Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 274. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993

Forstjóri Granda

Sérstakur

tekjuskatt-

ur á útgerð?

BRYNJÓLFUR Bjarnason, for-

stjóri Granda hf., segir að veiði-

leyfagjald sé ekki tímabært en ef

það verði mat manna síðar að

óþolandi ágóði sé innan útgerðar

þá komi til álita hærri tekjuskatt-

ur fyrirtækja í þeirri grein en al-

mennt gerist. Kom þetta fram á

fundi Félags frjálslyndra jafnað-

armanna í gærkvöldi.

Brynjólfur sagðist telja eðlilegt að

veiðileyfagjald yrði rætt í samhengi

við gjaldtöku fyrir nýtingu auðlinda

almennt þannig til dæmis að gos-

drykkjaframleiðendur greiddu fyrir

vatnið og bændur afréttagjald.

Sagði hann stöðu sjávarútvegs

þannig að hann stæði ekki undir

gjaldtöku núna. „Ef einhver ofsagróði

myndast í þessari atvinnugrein mun

hann koma fram í greiðslu tekju-

skatts. Ég tel jafnvel koma til greina

að þessi fyrirtæki greiði hærri tekju-

skatt en almennt gerist, eftir að tekið

hefur verið tillit til réttlátra arðsemis-

greiðslna til hluthafa, ef það er mat

manna að óþolandi ágóði verði af

starfseminni," sagði Brynjólfur.

Hann sagði ennfremur að sjávar-

útvegsfyrirtæki hefðu fram til þessa

fjárfest í þeirri trú að sérstök skatt-

lagning kæmi ekki til og þess vegna

yrðu þau að fá arð af þeim fjárfest-

ingum á næstu árum áður en veiði-

leyfagjald -kæmi til greina.

~ ¦0B6ONBLASID X		

D.,.,1..   Ucg		_"wa 'vr,rr,

pfS';V-^?':.-^		IHÍJ

1|1		he

HjrHTÍr^i'íxr.rr'^t^iEv-^F     H"*"" ¦		

rj.-gsse?-^|-»" -—¦ ^rrt^..---^ W «»frt«rtr.		

»áa«sp5ggB|Bgg^|: mStSZ		

Forsiða Morgunblaðsins 1.

desember 1918.

Fullveldis-

blaðið 1918

í DAG eru 75 ár liðin frá því

er ísland varð fullvalda ríki. í

tilefni af því fylgir Morgunblað-

inu í dag sérprentun, B-blað, á

21. tölublaði 6. árgangs Morg-

unblaðsins, sem kom út sunnu-

daginn 1. desember 1918 svo og

blaðið, sem kom út daginn eftir,

mánudaginn 2. desember.

Á miðsíðu blaðsins í dag eru

auk þess kaflar úr bók Gíslá

Jónssonar um fullveldisárið og

úr ritinu um Sjálfstæðisflokkinn

gamla eftir Matthías Johannes-

sen. Forystugrein blaðsins heitir:

„Fullveldi íslands 75 ára".

ÞESSI snáði var fús til þess að smakka hákarlinn.

Þjóðernisdagur

í Artúnsskóla

ÞJÓÐERNISDAGUR var haldinn í gær í Ártúnsskóla í tilefni

af fullveldisdeginum. Þetta er í þriðja sinn sem slíkur dagur

er haldinn í skólanum og er tilgangurinn að vekja nemendur

betur til vitundar um ástæður þess að 1. desember er frídagur.

Ellert Borgar Þorvaldsson

skólastjóri Ártúnsskóla sagði í

samtali við Morgunblaðið að hug-

myndin að deginum hefði sprottið

upp hjá kennurum skólans og að

undanfarin ár hefðu ýmsir fletir

á sögu fullveldisins verið teknir

til skoðunar síðasta dag nóvem-

bermánaðar. Að þessu sinni var

lögð áhersla á þjóðlegan mat,

þjóðlegan fatnað, þjóðleg lög og

ljóð,    þjóðdansa    og    þjóðlegar

íþróttir.

