MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993 29 Lögum líknardráp í Hollandi ÖLDUNGADEILD hollenska þingsins samþykkti í gær um- deilda áætlun um líknardráp og hvaða reglur skuli um það gilda. Var það samþykkt með 37 at- kvæðum gegn 34 og er þá ekkert í vegi fyrir því, að ríkisstjórnin leggi fram lagafrumvarp um líkn- ardráp og er það fyrirhugað í janúar næstkomandi. Stórgræða á tapinu KVIKMYNDIN Batman, sem rakað hefur saman meira en 80 milljörðum ísl. kr. í hagnað síðan hún var sýnd árið 1989, er samt enn 730 milljónir kr. í mínus á pappírunum. Kom þetta fram hjá íögfræðingi Batfilm Productions, fyrirtækis, sem hafði einkarétt á Leðurblökumanninum, en hann hefur höfðað mál á hendur Warn- er Bros, framleiðanda kvikmynd- arinnar, og heldur því fram, að það hafi haft gífurlegt fé af um- bjóðanda sínum með bókhaldsb- rellum. Samkvæmt samningi fyr- irtækjanna átti Batfilm að fá 300.000 dollara og 13% af hagn- aði af myndinni en samkvæmt bókhaldinu hjá Warner Bros er hann enginn, heldur stórtap. Langlífir Kín- verjar GONG Laifa, sem er 131 árs gamall og elsti karl í Kína, þakk- ar langlífi sitt reglu- og iðjusemi og ekki síst einlífinu en hann hefur alla tíð verið ókvæntur. Síðustu 100 árin hefur líf hans verið í föstum skorðum og hver dagur öðrum líkur," sagði í Kín- verska dagblaðinu en Gong vann til skamms tíma 11 tíma á dag á hrísgrjónakrinum sínum í Guiz- hou-héraði. Kong Ying, elsta kon- an í Kína, 122 ára, neitar sér hins vegar ekki um lífsins listi- semdir og er mikil matarmann- eskja. Streitan bug- ar Holst JOHAN Jörgen Holst, utanríkis- ráðherra Noregs, sem átti mikinn þátt í friðarsamkomulagi ísraela og Palestínumanna, er kominn á sjúkrahús vegna streitu og álags. Varð hann að hætta við fyrirhug- aða þátttöku í fundi RÖSE í Róm í gær og í dag og fundi utanríkis- ráðherra NATO í Brussel á morg- un og á föstudag. Þá hefur hann einnig aflýst Fraklandsferð um helgina. Holst hefur verið ákaf- lega önnum kafinn utanlands sem innan undanfarnar vikur. Lausir úr haldi hjá Tyrkjum TYRKNESKUR dómstóll ákvað í gær að leysa sex stuðningsmenn breska fótboltaliðsins Manchest- er United úr haldi en þeir voru handteknir fyrir leik liðsins gegn tyrkneska liðinu Galatasray í Evrópubikarkeppninni þann 3. nóvember sl. Bretarnir sex voru sakaðir um ölvun og óspektir á almannafæri og skemmdarverk. Á myndinni má sjá lögmann sex- menninganna lengst til vinstri hlýða á úrskurð dómarans en aftar sitja bresku sakborningarn- ir, sem voru frelsinu mjög fegnir enda eru fangelsin í Tyrklandi ekki kunn fyrir að búa vel að vistmönnum sínum. Reuter. Skoðanakannanir í Rússlandi fyrir kosningarnar 12. desember Umbótaflokkar með mikla yfirburði í stórborgunum Moskvu. The Daily Telegraph, Reuter. KJÖRDAGUR nálgast óðum í Rússlandi og línur eru að skýrast hvað snertir samsetningu nýja þingsins. Lítið er samt vitað um afstöðu fólks í afskekktum byggðum og sveitum en talið víst að þar eigi kommúnist- ar og þjóðernissinnar mun meiri stuðning en í borgunum. I skoðana- könnun sem danska Gallup-stofnunin gerði í samvinnu við rússneska kannanafyrirtækið VCIOM fyrir nokkrum dögum í 24 borgum kom fram að stærsti fiokkurinn, Valkostur Rússlands, með umbótasinnann Jegor Gajdar aðstoðarforsætisráðherra í fararbroddi, hefur þar 29,2% fylgi. Næstur í röðinni er annar umbótaflokkur undir forystu Grígorís Javlínskís hagfræðings, með 20,5% fylgi, þriðji er kommúnistaflokkur- inn, 7,7%, og í fjórða sæti er fremur afturhaldssamur flokkur, Lýðræð- isflokkur Rússlands, með 7,3%. Nokkrir þekktir harðlínukommúnistar frá sovétskeiðinu eru taldir öruggir um þingsæti. Vladímír Zhírínovskí Anatólí Lúkjanov Anatólí Lúkjanov, forseti sovéska Æðsta ráðsins, var talinn helsti leið- togi valdaránsins í ágúst 1991 þótt hann styddi það ekki opinberlega. Hann á yfir höfði sér þungan dóm, jafnvel dauðarefsingu ef hann verður fundinn sekur