MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993 55 i 4 4 < < Skák í Grímsey og fleiri hugleiðingar Frá Eddu Þráinsdóttur: í GREIN í Morgunblaðinu 3. nóv- ember um skák í Grímsey eru heimildir m.a. hafðar eftir Friðriki Ólafssyni. Ekki virðist Friðrik minnast á það, að fyrrum aðstoð- armaður hans frá Portoros 1958 og sá maður sem mest^ skrifaði um frægðarferil Friðriks Ólafsson- ar á sínum tíma, Freysteinn Þor- bergsson, hefði haldið skákmót í Grímsey. Það þótti þó frumlegt á sínum tíma. Freysteinn Þorbergs- son hélt á áratugnum 1960-1970 fjölda námskeiða, fjöltefla og skákmóta til að viðhalda þeim mikla skákáhuga sem afrek Frið- riks hafði kveikt, þegar hann varð fyrsti stórmeistari íslendinga í skák. Hafði Freysteinn í huga að koma síðar heimsmeistaraeinvígi til landsins sem tókst svo 1972. í bók Freysteins Jóhannssonar og Friðriks Olafssonar sem út kom eftir einvígið, er lítið gert úr fram- lagi Freysteins Þorbergssonar auk ýmissa rangfærslna sem þeir hafa ekki leiðrétt. Freysteinn Þorbergsson vann í meir en áratug, bæði innan lands og utan, að því marki að koma heimsmeistareinvígi til landsins. Sú gífurlega vinna sem hann lagði á sig var unnin í sjálfboðavinnu, enda unnin af hugsjóninni einni saman. Starf brautryðjandans er alltaf erfitt og stundum misskilið. Hvers vegna Friðrik Ólafsson kaus að snúa baki við Freysteini í einvígis- málinu veit ég ekki, það er hans mál. Þess ber þó að gæta að Frey- steinn fór ekki troðnar slóðir, en valdi þær leiðir sem hann taldi vænlegastar til árangurs. Trúlega hefur það ekki alltaf fallið í kram- ið hjá ýmsum þröngsýnum íslend- ingum og ef til vill hefur Friðrik verið undir þrýstingi þegar sú ákvörðun var tekin. En hver var Freysteinn Þor- bergsson? Freysteinn ólst upp sem munað- arlaus frá fímm ára aldri, vegna veikinda móður sinnar. Honum tókst að lyfta sér upp úr örbirgð og einstæðingsskap til menntunar, dirfsku og þeirrar þekkingar sem þurfti til að koma heimsviðburði til íslands. Samkvæmt forskrift fáránleikans er Freysteinn lítil- lækkaður fyrir það verk sitt, til dæmis í bókum þeim sem út komu eftir einvígið. í mínum huga er það aðeins stórmennum sem tekst að brjótast úr viðjum vanans og losa sig svo rækilega við fordóma og hömlur, að þeim takist að fara sínar eigin leiðir. Hefja sig til flugs, að geta unnið af alhug að því marki sem þeir hafa sett sér. Freysteinn vann undir kjörorðinu íslandi allt". Stórviðburðir draga að sér aðra stórviðburði, eða svo taldi Frey- steinn. Það kom á daginn að heimsmeistaraeinvígið dró á eftir sér heimsviðburði eins og Frey- steinn hafði séð fyrir, svo sem leið- togafundi. Strax árið eftir var leið- togafundur Nixons og Pompidou haldinn í Reykjavík og síðar leið- togafundur Reagans og Gorbatsj- ovs. Margir æðstu menn þjóðar- innar hafa notið athygli þeirrar sem slíkir fundir leiða af sér, og fengið tækifæri sem annars hefðu ekki legið á lausu. Það er síður en svo að það sé mér á móti skapi, því til þess var leikurinn einmitt VELVAKANDI ANÆGJULEGUR FYRIRLESTUR Guðbjörg Helgadóttir hringdi til Velvakanda og vildi koma á framfæri þakklæti til Guðrúnar Guðjohnsen, formanns Hunda- ræktarfélags íslands, fyrir frá- bæran fyrirlestur um dómara- starf á hundasýningum, sem hún hélt í Sólheimakoti sl. sunnudagskvöld þann 28. nóv. Guðbjörgu þótti leitt að ekki skyldu fleiri hundaeigendur mæta á fyrirlesturinn en raun bar vitni. TAPAÐ/FUNDIÐ Leðurjakki tekinn í misgripum SVARTUR leðurjakki var tek- inn í misgripum í erfisdrykkju 5 samkomusal KK við Vestur- braut 17 í Keflavík þann 1. október sl. Annar svartur leður- jakki var skilinn eftir. Þeir sem kannast við þetta eru beðnir að hafa samband við Guðbjörgu í síma 92-12723. Gleraugu fundust GULLSPANGAGLERAUGU í brúnu gleraugnahúsi fundust á Freyjugötu sl. laugardag. Eig- andinn má vitja þeirra í síma 27515. Ullartrefill tapaðist GRÆNN ullartrefíll með kögri og bláu silkifóðri með frönsku munstri tapaðist í austurborg- inni