Morgunblaðið - 11.11.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.11.1993, Blaðsíða 1
92 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 257. tbl. 81.árg. FIMMTUDAGUR II. NÓVEMBER 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Fórnarlamb stríðsins UNGRI konu hraðað á sjúkrahús eftir að hún slasaðist í sprengjuárás á Sarajevo í gær. Fimm létu lífið og 45 særðust í árásunum. Deilt er um hveijir vörpuðu sprengjum á borgina. Sprengjuárásum á Sarajevo linnir ekki Sarapevo. Brussel. Reuter. ÞRJU börn og tveir fullorðnir létu lífið og 45 særðust í sprengjuárás- um á Sarajevo í gær. Þá var aðeins sólarhringur liðinn frá því að sprengjum var varpað á barnaskóla í borginni, þar sem níu manns, þeirra á meðal fjögur börn og kennari þeirra, létu lífið. Deilt er um hveijir vörpuðu sprengjum á borgina, Bosniumenn segja það vera Serba en þeir hafa staðfastlega neitað því. Fórnarlömb stríðsins í Bosníu eru nú orðin um 9.000, aðallega óbreyttir borgarar. Auk þess hafa um 55.000 manns særst. Gjör- gæsludeild sjúkrahúsanna í Sarajevo var yfirfull af særðu fólki í gær en blaðamönnum var meinað- ur aðgangur að henni, þar sem margir Bosníumenn telja þá hafa velt sér upp úr þeim hörmungum sem fórnarlömb stríðsins hafa mátt þola. Vijja ekki aflétta viðskiptabanni Bandaríkjamenn eru lítt hrifnir af friðartillögu Frakka og Þjóð- veija, sem fram kom fyrr í vik- unni, en hún byggir á því að Serb- ar láti Bosníumönnum eftir um 3% lands gegn því að viðskiptabanni á Serbíu verði aflétt. Telja þeir að með henni sé verið að umbuna Serb- um fyrir árásir þeirra á Bosníu. Frakkar og Þjóðveijar hafa dregið tillögu sína til baka og kveðast þeir nú aðeins hafa vilja hvetja Serba til að taka þátt í að binda endi á stríðið í Bosníu. Bobbitt saklaus Kjörstjórn heimilar framboð 13 flokka í þingkosningunum í Rússlandi Átta flokkar fá ekki að taka þátt í kosuingnnum Moskvu. Reuter. KJÖRSTJÓRN í Moskvu heimilaði í gær 13 flokkum að bjóða fram í þingkosningunum 12. desember en átta öðrum var meinuð þátt- taka. Kjörstjórnin sagði að flokkarnir átta hefðu ekki skilað undir- skriftalistum með tilskildum fjölda stuðningsmanna. Clinton bjartsýnn á framgang NAFTA Washington. Reuter. BILL Clinton Bandaríkjaforseti sagðist í gær viss um að fulltrúa- deild þingsins myndi staðfesta Fríverslunarsáttmála Norður-Amer- íku (NAFTA) er atkvæði verða greidd um sáttmálann næstkom- andi miðvikudag. Akaft hefur verið unnið að því af hálfu forset- ans að vinna óákveðna þingmenn á hans band, en andstæðingar sáttmálans þykjast þess vissir að enn sé talsverður meirihluti þing- deildarinnar andvigur honum. Bandarísk verkalýðssamtök hafa haldið uppi hörðum áróðri gegn staðfestingu NAFTA. Voru Richard Gephardt, leiðtoga demó- krata í fulltrúadeildinni, afhentar undirskriftir 1,9 milljóna félags- bundinna launþega sem hvöttu til þess að samkomulagið yrði fellt. „Þetta er álit almennings, hér tal- ar þjóðin,“ sagði Gephardt er hann tók við áskorununum. Til þess að hljóta staðfestingu þurfa 218 þingmenn að greiða atkvæði með NAFTA en fulltrúar forsetans álitu í gær að enn vant- aði stuðning um 25 þingmanna til þess að tryggja framgang sáttmál- ans. Clinton sagði sjónvarpskapp- ræður Als Gore varaforseta og auðkýfíngsins Ross Perots í fyrri- nótt staðfesta að með því að segja sannleikann um NAFTA væri hægt að sannfæra þjóðina um gildi sáttmálans. Samkvæmt skoðana- könnunum, sem gerðar voru eftir kappræðurnar, fækkaði þeim verulega sem til þessa hafa sagst óákveðnir í afstöðunni til NAFTA. Reyndust 57% fylgjandi sáttmál- anum miðað við aðeins 34% fyrir þáttinn. Andstæðingum hafði fækkað úr 38% í 36% og óákveðn- um fækkað úr 28% aðspurðra í 7%. Sjá „Stuðningur við NAFTA eykst eftir ...