Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 232. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993

27

Afmælisfundur

Morgunblaðið/Ámi Sæberg

í MÁLI Sigurðar Helgasonar á afmælisfundi Hjartaverndar kom m.a. fram að hæsta meðalævi

karla væri 75,9 ár í Japan en næst á íslandi, 75,7 ár. Hæsta meðalævi kvenna er 82,1 ár í Japan, næst

í Frakklandi eða 81,1 ár og á íslandi 80,9 ár. Á meðal gesta á afmælisfundinu voru Guðmundur

Árni Stefánsson, heilbrigðisráðherra, Ólafur Ólafsson, landlæknir, og frú Vigdís Finnbogadóttir,

forseti íslands.

Tíu ára afmæli Landssamtaka hjartasjúklinga

Lög verði sett um grund-

vallarréttindi sjúklinga

HALDIÐ var upp á 10 ára afmæli Landssamtaka hjartasjúklinga

í Perlunni sl. laugardag. Ölliun félagsmönnum var boðið að koma

til fundarins og sóttu hann um 500 af 2.300 félögum í samtökun-

um. Guðmundur Árni Stefánsson, heilbrigðisráðherra, og Ólafur

Ólafsson, landlæknir, voru meðal þeirra sem fluttu ávörp á fund-

iinmi. Heiðursgestur var Anna Cronin sem annast hefur íslenska

hjartasjúklinga í Bretlandi.

Fyrstur á fundinum talaði Sig-

urður Helgason, formaður Lands-

samtaka hjartasjúklinga og rit-

stjóri Hjartaverndar, og minnti

m.a. á að umræða um forgangs-

röðun í heilbrigðisþjónustu færi

fram hjá flestum þjóðum. Nefndi

hann sem dæmi umræðu sem orð-

ið hefði í Skotlandi um 57 ára

gamlan mann, sem látist hefði úr

kransæðastíflu, eftir að læknar

neituðu honum um aðgerð vegna

veikinda og langra biðlista. Hann

sagði að brýnt væri að hefja hrein-

skilna umræðu af þessu tagi hér

á landi með virkri þátttöku sjúkl-

ingasamtaka og taldi nauðsynlegt

að setja lög um grundvallarrétt-

indi sjúklinga. Á þann hátt yrði

þeim tryggð réttarvernd í framtíð-

inni. „Efni væntanlegra laga verð-

ur ekki rakið á þessu stigi málsins

enda þarf að fara fram rækileg

undirbúningsvinna. Ég tel að ekki

megi dragast að sú vinna hefjist

sem fyrst og vil hvetja öll sjúkl-

ingasamtök, félög og einstakl-

inga, að veita þessu máli liðveislu.

Sláum skjaldborg um velferðar-

kerfið og hefjum baráttu til sókn-'

ar en ekki til skipulagslauss und-

anhalds, eins og áðurnefnd hel-

stefna ber í skauti sér, að minni

hyggju. Stór hluti þjóðarinnar

verður að sameinast í slíkri bar-

áttu og sýna með því mikla sam-

stöðu. Leggja þarf það síðan fyrir

stjórnmálaflokka hvort þeir vilja

styðja framgang slíks lagafrum-

varps á Alþingi fyrir næstu al-

þingiskosningar," sagði Sigurður

Heimsforseti Kiwan-

is heimsækir Island

ALHEIMSFORSETI kiwanishreyfingarinnar, Arthur Swanberg,

og kona hans Alice koma í heimsókn til íslands í dag, 13. október.

aðist á K-degi 1992. Húsið er á

lóð Kleppsspítala og verður notað

sem verndaður vinnustaður.

Alls söfnuðu kiwanismenn og

-konur og fjölskyldur þeirra 17

milljónum og var fénu einnig varið

til að ljúka endurbótum við sam-

býli geðfatlaðra á Akureyri.

Heimsforsetinn mun einnig sitja

fund með kiwanisfólki fimmtudag-

inn 14. október í kiwanishúsinu í

Reykjavík. Héðan fara þau hjón á

föstudag.

ísland er fyrsta landið sem þau

hjón heimsækja á nýbyrjuðu

starfsári kiwanismanna en hr.

Swanberg tók við embætti 1. októ-

ber sl. Starfinu gegnir hann í eitt

ár. Hann mun á þessu ári heim-

sækja fjölmörg lönd þar sem kiw-

anismenn og -konur starfa að

mannúðarmálum.

Þau hjón verða yiðstödd er kiw-

anishreyfingin á íslandi afhendir

formlega til ríkisspítalanna hús

sem reist er fyrir það fé sem safn-

Hr. Arthur Swanberg, alheims-

forseti kiwanishreyfingarinnar.

Láttu BKKI glópaguli samkeppnisaðilans

BLEKKJAÞIG

rasD

LITURINN GULLINN,

SK0RPANSTÖKK,

BRAGÐIÐUÚFFENGT

- ekta gullið rasp'.

