Morgunblaðið - 01.12.1993, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.12.1993, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993 Pétur Pétursson áfrýjar til Hæstaréttar Málið snýst um mannréttindi og* áningar fr elsi PÉTUR Pétursson læknir á Akureyri ætlar að áfrýja til Hæstaréttar tveimur málum sem í voru kveðnir upp dómar í Héraðsdómi Norður- lands eystra nýlega, svokölluðum steramálum, en það höfðaði hópur vaxtarræktarmanna vegna ummæla sem Pétur viðhafði um notkun hormónalyfja í þessari íþróttagrein. Pétur segir þetta mál alls ekki lengur snúast um steramálið heldur um mannréttindi og tjáningarfrelsi. { Héraðsdómi Norðurlands eystra var Pétur sýknaður af fjárkröfum sem vaxtarræktarmenn höfðu gert á hendur honum, en ummæli hans „Mér skilst það, að þeir sem að stunda vaxtarrækt, það heyri til undantekninga að þeir karlmenn séu ekki á sprautum," voru dæmd ómerk, en þessi orð lét hann falla í útvarpsþætti. Ákvörðun refsingar var frestað og og hún látin niður falla að 2 árum liðnum geri Pétur sig ekki sekan um nýtt brot á skil- orðstímanum. í meiðyrðamáli Ólafs Sigurgeirssonar lögmanns vaxtar- ræktarmannanna gegn Pétri voru ýmis ummæli læknisins dæmd ómerk. „Ég ætla að áfrýja báðum málun- um, í fyrra málinu er verið að ómerkja ummæli sem bæði land- læknir og siðanefnd töldu að hefðu við rök að styðjast, ég er sakfelldur fyrir framsetninguna þó refsingu sé frestað, án þess að dómarinn hrekji að ég segi satt. Þessi framsetning var að mínu mati nauðsynleg til að eftir málinu yrði tekið,“ sagði Pétur. Hann telur að verið sé að setja of þröngar skorður þeim sem starfa síns vegna hafa áhuga á að breyta þjóðfélaginu. Eins gott að halda kjafti Pétur segist hafa vænst þess að sú leiðsögn sem íslenskir dómstólar fengu erlendis frá í hliðstæðu máli myndu breyta forneskjulegum dómavenjum hérlendis, en hér heyrði til undantekninga ef ummæli í meið- yrðamálum væru ekki dæmd ómerk. „Það er nauðsynlegt að knýja þetta Birna Helgadóttir. Tónlistarskólinn Heldur burt- farartónleika BIRNA Helgadóttir píanó- leikari heldur tónleika á sal Tónlistarskólans á Akureyri í kvöld, miðvikudagskvöldið 1. desember, og hefjast þeir kl. 20.30. Tónleikamir eru liður í 8. stigs prófi sem Birna er að ljúka, en hún brautskráist frá skólan- um nú í desember. Hún hóf nám hjá Þyri Eydal, en kennarar hennar undanfarið hafa verið þau Helga Bryndís Magnúsdótt- ir og Kristinn Orn Kristinsson. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Baeh, Beethoven, Chopin, Pierné og Prokofieff. mál áfram, þama er verið að vega að tjáningarfrelsi mínu, mér fyndist afar freistandi að ræða um áfengis- og tóbaksmál og margt annað í þjóð- lífinu sem okkur læknum ber að skipta okkur af. Alls staðar eru hagsmunaaðilar og ef alltaf á að hlífa þeim er eins gott að halda kjafti. Þar fyrir utan er greinilegt að menn mega ekki krydda, beita stílbrögðum eða ræðutæknilegum blæbrigðum málsins sem eftirminni- leg em, þá eiga menn á hættu að gegn þeim verði höfðað mál,“ sagði Pétur. „Með þessum dómum er verið að hindra mig í að nota þær aðferð- ir sem ég veit að bera árangur." Morgunblaðiö/Magnús J. Mikaelsson Þökulagt í nóvemberlok ÍBÚAR á norðanverðu landinu geta varla kvartað undan veðrinu síðustu vikurnar, en í nýliðnum nóvember- mánuði hefur oft verið álíka hlýtt ef ekki hlýrra en var á hinu hráslagalega sumri. Starfsmenn Híseyjar- hrepps, Þorgeir Jónsson og Bjarni Thorarensen, voru í gær að ljúka við að leggja þökur við Miðbraut, en við slík störf er líklega sjaldnast unnið á þessum árstíma. Götur í eynni voru hellulagðar fyrr í haust og þöku- lagningin er liður í frágangi þess verkefnis. Fjármunum ÚA ekki stefnt í hættu þó hallarekstur sé á þýsku útgerðinni Akvæði í kaupsamningi heimila félagsslit við rýrnun eigin fjár FREISTA á þess á fundi forráðamanna Útgerðarfélags Akureyringa með forsvarsmönnum Treuhandanstalt, þýsku einkavæðingarnefnd- inni, í næstu viku að fá samning um kaup meirihluta ÚA í þýska fyrir- tækinu Mecklenburger Hochseefischerei, MHF, endurskoðaðan. Aætl- anir um reksturinn hafa ekki staðist og er mikill hallarekstur á félag- inu. Ákvæði eru í kaupsamningi þess efnis að lækki eigið fé MHF niður í 920 milljónir króna skuli félaginu slitið komi fram krafa þar um frá einhverjum hluthafanna. Forráðame'nn ÚA telja að misskiln- ings gæti um rekstur MHF í Þýska- landi og tengsl afkomu þess við af- komu ÚA. Þó svo að tap verði á rekstri þýska fyrirtækisms snerti það á engan hátt afkomu ÚA, þar sem samkvæmt úrskurði endurskoðenda félagsins verði ekki um samstæðu- uppgjör að ræða. