Morgunblaðið - 02.11.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.11.1993, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 249. tbl. 81. árg. ÞRIÐJUDAGUR 2. NOVEMBER 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Mikill hagnaður hjá norsku bönkunum Ríkið fær aft- ur framlögin NORSKA ríkið hefur fengið aftur mestan hluta þeirra 200 millj- arða ísl. kr., sem notaðir hafa verið á síðustu árum til að bjarga bankakerfinu frá gjaldþroti. Er ástæðan þau miklu umskipti, sem orðið hafa í rekstri bankanna en hjá flestum stefnir í mik- inn hagnað, segir í danska blaðinu Berlingske Tidende. Um tíma mátti heita, að norska bankakerfið væri meira eða minna í ríkiseigu en nú hefur ríkið fengið björgunarkostnaðinn aftur að stór- um hluta með því að selja hlutabréf- in í bönkunum á almennum mark- aði. Þau verða þó ekki seld öll því að ríkisstjórnin vill áfram hafa mik- il ítök í þremur stærstu viðskipta- bönkunum. Methagnaður sparisjóða Á síðustu árum hafa norsku sparisjóðirnir tapað miklu en búist Renault og Volvo Efasemdir umsamruna Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt- ur, fréttaritara Morgunblaðsins. VAXANDI óánægja meðal hlut- hafa í Volvo-fyrirtækinu gæti orð- ið til þess að fyrirhugaður sam- runi Volvo og frönsku Renault- verksmiðjanna rynni út í sandinn. Frá þessu var skýrt á forsíðu Svenska Dagbladet í gær. Þar var sagt að Pehr Gyllenhammar, for- stjóri Volvo, væri á leið út úr fyrir- tækinu. Hann er harðlega gagnrýnd- ur fyrir að hafa fórnað hagsmunum Volvo til að komast sjálfur í for- stjórastól nýju samsteypunnar. Það hefur einnig valdið óánægju hjá sænskum hluthöfum Volvo að franska ríkið, aðaleigandi Renault, hefur neitunarrétt í væntanlegri samsteypu en hluthafar Volvo ekki. er við, að nú á þessu ári verði rekstrarhagnaðurinn fyrir skatt rúmir 36 milljarðar ísl. kr., sá mesti frá upphafi. Viðskiptabankarnir horfa einnig fram á góða tíma. Eftir gífurlegt tap síðustu árin stefnir í tæplega tíu milljarða hagn- að hjá Den Norske Bank, í það sama hjá Kreditkassen og í góða afkomu hjá Fokus Bank, þriðja stærsta bankanum. Þessir þrír bankar hefðu orðið gjaldþrota, hefði ríkið ekki hlaupið undir bagga með þeim, en það, sem hefur snúið rekstri þeirra við, eru fyrst og fremst vaxtalækkanir í Noregi, gengishagnaður og hag- ræðing í rekstri þeirra. Reuter Ástvinur syrgdur KRÓATÍSK kona í Sarajevo grætur á gröf sonar síns sem féll í fyrra. Gagnrýnir fósturvísa- tilraunir Páfagarði. Reuter. JÓHANNES Páll II páfi fordæmdi á sunnudag vísindatilraunir sem gengju í berhögg við siðferðis- reglur og vanvirtu mannkynið. Þótt páfi hafi ekki minnst á nein- ar sérstakar tilraunir er talið að hann hafi verið að vísa til banda- rískra vísindamanna sem hafa fjöldaframleitt fósturvísa. Páfi sagði í ræðu í Péturskirkjunni að hann hefði miklar áhyggjur af „ólögmætum og uggvekjandi tilraun- um“ sem hann kvað bijóta i bága við siðferðisreglur. „Menn átta sig á ... að það er ekkert lengur sem verndar manninn fyrir ótrúlegri mis- notkun og tilraunum til sjálfseyðandi dáraskapar," sagði páfi. „Margt breytist í manninum og í umhverfi hans en eðli hans verður ekki breytt.“ Vísindamenn við George Washing- ton-háskóla í Washington hafa skýrt frá því að þeim hafi tekist að fjölda- framleiða fósturvísa en þeir hættu tilraunum í vikunni sem leið vegna harðra mótmæla fólks sem telur þær brot á siðferðisreglum. Glundroði í Mið-Bosníu vegna framferðis heriiðs múslima o g Króata Mörg þúsund manns flýja heimiíi sín í örvæntingri Sarajevo. Reuter. RAUÐI krossinn hvatti í gær Króata og múslima í Bosníu til að virða rétt óbreyttra borgara og fanga á stríðstímum og þyrma lífi þeirra sem eru í hættu vegna harðra átaka í miðhluta lands- ins. Stofnunin skýrði frá mikilli eyðileggingu og glundroða í bænum Vares og nágrenni, þar sem þúsundir manna, aðallega múslima, hafa flúið heimili sín til að bjarga lífi sínu. Þá var skýrt frá því að hermenn í sljórnarher Bosníu hefðu skotið 19 króa- tíska hermenn til bana þegar þeir reyndu að flýja eftir að hafa verið teknir til fanga í Bugojno, 60 km vestur af Vares. Morgunblaðið 80 ára í