Morgunblaðið - 01.12.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.12.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER' 1993 JfcriptjMsiMí Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. A Fullveldi Islands 75 ára Það sem vekur einna mesta athygli þegar litið er á sam- bandslagasáttmálann milli íslands og Danmerkur 1918, aðdraganda hans og niðurstöður, er greinar- gerð sem íslenzka sambandslaga- nefndin ritaði fyrir dönsku nefnd- armennina og lagði fyrir þá sem grundvöll að samningum eða eins- konar forsendur þeirra krafna ís- lendinga að þeir hlytu fullveldi og hefðu eigi önnur tengsl við Dan- mörku en konungssamband. Þar er sú yfirlýsing að íslenzka þjóðin hafi ein allra germanskra þjóða varðveitt hina fomu tungu sem tíðkaðist um öll Norðurlönd þús- und áram áður og hún sé svo lítið breytt „að hver íslenzkur maður skilur enn í dag og getur hagnýtt sér til hlítar bókmenntafjársjóði hinnar fornu menningar vorrar og annarra Norðurlandaþjóða." Það sé með tungunni sem sérstakt þjóðerni, sérstakir siðir og sérstök menning hafí varðveitzt, eins og komizt er að orði í þessum grund- vallardrögum, og er þá í senn litið um öxl en þó ekki síður fram á veginn og stefnt að því marki sem öllu er æðra; að varðveita þessa arfleifð, þesáa menningu, þessa tungu og ávaxta arfleifðina eins og efni standa til í nýjum heimi. Þessi framtíðarsýn er þeim mun mikilvægari sem hún- er studd sterkum þjóðemislegum rökum sem hafa verið þjóðinni mikilvægt veganesti án hroka_ eða yfírgangs með neinum hætti. í þessum mikil- vægu grundvallarforsendum ís- lenzku sambandslaganefndarinn- ar er beinlínis fullyrt að meðvit- undin um sérstöðu landsins gagn- vart frændþjóðum hafi ávallt lifað með þjóðinni vegna tungunnar og hvemig hún hefur varðveitzt og borið ávöxt á göngunni miklu frá landnámi til fullveldis. „Þessi at- riði, sérstök tunga og sérstök menning, teljum vér skapa oss sögulegan og eðlilegan rétt til fullkomins sjálfstæðis.“ Síðan er fjallað um aðra þætti sjálfstæðis- baráttunnar og sjálfstæðisþarfír þjóðarinnar eins og komizt er að orði og bent á að verklegir þættir hafa „þá jafnframt eðlilega eflt sjálfstæðisþrá hennar, og hún er sannfærð um það, að fullkomið sjálfstæði er nauðsynlegt skilyrði þess, að hún hafí náð því verkefni í verklegum og andlegum efnum sem hún keppir að.“ Þá er lögð áherzla á að ísland verði fullvalda ríki og sameigin- legt mál beggja ríkjanna, Dan- merkur og Íslands, sé aðeins kon- ungur og konungserfðir en öll önnur mál hvors ríkis um sig séu sérmál. Um þetta urðu að sjálffeögðu margvíslegar deilur og það er rangt sem ýmsir halda að fullveldi eða sjálfstæði Islands hafí legið í loftinu þegar samningaumræður hófust 1918. Það var langurteym- ingur eftir að markinu. En ís- lenzku samninganefndarmennirn- ir létu engan bilbug á sér finna og lögðu fram því mikilvægari rök sem andófið var harðvítugra. Sambandslagasáttmálinn 1918 náðist undir forystu heimastjórn- armanna þó að forystumenn gamla Sjálfstæðisflokksins hefðu einatt lagt áherslu á ýtrastu kröf- ur í þessu máli. En Dönum þókn- aðist ekki að ræða við þá eins og heimastjórnarmenn sem voru hóf- samari í kröfum en náðu þeim mun betri árangri þegar upp var staðið. Jón