Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 274. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						54

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993

2)1969 Universal Press Syndicate

Tfa/m. er bö/rw. að Otc^ i 16 KLukku-

séundir samfieytb."

Ast er	•      *

JJP	'    1

	

6-3o	

stundum erfið	viðureignar

TM Reg. U.S Pal Olí. — all rights reserved • 1993 Los Angetes Times Syndicate	

POLLUX

i   'v*

l'    ip ' I

Tvo miða. Ystu sæti, hvort á     Rólegur    Sigurður.    Doktor

sínum endanum, takk.                 Bjarni gefst aldrei upp.

HOGNI HREKKVISI

PÆú

BREF TTL BLAÐSESfS

Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329

UMÆÐI

Frá Haraldi Guðnasyni:

í MORGUNBLAÐINU var fyrir

nokkru greinarkorn um æði, æðis-

lega landsmenn. Stutt í æði og

múgæsing, nefnt m.a. pizzu-æði,

laxa- og loðdýraæði, sem varð oss

dýrt. Hér kemur lítil viðbót um æði.

Kaup-æði er árvisst á þessum

tíma. Þá liggur leiðin til Newcastle,

Glasgow og fleiri staða, tómar tösk-

ur út, fullar heim.

Al-æði var áberandi þegar Jón

stórbankastjóri lofaði álveri norðan,

austan og sunnan. Eftir stendur

örreytiskot á útskaga.

Sportveiði-æði. Frá því fyrsti

laxinn hefur verið veiddur með há-

tíðlegri viðhöfn birtast myndir og

aflafréttir dag hvern í öllum dag-

blöðum og mörgum fjölmiðlum öðr-

um þar til tímabilinu lýkur að

hausti. Lax, lax og aftur lax. Hver

veiddi þann stóra í ár?

Jeppa-æði. Fínt æði ef jepparnir

kosta 4-5 milljónir. Stöðutákn og

til margra hluta nytsamlegir. Jepp-

ar og vélsleðar eru hin heppilegustu

tæki til rjúpna- og gæsaveiða og

best í dagsbirtu. Eftir veiðitúrinn

höldum við partý og loks gleðileg

rjúpnajól.

Geim-æði. Nokkur hundruð

manns biðu við rætur Snæfellsjök-

uls komu geimskips. Lendingarljós

tendruðu, dimmt af nóttu. „Fólk

hélst í hendur og umlaði í kór",

stóð í einu dagblaðinu. Von á lend-

ingu skammt frá Hellissandi.

Myndatökulið mætt frá CNN. Sum-

ir sáu ljós á einhvers konar gand-

reiðum, en geimfarið með geimver-

unum lenti ekki af ókunnum ástæð-

um.

Samninga-æði. Hver veit tölu á

öllum myndunum í öllum fjölmiðlum

af Benedikt smið og forseta ASÍ/

ábúðarmiklum forseta VMSÍ, for-

manni og talsmanni VSÍ Og öllu

fylgdarliðinu? Nú skyldi semja.

Ekki ASÍ og VMSÍ við ySÍ (at;

vinnurekendur) heldur ASÍ, VMSÍ

og VSÍ við Davíð ráðherra og Co.

um „kjarabætur". Vikur liðu og

mánuðir og hvorki gekk né rakf

Nýja samfylkingin hélt ótal kaffi-

brúsafundi, fæddist fótur, stór

áfangasigur stóru stafanna. Davíð

hafði reyndar nóg með að passa Jón

Bald og kratagengið og Friðrik

hreint ekki aflögufær úr sínum

kassa. Davíð bauð þá að Benedikt

og félagar mættu velja um A-leið

eða B-leið. „Hver kýs nú A, hver

kýs nú B." ASÍ og VMSÍ kaus A

en VSÍ kaus B en sætti sig við A.

„Hagur batnar um 1.200 til 1.700

kr. á mánuði!"

Sameiningar-æði. Allir fjölmiðl-

ar með æði þetta vikum saman.