en kosningarnar gætu flækt málið. Lúkjanov býður sig fram í Smolensk þar sem margir hafa misst vinnuna vegna hruns Sovétríkj- anna og hugsa því umbótasinnum þegjandi þörfiná. Einnig ér Lúkjanov svo ofarlega á landslista kommúnista að hann er nær öruggur um þing- sæti og yrði því að svipta hann þing- helgi til að dæma hann. Sumir heim- ildarmenn telja að Borís N. Jeltsín forseti muni jafnvel gefa út sérstaka tilskipun til að hindra Lúkjanov í að ná kjöri. Grígorí Javlínskí var um hríð með- al ráðgjafa Míkhaíls Gorbatsjovs, síð- asta Sovétforsetans sem nú hamast gegn Jeltsín og umbótastefnu hans í fyrirlestrum á Vesturlöndum. Javl- ínskí nýtur mikillar virðingar þrátt fyrir ungan aldur. Hann segist ekkí óttast að Jeltsín muni misnota vænt- anlega stjórnarskrá þar sem gert er ráð fyrir geysimiklum völdum for- setaembættisins. En verði nýr for- seti kjörinn gæti það orðið aftur- haldsmaður. Við ríkjandi aðstæður í landinu gæti stjórnarskráin orðið stórhættulegt tæki". Ástir og örlög Zhírínovskís Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn fékk 3,4% í áðurnefndri könnun. Hann stendur ekki undir nafni að mati Vesturlandabúa, stefnan er sambland af nýfasisma og rúss- neskri þjóðrembu. Vladímír Volfo- vítsj Zhírínovskí, leiðtogi flokksins, fékk um 10% atkvæða þegar hann bauð sig fram í forsetakjörinu 1991, þá sigraði Jeltsín. Zhírínovskí er fullur eldmóðs og segist dreyma um þann dag er rúss- neskir hermenn geta þvegið stígvélin sín í Indlandshafi", að sú stund renni upp að umheimurinn beri á ný virð- ingu fyrir Moskvuvaldinu og óttist það. Hann segist vera hófsamur á öllum sviðum" en sé fastur fyrir þeg- ar hagsmunum rikisins sé ógnað. Á fundi með fréttamanni gengur hann skyndilega að landakorti, bendir á gömlu sovétlöndin, vesturhluta Tyrk- lands, Afganistan og íran. Við munum rita orðið Rússland" gullnu letri hérna". Hann stærir sig af því að hafa aldrei verið kommúnisti, segir bolsé- vikka hafa rænt völdunum 1917 og nauðgað þjóðinni, Stalín hafa mis- þyrmt eigin flokki og þjóð. Leiðtogar eftir daga Stalíns hafi eingöngu hugsað um að skara eld að eigin köku. Zhírínovskí studdi Jeltsín í slagnum við þingið í haust og virðist bera óttablandna virðingu fyrir for- setanum, skríður bókstaflega fyrir honum á fundum. Hann styður ein- dregið stjórnarskrárdrög Jeltsíns, segir þau í samræmi við stefnu sína um sterkt forsetavald. Zhírínovskí, sem er 47 ára gam- all, reynir að fiska í gruggugu vatni, höfðar fyrst og fremst til þeirra sem deila með honum vonbrigðum og særðu stolti þjóðernissinnans sem svíður að föðurlandið skuli ekki leng- ur vera risaveldi. Hann hefur ritað bók um einmanalega ævi sína, kulda samferðamannanna og ástarsorgir. Ég ólst upp í veröld þar sem hvergi var hlýju að finna, ekki frá foreldrum mínum, heldur ekki vinum eða kennurum. Mér fannst einhvern veginn að ég væri óþarfur, alltaf fyrir öllum, að sífellt væri verið að hnýta í mig... Ef ég hefði fundið ástríka konu hefði ég ef til vill getað eytt helmingnum af orkunni eða mestum hluta hennar í hana". Samhjálp kvenna W KAFFIKVOLD A AÐVENTU Stuðningshópur kvenna sem gengist hafa undir aðgerð vegna brjóstakrabbarneins bjóða á kaffikvöld í Skógarhlíð 8, f húsi Krabbameinsfélagsins á fimmtudaginn 2. desember, ki. 20.30. Gestur kvöldsins, séra Auður Eir Vilhjáimsdóttir, flytur hugvekju. Allir veikomnír Kaffiveitingar am*k H .,,¦! i ¦¦i - M,- 1 w ¦ ¦ K, j HUSIN OG GOTURNAR EFTIR KRISTJAN ÞORD HRAFNSSON Kristján ÞórÖur Hrafnsson er fæddur áriÖ 1968. Hann hefur numio bókmenntir í Bandaríkjunum, á íslandi og í Frakklandi og hefur áöur sent frá sér eina Ijóöabók, / öðrum ski/ningi, ário 1989. Auk þess hefur hann birt Ijóö og þýÖingar á Ijóöum liÖinna alda í blöÖum, tímaritum og safnritum skálda. Ljóo Kristjáns Þóröar eru bæoi háttbundin og í frjálsu formi. ',s^«^%Hrafsson Athyglisvero^\ tj^ eWr ungan höH»^° ALMENNABOKAFELAGIÐ HF