Dagskráin fór fram á fimm

stöðum innan skólans. Hægt var

að horfa á glímu, bragða á þjóð-

legum réttum, syngja og dansa

vikivaka og var nemendum skipt

í hópa. Sumir kennara skólans

mættu til vinnu í þjóðbúningi og

einnig fengu nokkrir nemendur

lánaðan fatnað hjá Þjóðdansa-

félaginu. Var krökkunum boðið

upp á slátur, sviðasultu, hákarl,

NEMENDUR og kennarar spá

i glímutökin.

harðfisk, flatkökur með hangi-

kjöti og mysu og áhersla lögð á

að allir smökkuðu á öllu. Var

ekki að sjá annað en að krakkarn-

ir skemmtu sér hið besta.

Halldór Blöndal samgöngumálaráðherra um erfíðleika innanlandsflugs Flugleiða

Ahyggjur af að hluthaf-

arnir endurskoði hug sinn

HALLDÓR Ásgrímsson alþingismaður gagnrýndi harðlega ákvörðun

um 14% virðisaukaskatt á ferðaþjónustu frá næstu áramótum við um-

ræður um frumvarp fjármálaráðherra um breytingar í skattamálum á

Alþingi í gær. Sagði hann að skattlagningin kæmi sérstaklega illa nið-

ur á innanlandsfluginu. Farþegum mundi fækka, þjónustan minnka og

sagði hugsanlegt að Flugleiðir myndu telja sig nauðbeygða að leggja

innanlandsflug félagsins niður.

Halldór Blöndal samgönguráð-

herra sagði að erfiðleikar væru mikl-

ir í innanlandsfluginu m.a. vegna

bættra vegasamgangna og róðurinn

myndi    þyngjast    vegna    upptöku

virðisaukaskattsins, en ekki hefði

verið um marga kosti að velja til að

brúa bil ríkissjóð sem hefði þurft að

taka á sig þungar byrðar frá fortíð-

inni.

„Ég hef af því þungar áhyggjur

að hluthafar í Flugleiðum muni end-

urskoða hug sinn gagnvart því að

láta utanlandsflugið bera uppi þann

mikla halla sem er á innanlandsflug-

inu. Það hefur af þessum sökum

komið upp sú rödd innan félagsins

hvort rétt kunni að vera að skipta

félaginu í tvennt. Við getum líka

velt því fyrir okkur hvort unnt sé

að ná meiri hagræðingu í innanlands-

fluginu því vitanlega skipta vegirnir

verulegu máli um þann fjölda sem

Úrskurður felldur úr gildi

með því fer," sagði Halldór Blöndal.

Hann sagði að ekki lægju fyrir

upplýsingar um afkomu í innanlands-

fluginu á þessu ári en þó mætti

áætla að tapið væri nálægt 3-400

milljónum kr. ef tekið væri mið af

reynslu undanfarinna ára. Sagði

hanh að nú væri unnið að úttekt á

áhrifum af upptöku 14% virðisauka-

skatts á ferðaþjónustuna.

Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi

Flugleiða, sagði að fyrirtæki í innan-

landsflugi töpuðu um 200 millj. -kr.

á ári vegna innanlandsflugsins, sem

væri yfir 10% af veltu. Menn óttuð-

ust nú að markaðurinn myndi drag-

ast saman þegar skatturinn legðist

á en hann gæti kostað flugreksturinn

í heild yfir 100 millj. kr.

AFRYJUNARNEFND samkeppnismála hefur fellt úr gildi úrskurð

Samkeppnisráðs á hendur Myndmarki o.fl., en lögmaður Myndmarks

úfrýjaði máUnu til Afrýjunarnefndar á þeirri forsendu að við meðferð

málsins hafi verið brotinn réttur á úrskurðarþolendum til að tjá sig

um máiið. Á þetta féllst áfrýjunarnefndin og úrskurðaði hún að Sam-

keppnisráð skyldi fjalla um málið á nýjan leik.