Frásagnir af ótal fundum á ýmsum

landshornum, fundum sem snertir

nokkra menn á hverjum stað en

landsmönnum í heild kemur ekkert

við. Jóhanna félagsmála sendi

Braga á þessar samkundur flestar

og er undur hvesu trúr hann er sinni

húsmóður sem kynni að segja sem

svo: „Gersemi ert þú Bragi —

hversu þú ert mér eftirlátur. Skalt

þú fara vel að pöplinum í fyrstu en

makki hann ekki rétt skal mér að

mæta þó seinan verði."

Flökku-æði. Veiran mjög út-

breidd meðal almennings og lands-

feðra og landsmæðra. Þrettán fóru

á fundu í Brasilíu. Þröstur fékk líka

að fara, sá sem átti að gera Kron

að stórveldi! Fundir þessir gagns-

lausir sögðu þeir sem fyrr fóru en

kokkteilpartýin góð. Margir ráð-

herrar hafa þurft að „fara erlendis"

um sinn og gott um það að segja,

enda stjórnaði Þorsteinn þá átta

ráðuneytum og fór létt með það.

Lottó-æði. Tilkomumikil sjón að

sjá kassana, raðir sem brátt fara

að mala Háskóla íslands gull.

„Tengja, tengja" og það sem fyrst.

Er ekki sjálfgefið að stofnanir HÍ

verði kassavæddar fyrst? Og Al-

þingkfyrir kassana okkar allra og

þingmönnum til afslöppunar eftir

heitar umræður?

HARALDUR GUÐNASON,

Bessastíg 12,

Vestmannaeyjum.

„Pétur með svellu sinni"

Frá herra Sigurbimi Einarssyni:

PÉTUR Pétursson, þulur, er lang-

minnugur á söguleg atvik og hið

besta laginn á að grafa upp fornar

fréttir og gera þær lystilegar og

fróðlegar. Ekki nýtur hann þessara

yfirburða sinna í þeim pistli, sem

hann birtir hér í blaðinu í gær,

enda ekki efni til þess. Það getur

verið þarflegt og gott að horfa aft-

ur, en ratvís verður enginn í neinum

skilningi, sem fjötrast svo við liðna

atburði, að hann getur ekki séð í

réttu ljósi það sem er að gerast í

kringum sig á líðandi stund.

Ég lét frá mér fara greinarkorn

til stuðnings flóttamanni frá stríðs-

hrjáðu landi. Þá sýður upp úr pottin-

um frá Pétri, þar sem gömul gremja

liggur í löggum og er með ólíkindum

að hún skuli enn geta orðið svo

þrútin. Hversu réttmæt og rökstudd

sú gremi er læt ég ósagt. En hún

veldur því, að hann gerir sitt til

þess að beina athygli frá tímabæru

máli og að öðru/sem er löngu fyrnt.

Slíkt er meira óþurftarverk en hann

hefur mannsparta til að vinna vilj-

andi. Mig beitir hann gamalkunnu

bragði: „Þér ferst að gelta." Það

bragð hefur oft gefist vel, þegar

menn vildu eyða máli fyrir öðrum.

Ekki væni ég vininn Pétur um

þá hugsun, að enginn sá, sem hann

taldi miður uppveðraðan en skyldi

út af Gervasoni á sínni tíð, megi

opna sig upp frá því eða reyna að

mæla þarft án þess að vera sveiað.

En hitt verður hann að heyra, að

það er vanheilsa að fá mál á heil-

ann. Ennfremur verð ég að lýsa

yfir því, að það tvennt, sem hann

er að bera saman, er gersamlega

ósambærilegt og að flokka það

undir eitt er sjónskekkja, sem nálg-

ast blindu.

