnunar ríkisins. Sturla

Böðvarsson, þingmaður Sjálf-

stæðisflokks, var endurkjörinn

varaformaður á fundi fjárlaga-

nefndar.

Þá var Björn Bjarnason, þing-

maður Sjálfstæðisflokksins, endur-

kjörinn formaður utanríkismála-

nefndar Alþingis og Steingrímur

Hermannsson, formaður Fram-

sóknarflokksins, var kjörinn vara-

formaður nefndarinnar í samræmi

við samkomulag stjórnar og stjórn-

arandstöðu um þingsköp í síðustu

viku.

------------? ? ?------------

¦ MANNRÆKTARSTÖÐIN

Fjallið hefur hafíð starfsemi sína

en það eru nokkir aðilar sem unnið ¦

hafa við miðlun og aðra andlega

starfsemi sem hafa tekið sig saman

um reksturinn. Stefnt er að því að

vera með helgarnámskeið, fyrir-

lestra og ýmsa fræðslu er lýtur

þroska einstaklingsins. Einstök at-

riði munu verða auglýst á síðum

Morgunblaðsins. Aðsetur stöðvar-

innar er á Krókhálsi 4 (Harðvið-

arvalshúsinu) og er opið frá kl.

10-16 alla virka daga.

þá er breytingin sú sama og úti á

landi, notendur fá strax són og

geta notfært sér ýmsa sérþjónustu

sem Póstur og sími býður upp á,"

sagði Bergþór.

Dúfnafjölda

haldið niðri

DÚFUM hefur fækkað í miðborg

Reykjavíkur frá því sem áður var.

Að sögn Ólafs Karls Nilsen líf-

fræðings er nú aðeins einn dúfna-

hópur við Tjörnina sem eitthvað

kveður að.

Ólafur Karl telur að fækkun

dúfnanna megi helst rekja til öfl-

ugrar meindýraeyðingar í borg-

inni. Samkvæmt upplýsingum

Guðmundar Þ. Björnssonar mein-

dýraeyðis er brugðist við kvörtun-

um borgaranna þegar dúfur eru

orðnar of ágengar við mannabú-

staði og fuglarnir fjarlægðir. Lítið

hefur verið kvartað í sumar og

litlu sem engu eytt af dúfum.

11,

Blómagalli í stærð 60-140 cm., verð 4.900-6.900. Úlpur í stærð 90-170 cm., verð 4.900-5.900. Blómahúfa með skinnkanti, verð 1.690

Polarn&Pyret

KRINGLUNNI8 -12 SIMI6818 22

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44