“ á bls. 27. Á meðal flokkanna átta sem ekki fá að bjóða fram er Rúss- neska þjóðarsambandið, sem er undir forystu Sergejs Babúríns, róttæks þjóðernissinna og leiðtoga einnar af helstu hreyfingum harð- línumanna á gamla þinginu. Hægri öfgamenn í Lýðveldis- flokknum fá ekki heldur að bjóða fram. Hinir flokkarnir sex eru all- ir litlir og nokkrir þeirra umbóta- sinnaðir lýðræðisflokkar. Undirskriftalistum stolið? Flokkarnir áttu að safna undir- skriftalistum með nöfnum 100.000 stuðningsmanna og fresturinn til að skila þeim rann út á laugar- dag. Kjörstjómin fór yfir listana í þijá daga og komst að þeirri niður- stöðu að átta flokkanna hefðu ekki náð tilskildum fjölda stuðn- ingsmanna. Forystumenn Rússneska þjóð- arsambandsins halda því reyndar fram að lista með 22.000 nöfnum hafi verið stolið nóttina áður en fresturinn rann út. Þar hafi verið að verki sjö vopnaðir menn, þar af fjórir í búningum öryggissveita innanríkisráðuneytisins. Formaður kjörstjórnarinnar sagði að málið yrði rannsakað og flokkurinn fengi að bjóða fram ef sannað þætti að um þjófnað hefði verið að ræða. Kommúnistaflokkurinn býður fram Á meðal flokkanna 13, sem fá að bjóða fram, eru Kommúnista- flokkur Rússlands, að minnsta kosti fimm flokkar umbótasinna, Borgarasambandið, sem er flokkur miðjumanna, og Fijálslyndi lýð- ræðisflokkurinn, hægriöfgaflokk- ur undir forystu þjóðemissinnans Vladímírs Zhírínovskíjs. Sjá „Völd forsetans aukin og sérstaða lýðvelda...“ á bls. 26. Manassas, Virginíu. Reuter. JOHN Wayne Bobbitt var í gær sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað konu sinni Lorenu, en hún skar getnaðarlim af honum sofandi sl. sumar og bar því við að hann hefði skömmu áður neytt sig til samræðis. Kviðdómur skipaður níu konum og þremur mönnum sýknaði Bobb- itt, sem er 26 ára, eftir þriggja daga réttarhöld. Stökk hann hæð sína í loft upp af fögnuði í réttar- salnum. Lorena, sem er 24 ára, hefur verið ákærð fyrir að hafa valdið manni sínum alvarlegu lík- amssári af ráðnum hug og á yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi verði hún sek fundin. Eftir verkn- aðinn tók það lækna um 10 stund- ir að sauma liminn saman. Ber hún því við, að skyndileg og ómótstæði- leg hvöt hafi rekið sig til verknað- arins. Verði það tekið til greina gæti það talist jafngilda því að um stundarbijálæði, sem gerir fólk ósakhæft, hafi verið að ræða. Rétta augna- blikið BRETINN John Watkins hlaut í gær útnefning- una „áhugaljós- myndari ársins" fyrir meðfylgj- andi mynd af glóbrystingi að tylla sér á vatns- krana í garðin- um hans. Féll vatnsdropi úr krananum við lendingu söng- fuglsins smá- vaxna og sagðist Watkins hafa reynt í tvö ár að fanga augna- blikið á filmu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.