Morgunblaðið - 23.11.1993, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993
KOSIÐ UM SAMEININGU SVEITARFELAGA
Suðurnes
Mestir mögu-
leikar til
sameiningar
KRISTJÁN Pálsson bæjarstjóri
Njarðvíkur og formaður umdæm-
isnefndar Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum segir að úr-
slit kosninganna bjóði upp á að
sá möguleiki verði skoðaður mjög
ítarlega að sameina Keflavík,
Njarðvík og Hafnahrepp þar sem
augljós vilji sé á þessum stöðum
fyrir sameiningu, og á það verði
örugglega látið reyna. „Síðan er
það spurning hvort það verði
kannað hjá öðrum sveitarfélögum
sem lýstu yfir þó nokkrum vilja
til sameiningar, til dæmis í Gerða-
hreppi og á Vatnsleysuströnd,
hvort þeir hefðu áhuga á því að
vera með.
„Keflvíkingar hafa alltaf verið
ákafir sameiningarmenn, og ég vona
að þegar nágrannasveitarfélög okk-
ar sjá hve mikill vilji er til sameining-
ar í þessum stóru sveitarfélögum,
Keflavík og Njarðvík, og ljóst sé að
þar verði gerð önnur tilraun, að þeir
þá kannski hugsi sig um og líti þetta
með öðrum augum og þá sem já-
kvæðari þátttakendur í því að sam-
einast í stærri heild,“ sagði hann.
Vesturland
Þrjú atkvæði
réðu úrslitum
„FRAMHALDIÐ byggist á við-
horfum sveitarstjórna. Umdæ-
manefndin hefur ekki komið sam-
an til að spá í niðurstöðurnar en
mun gera það fljótlega. Það verð-
ur að nýta tímann vel ef menn
ætla að gera eitthvað fyrir miðjan
janúar,“ segir Jón Þór Jónasson,
formaður umdæmanefndar á
Vesturlandi. Hann segir hugsan-
legt að skoða nánar hvort lögð
verði fram ný tillaga um samein-
ingu sveitarfélaga í Mýrasýslu en
þar féll sameiningartillagan
naumlega, fimm sveitarfélög sam-
þykktu hana en þrjú voru á móti,
en þó aðeins með þriggja atkvæða
mun í Borgarhreppi.
Tillaga um sameiningu fjögurra
sveitarfélaga vestast á Snæfellsnesi;
í Ólafsvík, Neshreppi utan Ennis,
Breiðuvíkurhreppi, og Staðarsveit,
var eina sameiningartillagan sem
samþykkt var í kosningunum á laug-
ardag. Einnig er möguleiki á að sam-
eina sveitarfélög í Dalasýslu
samkæmt reglunni um að 2/3 sveit-
arfélaga á viðkomandi svæði sem
samþykkja sameiningu er heimilt að
ákveða sameiningu þeirra en í fimm
sveitarfélögum af sjö í Dalasýslu var
tillaga umdæmanefndar samþykkt.
Vestfirðir
Sameining í
tengslum
við sam-
göngubætur
GUÐMUNDUR H. Ingólfsson, for-
maður umdæmanefndar Vestfirð-
inga, sagðist vera þokkalega
ánægður með niðurstöður kosn-
inganna á Vestfjörðum en segist
þó hafa orðið fyrir sérstökum
vonbrigðum með útkomuna í
Dýrafirði. „Aðrar niðurstöður eru
aftur á móti í samræmi við það
sem búast mátti við. Ég tel eðlileg-
ast að menn skoði þessa stöðu í
nokkra daga og ég mun ekki kalla
umdæmanefndina saman strax
heldur lofa sveitarstjórnunum að
fá tækifæri til að funda um þetta
fyrst,“ sagði hann.
„Ég hefði viljað sjá sveitarfélög
sameinast þar sem mestar sam-
göngubætur hafa verið gerðar eða
þar sem unnið er að þeim. Þetta eru
þau sveitarfélög sem bíða eftir jarð-
göngunum og Dýrafjörðurinn er
vissulega einn hluti þeirra. Það hefði
verið mjög æskileg þróun,“ sagði
Guðmundur.
Að hans sögn hans kom sú niður-
staða að sameiningartillagan var
felld í Bolungarvík, Súðavík og í
inndjúpshreppunum við ísafjarðar-
djúp ekki á óvart.