Magnússon forsætisráð- herra var heimastjómarmaður og eins og segir í ritinu: „Klofningur Sjálfstæðisflokksins gamla 1915, undanfari og afleiðing“, var Jó- hannes Jóhannesson forseti Sam- einaðs þings og formaður íslenzku sambandslaganefndarinnar einnig fylgjandi Heimastjómarflokknum þegar hér var komið sögu. „En sú staðreynd er einnig athyglis- verð, og e.t.v. táknræn, þegar lit- ið er yfír sögu þessa tímabils, að ísland nær fullveldi'sínu í stjórn- artíð Jóns Magnússonar, gamal- gróins heimastjórnarmanns og samheija Hannesar Hafsteins, en formaður íslenzku sambandslaga- nefndarinnar er Jóhannes Jóhann- esson, sem mjög kom við sögu Uppkastsins, yfirgefur sjálfstæð- ismenn, hallast að stefnu Hannes- ar og hafnar að lokum í röðum heimastjórnarmanna.“ Það var undir forystu þessara manna sem íslendingar fengu fullveldi sitt og fullt sjálfstæði aldarfjórðungi síð- ar. Eitt helzta ágreiningsefni milli íslendinga og Dana í sambands- laganefndinni var svokallaður þegnréttur. Danir óskuðu eftir því að þegnar hvors ríkis um sig skyldu hafa jafnrétti í hinu land- inu við þegna þess og hvorir um sig, án tillits til heimilisfangs, hafa rétt til fiskveiða í landhelgi ríkjanna. Á þetta áttu íslendingar erfitt með að fallast og samnin- gaumleitanir gengu stirðlega næstu daga enda bar þá mikið á milli eins og gerðabækur nefnd- anna bera með sér. En þá vora lagðar fram skýringar og uppköst að sambandslögum af beggja hálfu, en um tíma óttuðust nefnd- armenn að tilraunir til samninga yrðu árangurslausar. í fyrmefndu riti um Sjálfstæð- isflokkinn gamla er haft eftir Lár- usi Jóhannessyni hæstaréttar- dómara, syni Jóhannesar Jóhann- essonar, að það hafi oftar en einu sinni komið fyrir þegar allt var komið í strand „að fundi var frest- að eða slitið (fundimir vora haldn- ir í alþingishúsinu) og bauð þá faðir minn, sem bjó í næsta húsi (Þórshamri) dönsku nefndar- mönnunum að drekka með sér kaffí. Hvort það var tilviljun eða ekki, skal ég láta ósagt,* en þá vildi venjulega svo til, að vinur hans, Jón Magnússon, forsætis- ráðherra, rakst inn, jafnvel bak- a 3i dyramegin, og tók þátt í kaffí- drykkjunni. Ég skal ekkert segja um það, hvaða áhrif þetta hefur haft á gang mála í sambandslaga- nefndinni, en mikið af vinnunni fór fram bak við tjöldin.“ Og um þegnréttinn segir svo í fyrrnefndu riti að jafnaðarmenn í Danmörku höfðu verið afskipta- litlir um sjálfstæði íslands og skilningur þeirra takmarkaður, enda gerðu þeir ráð fyrir því að íslendingar ættu auðvelt með að sætta sig við sameiginlegan þegn- rétt. „En það lá auðvitað víðs- fjarri íslendingum, svo miklu fá- mennari þjóð, að fallast á slíka lausn. Borbjerg, fulltrúi danskra jafnaðarmanna, varð þess fljótt vísari er hann kom til íslands að taka þátt í störfum sambands- laganefndarinnar 1918, því hann kallaði fulltrúa verkamanna á al- þingi, Jörund Brynjólfsson, á sinn fund og bjóst við að hann mundi fallast á sameiginlegan þegnrétt, en Jörundur aftók það með öllu, svo að ekki fór á milli mála.