Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 232. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						10

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTOBER 1993

Sveitalíf, stjörnufræði

og grísk goðafræði

- eru undirstöðurnar í nýju framhalds-

leikriti eftir Þórunni Sigurðardóttur

ÞAÐ var tiltöiulega hversdagslegur íslenskur veruleiki sem hljóm-

aði í eyrum þegar 1. þáttur af útvarpsleikritinu „Klukkan Kassíó-

peia og húsið í dalnum" var frumfluttur. Leikritið er skrifað fyrir

stálpúð börn og unglinga og er sent út á miðvikudögum klukkan

20.30 og hófst fyrsti þátturinn á heimilislífi Höllu vor eitt í upp-

hafi próftarnar; heimilislífið einkennist af annríki foreldranna, sem

streða við að ná endum saman. Það er aldrei tími fyrir Höllu, ekki

einu sinni þegar faðir hennar keyrir hana í skólann; þá þarf hann

að nota tímann til að hlusta á útvarpið. Til stendur að hún fari í

sveit að prófum loknum, sem henni líst nú ekki alls kostar á og

vill gjarnan-ræða við foreldra sína um það. En hvorki móðir henn-

ar né faðir hafa tíma til að ræða það. Faðir hennar afgreiðir hana

með setningunni: „Þar eru ekki allir á síðustu stundu eins og hér.

Og tíminn er ekki eins dýrmætur."

En hvunndagurinn tekur á sig

aðra mynd, þegar Halla fær í hend-

urnar ævagamalt ástarbréf til konu

sem bjó á Kvíslarhóli, eyðibýli sem

var næsti bær við Ytra-Vallholt þar

sem Halla á að dvelja sumarlangt.

Bréfið er skrifað af sjómanni sem

sendi það til elskunnar sinnar og

talar um klukku sem hann keypti

í Portúgal og ætlar að gefa henni.

Það er klukkan Kassíópeia - og

henni tengjast heldur betur dular-

fullir atburðir. Tíu árum eftir að

bréfið er skrifað, leggst Kvíslarhóll

í eyði. Með þessa vitneskju fer

Halla að rannsaka málið og um það

snúast næstu þættir þessa spenn-

andi framhaldsleikrits.

Höfundur leikritsins er Þórunn

Sigurðardóttir, sem hefur komið

víða við í leikhúsinu, sem leikkona,

leikstjóri og leikritahöfundur - en

nú bregður svo við að hún hefur

einnig skrifað um Klukkuna

Kassíópeiu í skáldsögu sem kemur

út í haust. Þetta er jafnframt fyrsta

verkið sem hún skrifar fyrir börn

og unglinga og lék mér forvitni á

að vita hvers vegna hún ákvað að

skrifa framhaldsleikrit fyrir þenn-

an aldurshóp.

„Fyrir ári spurði María Krist-

jánsdóttir, leiklistarráðunautur

Ríkisútvarpsins, mig, hvort ég

gæti ekki hugsað mér að skrifa

framhaldsleikrit fyrir börn og ungl-

inga, því hún vildi hafa vandað ís-

lenskt efni fyrir stálpaða krakka

sem væri þess eðlis að foreldrar

gætu haft ánægju af því og_ gætu

hlustað með börnum sínum. Ég var

þá á leið til Mexíkó og var með

þetta á bak við eyrað á ferðalag-

inu; ég var að hugsa hvað mig lang-

aði til að segja og hvernig. Ég var

sjálf, sem krakki, í sveit hjá miklum

náttúrufræðingum á Kvískerjum

og mig langaði til að finna sögu

sem væri þess eðlis að það yrði

ekki of auðvelt fyrir krakkana; mér

fannst verkið þurfa að segja meira

en það allra einfaldasta. Þegar ég

kom heim fór ég í kúrs í stjarneðlis-

fræði í Háskóla íslands hjá Guð-

mundi Arnlaugssyni, kúrs sem

heitir „Umheimurinn og við". Og

þar var einmitt fjallað um stjörnuna

Kassíópeiu. En það er líka nafn á

forngrískri drottningu. Þarna var

ég komin með ólíka og að því er

virðist óskylda þætti, til að byggja

söguna á og út frá þeim vann ég.

Síðan bjó ég til útdrátt fyrir

Maríu og skrifaði 1. þátt. Hún var

mjög ánægð með þetta og sagði

mér að skrifa allt leikritið, sem ég

og gerði - og blanda saman hvers-

dagslegri sögu af stelpu sem var í

sveit, stjörnufræði og gamalli sögu

sem tengist stjörnum himinsins,

fólkinu sem hefur átt heima á

næsta bæ í dalnum - og minnum

úr forngrískum bókmenntum."

