Morgunblaðið - 26.10.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.10.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1993 21 Forsætisráðherra um útgáfu bráðabirgðalaga Ekki vilji til að skerða rétt til að selja bráðabirgðalög DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segist, ekki telja að vilji sé fyrir því á Alþingi að afnema eða takmarka verulega rétt til setningar bráða- birgðaiaga. Davíð sagði nýlega á Aiþingi, að eftir á að hyggja teldi hann að rétt hefði verið að kalla Alþingi saman sumarið 1992 frekar en setja bráða- birgðalög um kjaradóm vegna launa- hækkana sem dómurinn ákvað þá um sumarið. Þegar Morgunblaðið spurði Davíð hvort hann teldi í ljósi þessa að tak- marka ætti eða afnema lagalega heimild ríkisstjórna til að setja bráðabirgðalög svaraði hann neit- andi. „Ég lýsti þessari skoðun ekki út af lagalegum ástæðum heldur vegna þess að ég held að það hefði verið eðlilegra miðað við umræður um kjaramál þingmanna og kjara- mál í þjóðfélaginu, að þingmenn hefðu sjálfir, allir sem einn tekið þátt í þeirri umræðu og átt atbeina að þeim ákvörðunum, frekar en leysa þetta mál með bráðabirgðalögum," í hlutverk sagnfræðings Davíð bætti við að stjórnmál væru þannig, að stjórnmálamenn tækju ákvörðun þegar upplýsingarnar sem liggja fyrir væru af skornum skammti en sagnfræðingar tækju ákvörðun þegar allar upplýsingar lægju fyrir. „Þarna brá ég mér í hlutverk sagnfræðings og komst að þessari niðurstöðu," sagði Davíð. Fyrirmæli ríkisskattsljóra um sjóðvélar í kvikmyndahús Sambíóin fá vélar fljótlega SJÓÐVÉLAR sem skrá bæði miða- og sælgætissölu í Sambíóunum verða teknar í notkun innan tiðar, en eins og greint var frá í Morgun- blaðinu hefur eftirlitsskrifstofa rikisskattsljóra sent forráðamönnum kvikmyndahúsa fyrirmæli um að koma upp sjóðvélum í húsunum. Sjóðvélar eru þegar til staðar í Regnboganum og í miðasölu Háskóla- bíós. Að sögn Árna Samúelssonar, for- stjóra Sambíóanna, hefur helsta vandamálið við að koma sjóðvéla- kerfi upp í bíóunum verið fólgið í því að fá nógu hraðvirkan miða- prentara til að anna prentun á helstu álagstímum í miðasölunni. Hann sagðist eiga von á að kerfið yrði komið í gagnið innán tveggja til þriggja mánaða. Fullnægjandi búnaður er til stað- ar í Regnboganum sem skráir alla sölu, bæði í miðasölu og sælgætis- sölu, og að sögn Ingvars Þórðarson- ar var sá búnaður tekinn í notkun fyrir tæplega einu ári. í Háskólabíói fengust þær upp- lýsingar að sjóðvél væri í miðasölu kvikmyndahússins en ekki sælgæt- issölu. Stuttur fyrirvari Karl Ottó Schiöth, framkvæmda- stjóri Stjörnubíós, sagði að innan mánaðar yrði þar tekið í notkun fullkomið miðasölukerfi en ekki væri ljóst hvernig málið yrði leyst í sælgætissölu. Hann sagði að fyrir- varinn væri stuttur, kostnaður við framkvæmdina mikill, auk þess sém notkun sjóðvéla í sælgætissölu myndi óhjákvæmilega teíja af- greiðslu mikið. Sparisjóður Mýrasýslu 80 ára Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 800 gestir í afmælisfagnaði Borgarnesi. í TILEFNI af því að 80 ár eru Morgunblaðið/Theodór Þórðarson I afmælisveislu FRÁ 80 ára afmæliskaffi Sparisjóðs Mýrasýslu. Á myndinni má meðal annara sjá frá vinstri, Pál Guðbjartsson, Ragnar Olgeirsson, Davíð Aðalsteinsson og Sæmund Sigmundsson. liðm síðan Spansjóður Myra- sýslu hóf starfsemi sína bauð sparisjóðurinn nýverið upp á kaffiveitingar í húsnæði sínu í Borgarnesi. Þann dag komu alls um 800 manns i heimsókn í spari- sjóðinn af þessu tilefni og þáðu veitingar og skoðuðu myndir úr sögu sparisjóðsins. Sparisjóður Mýrasýslu var stofn- aður árið 1913 og hóf starfsemi sína 1. október það ár. Sparisjóður- inn var stofnaður fyrir atbeina sýslunefndarinnar í Mýrasýslu, en að frumkvæði Jóhanns Magnússon- ar, bónda á Hamri í Borgarhreppi. Tilgangurinn var og er að halda sparifé héraðsbúa kyrru í héraðinu undir stjórn heimamanna. Nú starfa rúmlega 20 manns hjá Sparisjóðnum. Heildarinnlán námu í árslok 1992, 1.722,7 milljónum króna. Þar af eru trompreikningar 754,4 milljónir. Eigið fé nam á sama tíma 403,7 milljónum króna. Sparisjóðsstjórarnir hafa aðeins verið fjórir í fullu starfi, fyrstur Magnús Jónsson frá 1916 til 1957, Halldór Sigurðsson frá 1957 til 1961, Friðjón Sveinbjörnsson frá 1961 til 1990 og síðan núverandi sparisjóðsstjóri, Sigfús Sumarliða- son. Aðstoðar sparisjóðsstjóri er Steinunn Ásta Guðmundsdóttir. Sparisjóðurinn er til húsa við Borg- arbraut í Borgarnesi og þar fer starfsemi hans að mestu fram en einnig er rekin afgreiðsla í veitinga- og þjónustumiðstöðinni Hyrnunni við Brúartorg. 