Norðurlandi vestra
Litlu sveitar-
félögin verða
að leita
samstarfs
TILLÖGUR umdæmanefndar á
Norðurlandi vestra voru felldar á
21 stað af 29, á flestum stöðum
með miklum mun. Björn Sigur-
björnsson, formaður umdæma-
nefndar segist te^ja að þær sýni
að menn séu ekki tilbúnir í stórar
sameiningar og nú sé hugsanlega
rétt að leita leiða til að mynda
smærri einingar. Ekki sé þó víst
að litlar einingar geti tekið við
þeim verkefnum sem ríkisstjórnin
talar um að færa til sveitarfélag-
anna.
„Ég álít að það hefði verið stutt
skref í Skagafirði að stíga að færa
hreinlega öll verkefnin til héraðs-
nefndar sem þá hefði að sjálfsögðu
ekki heitið héraðsnefnd heldur sveit-
arstjóm Skagafjarðar.
Ef við lítum síðan á Austur-Húna-
vatnssýslu þá sögðu menn að tillaga
umdæmanefndar væri slæm. Við
hefðum átt að leggja til eitt svæði
þar eins og í vestursýslunni og í
Skagafirði. Á sama tíma hafna þeir
þessu m.a. vegna þess að þetta sé
of stór eining.
í vestursýslunni hafa verið uppi
hugmyndir um að sveitahreppirnir
sameinuðust og þéttbýlisstaðirnir
skildir eftir. Þetta eru gamalkunnar
hugmyndir en við töldum að leita
ætti eftir samstöðu eins margra
sveitarfélaga og nokkur kostur væri.
Höfuðborgarsvæðið
Harkaleg
andstaða réð
miklu um
úrslitin
SVEINN Andri Sveinsson formað-
ur umdæmisnefndar höfuð-
borgarsvæðisins segir að það hafi
ráðið miklu um úrslit kosning-
anna um sameiningu sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu hve
sveitarstjórnamenn annars staðar
en í Reykjavík hefðu beitt sér
harkalega gegn sameining-
unni.„Á hátíðisstundum hafa þeir
gjarnan talað um nauðsyn þess
að sameina sveitarfélög, en síðan
þegar komið er að þeim sjálfum
þá ' hafa þeir barist hart gegn
þessu,“ sagði hann.
Varðandi niðurstöður kosning-
anna á höfuðborgarsvæðinu sagði
Sveinn Andri að hvað varðar samein-
ingu Garðabæjar og Bessastaða-
hrepps þá væru niðurstöðurnar í
fullu samræmi við það sem fyrirfram
hafi verið búist við.
„Hvað norðanvert höfuðborgar-
svæðið varðar þá var það mat nefnd-
arinnar að þetta væri sú tillaga sem
væri einna líklegust til að hljóta
brautargengi, en það sem kannski
veldur vonbrigðum þar er að Kjó-
sverjar skyldu ekki segja já. Jafn-
framt vekur það athygii að þrátt
fyrir mjög harða andstöðu til dæmis
á Kjalarnesi skuli andstæðingarnir
ekki vera fleiri en 60%. Við töldum
okkur vita það fyrirfram að þetta
yrði fellt í Mosfellsbæ og á Seltjarn-
arnesi, en það er hins vegar ánægju-
legt að sjá hvað tillagan hlýtur yfir-
gnæfandi stuðning í Reykjavík.
Austurland
Nokkrir
möguleikar
á sameiningu
„ÞAÐ er áhyggjuefni ef þessi
úrslit verða túlkuð á þann hátt,
að landsbyggðin sé mjög ánægð
með sinn hlut í valdahlutföllunum
í þjóðfélaginu. Þetta eru þá
dapurleg skilaboð frá lands-
byggðinni um að vilja óbreytta
þróun,“ segir Albert Eymunds-
son, formaður umdæmanefndar á
Austurlandi.
Tillaga umdæmanefndar um sam-
einingu Norðfjarðarsvæðis var sam-
þykkt af tveimur sveitarfélögum en
íbúar Mjóafjarðar voru á móti en
íbúafjöldi þar er undir mörkum um
lágmarksíbúastærð og kvaðst Albert
gera ráð fyrir að þegar gengið yrði
til sameiningar Norðfjarðarhrepps
og Neskaupsstaðar ættu Mjófirðing-
ar ekki kost á öðru en að vera með.
Albert sagðist ekki sjá aðra mögu-
leika á sameiningu sveitarfélaga á
Norðursvæðinu en umdænianefnd
hefði gert tillögu um og heimamenn
yrðu sjálfir að meta hvert framhald-
ið yrði en tillagan var felld á jöfnu
í Skeggjastaðahreppi. Mikil and-
staða kom fram við tillögunni um
sameiningu sveitarfélaga á Héraðs-
svæði.