Um hvað ertu að fjalla í verkinu?

„Það er sagt að rithöfundar séu

alltaf að fjalla um sama hlutinn. í

mínu tilviki er það alveg rétt. Ég

er alltaf að skrifa um tímann og

hann er skoðaður frá mörgum sjón-

arhornum í þessu verki."

En nú kemur þetta verk einnig

út í skáldsagnarformi í haust. Er

leikritið leikgerð upp úr skáldsög-

unni?

„Nei, ég fór hina leiðina. Um

Þórunn Sigurðardóttir

miðjan vetur í fyrra var mér bent

á að þetta væri skáldsagnarefni.

Ég fór upp í Mál og menningu og

útgáfustjórarnir þar lásu handritið

og hvöttu mig til að skrifa söguna.

Það var ægilega erfitt! Mun erfið-

ara en ég hafði gert mér í hugar-

lund. Ritaður texti í leikriti er allt-

af toppurinn á ísjakanum og undir-

textinn kemur fram í túlkuninni.

Þennan undirtexta varð ég að

skrifa út í skáldverkinu. Vinnan

með tímann í verkinu verður allt

öðruvísi - en ég verð að viður-

kenna, að ég hafði mjög gaman

af að takast á við þetta verk.  .

Það er mjög mikilvægt að gera

það sem maður hefur gaman af.

Ég hugsa bæði bókina og leikritið

út frá því að ég sjálf hafi gaman

af þessu - öðruvísi gerir maður

hlutina ekki almennilega. Ég er

ekkert að smábarnast og þetta er

ekki léttmeti. Bara nafnið Kassíó-

peia er eitthvað sem börn, og jafn-

vel fullorðnir, verða að spyrja hvað

er. Síðan er mikil speki í fornum

trúarbrögðum og það var ögrun

að vinna með þau. Þau eru

skemmtileg."                         SSV

í nágrenni Landspítalans

4ra herb. íbúð - hagstæð útborgun

Til sölu 4ra herb. íbúð á hæð í steinhúsi við Bragagötu

sem byggt er um 1960. íbúðin er Öll ný standsett og

mjög vönduð. Suðursvalir. Mjög gott útsýni. Sérhiti.

íbúðin er laus nú þegar. Verð 7,8 millj. Áhv. tæpar 5

millj. í hagstæðum langtímalánum. Möguleiki að taka

minni íbúð upp í kaupin.

EIGLMASALAIM, IngólfsstrætiS,

símar 19540,19191 og 619191.

Bókastefnan í Frankfurt

Hvaða bækur hafa út-

gefendur í farvatninu?

Frankfurt. Frá Jóhanni Hjálmarssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.

Á BÓKASTEFNUNNI í Frankfurt beindist hugur manna að von-

um að bandarískum bókmenntum, einkum þeirri bylgju skáld-

sagna eftir blökkumenn sem þar hafa komið fram. Astæðan var

tilkynning um að sænska akademían hefði veitt Tony Morrison

bókmenntaverðlaun Nóbels.

21150-21370

LARUS Þ. VALDIMARSS0N framkvæmdastjóri •

KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. lóggiltur fasteignasau

Til sýnis og sölu - m.a. athyglisverðra eigna:

Á vinsælum stað í Smáíbúðahverfi

Steinhús með 5 herb. íb. á tveimur hæðum, samtals 113 fm. Töluvert

endurbætt. Nýtt gler o.fl. Svalir. Sólverönd, 40 ára húsnæðislán kr.

2,3 millj. Vinsæli staður.

Endaíbúð - sérþvottahús - bílskúr

Stór og góð 5 herb. íb. á 2. hæð, 116,1 fm við Stelkshóla. Skipti

möguleg á 3ja herb. íb. t.d. í nágr. Útsýnsstaður.

Endaraðhús í Smáíbúðahverfi

Húsið er tvær hæðir með 4ra-5 herb. íb. Vel umgengið. l' kj. er rúmg.

geymsla og þvottahús. Skipti æskileg á 2ja-3ja herb. íb. í nágr.

Glæsileg sérhæð í þríbýlishúsi

Efri hæð 5-6 herb. Allt sér. Tvennar svalir. Grunnfl. hússins er 154,8

fm. Innb. bílsk. á jarðh. m. geymslu, 37,4 fm. Fallegur trjágarður. Hús-

ið er byggt 1967 á vinsælum stað í Vesturbænum.