Lífeyrissjóðirnir

mótmæla skatti

ST.JÓKN Landssambands lifeyrissjóða ákvað á fundi sínum sl. þriðju-

dag að senda ðllum alþingismönnum bréf þar sem vakin'er athygli

þeirra á viðvarandi ranglæti um skattlagningu lífeyrisgreiðslna,

þrátt fyrir að Alþingi hafi samþykkt þingsályktunartillögu um nauð-

syn athugana og úrbóta á fyrrgreindu sviði. Til viðbótar núverandi

ranglæti í þessum málum bætast nú vangaveltur ráðherra um nauð-

syn enn meiri skattlagningar lífeyrissparnaðar, segir í frétt frá sam-

bandinu.

í fréttinni segir einnig: „Stjórn

Landssambands lífeyrissjóða mót-

mælir harðlega hvers konar áform-

um stjórnvalda um aukna skatt-

lagningu lífeyrissparnaðar lands-

manna. Nær væri að bæta úr því

ranglæti sem felst í þrísköttun líf-

eyrisgreiðslna, en í dag greiða

launamenn tekjuskatt af iðgjaldi

sínu til lífeyrissjóðanna og lífeyris-

þegarnir greiða tekjuskatt af mót-

teknum lífeyri frá sjóðnum. Við

þessa óréttlátu skattlagningu bæt-

ist síðan skerðing á tekjutryggingu

almannatrygginga með hækkandi

ellilífeyri frá lífeyrissjóðunum.

Viðbótarskattlagning lífeyris-

sparnaðar myndi auka á það rang-

læti sem ríkir í mismunandi lífeyris-

réttindum ríkisstarfsmanna annars

vegar og almennra launamanna

hins vegar. Því yrði skattlagning á

eignir eða fjármagnstekjur Lífeyris-

sjóðs starfsmanna ríkisins einungis

tilfærsla á peningum milli vasa hjá

ríkissjóði, þar sem hann ber ábyrgð

á lífeyrisgreiðslum frá sjóðnum. En

skattlagning almennu lífeyrissjóð-

anna hefði í för með sér lægri lífeyr-

isgreiðslur til launafólks í landinu.

Þannig er ljóst að lífeyrissparn-

aður landsmanna er nú þegar skatt-

lagður af ógnarþunga og hvers

kyns vangaveltur um viðbótarskatt-

lagningu í formi skattlagningar

fjármagnstekna eða eigna lífeyris-

sjóðanna því veruleikafírrtar.

Stjórn Landssambands lífeyris-

sjóða treystir því alþingismönnum

til þess að standa einhuga saman

um að vísa frá Alþingi hverju því

lagafrumvarpi sem felur í sér aukna

skattlagningu lífeyrissparnaðar.

Með þeim hætti gæta þeir þess að

ekki sé ráðist með skattlagningu

að lífeyrisréttindum þess fólks, sem,

lakastan rétt hefur."

Markaðsátak Landsvirkjunar stendur yfir

30 milljón kr. ár-

leg tekjuaukning

LANDSVIRKJUN áætlar að auka árlegar tekjur sínar um 30 miHjón-

ir kr. með markaðsátaki sem hefur staðið yfir undanfarið. Átakið

byggist á samþykki stjórnar Landsvirkjunar um að veita afslátt sem

nemur einni kr. á kílóvattstund af verði svokallaðs forgangsraf-

magns til þeirra notenda sem fullnægðu vissum skilyrðum, m.a.

varðandi lágmarksaukningu i árlegum rafmagnskaupum. Einnig

hefur stjórnin samþykkt helmings afslátt af verði svokallaðs ótryggðs

rafmagns til fiskimjölsverksmiðja og annars atvinnureksturs.

Markmiðið með afslættinum af

verði ótryggðs rafmagns er að gera

vissum notendum fjárhagslega

kleift að taka upp notkun rafmagns

í stað olíu, samkvæmt upplýsingum

frá Landsvirkjun.

Þegar hafa verið gerðir samning-

ar um sölu á að allt að sex gígavatt-

stundum á ári af forgangsrafmagni

með afslætti, einkum til aðila á

sviði ylræktar, fiskvinnslu og mjólk-

urvinnslu, og sömuleiðis um sölu á

ótryggðu rafmagni sem nemur um

60 gígavattstundum á ári. Hitaveita

Akureyrar, Mjólkursamlag KEA,

Fiskimjölsverksmiðja Krossness hf.,

Viking Brugg og Steinullarverk-

smiðjan á Sauðárkróki hafa þegar

gert samning um kaup, og áætlar

Landsvirkjun tekjuaukningu sírja.

um 30 milljónir króna á ársgrund-

velii, miðað við núverandi gjaldskrá.


.GOLFHIRÐULINAN

I scm  ,   FRÁ

jQPonnsQn

I3ICMIEGA

vítamín og kalk

fæst í apótekinu

l-fynr gólfdúka

l    ÍSLENSKAR

:leiðbeiningar

litinn...

DU PONT bílalakk notað aí

fagmönnum um land allt.

Er bíllinn þinn

grjótbarinn eða

rispaður ?

DU PONT lakk

á úðabrúsa er

meðfærilegt og

endingargott.

Faxafeni 12. Sími 38 000

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44