Norðurland
eystra
Tilfinninga-
þátturinn
vegur þyngst
Guðný Sverrisdóttir, formaður
umdæmanefndar á Norðurlandi
eystra, segir greinilegt af niður-
stöðum kosninganna að fólk sé
ekki tilbúið til sameiningar og þar
vægi tilfinningaþátturinn þyngst
á metunum. „Við ætlum að senda
bréf til allra sveitíirstjórna á
svæðinu og biðja þær að kanna
hvort eitthvert sameiningamynst-
ur sé sjáanlegt á þeirra svæði.“
„Ég held að ef fólk hefði almennt
viljað fræðast um málið þá hefði það
getað nálgast þær upplýsingar sem
það þurfti. Ég hef ekki orðið vör við
áhugaleysi enda var kosningaþátt-
taka í minni sveitarfélögunum mjög
góð. Fólk virðist hafa haft áhuga á
að tjá sig í þessum kosningum og
mér finnst boðskapurinn greinilega
vera sá að fólk sé ekki tilbúið. Þetta
er þó ekki algilt eins og niðurstöð-
urnar leiddu í ljós,“ sagði Guðný.
Suðurland
Ekki margir
leikir sem
blasa við
STEINGRÍMUR Ingvarsson for-
maður umdæmisnefndar á Suður-
landi segir að ástæður þess að
tillögur um sameiningu sveitarfé-
laga í kjördæminu hafi ekki náð
fram að ganga séu að öllum lík-
indum fyrst og fremst þær að
mönnum hafi þótt tillögurnar of
stórtækar. Hann segir að það
hafi á vissan hátt komið sér á
óvart að á Árborgarsvæðinu hafi
útkoman ekki verið betri, og þá
sérstaklega í sveitarfélögunum
við ströndina.
Steingrímur sagðist á þessu stigi
ekkert geta um það sagt hvert hugs-
anlegt framhald í sameiningarmál-
um á Suðurlandi gæti orðið, en ef
litið væri á niðurstöður kosninganna
almennt sem viljayfirlýsingar um
sameiningu eða ekki þá væru að
hans mati ekki margir leikir sem
blöstu við S stöðunni.
46. leikvika , 20. nóv. 1993
Nr. Leikur:
Röðin:
1. Aston Viila - Sheff. Utd 2. Blackbum - Southamptn 3. Chelsea - Arsenal 1 - - 1 - - - 2
4. Everton -QPR - - 2
5. Man. Utd. - Wimbledon 1 - -
6. Norwich - Man. City - X -
7. Sheff. Wed - Coventry - X -
8. Swindon - Ipswich - X -
9. Tottenham - Leeds - X -
10. West Ham - Oidham 1 - -
11. Bamslcy - C. Palace - - 2
12. Millwall - Tranmerc 1 - -
13. Peterboro - Charlton * - 2
Heildarvinningsupphæðin:
111 milljón krónur
13 rettir: 56.230 j kr.
12 réttir: 2.060 J kr.
11 réttir: 230 | kr.
10 réttir: 0 | kr.
EURÓpTIPS
46. leikvika, 17. nóv. 1993
Nr. Leikur: Röðin:
1. Spánn - Danmörk (hl.) - X -
2. Spánn - Danmörk 1 - -
3. Frakkland - Búlgaría (hl. - X -
4. Frakkland - Búlgaría - - 2
5. Ítalía - Portúgal 1 - -
6. Gríkkland - Rússland 1 - -
7. Norður írland - írland - X -
8. Sviss - Eistland 1 - -
9. Malta Skolland - - 2
10. Pólland - Holland - - 2
11. Walcs - Rúmenfa - - 2
12. Belgfa - Tékkóslóvakia - X -
13. Argcntfna - Astralía 1 - -
14. Þýskaland - Brasilía 1 - -
Hcildarvinningsupphæðin:
8,2 milljón krónur
14 réttir: j 613.270~
13 réttir:
12 réttir:
17.490
1.450
11 réttir:
0
]
] kr.
]
] -
46. leikvika - 21. nóv. 1993 |
Nr. Leikur: Röðin:
1. Atalanta - Pamia - - 2
2. Foggia - Sampdoria - - 2
3. Gcnoa - Inter 1 - -
4. Juventus - Cagliari - X -
5. Lazio - Torino - - 2
6. Leccc - Roma - - 2
7. Milan - Napoli 1 - -
8. Piaccnza - Udinese - X -
9. Rcggiana - Cremonése 1 - -
10. Cesena - Bari 1 - -
11. Cosenza - Modena 1 - -
12. Padova - Brescia 1 - -
13. Pisa - Ancona - X -
Heildarvinningsupphœðin:
8,8 milljónir króna
13 réttir: « 1 kr.
12 réttir: 105.610 kr.
11 réttir: 3.800 | kr.
10 réttlr: 730 kr.