Morgunblaðið - 23.11.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.11.1993, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993 Þannig hafa þeir Valdimar Grímsson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur tekið upp þráðinn með KA þar sem frá var horfið með Val. Hann er markahæstur í 1. deild eftir sjö umferðir. ■ LÍFSHLAUP körfuknattleiks- snillingsins Michaels Jordan verður að öllum líkindum fest á filmu fljót- lega, en tvö kvikmyndaver í Holly- wood slást nú um réttinn. Tveir menn eru taldir líklegastir til að leika kappann í myndinni; Jordan sjálfur og leikarinn Denzel Washington. H UPPBOÐ á sérmerktum Olymp- íu-bolum fer fram á degi hveijum í Lillehammer. Fyrir skömmu voru .100 dagar þar til vetrarleikarnir hefjast, og tók heimamaðurinn Per Hoen þátt í uppboðinu í tilefni dags- ins. Bolir höfðu verið seldir á and- virði allt að rúmlega 200 þúsunda ísl. króna áður, þannig að hann bauð 130 þúsund til að vera með. En enginn fór hærra, og Hoen er í vand- ræðum því hann hefur ekki efni á að borga. Hann vonaðist til að geta skilað skyrtunni, því skv. lögum er hægt að skila munum keyptum á úppboði innan 10 daga, ef kaupand- 'anum snýst hugur. íþrmr FOLK H DIEGO Maradona sagðist, eftir leik Argentínu og Astralíu í HM á dögunum, ætla að gefa vini sínum Fidel Kastro, Ieiðtoga Kúbu, keppnistreyjuna sem hann klæddist í leiknum. Það er hins vegar ólíklegt að Kastro geti notað hana; Mara- dona er nefnilega um það bil helm- ingi lægri en leiðtoginn og hefur grennst mikið upp á síðkastið... H STEVE Ovett, breski hlaupar- inn kunni, sem varð Ólympíumeist- ari í 800 m hlaupi í Moskvu 1980 og átti heimsmetið í míluhlaupi um tíma, slasaðist um daginn er bifreið ók á hann á reiðhjóli. Ovett, sem er 38 ára, hefur æft með hjólreiða- félagi í rúmt ár, en hugðist mæta aftur á hlaupabrautina síðar og stefndi á að verða fyrsti fertugi hlauparinn til að fara míluna á innan við fjórum mínútum. Hann slasaðist á fæti í óhappinu og óljóst er hvort hann á afturkvæmt á hlaupabraut- ina. H GUÐNI Kjartansson, þjálfari landsliðs 18 ára og yngri í knatt- spyrnu, fer í dag til Portúgal að fylgjast með tveimur síðustu leikj- unum í 10. riðli Evrópukeppninnar í þessum aldursflokki. Portúgalir leika við Pólverja og síðan við sam- eiginlegt lið Tékka og Slóvaka. Lið Islands leikur við sigurvegarann í riðlinum um sæti í lokakeppninni næsta sumar. H PELE, brasilíski knattspyrnu- kappinn gamalkunni, prýðir greiðslukort sem Mastercard gefur út í tengslum við heimsmeistara- keppnina í Bandaríkjunum næsta sumar, en fyrirtækið er einn af styrktaraðilum keppninnar. „Mér fellur það vel að fjöldi fólks muni ferðast um heiminn með andlit mitt í vasanum," sagði Pele á dögunum, en bætti við að honum þætti minna til koma hve margir ættu eftir að setjast á hann — allir þeir sem geyma veskið í rassvasanum! BIKAR Urslitaleikurinn í bikarkeppni karla í knattspyrnu er há- punktur íslensks íþróttalífs á ári hveiju. Spennan hefst, þegar fyrstu deildar liðin koma inní keppnina, hún eykst með hverri umferð og nær hámarki í viður- eign þeirra tveggja félaga, sem ná alla leið. Undan- farin ár hefur úrslita- leikurinn verið síð- asta sunnudag í ág- úst, en nú vill móta- nefnd breyta fyrir- komulaginu og færa leikinn aftur fyrir síðustu umferð íslandsmótsins — láta bikarúr- slitin fara fram um mánuði síðar en viðgengist hefur. Vel hefur verið staðið að upp- byggingu íslenskrar knattspyrnu og framsýni ráðið ríkjum. I því ljósi er fyrrnefnd tillaga góðrar gjalda verð, en að svo stöddu er hún eingöngu til þess fallin að vekja athygli á þeim takmörkun- um, sem knattspyrnan er háð, og möguleikum, sem bjóðast við breyttar aðstæður. I greinargerð með tillögunni segir að „vegna þátttöku ís- lenskra félaga í forkeppni Evr- ópukeppnanna er nauðsynlegt að endurskoða niðurröðun ieikja í deildarkeppninni í ágúst.“ Skagamenn léku deildarleik mánudaginn 16. ágúst s.l. (átti að vera miðvikudaginn 18. ágúst skv. mótaskrá), Evrópuleik á úti- velli í forkeppni Evrópumóts meistaraliða sunnudaginn 22. ágúst, deildarleik fimmtudaginn 26.ágúst, bikarúrslitaleik sunnu- daginn 29.