Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 232. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						34

H

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTOBER 1993

fclk í

fréttum

SYNINGARSTORF

Sextón ára stúlka

bar sigur úr býtum

Veronica Blume hefur gert

milljónasamning við Ford-

umboðsskrifstofuna.

Veronica Blume er aðeins sextán

ára og hefur einungis unnið

við sýningarstörf í hálft ár. Þrátt

fyrir það hefur hún gert rúmlega

17 milljóna dollara samning við

fyrirtækið Ford Modeling Agency í

Bandaríkjunum. Var samningurinn

gerður í kjölfar þess að Veronica

bar sigur úr býtum í keppninni

„Aðaltískusýningarstúlka heims"

eða „Supermodelof the World". Þar

með gefst henni einnig tækifæri á

að búa heima hjá stofnanda fyrir-

tækisins, Eileen Ford, sem sögð er

vera haukur í horni ungra sýningar-

stúlkna sinna.

Veronica segir að það sé jafn

lærdómsríkt að búa hjá Eileen og

að ganga í skóla. „Hún vill að við

séum vel menntaðar. Við lærum

meðal annars manna- og borðsiði

heima hjá henni auk þess sem okk-

ur er kennt hvernig kvenfólk á að

koma fram." Veronica segist hafa

lent í því að sitja til borðs með

Eileen, þar sem tvenn hnífapör voru

við diskinn. „Ég vissi ekki hvorn

gaffalinn ég átti að nota og valdi

rangan gaffal. Stokkroðnaði svo

þegar ég sá að Eileen hafði tekið

eftir því. Maður venst þessu þó,"

sagði hún í nýlegu blaðaviðtali.

	

	

'	,Á

í:	>*S*t*               "^*"-                      jtÁ

k	

	Jf

	'¦

	f

;V        i

Mason Gamble

Denni dæmalausi

Mason Gamble er ekki nema sjö

ára en leikur aðalhlutverkið í mynd-

inni „Denna dæmalausa". Hann var

valinn úr hópi hvorki fleiri né færri

en tuttugu þúsund drengja. Hann

er sagður vera allt að því jafn upp-

átækjasamur í einkalífi og í kvik-

myndinni. Nýjasta dæmið var þegar

hann setti platflugu ofan á kartöflu

á matardiski mömmu sinnar. „Hún

trompaðist," sagði hann og

skemmti sér vel yfir atburðinum.

KVIKMYNDASTJÖRNUR

Jason James Richter

Frelsum Willy

Jason James Richter er einnig

13 ára. Frumraun hans í kvik-

myndaleik var í myndinni „Frelsum

Willy". Hún fjallar um hvernig

drengur verður þess valdandi að

háhyrningur að nafni Willy er frels-

aður frá dýragarði og honum sleppt

á haf út. Jason segist sakna Willy

því samskipti þeirra voru mikil

meðan á upptökum stóð. Hann seg-

ist gjarnan vilja heimsækja hann.

„Ég gæti alveg hugsað mér að hafa

hann í bakgarðinum, en því miður

á ég ekki neina sundlaug," sagði

hann.

Uppátækjasamir

strákar upp til hópa

Skyldu þeir Bill Clinton og Kenny Rogers hafa skipst á eiginhandar-

áritunum?

KANTRITONLIST

Bill Clinton aðdá-

andi Kenny Rogers

Kvikmyndir sem höfða til allrar

fjölskyldunnar hafa náð meiri

vinsældum í Bandaríkjunum en þær

sem hafa einhver aldurstakmörk.

Þessi þróun hefur leitt til þess að

sífellt fleiri börn og unglingar lenda

í aðalhlutverkum. Sá sem unnið

hefur sér inn hvað hæstu upphæð-

ina að undanförnu er að öllum lík-

indum Macaulay Caulkin, sem er

einna -þekktastur fyrir „Home

Alone"-myndirnar.

Samkvæmt heimildum tímarits-

ins People má Macaulay fara að

vara sig, því nokkrir drengir eru

komnir fast á hæla honum. Ljós-

myndari tímaritsins, Lara Rossign-

ol, fór á stúfana nýlega til að taka

myndir af nokkrum þeirra. Kveðst

hún hafa viljað fá myndir af þeim

eins og þeir eru í raun og veru.