“ Sá eini þingmaður sem greiddi atkvæði gegn Sambandslagasátt- málanum, Benedikt Sveinsson, lagðist einkum og sér í lagi gegn gagnkvæmum þegnrétti Dana og Islendinga eins og fyrir var mælt í sáttmálanum. (II. kafli, 6. grein.) Er það ekki sízt til íhugunar nú þegar talað er um að við Islend- ingar ættum að sækja um aðild að Evrópubandalaginu. En þessi gagnkvæmi þegnréttur íslendinga og Dana hefur aldrei komið að sök vegna þess að Danir hafa aldr- ei sótt á íslenzk mið og veiðar Færeyinga hafa verið samkomu- lagsatriði milli þeirra og okkar. Þessi gagnkvæmi þegnréttur var íslendingum aldrei skeinuhætt atriði í sáttmálanum en þó væri það fremur íhugunarefni nú á tím- um þegar fjarlægðin er minni en áður og einangran landsins er með öllu rofín. Því er ekki víst að íslenzku nefndarmennimir hefðu samþykkt gagnkvæman þegnrétt ef þeir hefðu þurft að horfast í augu við aðstæður sem nú blasa við hér sem annars staðar. Það er athyglisvert að sjá hvernig arfleifð okkar, tunga og menning, hafa ávallt verið undir- staða og bakhjarl í sjálfstæðisbar- áttu þjóðarinnar og það kom ekki sízt fram í baráttunni um físk- veiðilögsöguna. Þessi mikilvægu rök vógu þyngst í þorskastríðum og þegar handritin komu heim. Jón Sigurðsson fullyrti að tungan væri grundvöllur sjálf- stæðiskrafna okkar og talaði um rétt tungunnar. Okkur er hollt að minnast þess í dag þegar að henni er vegið og erlend áhrif flæða yfir landið, ekki sízt í ljósvökunum sem virðast telja íslenzka tungu og menningu þola ótakmörkuð áhrif erlendrar síbylju. Sjálfstæð- isbarátta okkar nú og næstu ára- tugi verður áreiðanlega ekki sízt fólgin í því að finna leið til áð drepa þessum áhrifum á dreif og breyta yfírþyrmandi flæði í hóf- legan skammt af þolanlegu áreiti. Ef við rötum meðalhófið í þessum efnum og berum gæfu til þess að velja sjálf úr eins og við höfum ávallt gert þegar erlend menning hefur auðgað íslenzka arfleifð og ef við stöndum vörð um þegnrétt- inn, ekki sízt gagnvart ásókn Evrópubandalagsríkja í fiskveiði- réttindi hér við land, þá má ætla að við berum gæfu til þess að ávaxta fullveldið eins og efni standa til og af okkur er ætlazt. Við stöndum ekki einungis í þakk- arskuld við þá sem leiddu þjóðina úr einveldi til alfrelsis, heldur eig- um við skyldum að gegna við óvenjulega arfleifð okkar og þá framtíð sem vitjar okkar, nú og ávallt, þrátt fyrir erfiðleika, afla- brest, efnahagslegan samdrátt og menningarlega kreppu í yfirborðs- legum og aðgangshörðum heimi meðalmennsku og markaðslög- mála sem gera lítinn greinarmun á viðskiptum og verðmætum. Nýi sáttmáli 1918 Kaflar úr bók Gísla Jónssonar um fullveldisárið 1918 „Stærsta fyrirsögn ársins NÝI SÁTTMÁLI, meiri frétt en styrj- aldarlok, Kötlugos og drepsóttin mikla, er yfir þvera forsíðu á aukablaði Morgunblaðsins laug- ardaginn 27. júlí [1918], en þá fyrst gátu íslenzku blöðin birt frumvarp nefndanna, endajgerðu þau það nær öll, Fréttir, Isafold og Morgunblaðið einnig danska textann," segir Gísli Jónsson menntaskólakennari í bók sinni, „1918, Fullveldi íslands 50 ára 1. desember 1968,“ sem Almenna bókafélagið gaf út það ár. Með sambandslögunum 1918 var Island viðurkennt frjálst og fullvalda ríki „í sambandi um einn og sama konung og um samning þann sem felst í þessum sambandslögum". Danmörk fór áfram með utanríkis- mál íslands í umboði þess, hafði á hendi gæzlu fiskveiðilandhelgi okkar, ríkisborgararéttur var aðskilinn en gagnkvæmur