seei aaawiaaaa .r HuoAauinvaiM aiGAiawu dc MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993 ----..-- - IMý bók komin út um Michael Jordan Ég stökk bara upp, upp fyrir þá báða og tróð!" MICHAEL Jordan er snjallasti körfuknattleiksmaður allra tíma." Þannig hefst bók um þennan bandaríska íþróttamahn, sem ný- lega kom út hér á landi. Jordan lék með Chicago Bulls í bandarisku NB A-deildinni, og stýrði liðinu til sigurs þrjú ár í röð, síðast nú í vor, en Iagði skóna á hilluna á haustdögum, ölhnn á óvart. í bókinni er ferill Jordans rakinn allt þar til hann hætti að keppa með Chicago Bulls fyrir stuttu. Þar segir meðal annars um hann á yngri árum: En nú var komið að þætti móður náttúru. Líkamlega var Michael Jord- an ekki ólíkur öðrum strákum á hans aldri. En á einu ári hækkaði hann svo að um munaði, úr 1,83 í 1,95 og ekki leið á löngu þar til hann tók að vekja athygli á landsvettvangi. Háskólavist Jordans var tryggð og það getur hann þakkað Mike Brown, frjálsíþróttaþjálfara í Laney-mennta- skólanum. Hann hringdi til Deans Smiths körfuboltaþjálfara hjá háskól- anum í Norður-Karolínu og sagði við hann: Ég er kannski með leikmann handa þér." Hann sagði honum reynd- ar ekki að Jordan væri mikill stuðn- ingsmaðuc hins háskólans í ríkinu, Sá besti MICHAEL Jordan, besti körfuknatt- leiksmaður sem uppi hefur verið. sem jafnframt var aðalkeppinautur Norður-Karolínuháskóla. Þetta stafaði meðal annars af því að átrúnargoð hans um þær mundir var David Thompson sem lék með því liði. Jordan hafði skoðað sérstaklega leikstíl Thompsons, sem var mjög frægur fyr- ir stökktækni sína. Það eina sem þurfti til að sannfæra Jordan um að ganga til liðs við Norð- ur-Karolínuháskóla var sumardvöl í körfuknattleiksbúðum í Chapel Hill. Hann efaðist reyndar lengi um að hann hefði næga getu til að leika með í Atlantshafsstrandardeildinni eða þar til hann lék valleikinn. Þar lék hann gegn þekktum leikmönnum Tar Heels eins og Al Wood, Mitch Kupchak og James Worthy (tveir þeir síðarnefndu léku með Los Angeles Lakers á níunda áratugnum). Talsverður fjöldi áhorf- enda var á leiknum og Jordan minnist þess að hafa verið talsvert taugaó- styrkur, eins og hlýtur að teljast vera eðlilegt með 18 ára gamlan pilt, sem var að fara að leika gegn þrautreynd- um leikmönnum með háskólaliði. Wood varðist gegn honum þegar skammt var til leiksloka og ljóst var að næsta karfa yrði úrslitakarfan. Hann dró Wood til sín og sömuleiðis Geoff Crompton. Jordan hélt að hann væri innilokaður og eins og hann sagði frá síðar: Ég stökk bara upp, upp fyrir þá báða og tróð!" Allir eru svo gráðugir Nilsína Larson Einarsdótt- ir 15 ára úr Njarðvík segir sína skoðun á græðgi í þjóð- félaginu. ÞAÐ er kreppa í landinu og allir vilja fá allt upp í hend- urnar án þess að haf a nokkuð fyrir því. Heimurinn er alveg að farast og öllum er alveg sama og fólk vill bara fá meira og gera meira fyrir sjálft sig. Fólk heimtar og heimtar og lemur svo bara næsta mann ef það fær ekki það sem það vill. Mér finnst frekjan hafa ágerst hjá unglingum síðustu árin, það eru alltaf einhver slagsmál og læti hjá ungling- unum en fullorðnir geta þó allavega rökrætt um hlutina. Auðvitað lenda fullorðnir líka í handalögmálum út af ein- tómri græðgi, en það er samt ekki í eins miklu mæli og hjá unglingum. Pólk þarf að taka sig á og minnka græðgina. Tala sam- an áður en það Iemur næsta mann í spað. Maður getur ekki leyft sér allt, maður verður að hugsa áður en maður framkvæmir hlutina. FRAIUIUNDA í TÓNABÆ: Við höfum opið sem hér segir: Mánudaga: 15-18 og 20-23. Þriðjudaga: 15-18 og 20-23. Miðvikudaga: 15-18. Fimmtudaga: 15-23. Föstudaga: 15-18. Annað hvert föstudagskvöld er haldið ball frá klukkan 20:30-23:30. í ÁRSELI: Opið hús frá 20 til 23 og 17 til 19 alla daga nema fimmtudaga. Morgunsala er í Árseli frá 9:30 til 10 og danssalurinn er opinn fyrir unglinga til 17. Nánari upplýs- ingar um dagskrá fást í síma 674044 og 671740. I ¦ fl fl »¦¦* C\3 ri *-* > %%M lí-iS Valur, 13ára: Já, til tíu. Það er ömurlegt. Rögnvaldur, 14 ára: Til tíu. Óskar, 14 ára. Eins og ég vil, en til tíu samkvæmt lögum. Anna Huld, 13 ára. Til tíu eða hálf ellefu á virkum dögum, en misjafnt um helgar.