„Mig langaði ekki til að mynda þá

sem litla karla eða litla leikara,

heldur ósköp venjulega drengi,"

sagði hún.

Það eru ekki allir sem vita að

kántrísöngvarinn Kenny Rog-

ers er líka góður ljósmyndari. Hann

hefur meðal annars tekið myndir af

þremur forsetum Bandaríkjanna;

Billy Carter, Gerald Ford og Ronald

Reagan. Nýlega var hann enn á ferð

í Hvíta húsinu, þar sem hlutverk

hans var að taka myndir af, Hillary

1993

í KVÖLD

KL 21.00

CAFÉ

GRAND

Dúndur októberfest

stemmning með

DIE FIDELEN

MÚNCHENER

Öl-leikir og fleira

skemmtilegt að hætti

hússins.

AKUREYRI

Allir betri bjórstaðir.

Clinton. Átti myndatakan að vera

hluti af dagskrá í sjónvarpsþætti

CBS, Dagur í lífi kántrítónlistar-

manns.

Kenny komst að því að Bill Clinton

er mikill aðdáandi hans, en gerði

grín að forsetanum þegar hann

komst að því að Clinton hafði spurt

hvort hann mætti fara inn í herberg-

ið þar sem Kenny var að mynda.

„Þetta var eins og í kvikmyndmni

„Dave"," sagði hann, en í þeirri kvik-

mynd deyr forsetinn og tvífari hans

er fenginn til að taka við forsetahlut-

verkinu án þess að vita hvernig hann

hætti að haga sér. Fannst Kenny

Rogers sem Clinton væri ekki alveg

með á nótunum hvað hann mætti

gera og hvað ekki.

HEILSA OG

HEILBRIGÐI

í PERLUNNI9. -17. OKT.

Opið: Virka daga kl. 17-22, laugard.

ogsunnud. kl. 13-19.

ÓKEYPISAÐGANGUR

Dagur psoriasis, exems,

astma og ofnæmis.

Nick Stahl

Maður án andlits

Hinn þrettán ára Nick Stahl leik-

ur ásamt Mel Gibson í myndinni

„Maður án andlits". Mel leikur mjög

svo ófrýnilegan mann og Nick við-

urkenndi að í fyrsta skipti sem hann

sá Mel í upptöku eftir að búið var

að afmynda andlit hans varð honum

ónotalega við. „Þetta leit svo raun-

verulega út," sagði hann. Helstu

áhugamál Nicks eru froskar og

kveðst hann nýlega hafa keypt stór-

an og hávaðamikinn frosk frá Suð-

ur-Ameríku. Það fylgir þó ekki sög-

unni hvað mömmu hans finnst um

froska.

Ross Malinger

Svefnlaus í Seattle

Þrátt fyrir að Ross Malinger sé

einungis níu ára hefur hann leikið

í fjölda sjónvarps- og kvikmynda.

Nýjasta kvikmyndin er „Svefnlaus

í Seattle" sem nú er einmitt verið

að sýna í Stjörnubíó. Hann langar

þó ekki að verða leikari þegar hann

verður stór. „Mig langar að verða

flugmaður eða kannski körfubolta-

stjarna. Og ef ég hef tíma til ætla

ég líka að verða læknir," sagði

hann.

Austin   O'Brien   ásamt   Arnold

Scwarzenegger.

Síðasta stríðshetjan

Þegar Austin O'Brien var sagt

að hann ætti að leika á móti Arn-

old Schwarzenegger í myndinni

„Last Action Hero" var hann alveg

í skýjunum, enda ekki á færi allra

12 ára stráka að feta í fótspor hans.

Austin segir að Arnold sé meiri

háttar grínisti. Þegar þeir fóru sam-

an á kvikmyndahátíðina í Cannes

fór Austin á salerni eins og gengur

og gerist. Þegar hann ætlaði að

sturta niður togaði hann í rangan

streng, þannig að vatn úðaðist yfir

hánn frá sturtuhaus. Þegar hann

kom svo út holdvotur hafði Arnold

gaman af og gerði stólpagrín að

honum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44