og Hæstiréttur Dana hafði á hendi æðsta dómsvald í ís- lenzkum málum unz Hæstiréttur ís- lands var stofnaður. í sambandslög- unum var og kveðið á um það að þing hvorrar þjóðar gat krafízt end- urskoðunar sambandslaganna eftir árslok 1940, en væri nýr samningur ekki gerður innan þriggja ára frá því krafa kom fram, gátu þingin fellt hann úr gildi. Sambandslögin voru samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu 19. október 1918 með 12.411 at- kvæðum en 999 voru á móti. Kosn- ingaþátttaka var aðeins 43,8%, en „spanska veikin“, „frostaveturinn mikli“ og Kötlugos, sem hófst sjö dögum fyrir kjördag, hafa trúlega haft sitt að segja í þeim efnum. Matthías Johannessen, ritstjóri, segir í eftirmála með ritgerð um sjálf- stæðisbaráttuna fram til 1918, sem birt var í Lesbók Morgunblaðsins 1970 en kom síðar út á bók: „Þegar ég samdi ritgerðina um sjálfstæðisbaráttuna fram til 1918, hafði ég ekki þessi skjöl undir hönd- um [trúnaðarskjöl sambandslaga- nefndarinnar]. Þykir mér því rétt að geta helztu atriða þeirra nú, til við- bótar því, sem segir í ritgerðinni. Ættu þessi atriði að varpa nokkru ljósi á þá miklu vinnu og það óvenju- lega þrek, sem krafízt var af þeim mönnum, sem sátu í Sambandslaga- nefndinni 1918 og náðu svo undra- verðum árangi, sem raun ber vitni. Samningaviðræðurnar hófust sízt af öllu með þeim hætti, að unnt væri að gera ráð fyrir því, að þær leiddu til sjálfstæðis íslands. Sú varð þó raunin. Ástæða er til að taka undir lokaorðin í Skímisgrein Einars Arn- órssonar. Hann segir: „Og er það trúa mín, að ef þingið hér eftir fer ekki verr með fullveldismál landsins en þinggð 1918, þá muni vel fara.“ Hér fara á eftir nokkrir kaflar úr bók Gísla Jónssonar, 1918, m. a. um aðdraganda sambandslagasamnings- ins og undirtektir við hann. Nýi sáttmáli „Nefndirnar komu svo saman til 10. fundar á venjulegum tíma á mið- vikudag. Höfðu þá Danir fallizt á breytingartillögur þær, er Einar Am- órsson lýsti daginn áður, hina þriðju þó þannig, að eftir árslok 1940 mætti krefjast endurskoðunar o.s.frv. Féllust íslenzku nefndar- mennirnir á það. Sömuleiðis hafði undirnefndin gengið frá nýju upp- kasti að athugasemdum. Var sjálft frumvarpið lagt fram prentað á dönsku. Segir Einar Arnórsson, að fullt samkomulag hafi nú verið um hvort tveggja, nema hvað Bjarni frá Vogi hafi enn þurft að ræða málið með flokksmönnum sinum, áður en hann tæki úrslitaafstöðu. En það segist Einar ekki hafa verið í vafa um, að þá vildi Bjarni sjálfur taka því, sem samkomulag var orðið um. Ljóst er, að Bjarni hefur átt lang- erfiðasta aðstöðu þeirra nefndar- manna gagnvart sínum flokksbræðr- um. Sjálfur hafði hann löngum verið talinn einhver kröfuharðasti og óbil- gjamasti stjómmálamaður á Islandi gagnvart Dönum. Nú hafði hann lagt á sig geysilegt erfiði, til þess að við- unandi samningar næðust, og fund- izt, ekki að ástæðulausu, að furðu mikið hefði á unnizt. Mun honum því hafa hugnazt það all-lítt, ef flokksbræður hans ætluðu á síðustu stundu að rjúfa einingu um skaplega niðurstöðu. Nefndarfundi var nú frestað til klukkan 8 um kvöldið, til þess að Bjarni gæti ráðgazt við flokksbræður sína. Verður ekki glöggt vitað, hvað gerðist á þeim fundi, annað en