8 TKÞ. Stofnað verði byggðasam- lag um akstur fatlaðra Á AÐALFUNDI Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu var samþykkt að beina þeim tilmælum til sveitarfélaganna að kanna stofnun byggðasamlags eða sljórnarnefndar um akstur fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt að unnið verði í nánu samstarfi við svæðaskrifstofur um málefni fatlaðra. Þá var samþykkt að sveitarfé- lög á höfuðborgarsvæðinu taki upp formlegt samstarf um að koma á sameiginlegu neyðarnúmeri fyrir höfuðborgarsvæðið fyrir árslok 1994. Það verði gert í samráði við nefnd dómsmálaráðherra um samræmda neyðarsímsvörun. Meðal annarra tillagna, sem sam- þykktar voru er tillaga um að fela stjórn samtakanna, að fara fram á formlegt samstarf með öðrum landshlutasamtökum á Suðvestur- landi sem miðar að aukinni umræðu um hagsmuni þessa landshluta. Samstarfið'taki til samgöngumála, útivistar- og ferðamála og um- hverfismála. Vakinn var athygli á hversu brýnt það er að tvöfalda Reykjanes- braut frá Breiðholtsbraut suður fyr- ir Vífilsstaðaveg. Skorað er á sam- gönguráðherra að beita sér fyrir að þeirri framkvæmd verði flýtt svo sem kostur er. Skorað er á Vegagerð ríkisins að hefja nú þegar undirbúning að lagningu vegar úr Reykjavík um Geldinganes og Gunnunes upp í Kollafjörð. Loks var þeim tilmaplum beint. til þingmanna kjördæmisins að nú þegar verði tekið inn á vega- áætlun viðunandi úrbætur á gatna- mótum Vesturlandsvegar og Þver- holts í Mosfellsbæ. GÆÐAFLISAR A GOÐU VERÐI 7 ^ issS Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 'CÍVeGi 65 .v VANTAR ÞIG KÆLISKÁP? BLOMBERG hefur réttu lausnina! BLOMBERG skáparnir eru búnir Við bjóðum 20 gerðir af kæli- glæsilegum innréttingum með og frystiskápum frá Blomberg, færanlegum hillum í hurð og skáp. 55 eða 60 cm breiða. Einn þeirra hentar þér örugglega! Kæli/frystiskápur KFS 270 Kælir: 190 lítrar nettó, alsjálfvirk af- hríming, 3 hillur, 2 grænmetisskúffur, innbyggt Ijós. Frystir: 52 lítrar nettó, 3 frysti- skúffur með kuldahlíf.Orku- notkun á sólar- hring: 1.6 kWh. Mál: H144xB60xD60 cm. Verð kr. 67.900 eða kr. 64.500 stgr. Kæli/frystiskápur KFS 350 Kælir: 222 lítrar nettó, alsjálfvirk afhríming, 4 hillur, 3 færanlegar og ein með flöskugati, j 2 grænmetisskúffur, færanlegar hillur í hurð, innbyggt Ijós. Frystir: 86 lítrar nettó, 2 frystiskúffur og 1 hilla með kuldahlíf. Mál: H184xB60xD60 cm. Verð kr. 87.900 eða kr. 81.747 stgr. Kæli/frystiskápur KFS345 Kælir: 190 lítrar nettó, alsjálfvirk af- hríming, 3 hillur, 2 grænmetisskúffur, innbyggt Ijós. Frystir: 42 lítrar nettó, 2 frystiskúffur með kuldahlíf. Orkunotkun á sólar- hring 1.7 kWh. Mál: H184xB60x D60 cm. Verð kr. 88.900 eða kr. 82.677 stgr. Kæli/frystiskápur KFS310 Kælir: 208 lítrar nettó, 4 hillur, 2 grænmetiskúffur, innbyggð lýsing. Frystir: 67 litrar nettó, 2 frysti- skúffur og 1 hilla með kuldahlíf. Orkunotkun á sólarhring 1.6 kWh. Mál: H178xB55 xD58. Verð kr. 72.900 eða kr. 69.255 stgr. Kynntu þér nýju, mjúku línuna frá Blombera — mt i Kæli/ frystiskápur | KFS 230 Kælir: 166 lítrar | nettó, alsjálfvirk afhríming, 3 hillur, græn- metisskúffur, innbyggt Ijós. Frystir: 42 lítrar nettó, 2 frysti- skúffur með kuldahlíf. Orkunotkun ásólarhring. 1.3 Kwh. Mál: H139.5xB55xD58 cm. Verð kr. 59.900 eða kr. 56.900 stgr. Kæli/ frystiskápur KFS 282 Kælir: 217 lítrar nettó, alsjálf- virk afhríming, 5 hillur, 2 græn- metisskúffur, innbyggt Ijós. Frystir: 53 lítrar netó, 1 hilla. Orkunotkun á sólarhring 1.65 kWh. Mál: H153.5x655x058. Verð kr. 59.900 eða kr. 56.900 s KFS 243 Samskonar skápur Kælir: 190 lítrar nettó. Frystir: 50 lítrar nettó. Mál: H144xB54xD60. Verð kr. 54.900 eða kr. 52.155 stgr /V- Einar Farestveit & Co. hf. Borgartúni 28 13? 622901 og 622900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.