ágúst, seinni leikinn í forkeppninni miðvikudaginn 1. september og deildarleik í 15. umferð íslandsmótsins laugar- daginn 4. september. Ef hug- mynd mótanefndar hefði verið við líði í haust hefðu Skagamenn leikið deildarleik laugardaginn 11. september, heimaleik í 1. umferð Evrópukeppninnar mið- vikudaginn 15. sptember, deild- arleik laugardaginn 18. septem- ber, síðasta deildarleikinn laug- ardaginn 25. september, útileik í Evrópukeppninni miðvikudag- inn 29. september og bikarúr- slitaleik sunnudaginn 3.október. Eins og sjá má er um sex leiki að ræða á þremur vikum í báðum tilvikum. Ef álagið var of mikið í ágúst, hlýtur sama að eiga við í seinna dæminu. Rökstuðningur mótanefndar stenst því ekki. Annað atriði og veigameira, sem mælir gegn tillögunni, er veðurfarið. Leiðtogar knatt- spyrnunnar eru þekktir fyrir ann- að en að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og hafa komið erfiðum málum í gegn, en þrátt fyrir áræðni og dugnað er ekki á þeirra valdi að stjórna veðrinu. Vissulega geta komið góðir dagar í haustmánuði, en þá er líka allra veðra von og er skemmst að minnast roksins og rigningarinnar í tveimur siðustu umferðum íslandsmótsins. Eins ber að hafa í huga að ljúki bikar- úrslitaleik með jafntefli verður annar leikur að fara fram og ekki fjölgar sólskinsdögunum eftir því sem nær dregur jólum. Formaður KSÍ hefur að und- anförnu vakið athygli á nauðsyn yfirbyggðra valla með framgang knattspymunnar í huga og ef að líkum lætur á vonin eftir að verða að veruleika. Bikarúrslitaleikur í lok tímabils er það sem koma skal, en við óbreyttar* aðstæður er tillaga mótanefndar ekki tíma- bær, því tómt mál er að færa bikarúrslitaleikinn aftur um mánuð fyrr en draumurinn um yfirbyggðan Laugardalsvöll ræt- ist. Steinþór Guðbjartsson Yfirbyggður vöilur er forsenda bikarúrslita- leiks í haustmánuði Hvers vegna kemur RONDEY ROBINSON afturog afturtil íslands? Þarfað sanna mig ROIMDEY Robinson hefur leikið frábæriega með Njarðvíkingum í körfuknattleiknum ívetur og þó svo hann sé ekki „nerna" 196 sentimetrar á hæð gefur hann sér stærri mönnum ekk- ert eftir í fráköstunum. Rondey er að leika hér á landi fjórða keppnistímabilið, en hann kom fyrst hingað til lands til að þjálfa og leika með Njarðvíkingum en hætti fljótlega að þjálfa og snéri sér alfarið að því að spila. Hann er 26 ára, fjölmiðla- fræðingur að mennt og einhleypur. að reyna að komast að hjá ein- hveiju liði á meginlandi Evrópu, eða Bandaríkjunum, ákvað ég að koma hingað — til að byija með. Ég gæti vel hugsað mér að leika annars staðar í Evrópu.“ Síflan eru liðin nokkur ár! „Já ég er að hefja mitt fjórða tímabil með Njarðvík og ástæðan er að mér finnst alltaf að ég þurfi að sanna eitthvað, sýna hvað ég get. Fyrsta árið sem ég var hérna urðum við íslandsmeistarar og árið á eftir bikarmeistarar en í fyrra unnum við ekkert. Það hefur alltaf vantað eitthvað og það væri gaman að hætta hér á landi eftir að við værum búnir að vinna bæði Islands- og bikarmeistaratit- ilinn." Þegar Rondey kom fyrst til landsins var hann aðeins 23ja ára gamall og nýskriðinn út ■■■■■ úr skóla í Banda- Eftir ríkjunum. Hann er Skúla frá Chicago og Unnar körfuknattleikslið Sveinsson borgarinnar, Chicago Bulls, er að sjálfsögðu uppáhaldsliðið hans, en einng Se- attle sem hann heldur að verði meistari í ár. Hvers vegna kemur 23ja ára strákur til Islands að leika körfu- knattieik? „Mér hafði gengið nokkuð vel í háskólaboltanum en meiddist á hné og missti eitt ár úr. Umboðs- maður minn stakk uppá því að ég færi mér rólega og í stað þess Morgunblaðið/Sverrir Rondey Robinson, 26 ára fjölmiðlafræðingur frá Chicago: „Það skiptir miklu máli að hafa viljann til að hafa betur.“ En þú komst upphaflega sem þjálfari og leikmaður. „Já, ég ætlaði að þjálfa en ég var ungur og þetta voru talsverð- ar breytingar fyrir mig, að rífa sig upp frá vinunum heima. Það gekk illa í upphafi hjá okkur og það var ákveðið að skipta um þjálfara og ég yrði bara leikmað- ur. Það gekk miklu betur. Ég er enginn þjálfari." Nú ert þú ekkert sérstaklega hávaxinn mifluð við þá stöðu sem þú leikur. Hvað gerir þú til að standast þér hávaxnari mönnum snúning? „Ég er ekkert að vinna þannig að ég hef nægan tíma til að æfa. Ég reyni að æfa á hveijum degi og síðan eru auðvitað æfingarnar með liðinu. Ég æfi mjög mikið enda held ég að ég þurfi þess til að ná að standa í þeim stóru. Það skiptir líka miklu máli að hafa viljann til að hafa betur.“ Þú ert ekkert að vinna á dag- inn. Hvað gerir þú þá? „Ég æfi mikið eins og ég sagði og svo þvælist maður bara um og hittir vini sína. Ég spila líka dálítið mikið Nintendo." Hvernig kanntu svo við þig hér á landi? „Ég kann vel við mig hérna. Fyrst eftir að ég kom var dálítið áberandi að fólk talaði ekki við mann nema á börum og skemmti- stöðum og helst ekki fyrr en það var búið að fá sér í glas. Núna hefur þetta breyst dálítið enda á ég orðið marga vini hér.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.