niður- staðan, en hún var á þá leið, að allir hétu framvarpinu stuðningi sínum, nema Benedikt Sveinsson og Magnús Torfason. Áskildu þeir sér fijálsar hendur í málinu, og var hvort tveggja, að þeir voru óánægðir með ýmis efnisatriði samkomulagsins, eins og þeir síðar gerðu grein fyrir á Alþingi, og auk þess mun þeim hafa þótt á skorta, að þeir fengju að fylgjast nógu náið með gangi mála í samninganefndinni. Þetta kvöld talaði Borgbjerg á fundi Alþýðuflokksins í Góðtempl- arahúsinu um jafnaðarstefnuna. Var húsfyllir, og fékk hann hinar beztu undirtektir, ekki sízt er hann til- kynnti fundarmönnum, að algert samkomulag væri komið á milli samninganefndarinnar dönsku og Alþingis. Málalyktir Frumvarpið var nú prentað og sent ráðherrum og þingmönnum. Var síðan skotið á lokuðum þingfundi til þess að kanna afstöðu alls þing- heims. Segir Einar Arnórsson, að umræður hafí ekki orðið langar og fátt gerzt þar sögulegt. Frumvarpið var borið undir atkvæði og samþykkt með 38 atkvæðum, að viðhöfðu nafnakalli. Benedikt Sveinsson og Magnús Torfason greiddu ekki at- kvæði. Nú var tekið til við að gera hinn íslenzka texta frumvarpsins og at- hugasemdanna. Var það falið ritara MORGUNBLAÐID USJUIL*# lýi sáttmáli Forsíða Morgunblaðsins 27. júlí 1918. dönsku nefndarinnar, Magnúsi Jóns- syni, ásamt þeim Bjarna frá Vogi og Einari Arnórssyni, og var þetta gert fyrri hluta dags daginn eftir. Ákveðið var, að hvorir tveggja nefnd- armennirnir undirrituðu báða text- ana, og varð nú „að hafa mjög hrað- an á, því að dönsku nefndarmennirn- ir voru allheimfúsir, enda létust þeir hafa dvalist hér lengri tíma en ætl- azt hefði verið til í öndverðu. Vegna flýtis þess, sem á var hafður, varð íslenzki textinn eigi eins málfágaður og vert hefði verið,“ segir Einar Arnórsson. Ellefti og síðasti nefndarfundurinn var svo haldinn þennan dag, fímmtu- daginn 18. júlí, klukkan tvö, og var Jóhannes Jóhannesson í forsæti. Þar var skýrt frá atkvæðagreiðslunni í Alþingi. Undirrituðu nú allir nefndar- menn bæði íslenzka og danska text- ann ásamt athugasemdunum. Var þar með lokið miklu og erfiðu starfí, þar sem mjög hafði reynt á staðfestu, þolgæði, lipurð og hugkvæmni, og árangurinn betri en menn höfðu lengi getað búizt við, enda samkomulags- viljinn mikill á báða bóga. Allir íslenzku ráðherrarnir stað- festu svo samþykki sitt við frumvarp- ið með undirskrift sinni. Hundrað daga þing Hálfri stundu fyrir hádegi þennan sama dag var boðaður fundur í sam- einuðu Alþingi, þinglausnafundur. Forseti, Jóhannes Jóhannesson, mælti m. a. á þessa leið: „Stjóm Dana og þing hafa sýnt íslandi það bróðurþel og þann sóma að senda hingað fjóra fulltrúa til þess, með óbundnu umboði, að semja við stjórn íslands og Alþingi sem jafnréttháa samningsaðilja um sam- band landanna í framtíðinni. Til þess- arar farar hafa Danir valið fjóra af sínum vitrustu, víðsýnustu og hleypi- dómalausustu mönnum, enda er ár- angurinn af komu þeirra og samn- ingaumleitunum orðinn sá, að þeir annars vegar og íslenzka stjórnin og Alþingi hins vegar hafa orðið ásátt um frumvarp til sambandslaga milli Danmerkur og íslands, sem gera má sér beztu vonir um, að báðir þjóð- ir fallist á, og er það verður að lög- um, má vænta þess, að það