Samkeppnisstofnun taldi að mynd-

bandaútgefendur innan Myndmarks

hefðu brotið gegn ákvæðum sam-

keppnislaga með því að hafa breytt

afsláttarkjörum sem áður giltu gagn-

vart myndbandaleigum og með því

að hafa sammælst um mismunandi

afslátt af verði myndbanda til mynd-

bandaleiga eftir því hvort þeir væru

aðilar að Myndmarki eða ekki. Jafn-

framt hafi forsvarsmenn Myndmarks

gerst brotlegir með því að samræma

lágmarksútleigu fyrir myndbönd og

gera það að skilyrði fyrir aðild að

Myndmarki að myndbandaleigur

leigi ekki út myndbönd undir hinu

samræmda lágmarksleigugjaldi. Var

myndbandaútgefendum innan Mynd-

marks og forsvarsmönnum Mynd-

marks gert að láta af hinu ólögmæta

atferli þegar í stað, en að öðrum kosti

myndu samkeppnisyfirvöld beita við-

urlögum í samræmi við 53. grein

samkeppnislaga.         Samkeppnisráð

féllst á þennan úrskurð óbreyttan.

ídag

Vestfjarðagöng

Líkur eru til að Botnsheiðargöng

verði notuð í hugsanlegum neyðartil-

vikum síðla vetrar 24

Áverkar

Averkum eftir ofbeldi hefur fjölgað

um 20% frá árinu 1980 24

W*npf*te&&j	^»J	W

' 'éé		

E&á^	¦**	~c

	>N	' '

r  -3^3ijB' Wi		'

£s~"w\já		¦"*    :       .-:-'—

«£í~ «*"«¦	M	: ii!'i

Slöðuírbnclaoí;	lcleR	

.ift ibn^'i) víiU um land		

.    %            ....		¦' ••¦  ' --;.:'.;

LAMATUR

GJflFIR

rÖNDUR



<¦>

PENNftVINUR

UlliOíbúHlUllótokgrt

Mafian

Réttað eryfír fímm æðstu foringjum

ítölsku mafíunnar á Sikiley 28

Leiðari

Fullveldi Islands 75 ára 30

Úr verínu

? Stöðug bræla og léleg afla-

brögð - Flest kaupskipin skráð

erlendis - Þúsund störf tapast

ef veiðar krókabáta minnka um

helming

Jólamatur ogföndur

? Kryddaðir kaffidrykkir -

Piparkökur - Verðlaunakonf-

ekt - Ensk jólakaka - Jólabrauð

- Jólaskraut - Grillad á gaml-

árskvðld - Nýárshlaðborð

Myndasögur

? Föndur fyrir jólin - Pétur

Oddbergur gefur út sinn eigin

Mogga - Geir Sveinsson - Veistu

svaríð? - Smásagnakeppni -

Búiðtiljólakort

Myndasaga

umGrýlu

MORGUNBLAÐIÐ birtir í dag á

bls. 16 fyrsta hluta nýrrar mynda-

sðgu sem nefnist Grýlugengið.

Þetta er saga Grýlu og bónda

hennar Leppalúða, einnig koma við

sögu synirnir þrettán og jólaköttur-

inn. Sagan birtist í átta skipti, á

miðvikudögum og sunnudögum fram

til jóla. Síðasti hlutinn birtist á að-

fangadag, 24. desember.

Þá mun Grýla telja dagana til jóla

á baksíðu blaðsins þangað til fyrsti

jólasveinninn kemur til byggða, en

þá birtast þeir hver á eftir öðrum

til að telja dagana. Myndirnar eru

teiknaðar af Hollendingnum Leend-

ert Jan Vis.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60