Því miður hafa ýmsar syndir ver-

ið drýgðar í veröldinni á þeim 13

árum, sem liðin eru síðan Gervasoni

vildi koma sér undan lögbundinni

herskyldu í landi sínu. Ég tel mig

hafa fyllstu samúð með öllum, sem

vilja ekki bera vopn. En ég sé ekki

nokkur tök á því fyrir íslendinga

að veita þeim öllum athvarf. Per-

sónuleg örlög eru ævinlega mikil-

væg, hver sem í hlut á og hverjir

sem málavextir eru. En menn þurfa

í viðbrögðum sínum og sér í lagi í

opinberum ráðstöfunum að gera sér

einhverja grein fyrir hlutföllum.

Uppblásin vandlætingasemi í ótíma

og hrokafull dómsýki er ekki til

góðs.

SIGURBJÖRN EINARSSON,

biskup.

Víkverji skrifer

Góðkunningi Víkverja á Vest-

fjörðum hafði samband nú

fyrir skömmu og gagnrýndi harð-

lega bruðl og óráðsíu ráðamanna

þessarar þjóðar, á sama tíma og

heilu byggðarlögin á Vestfjörðum

væru við það að leggjast í auðn.

Ástæða reiði góðkunningjans að

þessu sinni var sú, með hvaða hætti

verklokum sjóvarnargarðs við höfn-

ina í Bolungarvík var fagnað á dög-

unum. Vestur á ísafjörð segir hann

að samgönguráðherra og flestir

þingmenn kjördæmisins og fleiri

gestir hafi flogið með Fokker-flug-

vél Landshelgisgæslunnar fyrir há-

degi fimmtudagsins 19. nóvember.

Hálfri stundu síðar hafí svo flugvél

frá íslandsflugi lent á ísafjarðar-

flugvelli, með viðskiptaráðherra og

annan gest með honum innanborðs.

Varðskip hafi síðan beðið ráða-

mannanna í ísafjarðarhöfn og hafi

flutt þá sjóleiðina til Bolungarvíkur,

en Fokker Gæslunnar hafi verið

látinn standa á ísafjarðarflugvelli

lungann úr deginum, til þess að

bíða   ráðamannanna,   svo   flytja

mætti þá aftur suður.

xxx

Kunninginn segir að það hafí

verið að ósk bæjarstjórans í

Bolungarvík, sem varðskipið flutti

ráðamennina sjóleiðis frá ísafirði

til Bolungarvíkur, þar sem hann

hafi talið mikilvægt að þeir gætu

kynnt sér gerð varnargarðsins af

sjó. Eftir vígshiathöfn voru síðan

veisluhöld hjá Bolungarvíkurbæ, en

þegar kvöldveisla hófst, mun hluti

fyrirfólksins að sunnan hafa verið

farinn af staðnum. Er þetta einhver

hemja? Hvað skyldu flutningar

ráðamannanna, flugleiðis, með

tveimur flugvélum og sjóflutning-

arnir með varðskipinu hafa kostað?

Hver skyldi svo hafa borgað brús-

ann? Gátu þessir menn ekki bara

flogið vestur með áætlanaflugi

Flugleiða? Gátu þeir ekki ekið þenn-

an spotta frá ísafirði út í Bolungar-

vík eins og Pétur og Páll þurfa að

gera daglega? Var nú ekki nær að

flytja samgönguráðherrann land-

leiðina, til þess að hann upplifði á

þessum árstíma þær ógnir sem því

fylgja að aka Óshlíðina? Það er jú

sá ferðamáti sem Vestfirðingar

verða alla jafna að sætta sig við,

hvernig sem viðrar. Ekki kalla þeir

inn varðskip til þess að flytja sig á

milli staða, þótt veður gerist válynd.

xxx

Satt best að segja er Víkverji

ekkert undrandi á þeirri vand-

lætingu sem gætt hefur í máli vest-

firskra viðmælenda hans, vegna

þessa uppskrúfaða stúss út af ein-

um sjóvarnargarði. Svona háttalag

er að mati Víkverja á engan hátt

boðlegt, einkum og sér í lagi þegar

litið er til atvinnuástands og afla-

brests á Vestfjörðum, þar sem

ástandið er víða orðið svo svart, að

ekkert annað en lokanir og fólks-

flótti virðast blasa við.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60