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem forráðamenn ÚA_ efndu til síðdegis í gær. Útgerðarfélag Akureyringa á 60% í þýska félaginu á móti þýskum aðil- um og í hluthafasamkomulagi eru ákvæði sem heimila ÚA eða öðrum hluthöfum að slíta félaginu til að koma í veg fyrir að kaupverð hluta- bréfa í MHF tapist. Bókfært eigið fé MHF var 1. apríl síðstliðinn 29,9 milljónir marka eða um 1.250 millj- ónir íslenskra króna og er talið að bókfært verð fjármuna félagsins sé nálægt markaðsverði þeirra. Ákvæði eru í kaupsamningi um að ef eigið fé MHF lækki niður í 22 milljónir marka, 920 milljónir íslenskra króna, skuli félaginu slitið komi fram krafa um það frá einhverjum hluthafa. Engin áform um að slíta félaginu Forráðamenn ÚA vilja ekki stað- festa að tap þýska fyrirtækisins eft- ir fyrstu 7 mánuðina sé 7 milljónir marka, eða 300 milljónir, og segja að endanleg niðurstaða á rekstri þess ráðist að mikiu leyti á því á hvaða verði afurðabirgðir muni selj- ast, en þær séu miklar. Fram kom á fundinum að kaupverð hlutabréfa í þýska félaginu var um 420 milljón- ir króna og að ólíklegt væri með til- liti til ákvæða um slit félagsins að ÚA muni bera beint ijárhagslegt tjón af kaupum hiutabréfanna, en á þess- ari stundu séu engin áform uppi um að hætta rekstri þýska fyrirtækis- ins. Vilji sé til þess að reka féiagið áfram og á fundi með einkavæð- ingarnefndinni í Þýskalandi næst- komandi mánudag eigi að freista þess að ná fram endurskoðun á kaupsamningi í ljósi breyttra að- stæðna og á þann hátt að koma rekstrinum í betra horf. Gert er ráð fyrir að hagnaður af rekstri Útgerðarfélags Akureyringa verði á bilinu 50 til 60 milljónir króna á þessu ári og hefur tap MHF engin áhrif á afkomu þess. Evrópsk myndlistasamkeppni ungs fólks á vegum JC-Akureyri Vetrarmyndir eda jólahald frá íslandi JUNIOR Chamber-Akureyri hefur boðist að taka þátt í evrópskri myndlistasamkeppni ungs fólks undir 25 ára aldri og er öllum heimil þátttaka. Myndefnið á að tengjast jólahaldi eða vetri á ís- landi. Staða rektors Haskólans laus til umsóknar Haraldur Bessason sæk- ir um endurráðningn HARALDUR Bessason núverandi rektor Háskólans á Akureyri ætlar að sækja um endurráðningu í embætti háskólarektors. Staða háskólarektors við Há- skólann á Akureyri hefur verið auglýst laus til umsóknar, en sam- kvæmt lögum um skólann skal auglýsa embættið á fimm ára fresti. Sá rektor sem situr í emb- ætti getur sóst eftir endurráðn- ingu að nýju til fimm ára. „Ég ætla að sækja um endur- ráðningu, ég hef ekki enn sent inn umsókn mína, en geri það í tæka tíð áður en umsóknarfrestur renn- ur út,“ sagði Haraldur, en frestur tii að sækja um stöðuna rennur út 10. janúar næstkomandi. Haraldur var forstöðumaður Háskóians á Akureyri fyrsta starfsár hans, síðan settur rektor til eins áre, þá var hann skipaður í stöðuna til fimm ára og rennur sá starfstími út í lok maí á næsta ári. Myndirnar sem berast í keppn- ina verða sendar til Englands þar sem haldnar verða sýningar á verkunum. Sýningargestir verða hvattir til að senda kort með vinar- kveðju til uppáhaldslistamanns síns. Vaiin verður besta mynd keppninnar og viðurkenning send til þess er hana gerði. Þetta er evrópskt verkefni sem JC í Englandi stendur fyrir með þátttöku allra Evrópulanda. Megintilgangur þess er að kynna löndin, jólahald og siði og þykir JC-félögum á Akureyri mikilvægt að íslendingar taki þátt í þessu verkefni. Senda á myndiniar til Junior Camber — Kristínar Þórisdóttur, Lundargötu 12 á Akureyri. Skila- frestur er til 10. desember næst- komandi og verða myndirnar að vera vel merktar, nafn, kyn, ald- ur, heimilisfang og tungumál á bakhlið myndanna. Takist vel til verða myndir sem berast sýndar á markaði JC að Furuvöllum 13. Zykk-Zakk á Pollinum HLJÓMSVEITIN Zykk-Zakk heldur tónleikar á Pollinum í kvöld, miðvikudagskvöldið 1. desember og hefjast þeir kl. 22. Hljómsveitin er um það bil árs gömul, en hana skipa þrír lands- þekktir tónlistarmenn, þeir Krist- ján Edelstein gítarleikari, Sigfús Óttarsson trommuleikari og Pálmi Gunnarsson bassaleikari. Á efnis- skrá þeirra eru einkum frumsamin instrumental lög, en þeir félagar fara um víðan völl í stefnum og stílum. (Fréttatilkynning.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.