fyrir rúmum mánuði síðan. Finnandi vinsamlega hafi sam- band í síma 814888 á kvöldin. GÆLUDYR Óskar eftir búri TVÖ búr fyrir hamstra óskast og fylgihlutir vel þegnir. Uppl. hjá Ingibjörgu í síma 71237 eftir kl. 17. gerður. Ég vona að sem flestir hafí sem mest og best notið þess- ara stórviðburða í sögu þjóðarinn- ar. Að lokum óska ég íbúum þessa lands allra heilla og vona að þeim beri gæfa til að láta samferða- menn sína njóta sannmælis, hvort sem þeir eru lífs eða liðnir og EDDA ÞRÁINSDÓTTIR, aðalgjaldkeri hjá innheimtudeild Hafnarfj'arðarkaupstaðar. Pennavinir Bandarískur piltur vill skrifast á við 14-18 ára stúlkur: Michael Knoedler, 141 RD2, Landenberg, PA 19350, U.S.A. Frá Ghana skrifar 26 ára stúlka með margskonar áhugamál: Hannah Aquah, P.O. box 997, Cape Coast, Ghana. Hollenskur frímerkjasafnari vill komast í samband við íslenska safn- ara: A. J. Thijs, Leemstraat 1A, 4735 SP Zegge, Nederland. LEIÐRETTINGAR Setningar féllu niður í grein Viðars Gíslasonar, Tölvur og fatlaðir, í blaðinu á sunnudag féllu nokkrar setningar niður í upp- hafí greinarinnar og er kaflinn því birtur aftur um leið og beðist er velvirðingar á mistökunum: Tölvur hafa komið mörgum fötl- uðum vel að notum í daglegu amstri. Reyndar hafa tölvur breytt lífí margra fatlaðra og fjölfatlaðra. Þær hafa gefið þessu fólki mögu- leika á að taka þátt í hinu daglega lífi líkamlega heilbrigðs fólks. Gefa þeim sem eiga erfitt með tjáningu vegna fötlunar möguleika á að tjá sig með því að skrifa á tölvuna. Tölvan gefur fjölfötluðum einnig mikinn möguleika til að stunda nám og jafnvel seinna meir atvinnu. Ragnt naf n í lista yfir sigurvegara á íslands- meistaramóti í samkvæmisdönsum misritaðist nafn eins þátttakand- ans, Laufeyjar L. Sigurðardóttur, sem sögð var Einarsdóttir. Beðist er velvirðingar á því. Ekki elzta félagið I frétt í Fólki í fréttum" í blað- inu í gær, þar sem sagt var frá afmæli Braga Hlíðberg, var fullyrt að Félag harmonikuunnenda væri elzta harmonikufélagið á íslandi, stofnað 1947. Ólafur Þorvaldsson, sem var einn stofnenda Harmoniku- félags Reykjavíkur, vill leiðrétta þessa fullyrðingu, þar sem Harmon- ikufélag Reykjavíkur var stofnað árið 1936 og var við lýði allt fram til ársins 1943, er það lagðist af. Það félag er því eldra en Félag harmonikuunnenda. Vatnsgeymirinn við Háteigsveg I myndatexta með mynd, sem fylgdi frétt, þar sem þess var minnst að 50 ár væru liðin frá því að Reykjaveitan var tengd við hús í Reykjavík, var talað um yatns- geyminn á Háaleiti". Ekkert örnefni mun til, sem ber það nafn. Því er rétt að tala um vatnsgeyminn við Háteigsveg, en þegar myndin, sem birtist í blaðinu í gær, var tekin, var Háaleitisbraut auðvitað ekki til, en nafn hennar mun hafa trufl- að ritara myndatextans. Hið rómaða 35 rétta jolahlaðborð Skúla Hansen Verð: í hádeginu kr. 1.695, Á kvöldin kr. 2.395,- Verið velkomin á Matreiðslumeistarar: Skúli Hansen og Jóhann Sveinsson. Skólabrú Veitingabús við Austurvöll Pantanir ísítna 62 44 55 ,**W*Jfe. AMBRA TOLVU FRA NYHERJA í tengslum við Tilboðstíöindi Nýherja fór fram spurningaleikur hér á síöu Velvakanda. Mörg þúsund íslendingar tóku þátt í leiknum og sendu inn svör sín viö spurningunum. í gær, 30. nóv., var dregið úr réttum lausnum og er vinningshafinn: Helga Valdimarsdóttir Sæviðarsundi 25 Við óskum Helgu til hamingju meö þennan óvænta jólaglaðning frá Nýherja. Öðrum þátttakendum í spurningaleiknum þökkum við þann áhuga sem þeir sýndu með því að senda okkur svör sín. Við viljum jafnframt minna á áframhald Tilboðsdaga í verslun Nýherja sem standa munu fram að áramótum. Við bjóðum yfir 60 frábær tilboð með miklum afslætti - svo miklum aö jafna má við vænan vinning! LiHu við í verslun Nýherjg í Skaftahlíð 24. Við höfum opið glla laugardagg frá kl. 10:00-16:00 frgm gð jólum. NÝHERJI SKAFTAHLlÐ 24 - SlMI H 77 00 Alliaf skrefi á unáatt <Si iella Bankastræti 3, sími 91-13635. KOLNARVATN ÍANDIILMUR H öfðar til fólks í öllum starfsgreinum!