verði báðum þjóðum til sóma og gagns, að ágreiningur sá, sem því miður svo oft hefur verið milli bræðraþjóðanna, hverfi úr sögunni, en bræðralagið eflist og samvinnan aukist til gagns og ánægju fyrir báðar þjóðir. Þetta þing er orðið hið lengsta, sem haldið hefur verið; það hefur nú staðið yfír síðan 10. apríl, eða í 100 daga. En það er trúa mín, að það muni og lengi í minnum haft, ekki vegna þess, hve lengi það stóð, heldur vegna hins, að það bar gæfu til að komast að niðurstöðu um stór- mál það, sem ég minntist á, að því er ég treysti, á viðunandi hátt. Ég bið drottin að blessa störf þessa þings og að varðveita fóstuijörðu vora á þessum mjög svo erfiðu háska- tímum.“ Þökk fyrir komuna Daginn áður sagði Morgunblaðið í ritstjórnargrein um veru nefndar- Sambandslaganefndin Sambandslaganefndin í garði Alþingishússins. Frá vinstri: Magnús Jónsson, Bjarni Jónsson frá Vogi, Chr. Fr Hage, Fr. J. Borbjerg, Jóhannes Jóhannesson, J. Chr. Christensen, Einar Arnórsson, Erik I. Arup, Gísli Isleifsson, Þorsteinn M. Jónsson, Þorsteinn Þorsteinsson og Svend A. Funder. Baráttan fyrir fullveldinu HÉR fer á eftir stuttur kafli úr bók Matthíasar Johannessen um sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar fram til ársins 1918, en bókin heitir Klofningur Sjálfstæðis- flokksins gamla 1915, undanfari og afleiðing: Löng og merkileg saga er að renna skeið sitt á enda. Margt hefur gerzt og sumt misjafnt frá því þess- ir menn hittust fyrst með ólíkt vega- nesti en eina þrá, að ísland yrði fullvalda ríki. Skúli Thoroddsen og Björn Kristjánsson höfðu á sínum tíma verið í hópi einörðustu stuðn- ingsmanna dr. Valtýs Guðmunds- sonar gegn landshöfðingjavaldinu og Heimastjórnarflokknum, hinir landvarna- og sjálfstæðismenn. Nú snúa þeir enn einu sinni bökum sam- an og sigla ásamt gömlum andstæð- ingum, sjálfstæðisfleyinu hraðbyri inn í nýja og vonandi bjarta fram- tíð, með íslenzkan siglingafána við hún, en hann hafði ávallt verið eitt helzta hugsjónamál þeirra. Að vísu tókst þeim aldrei að ná þeim áföng- um, sem Hannesi Hafstein og Jóni Magnússyni lánaðist, því að Dönum þóknaðist ekki að hlusta á svo há- væra og kröfuharða andstæðinga. En aldrei verður því neitað, ef hafa skal það er sannara reynist, að með aðhaldi sínu og hugsjónum áttu þeir örlagaríkan þátt í þróun mála. Sanngjarnt má því teljast að þeim skyldi auðnast að eiga aðild að þeirri stjórn, sem að lokum sigldi sjálf- stæðisskútunni í höfn. En eins og af þessu yfirliti má sjá, hrikti oft í flokknum og munaði litlu að innvið- irnir brystu. Og enn urðu átök í flokknum. í bréfi frá Jóhannesi bæjarfógeta til dr. Valtýs segir svo 22. ágúst 1917: „Nú eru þeir atburð- ir að gjörast á þinginu að Bj. Kristj- ánsson er að fara úr ráðherrastöðu og í Landsbankann aftur, en Sig. Eggerz kemur í stað hans. Bj. Kr. er búinn að missa allt traust í sínum flokki.“ Þannig hafa örlögin oft leikið Sjálfstæðisflokkinn grátt. Hann hef- ur verið sterkur og sameinaður í andófi, en veikur og sundraður í meðbyr. Það dregur að vísu nokkuð úr þeim ljóma, sem á hann hlýtur að falla í augum hvers góðs íslend- ings, auk þess sem sjálfstæðismenn voru ekki alltaf vandir að meðulum, t.a.m. hlýtur það að stinga í augu að sjá í fundagerðarbókum flokksins svo fánýtt ráðabrugg eins og það, að reyna að fá felld niður eftirlaun ráðherra (Hannesar Hafsteins) og skáldastyrk eins helzta og baráttu- glaðasta stuðningsmanns hans, Jóns Olafssonar ritstjóra.