Skammt frá Grímsbæ

Endurn. 3ja herb. neðri hæð í tvíb. Allt sér. 40 ára húsnlán kr. 3,6

millj. Tilboð óskast.

Fyrir smið eða laghentan

Rishæð í Bankastræti, 142 fm, auk þess er mikið rými undir súð.

Margskonar breytinga- og nýtingarmöguleikar. Úrvalsstaður. Nánar á

skrifstofu.

•  •  •

Viðskiptum hjá okkur

fylgir ráðgjöf

og traustar upplýsingar.

Opið á laugardögum.

ALMENNA

FASTEIGNftSMMt

LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370

Meira enþúgeturhnyndaóþér!

Um Tony Morrison var fjallað

ítarlega í þýska útvarpinu og m.a.

bent á þau einkenni stíls hennar

sem eru tónvísi, músíkorð og áber-

andi hrynjandi. Bókmenntagagn-

rýnendur hér telja hana hafa lært

af William Faulkner og jafnvel

Hemingway.

Jóhann Páll Valdimarsson for-

stjóri Forlagsins var nýkominn á

bókastefnuna þegar honum bárust

fréttir um Nóbelsverðlaun Tony

Morrisons. Hann sagðist vera

ánægður, ekki síst vegna þess að

eina bók skáldkonunnar sem komið

hefur út á íslensku, Ástkær, var

gefín út af Forlaginu. Nú kvaðst

hann þurfa að afla sér útgáfuréttar

á fleiri verkum eftir Tony Morri-

son, hann hefði mikinn áhuga á

eldri bókum hennar, en væri minna

hrifinn af þeirri síðustu.

„Bækurnar sem 'hún skrifaði á

undan Ástkærri voru mjög góðar

og ég hef verið veikur fyrir þeim,

en síðasta bókin sem ég er nýbúinn

að lesa og heitir Jass, er verulega

góð bók, en mér fannst hún samt

ekki ná Ástkærri að gæðum, segir

Jóhann Páll."

Hann kveðst ekki halda að það

greiði fyrir að höfundar fái Nóbels-

verðlaunin að þeir séu svartir. „Að

vísu má segja að svartir höfundar

séu nokkuð í tísku um þessar

mundir. Þeir skrifa líka mjög góðar

bækur og hafa verið mjög í brenni-

depli."

En gildi þessarar bókastefnu

fyrir þig sem útgefanda í sambandi

við útgáfu á þýddum bókum. Ertu

fyrst og fremst að leita eftir bókum

erlendra höfunda til þýðinga eða

koma þínum höfundum á fram-

færi? Hvað hefur helst gildi fyrir

útgefandann hér í Frankfurt?

„Það er nokkuð til helminga. Ég

er annars vegar á höttunum eftir

bókum til þýðinga og þá ekki síst

upplýsingum um það hvaða bækur

útgefendur eru með í farvatninu,

koma jafnvel ekki út fyrr en að

nokkrum árum liðnum. Hér er

tækifæri til að spyrjast fyrir um

hvað verður á prjónunum eftir all-

langan tíma og koma þá höndum

á það, ef það er eitthvað sem manni

líst á. Svo og jafnframt að koma

mínum bókum, höfundum Forlags-

ins á framfæri við erlenda útgef-

endur, og það verður nú að segjast

að það hefur borið allgóðan árang-

ur síðustu árin, eins og á við um

Svövu Jakobsdóttur, Fríðu Á. Sig-

urðardóttur og Guðberg Bergsson.

Núna er ég að leggja mikla áherslu

á að kynna bók sem ég gaf út í

fyrra, Islandslag, með ljósmyndum

eftir Sigurgeir Sigurjónsson og það

er þegar kominn fram gífurlegur

áhugi á þeirri bók og hún þykir

afar vönduð, enda var kappkostað

að gera hana vel úr garði."

Er áhuginn á íslandi og að ferð-

ast þangað meiri en á því sem ís-

lenskir samtímahöfundar eru að

fást við í skáldskap?

„Það er mikil breyting á þessu

og vart verður við vaxandi áhuga

á íslenskum bókmenntum. Skýring-

in er sú að á íslandi eigum við

höfunda sem standa ekki að baki

þeim höfundum sem best skrifa

annars staðar," sagði Jóhann Páll

Valdimarsson að lokum.