DAG eru liðin 80 ár frá því er fyrsta tölublað Morgun- blaðsins sá dagsins ljós. Stofn- endur blaðsins voru þeir Vil- hjálmur Finsen, sem var rit- stjóri þess fyrstu 6 árin og Ólafur Björnsson ritstjóri Isa- foldar. Attu þeir sinn hvorn helming blaðsins þessi ár, en 1. júlí 1919 keypti núverandi eigandi blaðsins, Arvakur hf., blaðið af þeim félögum. Morgunblaðið hefur mikið breytzt í tímans rás. Áður en blað- ið kom út 2. nóvember 1913 hafði tekizt að safna 38 áskrifendum, en þeim fjölgaði stórum fyrsta út- komudaginn. Upplag blaðsins var 1.000 eintök og seldist upp. í dag seljast daglega tæp 52 þúsund ein- tök. Þá voru 35 íslendingar um hvert eintak blaðsins en í dag eru þeir 5. Fjöldi starfsmanna var þá „ _ & 1993 ' 7, en er í dag um 280. Velta blaðs- ins fyrsta árið á verðlagi árins 1993 var 21.9 milljónir króna, en er áætluð rúmlega 1,6 milljarðar króna í ár. Sá maður, sem lengst hefur ver- ið ritstjóri Morgunblaðsins er Val- týr Stefánsson, sem var ritstjóri frá 1924 til 1963 eða í 39 ár. Næstur kemur annar núverandi ritstjóra blaðsins, Matthías Johannessen, en hann hefur verið ritstjóri í 34 ár. Þá hafa aðeins tveir menn gegnt stöðu framkvæmdastjóra, Sigfús Jónsson sem starfaði frá 1923 til 1968 eða í 45 ár og Haraldur Sveinsson frá 1968. í tilefni þessara tímamóta í sögu blaðsins fylgir afmælisblað Morg- unblaðinu í dag, B-blað, sem ber heitið „Morgunblaðið - 80 ár“. í því er ágrip af sögu blaðsins í myndum og máli, rakin er fram- leiðsluþróun blaðsins og tækniþró- unin í þessa átta tugi ára. Þá er á bls. 4 kynning á kvikmynd, sem gerð hefur verið um Morgunblaðið og er á dagskrá Ríkissjónvarpsins í kvöld kl. 20.35. Viðtöl eru á bls. 2 við tvo jafnaldra Morgunblaðsins, sem einnig eiga afmæli í dag. „Glundroði virðist ríkja í Vares. Þúsundir óbreyttra borgara hafa neyðst til að flýja .heimili sín. Þeir eru að flýja rán og gripdeildir, morðhótanir, barsmíðar og eru í örvæntingarfullri leit að vernd,“ sagði í yfirlýsingu frá Rauða kross- inum. Öldruð kona var í hópi þeirra sem höfðu eytt mörgum nóttum á gangstéttum í Vares þrátt fyrir nístandi kulda; víða gengu hermenn um götur með hlaupstuttar hagla- byssur í leit að ránsfeng. „Ég treysti bara bláhjálmunum [sænskum frið- argæsluliðum í borginni]“, sagði konan. „Þeir björguðu lífi rnínu í nótt“. Aftökur án dóms og laga Embættismenn Rauða krossins í Sarajevo sögðust margsinnis hafa heyrt ásakanir um að óbreyttir borgarar og fangar væru teknir af lífi án dóms og laga í Mið-Bosníu. Þeir hvöttu Bosníuher og her Kró- ata í Bosníu til að binda enda á gróf brot á alþjóðareglum um rétt óbreyttra borgara og fanga á stríðs- tímum. Breskir friðargæsluliðar rann- sökuðu á sunnudag drápin á króat- ísku stríðsföngunum 19. Þeir fengu ekki að fara inn í Bugojno en fengu þær upplýsingar frá múslimum að mennirnir hefðu verið skotnir til bana eftir að hafa reynt að flýja. Vitað var að þrír Króatar til viðbót- ar voru í haldi hersins en friðar- gæsluliðarnir fengu ekki að sjá þá. Embættismenn Sameinuðu þjóð- anna hafa ennfremur miklar áhyggjur af harðnandi átökum í grennd við múslimska bæinn Sre- brenica í austurhluta Bosníu. Sam- kvæmt friðarsamningi sem gerður var fyrr á árinu áttu múslimskir hermenn, sem hafa varið bæinn, að afvopnast en þeir létu aðeins lít- inn hluta af vopnum sínum af hendi. Friðargæslulið SÞ heimilaði í gær matvælaflutninga að nýju um flug- völlinn í Sarajevo, en þeim hafði verið hætt vegna árásar á flugvöll- inn á sunnudag. Nýnasistar til Israels DRESDEN-borg í Þýskalandi sendi nýlega 19 unga nýnas- ista í kynningar- og endur- hæfingarferð til ísraels og var markmiðið að fá þá til að hætta að svívirða gyðinga. Danska blaðið Berlingske Tidende segir að ekki sé ljóst hvort ferðin hafi borið nokk- urn árangur. Fé til fararinnar, nær þijár milljónir króna, var tekið úr sjóði sem ætlað er að styrkja gyðinga er flust hafa til Þýskalands eftir umrótið í Austur-Evrópu og Rússlandi. Embættismaðurinn sem skipulagði ferðina mun ekki hafa fengið leyfi til að nota sjóð- inn, sem nú er upp urinn, með þessum hætti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.