Æn hvernig sem á innri átökum sjálfstæðismanna stendur, má segja um þá, að þeim var ekki skapað nema skilja. Sjálf- stæðisfleyið siglir oftast erfiðan sjó. Stundum hverfur það í öldudal per- sónulegs rígs og valdastreitu en skýtur ávallt upp aftur. íslenzka þjóðin þarf á þessu fleyi sínu að halda. í röðum sjálfstæðismanna voru alla tíð úrvalsmenn, stefnumót- andi, hugsjónaríkir og stoltir fyrir hönd þjóðar sinnar. Þeir hefðu átt skilið að hafa heilladísina oftar sín megin, þótt vafasamt sé að það hefði flýtt fyrir sjálfstæði íslands. En sú staðreynd er einnig athygl- isverð, og e.t.v. táknræn, þegar litið er yfir sögu þessa tímabils, að ís- land nær fullveldi sínu í stjórnartíð Jóns Magnússonar, gamalgróins heimastjórnarmanns og samheija Hannesar Hafsteins, en formaður islenzku sambandslaganefndarinnar er Jóhannes Jóhannesson, sem mjög kom við sögu uppkastsins, yfírgefur sjálfstæðismenn, hallast að stefnu Hannesar og hafnar að lokum í röð- ( um heimastjórnarmanna. Aðrir í ís- lenzka hluta nefndarinnar koma mjög við sögu í yfirliti þessu, Bjarni Jónsson frá Vogi, Einar Arnórsson og Þorsteinn M. Jónsson. Margt stuðlaði að því, að samn- ingar tókust 1918, ekki sízt það, að augu Dana beindust eftir heims- styijöldina fyrri að vandamálum sem nærtækari voru en ísland. Samt skyldi enginn halda, að fullveldi ís- lands 1918 hafi fengizt átakalaust. Síður en svo. Um það ber fundagerð- arbók Sjálfstæðisflokksins órækast vitni. Má t.a.m. þessu viðvíkjandi vitna í fundargerðina frá 12. júní 1917. En áður er rétt að geta þess, að jafnaðarmenn í Danmörku höfðu verið afskiptalitlir um sjálfstæði ís- lands og skilningur þeirra takmark- aður. Hafa þeir t.a.m. búizt við, að íslendingar gætu sætt sig við sam- eiginlegan þegnrétt. En það lá auð- vitað víðsfjarri íslendingum, svo miklu fámennari þjóð, að fallast á slíka lausn. Borbjerg, fulltrúi dan- skra jafnaðarmanna, varðþess fljótt vlsari, er hann kom til íslands að taka þátt í störfum Sambandslaga- nefndarinnar 1918, því að hann kallaði fulltrúa verkamanna á Al- þingi, Jörund Brynjólfsson, á sinn fund og bjóst við, að hann mundi HER eru þeir ungir í Kaupmannahöfn Jón Magnússon (í miðju, forsæt- isráðherra 1918) og Jóhannes bæjarfógeti Jóhannesson, forseti Samein- aðs þings 1918 og formaður Sambandslaganefndar (til hægri), og með þeim á myndinni, lengst t.v., er Páll Einarsson, síðar fyrsti borgarstjór- inn í Reykjavík. innar, að hvernig svo sem frumvarp- ið verði, sem samkomulag hafi náðst um, þá verði að telja það lán mikið fyrir báða málsaðilja, að Danirnir skyldu koma hingað. Vegna þess hafí þeim hlotið að verða ljóst, hversu ólíkar þjóðir Danir og íslendingar séu að mörgu leyti. Hitt sé ofur eðlilegt, að Danir, sem aldrei hafi komið hing- að, geri sér villandi hugmyndir um íslenzku þjóðina. „En þótt viðdvöl þessara manna hafi orðið stutt, þá efumst vér eigi um það, að þeir hafí nú glöggari skilning á því, hvers vegna Islendingar þykjast réttbornir til sjálfstæðis, heldur en þeir mundu hafa haft, ef sendinefnd hefði farið héðan til Danmerkur. En einrnitt þetta: þekkingarskortur Dana á ís- landi og íslendingum yfirleitt hefur löngum orðið verri þrándur í götu sjálfstæðismáls vors en ósanngirni af Dana hálfu.