Nýjar bækur

¦   Gulur, rauður, grænn og blár,

barnabókaklúbbur Máls og menn-

ingar, sendi nýlega frá sér fjórðu

sendinguna á þessu ári. Nú hefur

unglingabókaklúbbur bæst við og

aldursflokkum fjölgað úr fjórum í

fimm. Félagar í gula klúbbnum,

börn að 2 ára aldri, fengu sendar

harðspjaldabækurnar Dótið mitt

og Heima hjá mér. Rauðir klúbbfé-

lagar, 2 til 5 ára, fengu Blómin á

þakinu, bók Ingibjargar Sigurðar:

dóttur og Brians Pilkingtons. I

græna pakkanum, fyrir 6 til 9 ára,

var íslenska ævintýrið Surtla í Blá-

landseyjum í endursögn Silju Aðal-

steinsdóttur og myndskreytt af

breska listamanninum Alison Claire

Darke. Bláir klúbbfélagar, 10 til

13 ára, fengu söguna Brennd á

báli eftir danska verðlaunahöfund-

inn Leif Esper Andersen í þýðingu

Sigrid Österby. í pakkanum til

unglinganna var Húsbóndinn eftir

sænska höfundinn Mats Wahl, sem

Hilmar Hilmarsson þýddi.

¦   Út er komin hjá Almenna

bókafélaginu skáldsagan Fransk-

ur leikur eftir norska rithöfundinn

yigdis Hjorth í íslenskri þýðingu

Asgeirs Asgeirssonar.

I fréttatilkynningu segir m.a.:

„Skáldsagan Franskur leikur fjall-

ar um sérstakt kynferðislegt sam-

band milli Láru Buvik sem sér um

útvarpsþátt hjá norska ríkisútvarp-

inu og hins hávaxna, ljóshærða

verkfræðings, Hennings. Lára leitar

í hlutverkið sem kyntákn og þol-

andi, en Hennings sem stjórnandi.

Andleg tengsl eru engin og þegar

á líður veita ástarleikirnir Láru

ekki þá fullnægingu sem hún leitar

að og þarfnast.

Bókin er 160 síður og prentuð

hjá prentsmiðjunni Odda hf.

Verð bókarinnar er 2.844 kr.

¦   Út er komin hjá Almenna

bókafélaginu skáldsagan Blóð-

fjötrar  eftir  A.J.  Quinnell.  ís-

lenska þýðingu annaðist Björn

Jónsson. Skáldsagan Blóðfjötrar

er fjórða Quinnell-bókin sem kemur

út á íslensku. Hinar eru sögurnar

Einfarinn, Stríðsfréttaljósmynd-

arinn og Þagnarumsátur. Þetta

eru allt spennusögur, en nafn höf-

undar er dulnefni og ýmsar getsak-

ir uppi í Bretlandi um hið rétta

nafn.

I fréttatilkynningu frá útgefanda

segir m.a.: ,;Blóðfjötrar segir frá

tveimur einmana manneskjum,

konu í New York og karlmanni í

Bombay á Indlandi. Þessar tvær

persónur rífa sig upp úr hversdags-

leikanum, hún af brýnni þörf til að

leita sonar síns, hann af ævintýra-

þrá og lenda saman á Seychell-eyj-

um austan við Afríku. Þar og á

hafinu umhverfis gerist meginhluti

sögunnar. Miklir atburðir gerast,

ástarævintýri, hrikalegir viðburðir

á sjó og landi og flókin samskipti

ólíklegustu persóna. Þessar

reynslulitlu mannseskjur öðlast

sannarlega lífsreynslu, kynnast

heiminum nú á dögum eins og hann

raunverulega er og mislitu mannlífi

hans.

Bókin er 275 bls. og prentuð í

Steinholti. Bókin kostar 2.958 kr.

¦   Út er komin hjá Matar- og vín-

klúbbi AB bókin um pastarétti.

Pastaréttir er sjötta bókin sem kem-

ur úr hjá Matar- og vínklúbbnum.

Pasta er meðal einföldustu fæðu-

tegunda, enda lítið annað en blanda

úr hveiti og vatni sem bæta má

með eggjum. Samt er pasta eitt-

hvert vinsælasta fæði í heimi.

í fréttatilkynningu frá útgefanda

segir m.a.: „Bókin Pastaréttir er

fjölbreytt og vandað saf n uppskrifta

að sætum og ósætum réttum frá

öllum heimsálfum. Af henni getum

við einnig lært að útbúa ferskt pasta

sjálf til að bera fram með ljúffeng-

um sósum og fyllingum og auk

þess leiðbeinir hún um val eftir eig-

in smekk úr fjölda þurrkaðra pasta-

afbrigða. Bókin er myndskreytt og

veitir skýrar og góðar upplýsingar

um pastamatreiðslu. Ingi Kári Jó-

hannesson íslenskaði.

»

»

»

»

I

»


>

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44