“ Að lokum segir blað- ið, að vér getum með góðum huga þakkað þeim fyrir komuna. Munu svo flestir Islendingar hafa mælt, er nefndin var á förum héðan. Dönsku nefndarmennirnir sendu, áður en þeir fóru, landsspítalasjóðn- um hér eitt þúsund krónur að gjöf. Að kvöldi hins 18. júlí sátu ráð- herrar og íslenzku nefndarmennimir veizlu um borð í Islands Falk í boði Hages verzlunarmálaráðherra. Kvöddust menn þar sáttir og glaðir. í veizlulok, klukkan rúmlega hálfell- efu, skaut Fálkinn 17 fallbyssuskot- um til kveðju, en á bryggjunni stóð múgur manna og árnaði dönsku nefndinni heilla og góðrar heimfarar. Stjórnaði Jóhannes Jóhannesson þeim kveðjum. Síðan létti skipið ak- kerum og flutti dönsku sendimennina til Kaupmannahafnar. Fylgdu þeim beztu óskir alls þorra íslendinga. Hvað mátti segja? Fréttastofa íslands fékk leyfi til að birta eftirfarandi tilkynningu um sambandsmálið 18. júlí og sendi hana öðrum fréttastofum á Norðurlöndum: „Samningaumleitanir þær, sem hér hafa fram farið milli dönsku sendinefndarinnar og Alþingis og ís- lenzku stjómaiinnar, hafa leitt tíl fullkomins samkomulags um frum- varp til sambandslaga fyrir hin tvö lönd í framtíðinni, og þar með ætti öllum hinum mörgu og gömlu deilu- málum að vera ráðið til lykta. Frumvarpið, sem var undirskrifað í dag, hefur fengið samþykki íslenzku stjórnarinnar, og nær allir þingmenn hafa fallizt á það. Þegar danska sendinefndin kemur til Kaupmannahafnar, sem sennilega verður um miðja næstu viku, mun frumvarpið fengið dönsku stjórninni í hendur ásamt tillögu um, að það verði borið undir samþykki danska ríkisþingsins. SJÁ SÍÐU 34. fallast á sameiginlegan þegnrétt, en Jörandur aftók það með öllu, svo að ekki fór á milli mála. En forystu- menn jafnaðarmanna hér, Jón Bald- vinsson og Ólafur Friðriksson, köll- uðu saman fund í Jafnaðarmannafé- laginu, sem stofnað hafði verið fyrr á árinu, og höfðu undirbúið að sam- þykkja sameiginlegan þegnrétt Dana og íslendinga að ósk danskra flokksbræðra sinna. Jörundur hafði gengið í Jafnaðarmannafélagið og fór á fundinn. Þegar forystumenn- imir drógu upp tillögumar um þegn- réttinn, spurði Jörundur, hvort þeim væri „virkilega alvara að samþykkja þetta,“ og svöruðu þeir því játandL En Jörandur lýsti þá yfir því, að hann mundi beijast af alefli gegn þessu. Er tillagan hafði verið sam- þykkt, gekk hann af fundi og hélt beina leið niður í þing, skrifaði úr- sagnarbréf úr Jafnaðarmannafélag- inu, sendi dreng með það undireins, og barst úrsögn hans á fundinn, áður en honum var slitið. Og enn skýrir fundargerð Sjálf- stæðisflokksins frá 12. júní 1917 þá erfiðleika, sem við blöstu. Þá var miðstjórn flokksins öll, nema Skúli S. Thoroddsen, saman komin hjá Jóni Magnússyni, forsætisráðherra, sem hafði hvatt hana til fundar við sig, svo að hann mætti skýra henni frá aðgerðum sínum í utanför sinni „út af erindi flokksstjórnarinnar 4. f.m., sérstaklega um siglingafána, SJÁ SÍÐU 34.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.